Morgunblaðið - 28.07.1976, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1976
Sex milljónir
fyrir
eina ljósmynd
ÞKIR verða * fleiri, sem safna
gömlum Ijósmyndum og verð
myndanna eykst árvisst. Fyrsta
uppboðið á Ijósmyndum ein-
göngu var haldið fyrir fimm ár-
um I London en síðan hafa slík
uppboð færzt í vöxt, einkum á
Bretlandi og I Bandarfkjunum.
Meðfvlgjandi mynd af ieiðang-
ursskipinu „Terra Nova“, sem
Robert Scott notaði f leiðangri
sfnum á Suðurpólinn 1910—12,
seldist nýlega á uppboði hjá
Christie’s f London á £120 eða um
40.000,- fsl. krónur. Myndin var
tekin af Knglendingnum Herbert
Pointing og hafði hann að fyrir-
mynd málverk af svipuðu skipi f
fs, sem málað var af brezkum
málara u.þ.b. 100 árum fyrr.
Tema myndanna, vanmáttur
mannsins gagnvart almætti nátt-
úrunnar, átti eftir að verða að
kaldhæðnislegum raunveruleika,
þvf leiðangursmenn Scotts kom-
ust aldrei á leiðarenda.
Ljósmyndin var ein af 234, sem
boðnar voru upp hjá Christie's
listmunasalanum brezka.
Ekki fylgir sögunni, hvert hafi
orðið heildarverð ailra mynd-
anna. En á síðasta Ijósmyndaupp-
boðinu, sem haldið var í New
York, seldust 415 myndir á alls
185.240 dollara eða u.þ.b.
35.000.000.- ísl. krónur. Margar
þeirra mynda voru í syrpum og
fara slíkar myndefnissyrpur jafn-
an á miklu hærra verði en ein-
stakar ijósmyndir. Hæsta verð
sem greitt hefur verið fyrir eina
Ijósmynd, sem svarar 6.500.000,-
ísl. kr.t greiddi Bandaríkjamaður
fyrir mynd af skáidinu Edgar AIJ-
an Poe. Verðið á myndinni mun
þó vera vegna aðferðarinnar frek-
ar en myndefnisins. Myndir eftir
brautryðjendur á borð við Juliu
Margreti Cameron (1815—1897)
og Stieglitz seljast á hæsta verði
og skiptir litlu máli af hverju
þeirra myndir eru. En listrænt
gildi ljósmynda er nú ekki lengur
dregið í efa og eins og kom frain
hér að ofan, eru það gamlar ljós-
myndasyrpur með sameiginlegu
tema, sem seljast dýrast.
RA.UÐI^TTA/76
Unglingahátíö
að úlfljótsvatni um verslunarmannahelgi
Forsala aðgöngumióa
ogrútumiða erhafín
Með fyrstu 1000 aðgöngumiðunum
fylgja sérstök Rauðhettu-lukkutröll
AÐGÖNGUMIÐAR VERÐA SELDIR I SÖLUTJALDI
í AUSTURSTRÆTI OG UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI
í DAG OG NÆSTU DAGA FRÁ KL. 10—22.
RÚTUMIÐAR ERU SELDIR í UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI.
VERÐ AÐGÖNGUMIÐA ER KR. 3.500 OG RÚTUMIÐA FRÁ OG
TIL REYKJAVÍKUR KR. 1.400.
Vegna mikillar eftirspurnar er
vissara að kaupa miða sem fyrst.
„Nauðsynlegt
að fá tilbreytingu
þegar maður býr á eyju
Litið inn hjá Rúnu og Gesti Þorgríms.
Ein af myndum Rúnu. Ljósm. Mbl. — á.j.
VIÐ litum inn til Rúnu og Gests
Þorgrimssonar einn daginn i vik-
unni, en þau voru þá í óða önn að
pakka saman dóti sinu, þvi halda
skal til Kóngsins Kaupinhafnar i
júlilok til ársdvalar
Sigrún og Gestur héldu fyrir
nokkru sýningu i vinnustofu þeirra
við Laugarásveg ásamt Guðnýju
Magnúsdóttur Sýndu þau alls lið-
lega 100 verk og seldist mest af
þeim
Gestur ætlar að stunda nám við
Kennaraháskólann i Höfn. nema
kennslufræði og kennslutækni, en
Rúna ætlar að teikna og mála, vinna
og skoða sig um „Ég ætla að sjá
hvað er að gerast í listheiminum,"
sagði hún. „fá nýtt loft Þetta er
ægilega spennandi, það er svo
nauðsynlegt að fá tilbreytingu þegar
maður býr á eyju! Það er svo gott að
geta þotið út í heim til þess að sjá
hreyfinguna "
Gestur rabbaði um það að nauð
synlegt væri að sigla að hinum
ýmsu tilþrifum, kynnast nýjum
straumum, því ella væri hætt við
stoðnun
Rúna kvaðsf einnig ætla á nám-
skeið þar sem m a. væri um að ræða
fyrirlestra og kynnisferðir í sam-
bandi við iðnhönnun, en einnig
kvaðst hún hafa mikmn áhuga á að
vinna með akryl liti, vatnsliti og
málningu Hún kvaðst hafa þörf fyrir
nokkra tilbreytingu nú frá því efni
sem hún hefur unnið mest við að
undanförnu. leirinn og myndform í
brennslu á hann, brennslu þar sem
5 gráður til eða frá af tæpum 800
geta ráðið úrslitum um það hvort
myndm heppnast
Við vildum ekki tefja og buðum
góða ferð og heimkomu
Sigrún Guðjónsdóttir