Morgunblaðið - 28.07.1976, Page 20

Morgunblaðið - 28.07.1976, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLI 1976 19 »nn kom í markið eftir 10.000 metra hlaupið í ima keppinauta hans sem voru gjörsamlega iaði (k með Zatopek í 10 km hlaupinu og tók forystuna og jók hraðann að mun Tók brátt að draga sundur með hlaupurunum Viren, Lopes og Forster fóru fremstir og skáru sig brátt nokkuð úr. Lengi vel hafði Lopes forystuna, og var það ekki fyrr en röskur hringur var eftir að Viren lét til skarar skríða Tók hann gífurlega mikmn sprett og hreinlega kvaddi andstæðinga sína með kurt og pi Lopes tók þó í fyrstu á öllu sem hann átti til, en sá brátt að vonlaust var að fylgja Viren eftir, og hugsaði eftir það meira um að tryggja sér silfurverðlaunin. Um 70 þúsund áhorfendur fylgdust með þessu einstæða hlaupi Virens á Ólympíuleik- vanginum í Montreal í fyrrinótt, og var Viren gífurlega vel fagnað er hann kom i markið sem sigurvegari Sjálfur lét hann lætin ekkert á sig fá árnaði Lopes heilla með silfrið og þakkaði honum baráttuna, klæddi sig síðan úr skónum og hljóp berfættur einn hring á vellinum umvaf- inn finnskum fána, sem félagar hans höfðu verið svo forsjálir að hafa með til keppninnar Lasse Viren starfar sem lögreglumaður i Hel- sinki Þ.e.a.s. hann er skráður sem slikur, en hann hefur ekki þurft að hafa áhyggjur af þvi að mæta i vinnuna siðan hann vann gullverð- launin i Múnchen 1972. Viren hélt upp á 27 ára afmæli sitt í Montreal, aðeins fjórum dög- um áður en hann vann gullið i 10.000 metra hlaupinu. Eftir sigrana í Múnchen var mjög hljótt um Viren, og var það ekki fyrr en i vor sem hann kom verulega fram i sviðsljósið að nýju. Á blaðamannafundi eftir sigurinn sagði Viren, þegar hann var spurður um hvernig hann ,færi að þessu, — að hann hlypi um 7.000 kílómetra á ári. — Leikfimiæfingar og nóg af hreindýra- mjólk hafa lika sitt að segja. sagði þessi geð- þekki Finni. Heimsmethafinn tók áhættuna og tapaði af gullinu BANDARÍKJAMENN urdu fvrir sárum vonbrigdum í stangar- stökkskeppni Olvmpíuleikanna í Montreai sem lauk í fyrrakvöld. Allt frá því að bvrjað var að keppa í þessari grein á Olvmpíu- leikum höfðu Bandarfkjamenn hlotið titilinn fram til ársins 1972, að Austur-Þjóðverjinn Wolfgang Nordwig „stal" titlin- um af þáverandi heimsmethafa Bob Seagren. En á leikunum f Montreal átti svo að hefjast ný gullöld bandariskra stangar- stökkvara og vikunum fyrir leik- ana höfðu þeir David Roberts og Earl Bell skiptst á að setja heims- met. Fréttir frá Póllandi um að tveir pólskir stökkvarar hefðu sett þar Evrópumet, gerðu þó það að verkum að menn tóku aö efast um að Bandaríkjamennirnir myndu sigra í greininni baráttu- laust. Allt gekk fyrir sig svo sem vænta mátti unz hækkað var í 5,50 metra, en þá hæð felldi Bell þrí- vegis og var þvi úr leik. Aðeins þrír stökkvarar fóru þá hæð, Roberts, F'inninn Kalliomaki sem virtist allur magnast við sigur Lasse Virens í 10.000 metra hlaupi og annar pólverjinn, Slusarski. Hækkað var i 5,55 metra og ákvað Roberts að sieppa þeirri hæð. Hefur ugglaust talið sig ör- uggan með næstu hæð sem átti að vera 5,60 metrar. Bæði Slusarski og Kalliomaki felldu 5,55 metra og Roberts átti þvi leikinn. En þegar hann ætlaði að fara að reyna við 5,60 metra skipuðust veður í lofti á skammri stundu. Það tók að hellirigna og aðstæð- urnar versnuðu að mun. Allt var gert til þess að reyna að halda brautinni þurri, en það kom fyrir ekki. I fyrstu tilraun sinni misheppn- aðist Roberts og fór undir rána. Stökkstjórarnir tóku ekki eftir því í fyrstu og á ljósatöfluna kom tilkynning um að Roberts hefði stokkið 5,60 metra og væri AÐSOKNIN GOÐ ALLS voru 1.876.438 aðgöngu- miðar seldir að hinum ýmsu greinum Ólympíuleikanna í Montreal fyrstu níu dagana. Mest var aðsóknin á sunnudag- inn, þegar 329.499 áhorfendur er hörfðu greitt aðgang heim- sóttu vellina og fþróttahúsin. Þá hafa alls 102.268 gestir horft á íþróttamótin og kapp- leikina án þess að greiða fyrir það gjald, og eiga þar ýmsir boðsgestir, blaðamenn og fl. hlut að máli. Olympiumeistari. Hið.sanna kom þó fljótt á daginn og Roberts varð að reyna aftur. I bæði skiptin var hann vel yfir hæðinni, en felldi á niðurleið. Þar sem þrír höfðu stokkið yfir 5,50 metra kom til að úrskurða verðlaun eftir atrennufjölda og þar stóð Slusarski bezt og gullið varð þvi hans. Kalliomaki hafði notað einni atrennu færra en Roþerts og hreppti því silfurverð- launin, en Bandarikjamaðurinn varð að sætta sig við bronsverð- launin. Nokkuó sem engum hafði dottið í hug að fyrir gæti komið, fyrir nokkrum vikum. Eftir keppnina sagðist Roberts sjá míkió eftir því aó hafa sleppt 5,55 metrum. — En staða mín i keppninni var slík að ég varð að taka áhættuna. Eg átti von á þvi að Pólverjinn myndi fara yfir 5,55 metra og jafnvel 5,60 metra, og þurfti þvi á þvi að halda að draga úr atrennufjölda mínum. Eg tók áhættuna, var óheppinn og tap- aði, sagði Roberts. Pólverjinn Tadeusz Slusarski stendur á haus á stönginni sem síðan sveiflaði honum yfir 5,50 metra og færði það honum Oivmpíugulliö. Þær sovézku standa bezt að vígi SOVÉZKU stúlkurnar svo gott sem tryggðu sér Ólympiumeistaratitilinn i handknattleik kvenna i Montreal i fyrrakvöld er þær burstuðu japönsku stúlkurnar — skoruðu 31 mark gegn 9. Á sama tima gerði helzti and- stæðingur Sovétstúlknanna. Austur- Þýzkaland. jafntefli. 7—7, í leik sin um við Ungverjaland. Ónnur úrslit í fyrrakvöld urðu þau að Rúmenia sigraði Kanada 17-—11. eftir að staðan hafði verið 8—5 i hálfleik. Staðan i kvennaflokki þegar ein umferð er eftir er þannig: Sovétrikin 4 4 0 0 78—22 8 Austur Þýzkaland 4 3 1 0 78—33 Ungverjaland 4 2 1 1 65—40 Rúmenia 4 2 0 2 58—63 Japan 4 0 0 4 57—101 Kanada 4 0 0 4 21 — 91 Don Quarrie frá Jamaica kemur að marki sem sigurvegari f 200 metra hlaupinu á Olvmpíuleikunum í Montreal f fyrrakvöld. Bak við hann er Pietro Mennea frá Italíu er varð fjórði, en til hægri eru Millard Hampton er varð annar og Colin Bradford frá Jamiaca er varð sjöundi. Quarrie hafði forystu hlaupið út en Crawford meiddist og varð að hætta JAMAICABÚINN Don Quarrie hlaut gullverðláun f 200 metra hlaupi karla, er keppt var til úr- slita f þeirri grein á Ólympfuleik- unum f Montreal í fyrrakvöld. Hljóp Quarrie á 20,23 sek. og var þvf alllangt frá heimsmetinu og Ólympfumetinu f greininni, en sigur hans var næsta öruggur, svo sem sjá má af þvf að næsti maður, Hampton frá Bandaríkjunum, kom í markið á 20,29 sek. og þriðji maður, Evans' frá Banda- rfkjunum, hljóp á 20,43 sek. Þegar úrslitahlaupið f Montreal hófst í fyrrakvöld beindist athygli manna fyrst og fremst að Quarrie og Crawfod, gull og silfurmönn- unum frá 100 metra hlaupinu, en Crawford hafði heitið þvi að leika eftir afrek Borzovs frá leikunum i Miinchen og hljóta gullverðlaun I báðum spretthlaupunum. Þá beindist athyglin einnig aó Bandaríkjamönnunum Hampton og Evans, sem áttu að halda uppi heiðri þjóðar sinnar i spretthlaup- unum, en hann hafði beðið hnekki i 100 metra hlaupinu. Þegar skotið reið af og hiaupar- arnir geystust af stað kom fljót- lega í ljós að Quarrie myndi verða harðastur á sprettinum. Crawford hljóp hins vegar ekki nema nokkra metra, unz hann greip um lærið og haltraði út af brautinni. Enn einu sinni hafði hann orðið fyrir meiðslum. Þáttur hans i þessu hlaupi var þvi úti. Og Quarrie kom örugglega fyrstur i markið og tryggði Jamacia guilið sem er um leið fjórðu gullverðlaunin sem Jamaicabúar hljóta á Olympiu- leikunum frá upphafi. — Eg er búin að bíða lengi eftir þessu, sagði Quarrie við frétta- menn á fundi eftir hlaupið, — og nú vissi ég að það hlyti að takast aó hreppa gullið. Eg er ekkert sleginn yfir þvi að heimsmetið sk.vldi ekki falla, það get ég bætt eftir nokkrar vikur, ef því er að skipta. I þessu hlaupi var það sigurinn og verðlaunin sem skiptu öllu máli. Don Quarrie sem nú er 25 ára var meðal keppenda á Olympíu- leikunum í Múnchen. Þar varð hann fyrir meiðslum i undan- keppninni og komst ekki einu sinni í úrslit. En Quarrie var ekki á þvi að gefast upp við mótlætió, heldur þvert á móti herti æfingar sínar og byrjaði strax að stefna að Olympíuleikunum i Montreal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.