Morgunblaðið - 29.08.1976, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. AGUST 1976
Ásta Eiríksdóttir
—Minningarorð
Alyktanir aðalfundar
Sjómannafélags Rvíkur
Fædd 2. júní 1898.
Dáin 19. ágúst 1976.
Tengcjamóðir mín, Ásta Eiríks-
dóttir, verður til moldar borin á
morgun, mánudaginn 30. ágúst.
Ég hygg að það, sem mér er
ríkast i huga í dag, þegar tengda-
móðir mín er til moldar borin, sé
ekki sorg heldur þakklæti, þakk-
Iæti fyrir allar þær björtu minn-
ingar, sem ég á um hana.
Ásta er fædd á Eyrarbakka,
dóttir Eirfks Pálssonar sjömanns
og konu hans Guðbjargar
Guðmundsdóttir frá Stórólfs-
hvoli. 9 ára missti hún móður sina
og um fermingu flyst hún í Helga-
hús á Stokkseyri til Guðrúnar
Torfadóttur og Helga Jónssonar
verslunarstjóra og dvaldist hún
þar til ársins 1919 að hún giftist
eftirlifandi manni sínum, Valdi-
mar Sveinbirni. Stefánssyni, fyrr-
verandi bifreiðarstjóra. Þegar
þau giftu sag var fátæktin mikil,
en þau voru samhent og dugleg og
brutust áfram hlið við hlið. Fyrst
var búið i lítalli leiguíbúð, síðar
eignuðust þau hús við Laugaveg
og loks 1937 var takmarkinu náð,
þau byggðu myndarlegt hús að
Leifsgötu 11 og bjuggu þar æ
síðan.
Allt þeirra hjónaband var til
mikillar fyrirmyndar og i gegnum
öll hennar veikindi vék hann vart
frá beði hennar og mun það með
eindæmum að áttræður maður
hafi hjúkrað konu sinni með
slikri fádæma umhyggju og hlýju.
Þeim Ástu og Valdimar varð 6
barna auðið, en þau eru
Guðmundur Birgir, kvæntur Sövu
Guðvarðardóttur, Guðrún Ragna,
gift Gunnri Jónssyni, Sesselja,
gift undirrituðum, Erling, kvænt-
ur Erlu Eiríksdóttur, Guðbjörg,
gift Sigurði Egilssyni, og Stefán
Gylfi, kvæntur Þórdísi Jakobs-
dóttur, og barnabörnin eru orðin
18 að tölu og barnabarnabörnin
15, öll búsett í Reykjavík.
Ásta var óvenjulega vel gerð og
falleg kona, allt lif hennar
einkenndist af óbilandi trú á það
góða, hún var mjög trúuð og vildi
öllum hjálpa, sérstaklega þeim
sem sjúkir voru, m.a. mér í veik-
indum sem ég átti við að stríða og
verður það seint þakkað sem
skyldi. Hjálpsemin var mjög áber-
andi þáttur i Iífi hennar, hún lét
sinn hlut ekki eftir liggja ef hægt
var að hjálpa.
Ásta var einstaklega myndarleg
húsfreyja og bar heimilið vott um
smekkvísi hennar og mikla list-
hneigð. Hún var ein af þeim, sem
helga manni sinum, börnum og
heimili alla krafta sína.
Megi Guðs blessun fylgja henni
og hinum ástríka manni hennar
og börnum.
Haraldur Gunnlaugsson.
Á aðalfundi Sjómannafélags
Reykjavfkur sem haldin n var f
Lindarbæ 26. ágúst 1976. voru
eftirfarandi ályktanir og tillögur
samþykktar:
„Aðalfundur S.R. haldinn 26.
ágúst 1976 fagnar sigri íslenzku
þjóðarinnar í deilunni við Stóra-
Bretland um 200 mílna fiskveiði-
lögsöguna. Jafnframt er fagnað
skilyrðislausri viðurkenningu
höfuðandstæðinga okkar á rétti
Islendinga til þessa hafsvæðis.
Ekki sízt ber að fagna, að okkar
ágætu starfsbræður í Landhelgis-
gæzlunni geta nú snúið sér að
'verkefnum, sem ekki hafa i för
með sér hættu á limlestingu og
dauða af mannavöldum. Væntir
fundurinn þess, að þótt myndar-
lega hafi verið tekið á í gæzlu-
málunum síðustu mánuði þorska-
stríðsins verði f engu hvikað frá
eflingu þessa flota, sem gætir
landhelgi og fiskveiðilögsögu
okka'r og vinnur að björgunum
eftirliti, sjúkraflutningum og oft
á tíðum að beinni rannsóknastarf-
semi.“
„Aðalfundur S.R. haldinn 26.
ágúst 1976, skorar á viðkomandi
ráðuneyti að hefja nú þegar þá
rannsókn, sem ákveðin var með
samþykki Alþingis, um rek gúm-
björgunarbáta."
„Enn einu sinni ítrekar aðal-
fundur S.R. kröfur sinar til ráða-
manna Reykjavfkurhafnar um
aukið öryggi sjómanna og vegfar-
enda á hafnarsvæðinu öllu.
Virðist fyllilega tímabært að taka
til alvarlegrar athugunar lokun
alls hafnarsvæðisins, eða a.m.k.
hluta þess.
Fundurinn minnir á samþykkt-
ir sfnar um greiðfærari flutninga-
leiðir að frystihúsinu að Krikju-
sandi og um að vestur-höfnin
verði rýmd fyrir fiskiskipaflot-
ann. I því sambandi bendir
fundurinn á nauðsyn þess að full-
gera hið nýja frystihús í Vestur-
höfninni og spara þar með
milljónir króna sem annars fara f
flutningskostnað til vinnslustaðar
fjarri hafnarsvæðinu."
„Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavíkur, haldinn 26. ágúst
1976, skorar á hæstvirt Alþingi að
setja lög um tilkynningaskyldu
íslenzkra skipa. 1 þeim lögum sé
kveðið á um skyldu íslenzkra
skipa til að tilkynna sig að við-
lögðum sektum.
Sérstök ákvæði skulu þegar
bundin í reglugerð þess efnis að
togarar og farskip séu skyldug til
að bera boð hinna smærri skipa
til næstu strandstöðvar“
A.S.B. styður
undirskrifta-
söfnunina
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá félagi
afgreiðslustúlkna f brauð- og
mjólkurbúðum, A.S.B.:
„Stjórn ASB Félags afgreiðslu-
stúlkna í brauða- og mjólkurbúð-
um, vill af gefnu tilefni leiðrétta
þann misskilning, sem vart hefur
orðið, að undirskriftasöfnun sú,
sem nú stendur yfir, sé hafin eða
framkvæmd í andstöðu við A.S.B.
í málinu, þegar það lá fyrir Al-
þingi, og þeirra staðreyndar að
stjórn félagsins hefur léð undir-
skriftasöfnuninni skrifstofuhús-
næði sitt.
Stjórn A.S.B. telur að þátttaka
félagskvenna og neytenda í undir-
skriftasöfnuninni sanni mikla
óánægju með alla fyrri meðferð
þessa máls og löggjöfina, sem var
samþykkt á sfðasta Alþingi.
Stjórnin hefur einnig þungar
áhyggjur af atvinnumissi að
minnsta kosti verulegs hluta af-
greiðslustúlknanna.
Stjórnin telur að í framhaldi
undangenginnar baráttu félags-
ins og stuðnings neytenda sé nú
tfmabært að stjórn A.S.B. taki nú
að nýju upp viðræður við Mjólk-
ursamsöluna, Kaupmannasamtök-
in og fulltrúa ríkisstjórnarinnar
um þessi vandamál, sem hin nýja
skipan mjólkursamsölunnar
skapa, þá sérstaklega um nauð-
synlegar ráðstafanir sem gera
þarf til þess að tryggja framtiðar-
atvinnu afgreiðslustúlknanna og
neytendum eigi lakari þjónustu
en skipulag mjólkursölumálanna
veitir nú.
I þvf sambandi telur stjórn
A.S.B. óraunhæft, að afgreiðslu-
stúlkur hafni viðunandi atvinnu-
tilboðum, sem þær hafa fengið
eða kunna að fá, í sambandi við
lögfestar breytingar í mjólkur-
sölumálunum."
t
Eiginkona min, móðir, tengdamóðir og amma
MARTA ANDRÉSDÓTTIR,
Jokulgrunni 1,
andaðist sunnudaginn 22 ágúst
Jarðsett verður frá Frikirkjunni mánudaginn 30 ágúst kl. 3 e.h.
Bjami Benediktsson
Halldóra G. Bjarnadóttir, Leó Þórtiallsson
og bamaböm.
t
Útför móður okkar, ömmu og langömmu,
ÞÓRU MÖLLER KRISTJÁNSDÓTTUR.
fer fram frá Dómkirkjunní, þriðjudaginn 31, ágúst kl 10 30 f h
Kristján Hjálmarsson Halldóra Hjálmarsdóttir
Hjálmar Kristjánsson
Þór Kristjánsson
Lilja Kristjánsdóttír.
t
Konan mfn og móðir okkar
KRISTÍN HELGADÓTTIR
frá Álfatröðum I Hórðudal.
verður jarðsett frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 1 sept kl 1 3 30
Blóm og kransar vinsamlega afbeðin, en þeim sem víldu minnast
hinnar látnu er bent á líknarstofnanir
Hjörtur Ögmundsson
og dætur.
t
Konan min
HELGA P. JÓNSDÓTTIR,
Lönguhltð 21.
Verður jarðsungin frá Dómkirkjunni. þriðjudaginn 31 ágúst kl 1 3 30
Ólafur Tyrfingsson.
t
Maðurinn minn
B/ERING NÍELSSON
frá Sellátri,
Bókhloðustíg 2, Stykkishólmi, 7
verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju mánudaginn 30 ágúst kl 2
eftir hádegi Blóm afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans, er bent
á Slysavarnarfélagið
Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir.
t
Eiginkona mín
Ásta Eirlksdóttir,
Leifsgötu 11.
verður jarðsundin frá Dómkirkjunni, mánudaginn 30 ágúst kl 1 3 30
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Valdimar Stefánsson.
EINBYLISHUS
Til sölu einbýlishús, timburhús. Á neðri hæð sem er 77,7 fm. er stofa,
herbergi, eldhús, þvottahús ofl. Uppi eru 55,5 fm. 3 svefnherbergi, og
bað. Bilskýli. Verð aðeins kr 1 2,5 millj Laust fljótt.
Fasteignamiðstöðin, Austurstræti 7,
Símar 20424 — 14120, heima 42822.
RAUÐILÆKUR
Til sölu glæsileg 150 ferm. íbúð á efstu hæð í
fjórbýlishúsi. 2 saml. stofur, 3 svefnh. og
þvottaherbergi. Nýir skápar og mikill harðviður.
23 ferm. flísalagðar svalir. Gott útsýni.
Skipti á eign í Kópavogi
Upplýsingar í síma 43054.
kemur til greina.
Sérstaklega falleg íbúð
Hef til sölu 5 — 6 herbergja íbúð á 6. hæð við
Þverbrekku sem er 140 fm. með sameign.
Fallegt útsýni.
Sigurður Helgason Hrl.
Þingholtsbraut 53.
Sími 42390.
Sö/umaður Jú/ía Sigurðardóttir.
Kvöld- og helgarsími 26692.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför systur okkar,
GUÐLAUGAR GUÐLAUGSDÓTTUR,
Laugavegi 28D.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunar-
spltalanum
og starfsfólks deild 3-D, Land-
Sigurrós Guðlaugsdóttir,
Ingibjörg Guðlaugsdóttir.
og vandamenn
t
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð vináttu og samúð vegna
andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og langalangömmu,
ÁGÚSTÍNU JÓNSDÓTTUR.
Kleppsveg 6.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks, sem annaðist
slðustu mánuðina á Landakotsspltala,
Guðfinna Júllusdóttir,
Svavar Júllusson.
Gunnar Júllusson,
Guðjón JúlFusson.
Bjami Júlfusson,
Sigurður Hafliðason.
bamaböm, bamabamaböm
og bamabamabamaböm.
hana
Jón JúlFusson
Hanna Pétursdóttir
Jóna Geirsdóttir
Auður Jörundsdóttir
Rita Júlfusson Abbing,
Klara Tómasdóttir.