Morgunblaðið - 03.09.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 03.09.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976 Vætan heppileg fyrir uppgræðsluna í Eyjum — ÞAÐ MÁ segja að tíðarfarið í sumar hafi verið eins og bezt verður á kosið fyrir uppgræðsl- una hér f Vestmannaeyjum, sagði Arnar Einarsson hjá Viðlagasjóði í Vestmannaeyjum er Morgun- blaðið ræddi við hann f gær. Arn- ar bætti þvf þó við að mannfólkið f Vestmannaeyjum hefði eins og annars staðar, þar sem mikið hef- ur rignt, kvartað yfir allri vætu- tfðinni. Sagði Arnar að ásýnd bæjarins hefði ís sumar gjörbreytzt frá því sem var í fyrra og svörtu blettun- um í hlíðum fjallanna færi ört fækkandi. — Norðurhlíð Helga- fells er t.d. orðin skrú^græn víð- ast hvar og inni í Herjólfsdal hef- ur sáningin tekizt með miklum ágætum. Það er ekkert sem mælir á móti því að halda þar næstu þjóðhátíð, nema gróðurleysið í dalbotninum sagði Arnar. Það var stór dagur hjá þeim sem vinna að uppgræðslunni í Vestmannaeyjum í gær, en þá var lokið við að keyra tæplega 200 Umferðarljós á horn Kringlumýrarbrautar og Borgartúns í haust Nú í haust verða sett upp um- ferðarljós á gatnamótum Borgar- túns og Kringlumýrarbrautar. Á þessum gatnamótum er iðulega mikil umferð og erfitt að komast inn á Borgartúnið. Unnið er að þvf um þessar mundir að undir- búa fyrir malbik Kringlumýrar- brautina frá Borgartúni að Sætúni. þúsund rúmmetra af gjalli og 120 þúsund rúmmetra af mold i skarð- ið á milli fellanna. Byrjað var á þessu verki í byrjun april og hef- ur verið unnið sleitulaust að því þar til nú. Gjallið var tekið i norð- urhlíðum Helgafells og notað til að loka skarðinu og myndaðist við þá lokun nokkurs konar vind- brjótur. Moldin var síðan notuð til að binda gjallið og hefur þegar verið sáð í nokkurn hluta hennar. Þá hefur mold verið ekið í vikur- breiðurnar sunnan og austan við eldfellið og sáð þar í. Þessi þrjú rússnesku rannsóknaskip komu til Reykjavíkur í gærmorgun og lögðust að bryggju í Sundahöfn. Skipin munu hafa verið að einhverjum rannsókn- um á hafsvæðinu kringum ísland. Ljðsm mw : ói k m. Verðmæti sumarloðnunnar helming- ur þess sem var á sl. vetrarvertíð Sigurður RE hefur aflað fyrir 60 millj. kr. SUMARLOÐNUAFLINN nemur nú um 60 þúsund lestum og verðmæti þess afla er orðinn um 500 milljónir króna upp úr sjó að talið er. Til samanburðar má geta þess, að verðmæti 330 þús. tonna heildarafla á s.l. loðnuvertfð var um 1000 milljónir kr. upp úr sjó. A þessu sést því glöggt hve sumarloðnan er miklu verðmætara hráefni. Sigurður RE er aflahæsta loðnuskipið f sumar og er búinn að fá um 7600 lestir, að verðmæti um 60 millj. króna. Kristbjörn Arnason skipstjóri á Sigurði tjáði Morgunblaðinu f gær, að á s.l. loðnuvertfð hefði Sigurður fengið 13.300 tonn og verðmæti þess afla ekki numið nema milli 40 og 45 millj. króna. fyrir hana. Skipstjórnarmenn' hugsa ekki eingöngu um magnið núna, því ekki þarf að fá nema einn eða tvo góða túra á viku til að allir geti haft það sæmilegt og gott, sagði Andrés. Þá náði Morgunblaðið tali af Kristni Árnasyni skipstjóra á Sig- urði RE, en skipið var í gær I botnhreinsun á Akureyri. Krist- björn sagði, að sér fyndust veið- arnar hafa gengið þolanlega og mætti það fyrst og fremst þakka háu hráenfisverði. — — Hins vegar finnst okkur sjó- mönnum ekkert réttlæti í því að fá ekki hærra verð fyrir 20% feita loðnu en þá sem er 16%. Þá sagði hann að þeir á Sigurði Framhald á bls. 20 Að sögn Andrésar Finnboga- sonar starfsmanns Loðnunefndar voru batarnir að veiðum í gær um 170 milur norður frá Siglunesi og áttu þá ekki nema eftir 60 mílur til Grænlands. Þar köstuðu bát- arnir mikið, en árangur var mis- Upphitaði vegarspott- inn í Breiðholti tekinn í notkun í október jafn. Á veiðisvæðinu var nokkuð um staka ísjaka og þurftu veiði- skipin að fara varlega af þeim sökum. í viðtalinu við Morgunblaðið sagði Andrés, að heildarveiðin í sumar væri nú að nálgast 60 þús. tonn og verðmætið upp úr sjó væri talið nema um 500 millj. króna, eða helmingi þess sem var á s.l. lðnuvertíð. — Það er geysilegur verðmun- ur á sumarloðnu og vetrarloðnu. Loðnan sem fengizt hefur að und- anförnu er öll yfir 20% feit og af þeim sökum er borgað hæsta verð Háu fískverði spáð í Þýzka- landi og Bretlandi í vetur EINHVER Islenzk fiskiskip munu nú vera farin að huga að þvf að sigla með fsvarinn fisk á Bretland og V-Þýzkaland. Eitt skip lagði reyndar af stað fyrir skömmu, en sneri við er fréttist að markaðirnir væru ekki búnir að jafna sig eftir þá miklu hita, sem verið hafa í Evrópu I sumar. Ingimar Einarsson, fram- kvæmdastjóri Félags ísl. botn- vörpuskipaeigenda, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í vikunni, að eitt skip væri nú að fiska fyrir erlendan markað en ætlaði að sjá til er að kæmi hvort hagkvæmt væri að sigla. Að sögn Ingimars spá menn háu fiskverði á mörkuðum í V- Þýzkalandi og Bretlandi í vetur, en vart er að búast við að markað- irnir verði mjög sterkir fyrr en í október og á það kannski fyrst og fremst við ufsamarkaðinn. í OKTÓBERMÁNUÐI verður opnaður vegarspotti úr Vestur- hólum niður I Stekkjarbakka I Breiðholti og verður þá mun þægilegra fyrir þá sem búa 1 Breiðholti III að komast niður á Reykjanesbrautina. Eftir að kem- ur niður f Stekkjarbakkann verð- ur um tvær leiðir að ræða niður á Reykjanesbraut. Vegarkafli þessi er tæpur kflómetri að lengd, en Framhald á bls. 20 23JA PUNDA FLUGULAX (JR GRÍMSÁ Þegar undirritaður leit við í veiðihúsinu á mánudaginn, voru u.þ.b. 1270 laxar komnir á land og er það ekki langt frá því að vera helmingi minna en í fyrra. Laxinn gekk eins og við- ar óvenju seint í ána og bundu menn þá vonir við ágúst og jafnvel september, en fádæma vatnaveður ágústmánaðar voru þrándur í götu og var áin, eink- , um neðan til, oft átíðum kolmó- rauð og ailt annað en veiðileg. Við slík skilyrði leitar laxinn oft af hefðbundnum miðum og þarf þá oft að leita hans áður en hægt er að freista hans. Kostar það oft dýrniajtan tíma. Sem dæmi um það, hve ágústveiðin hefur verið rislág, má geta þess, að frá 24. — 30. ágúst veiddust aðeins 33 laxar á 10 stengur og eru þess jafnvel dæmi, að menn hafi gefist upp og drífið sig í bæinn þó svo að jafnvel heill dagur stæði eftir önotaður! Undanfarið hefur sá lax, sem veiðzt hefur, verið fremur smár, yfirleitt 4—8 pund, en bæði smærri og stærri laxar eru innan um. T.d. var metlax sumarsins dreginn á laugardaginn var. Var það 23. punda hængur sem Sigurður Fjeldsted veiðivörður fékk á rauða túpu í Móbergshyl. Lax- inn var grútleginn og svo hor- aður, að menn gátu sér til um, að hann hefði ekki verið langt frá 30 pundum nýgenginn. Þá veiddist og fyrir skömmu annar hængur sem vó 21 pund í Strengunum. Enn eru til nokk- ur veiðileyfi hjá S.V.F.R. í sept- ember, en það er skoðun kunn- ugra, að ef veðurguðirnir verða hliðhollir, gæti áin enn rétt nokkuð úr kútnum, þó að þegar sé ljóst, að heildarveiðin verður miklu minni en í fyrrasumar (2116 Iaxar) sem var metsum- ar. SJÖBIRTINGUR Sjóbirtingur hefur veiðst af og til í sumar, einn og einn í senn, en undanfarið hefur bor- ið meira á þessum ágæta fiski og slatti veiðst, einkum í neðri hluta árinnar. Þessi sjóbirting- ur er yfirleitt í kringum 2 pund og er hann kærkomin búbót, ekki sízt þegar laxinn er jafn tregur og verið hefur. Frá fundi Sléllarfélags barnakennara í Álflamýrarskóla í gær. Ljóan RAX Stéttarfélag barnakennara: Hyggur á aðgerðir ef leiðrétting fæst ekki STÉTTARFÉLAG barna- kennara hélt fund í Álfta- mýrarskóla í gær, þar sem rætt var um málefni kenn- arastéttarinnar með hlið- sjón af úrskurði kjara- nefndar frá því í sumar. Sóttu um 200 manns fund- inn. Á fundinum kom fram mikil óánægja með úrskurð kjaranefnd- ar vegna kennara í 1.—6. bekk grunnskólans. Lýsti fundurinn yf- ir eindregnum stuðningi við þá ákvörðun fulltrúaráðsfundar SBR að krefjast þegar viðræðna við fulltrúa rikisvaldsins um leiðrétt- ingar á þeim órétti, sem kennarar í þessum yngri deildum grunn- skólans telja sig hafa verið beitta. Samþykkti fundurinn, að bæru þær viðræður ekki árangur, yrði aukaþing SlB kallað tafarlaust saman, er tæki þá ákvarðanir i málinu. Fötin utan til rannsóknar RANNSÓKNARLÖGREGLAN hefur unnið að þvf að Ijúka rann- sókn morðmálsins á Miklubraut frá þvf er játning lá fyrir. Sam- kvæmt upplýsingum lögreglunn- ar er talsverð vinna við að koma skjölum málsins fyrir. Komið hefur f ljós, að maðurinn hafði Kennarar yngri deilda grunn- skólans telja einkum að órétti það sem þeir séu beittir komi fram í fjórum atriðum — á þeim hvíli lengri vikuleg kennsluskylda en Framhald á bls. 20 aldrei á brott með sér frfmerkja- safn, heldur aðeins umslög, sem frímerkjasafnarar nota til þess að geyma merkin f. Allt þýfið, sem hann hafði á brott með sér úr húsinu á fimmtu- dag fyrir viku, er nú fundið, en það hafði hann falið 1 litlum skúr að húsabaki vestur í bæ. Þá hefur verið ákveðið að föt mannsins sem hann var í er hann framdi verknaðinn, verði send utan til Þýzkalands til efnafræðirann- sóknar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.