Morgunblaðið - 03.09.1976, Page 11

Morgunblaðið - 03.09.1976, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976 11 Melskurður á laugardag NÆSTKOMANDI laugardag, 4. sept., verður fóki gefinn kostur á að skera mel í landgræðslugirð- ingu í Þorlákshöfn. Eins og undanfarin ár eru það Landgræðsla ríkisins og Land- vernd sem standa að þessu sjálf- boðastarfi og hefur þátttaka farið vaxandi með hverju ári. Þeim, sem ekki fara á eigin bílum, verð- ur séð fyrir fari frá Umferðarmið- stöðinni kl. 12 á hádegi og heim aftur að dagsverki loknu, og er öllum sem ekki hafa unnið við melskurð bent á að þetta er mjög skemmtileg vinna, segir í frétta- tilkynningu frá Landvernd. Landgræðslan og Landvernd vilja hvetja alla sem tök hafa á að koma til melskurðar n.k. laugar- dag og leggja góðu málefni lið og hressa andann eftir rigningar- samt sumar. Við viljum biðja fólk að taka vasahnífa með sér í mel- skurðinn. Góð hvalvertíð hjá Norðmönnum Osló 1. september — NTB. SMÁHVALAVEIÐUM Norð- manna á þessu ári á Norður—At- lantshafi lauk í gær, og reyndist aflinn vera sá bezti um árabil. Er þar helzt að þakka góðum veður- skilyrðum og sterkum hvalstofni, að sögn Aftenposten. Á miðunum austur af Hvarfi fylltu norsku bátarnir kvótann, sem var 200 hvalir, og með Grænlandsströnd- inni vestan við Hvarf veiddust 200 til 250 af þeim 550 hvölum, sem heimilt var að veiða. 500 menn á 80 bátum voru á hvalver- tíðinni I ' ár, en ásókn hefur minnkað stórlega frá þvi eftir stríð, þegar um 300 bátar fóru iðulega á hvalveiðar. AUGLYSINGASIMINN ER: 22480 jyforsuntrtithib HIN FULLKOMNA VIÐARVÖRN í 15 LITUM Hin fulikomna viðarvörn heitir Architectural SOLIGNUM, viðarvörn sem þekur viðinn varanlega. Architectural SOLIGNUM kemur í stað málningar um leið og það ver viðinn gegn hvers konar fúa. KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐHF HÓLMSGÖTU 4. SÍMI 24120 Dreifing um Karnabæsími 28155 til 10 föstudag Lokað laugardag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.