Morgunblaðið - 03.09.1976, Page 33

Morgunblaðið - 03.09.1976, Page 33
 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976 33 \ #ei % m i/a Aini Velvakandi svarar i sima 10-100 kl 14-—1 5,. frá mánudegi til föstu-i dags # Reykingar á almannafæri. Börje Hanssen frá Svíþjóð sendi Velvakanda bréfið, sem hér fer á eftir, og má segja, að það falli vel inn í þá umræðu um reykingar, sem nú er á dagskrá: „Við höfum ferðazt um á ís- landi nú í sumar í langferðabílum og okkur langar tii að koma aftur til ykkar indæla lands. En hvern- ig getur staðið á því, að hópferða- skrifstofa B.S.Í. býður ferðamenn velkomna til íslands í hreint loft, en treður þeim síðan inn i bíla þar sem hvaða keðjureykingarmanni sem er er leyft að skelfa umhverfi sitt og í rauninni eyðileggja alla ánægju ferðarinnar fyrir sam- ferðamönnum sínum. Þannig verða íslenzku langferðabilarnir hræðilegar niðursuðudósir, þar sem farþegar eru fylltir með reyk og eitri. Á öðrum stöðum i heiminum, t.d. Svíþjóð, eru reykingar bann- aðar í öllum langferðabílum og þykir það eðlilegt, nema í bílum sem leigðir eru til hópferða. Vandamál þeirra nikótínþyrstu er leyst með því, að þeir fá auðvitað að reykja i matarhléum — eða þar sem stanzað er. En þeir fá ekki að blása reyk í háls þeirra fjöl- mörgu, sem ekki vilja reykja og vilja fyrir alla muni sitja í eitur- lausu lofti á löngum ferðalögum. Við fórum yfir Sprengisand og tekur sú ferð eins og kunnugt er um 14 klukkustundir. Ég er viss um, að við förum ekki aftur i svona mengunarferðir og við von- um, að B.S.Í. endurskoði fljótlega afstöðu sína til nikótínista. Með kveðju, Börje Ilanssen, frá Sviþjöð. Þær eru misjafnar skoðanirnar á reykingum eins og flestu öðru í mannlífinú, en það mun þó al- mennt viðurkennt, að reykingar eru ekki heilsubót, eins og tilmæli frá Læknafélagi íslands nýverið benda til. # Ánægjulegur þáttur. „Ég vil þakka Halldóri Laxness skemmtilega viðtalsþætti i sjón- varpinu og þá frjálslegu fram- komu sem hann viðhefur. Það er ánægjulegt til þess að vita, að enn er til fólk i þessu landi, sem þorir að hafa skoðanir og láta álit sitt i ljósi^um menn og málefni. Reykja sína vindla á sínu eigin heimili og haga lífi sinu eftir eigin geðþótta, en verða ekki að einhverri hópsál í kommúnú þjóðlífsins. Kristín Magnúsdöttir". hinn f jakkavasa hans. — Farið dálftið frá, sagði hann meðan hann skoðaði alla hlutina vel og vandlega. Það var fyrst nú sem Jack gafst kostur á að sjá andlft mannsins. Honum fannst hann kannast við það, en hvaðan... það mundi hann ekki. — Ertu með nokkurn leyni- vasa? Hann var að skoða peninga- veskið. Hann var axlabreiður með innfallinn brjðstkassa og hökuift- ill. Jack yppti öxlum. — Þetta er ósköp venjulegt veski og lftið á því að græða. Maðurínn tók alla peningana og stakk þeim f vasann. Svo leit hann snögglega upp. Bflljós sáust f fjarska. — Gerið nú eins og ég segi, sagði hann hvassyrtur. — Opnið farangursgeymsluna og takið allt út sem þar er. Leggið það hjá bflnum, svo að ég geti skoðað allt vel og vendilega. Og reynið engar kúnstir, bætti hann við. Það eina sem ökumenn næstu þriggja bfla, sem óku framhjá, sáu var að miskunnsamur Sam- verji var að hjálpa náunga sfnum að skipta umdekk. # Skelfiskverð. Sjómenn í Stykkishólmi hafa látið í ljós óánægju með verð á skelfiski, og hér skrifar einn þeirra: „Eins og fram hefur komið i fréttum fjölmiðla undanfarið hafa sjómenn og útgerðarmenn skelveiðibáta i Stykkishölmi ekki talið sér fært að róa siðast liðna viku vegna þeirrar ákvörðunar Verðlagsráðs sjávarútvegsins frá 21. þ.m. að lækka verð á skelfiski úr 35 krónum hvert kíló niður i 26. Sjómenn telja þessa verð- ákvörðun byggða á mjög hæpnum upplýsingum um horfur á erlend- um mörkuðum auk þess sem oddamaður Verðlagsráðs hefur upplýst, að sér hafi verið ókunn- ugt um ýmis atriði hér í Stykkis- hölmi, sem hafa ótviræð áhrif á verð á skelfiski. Sjómenn hér á staðnum hafa orðið fyrir talsverðum þrýstingi úr ýmsum áttum að hefja róðra með hinu nýja verði og hefur meðal annars- verið beitt þeim rökum, að skelveiðar hafi úrslita- þýðingu fyrir efnahagslif hér í bænum. Á fundi útgerðarmanna og sjó- manna áskelveiðibátum, sem haldinn var s.l. laugardag, var ákveðið að koma nokkuð til móts við þessi sjónarmið. Var á fyrr- nefndum fundi samþykkt að hefja róðra frá og með mánudag- inum 29. ágúst í trausti þess að innan fjögurra daga þ.e.a.s. fyrir fimmtudaginn 2. september n.k. verði komin leiðrétting á skelfisk- verðinu. Að öðrum kosti sjá sjómenn sér ekki fært að róa á skelveiðar. F.h. sjömanna, Einar Viðarsson. Stykkishólmi." HÖGNI HREKKVÍSI ©1976 MeNaught Syndicate, Inc. SKOLAFOLK NOTIÐ LUXO VIÐ LESTURINN ■ -í 'II LUXO er ljósgjafinn, verndið sjónina, varist eftirlíkingar ALLAR GERÐIR - ALLIR LITIR OPIÐ TIL KL. 7 SENDUM í PÓSTKRÖFU LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÓS & ORKA Suðurlandsbraut 12 sími 84488 „Fyrir alla muni hættu að ögra henni!“ 53^ SlGeA V/óGA í 1/LVtRAN íslenzka fyrir útlendinga Vinsamlegast segið erlendum vinum yðar frá íslenzku- kennslu Mímis. Nemendur eru þjálfaðir t talmáli allt frá upphafi. Málfræðin er kennd með dæmum. Sími 11109 og 10004 (kl. 1 — 7 e.h.) Málaskólinn Mímir, Brautarholti 4 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU m /wtffyús- 1/ VftótfAfW’ WtYYIVi P® WÚN0LAW/ ÚXA, ^ÓYIA^1 i(i 'IfeOKA Ú% 1ú*T- [wúsm ÁM YlEtf <IL W Ó)HVA V/AWA i/OWTy ÚÁÚh\yjí/A_____ 'VvílS/T' vlU6Atf WÍL\\< TOYWtYVlNú' yvíL\K bV/LlMá! wvMiá ’SÚVJÓQ £KK\ tlNO bim YAW YÍBT) S/IYIV Á/UKWSW'I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.