Morgunblaðið - 03.09.1976, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976
34
HALMIA GEFUR
MATTHÍASIEKKI
FARARLEYFI
- ætla samt að
FELAGIÐ mitt, Halmia, vill ekki
gefa mér leyfi til þess að koma
heim ( landsleikina, en ég ætla
samt að koma, sagði Matthías
Hallgrfmsson í viðali við Morgun-
hlaðið í gær, en sem kunnugt er
leikur Matthias nú með sænska 2.
deildar félaginu Halmia. Var fé-
lagið búið að gefa honum leyfi til
fslandsferðarinnar, en afturkall-
aði það svo á sfðustu stundu. Fé-
lagið á árfðandi leik f deildar-
keppninni sænsku á sunnudag-
inn, sama dag og leikið verður við
Belgíumenn, og telur það sig ekki
geta séð af Matthfasf leik þessum.
— Ég hef geysilega mikinn
áhuga á því að koma heim í lands-
leikinn, sagði Matthías í gær, —
og einnig að standa við það sem
ég var búinn að segja þeim hjá
KSÍ, að ég gæti komið. Ég veit
ekki hvaða afleiðingar það getur
Matthfas — ákveðinn að koma f
landsleikinn.
koma, sagði hann
haft fyrir mig, ef ég fer í leyfis-
leysi, en ekki er ósennilegt, að ég
verði settur út úr liðinu og beittur
sektum. Slíkt þykir mér vitanlega
mjög slæmt og auðvitað er það
leiðinlegt að lenda í svona útistöð-
um við félagið. F^n málin skýrast
væntanlega betur í kvöld.
Matthías sagði, að sér hefði
gengið ágætlega með Halmia lið-
inu að undanförnu. Fyrst eftir að
hann kom út hefði hann átt við
veikindi að stríða, en nú væri
hann búinn að ná sér vel að þeim
og teldi sig vera í sinu bezta
formi.
Morgunblaðið hafði i gær sam-
band við Ellert B. Schram og
spurði hann, hvað KSÍ gerði i því
að aðstoða Matthías við að komast
heim.
— Við erum búnir að hafa sam-
band við forráðamenn Halmia,
sagði Ellert, og m.a. benda þeim á,
að verði Matthiasi ekki gefið leyfi
til þess að koma heim í landsleik-
ina þá komust við ekki hjá því að
tilkynna FIFA, hvernig að félaga-
skiptum hans var staðið, en í regl-
um FIFA eru skýr ákvæði um, að
félag megi ekki sækjast eftir
samningum við knattspyrnumenn
meðan á keppnistímabili stendur
hjá því félagi, sem hann leikur
með. Þá höfum við einnig vísað til
þess í samtölum við forráðamenn
Halmia, að þeir hafi verið búnir
að gefa Matthíasi leyfi til þess að
koma í landsleikina, og við óskum
eftír þvi, að þeir standi við orð
sín, þar sem það komi sér illa
fyrír okkur að þurfa að fara gera
breytingar á íslenzka liðinu á síð-
ustu stundu. Þeir hafa á hinn
bóginn vísað til þess, að í samn-
ingi félagsins við Matthías séu
ákvæði þess efnis, að honum sé
frjálst að taka þátt í landsleikjum
fyrir Island, stangist þeir ekki á
við leiki félagsins.
— Við höfum einnig haft sam-
band við Matthías, sagði Ellert og
sagt honum það, að komi hann til
leikjanna i óleyfi félagsins, þá
verði það að vera á hans ábýrgð.
Við höfum ekki viljað setja hon-
um stólinn fyrir dyrnar, jafnvel
þótt við leggjum auðvitað áherzlu
á að fá hann heim til leikjanna.
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík, Birgir
ísleifur Gunnarsson, hélt Valsmönnum
kaffiboð á miðvikudagskvöldið og þakk-
aði þeim þar fyrir að heimta fslandsbik-
arinn úr höndum utanbæjarmanna.
Mynd þessa tók Friðþjófur í kaffiboðinu
og hafa Valsmenn fengið borgarstjóra
íslandsbikarinn í hendur. Við hlið hans
standa þeir Alexander Jóhannesson og
Guðmundur Þorbjörnsson en í stiganum
eru þeir Yuri Ilytchev, þjálfari Vals-
manna, Magnús Bergs, Ingi Björn Al-
bertsson, Ólafur Magnússon, Vilhjálmur
Kjartansson, Sigurður Dagsson, Grímur
Sæmundsen, Halldór Einarsson, Atli Eð-
valsson, Dýri Guðmundsson, Guðmundur
Kjartansson, Kristinn Björnsson, Albert
Guðmundsson, Hermann Gunnarsson og
Bergsveinn Alfonsson.
Ilti
||lj
——i
Lið Reynis í Sandgerði er sigraði í úrslitaleik 3. deildar keppninnar í ár og leikur f 2.
deild að ári, ásamt þjálfara sínum Eggert Jóhannessyni.
Sandgerðingar
í aðra deild
REYNIR frá Sandgerði tryggði
sér sigur f 3. deild og þar með
sæti f 2. deild á næsta keppnis-
tfmabili með þvf að sigra Iið
Aftureldingar úr Mosfellssveit
með 3—2 f úrslitaleik á Mela-
vellinum f fyrrakvöld.
Ekki varð sigur Reynis með öllu
átakalaus, því f úrslitakeppni 3.
deildar, sem nýlega fór fram á
Akureyri, skildu þessi lið jöfn að
lokinni framlengingu.
Ekki verður sagt, að þessi
leikur hafi boðið upp á fallega
knattspyrnu, en hinsvegar var
barizt allan timann og sáust oft
góð tilþrif í þeim efnum. Hætt er
við, að dvöl Reynis í 2. deild verði
ekki löng, ef þeir taka ekki veru-
legum framförum frá því, sem
þeir sýndu í þessum leik.
Það var Kristján Sigurgeirsson,
fyrrum leikmaður með IBV og
núverandi þjálfari Aftureldingar
sem skoraði fyrsta markið í þess-
um leik, á 18. min. En á 33. mín.
jafnaði Júlíus Jónsson fyrir
Reyni með vítaspyrnu. Páll
Sturluson bakvörður Afturelding-
ar sló knöttinn innan vítateigs, að
þvi er séð varð I algjöru tilgangs-
leysi, þannig að vitaspyrna varð
ekki umflúin.
Á 40. mín. náði Ómar Björnsson
forystunni fyrir Reyni með góð-
um skalla eftir hornspyrnu.
Afturelding sótti meira í byrjun
siðari hálfleiks og á 65. mín. jafn-
aði Kristján Sigurgeirsson með
góðu skoti. Allt útlit var nú fyrir
jafntefli og framlengingu.en
Ómar Björnsson sá fyrir því að
svo varð ekki, því tveim mín. fyrir
leikslok skoraði hann gott mark
eftir að vörn Aftureldingar hafði
opnazt illa.
Gleði Reynismanna var mikil,
þegar Guðmundur Haraldsson,
góður dómari þessa leiks, flautaði
leikinn af. Þeir hafa á undanförn-