Morgunblaðið - 03.09.1976, Page 36
\UGLÝSÍNÍiASÍMINN ER:
22480
3W»r0xmT>Uiöit>
AUGLÝSEN'GASLMENN ER:
22480
J«»rgiml)lflbit>
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976
Þykkvibær:
Friðrik-Timman:
Litlaust
jafntefli
ii---------------i
Skák Fridriks «k
Timmans bls 20
i 'i ------------i i
SKAK þeirra stórmeistaranna
Friðriks Ólafssonar og Jan
Timmans á Reykjavfkurmót-
inu f gærkvöldi lauk með jafn-
tefli.
Það var eftir 3H tíma var-
færnislega baráttu að þeir
meistararnir sömdu um jafn-
tefli. Skák þeirra einkenndist
af mikilli gætni enda ef til vill
eðlilegt þar sem mikið var í
húfi fyrir báða. Jafntefli lá í
loftinu allan tímann og áhorf-
endurmargir hverjir ekki
beint ánægðir þar sem þeim
þóttu meistararnir sýna of litla
dirfsku í taflmennsku sinni.
Þannig er ekki hægt að segja
að nokkur ógnun hafi verið f
taflinu en það má ef til vill
skýra með því að til þess hafi
hún ekki verið orðin nógu
löng, en um jafnteflið var sam-
ið eftir 22 leiki.
Friðrik hafði hvítt, en þó átti
hann i erfiðleikum þegar i
Framhald á bls. 20
Liósm. Mbl Friðþjófur.
KARTÖFLUR — Bændur f Þykkvabæ sjá fram á lélega kartöfluuppskeru annað árið í röð, en þeir eru
byrjaðir að taka upp og nýjar kartöflur eru væntanlegar á markað eftir helgi.
Uppskerubrestur
annað árið í röð
Nýjar kartöflur á markað eftir helgi
Kartöflubændur í Þykkva-
bæ eru tilbúnir til að senda
frá 5er fyrstu kartöflurnar
á markað nú strax eftir
helgina, að því er Magnús
Sigurlásson, fréttaritari
Mbl. í Þykkvabæ, sagði í
gær. Kartöfluuppskeran í
Þykkvabæ er hins vegar
mjög léleg í ár og jafnvel
slakari en hún var í fyrra.
Magnús sagði, að nokkrir
bændur væru byrjaðir að taka
upp kartöflui. Komið hefur í ljós.
að undan því grasi sem ekki
skemmdist í roki i vor, kemur
mjög viðunandi uppskera en á
roksvæðunum er hins vegar
nánast engin uppskera. Þetta eru
sendin svæði og sagði Magnús að
Framhald á bls. 20
Höfrungur II
hefur fengið aDt
að 9,5 L af djúp-
rækju á 2 dögum
— VIÐ höfum mest fengið 9H
tonn af djúprækju á tveimur
og hálfum sólarhring og verð-
ur það að teljast mjög gott,
sagði Ölver Skúlason skip-
stjóri á Höfrungi 2. frá Grinda-
vik, en hann hefur undanfarið
stundað djúprækjuveiðar úti
fyrir Norðvesturlandi og víðar.
Ölver sagði þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann f gær, að
þar til f sfðustu veiðiferð
hefðu þeir landað frá 7,5 til 9.5
tonnum f veiðiferð. 1 sfðustu
ferð hefði veiðin hins vegar
ekki gengið eins vel og þeir
orðið að fara f land með 4 tonn
eftir þrjá sólarhringa. Samt
hefðu þeir verið á sömu slóð-
um og áður, verið gæti að
rækjan hefði fært sig eitthvað,
en það bæri einnig að taka
með f reikninginn að mjög
mikill straumur og leiðinda
veltingur hefði verið á veiði-
svæðinu.
Hann sagði, að þeir væru nú
að toga á sömu slóðum og ár-
angurinn f gær hefði ekki ver-
ið nógu góður, engu að siður
ætluðu þeir að halda þessum
veiðum eitthvað áfram og leita
vfðar. ÖLver sagði að hann
áliti að mjög góður grundvöll-
ur væri fyrir djúprækjuveið-
um fyrir stærri báta. En ef
halda ætti þessum veiðum
áfram yrði að snöggsjóða ræk.i-
Framhaid á bls. 20
1002 tunnur
bárust til
Hafnar í gær
— ÞAÐ er enn að glaðna yfir
síldveiði reknetabátanna héðan
og nú vantar tilfinnanlega fólk til
starfa. Það var t.d. ekkert hægt að
frysta f dag vegna manneklu f
frystihúsinu, en hins vegar voru
saltaðar 770 tunnur og er þá búið
að salta 2400 tunnur á söltunar-
stöðinni, sagói Jens Mikaelsson
verkstjóri á Höfn f Hornafirði f
samtali við Mbl. f gærkvöldi.
Jens sagði, að reknetabátarnir
hefðu komið með 1002 tunnur að
landi sem væri það mesta sem
borizt hefði á land á einum degi í
haust. Haukafell SF var með 180
tunnur, Hringur GK 160 tunnur,
Jóhannes Gunnar GK 150 tunnur,
Steinunn SF 120 tunnur, Stein-
unn SH 120 tunnur og Saxhamar
SH 1140 tunnur. Aðrir bátar voru
með nokkru minni afla, en annars
var veiðin mjög jöfn í gær.
Frjóvgast loðnuhrogn sem fara
út með dæluvatni skiljaranna?
— Flest bendir til að svo sé segir Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur
ið er að veiðum á grunnu vatni og
heppilegum botni, þá væri engin
ástæða til annars en að ætla að úr
miklum hluta þessara hrogna
kæmu lífvænleg seiði.
,,Ég held að þess vegna, að
menn ættu að fara mjög varlega í
að setja hrognaskiljara um borð í
skipin, og einbeita sér frekar að
ná hrognunum úr fiskinum, um
leið og landað er, því ef þau
frjóvgast eru allir möguleikar fyr-
ir hendi fyrir seiðin, og það er
betra að veiða þeim mun meira af
kynþroska loðnu en að hirða
hrognin.
| TIL hægri á myndinni sést loðnuskiljari. Þegar loðnunni er dælt um
i borð I veiðiskip, skilst hún frá dæluvatninu og yfir háhrygningattfma
| loðnunnar losnar alltaf mikið af hrognum úr loðnunni þegar henni er
dælt, m.a. vegna hins mikla þrýstings sem hafður er á dælunum. Nú er
j talið að hrognin, sem lendi útbyrðis, frjóvgist og verði að seiðum.
— ÞAÐ bendir flest til
þess, að nánast öll þau
hrogn, sem fara útbyrðis
aftur með dæluvatninu frá
loðnuskiljurunum frjóvg-
ist, sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur
þegar Morgunblaðið
spurði hann hvort rétt
væri sem margir sjómenn
héldu fram, að þau hrogn
sem spýttust úr loðnunni
þegar henni væri dælt úr
nót um borð í veiðiskip
frjóvguðust og yrðu að
seiðum.
Sem kunnugt er er hrognainni-
hald loðnu mjög mikið er komið
er að hrygningu og er nær þriðj-
ungur af þunga loðnunnar síð-
ustu daga fyrir hrygninguna. TVö
s.l. ár hafa verið settir upp sér-
stakir hrognaskiljarar í landi til
að ná hrognunum úr loðnunni
þegar landað er í bræðslu, en
hrognin eru mjög verðmæt. S.l.
vetur náðist góður árangur á
þessu sviði og einstakir útgerðar-
menn og skipstjórar hafa haft
áhuga á að setja hrognaskiljara
um borð f veiðiskipin, sem skildu
hrognin frá dæluvatni um leið og
dælt væri um borð. Það þýddi að
lítið sem ekkert af hrognunum
færi í sjóinn aftur.
Að sögn Hjálmars Vilhjálms-
sonar er ekki enn vitað hvað verð-
ur um hrognin eftir að þau koma í
sjóinn frá skiljurunum, en ef ver-
Miklar annir hjá bænd-
um á óþurrkasvæðunum
MIKLAR annir hafa verið hjá
bændum á óþurrkasvæðinu sfð-
ustu daga, þar sem keppzt hef-
ur verið við á hverjum bæ að ná
inn sem mestu heyi þessa fá-
gætu þurkkdaga, sem komið
hafa f þessari viku. Hey hefur
víða legið lengi og er orðið lé-
legt, en einnig hefur víða verið
slegið á nýjan leik. Enda þótt
þykknað hafi upp á S-
Vesturladi og Vestfjörðum
seinnipartinn í gær og gert sé
ráð fyrir súld fram eftir þess-
um degi, þá eru batnandi veð-
urhorfur þegar Ifður á daginn
og þurrkur gæti orðið um helg-
ina. Mbl. hafði samband við
nokkra fréttaritara sfna á
óþurrkasvæðunum og spurðist
fyrir um útlitið eftir þurrkinn.
Hjalti Sigurbjörnsson á Kiða-
felli í Kjós sagði að þar um
slóðir væru allir í heyskap, sem
vettlingi gætu valdið. Þurrkur-
inn hefði þó ekki nýtzt sem
skyldi vegna þess hve blautt
hefði verið undir, en menn
munu þó hafa náð nokkru af
Framhald á bls. 20