Morgunblaðið - 12.10.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
3
30. þing BSRB sett í gær:
Öhjákvæmilegt að samræma laun opinberra
starfsmanna launum á almennum vinnumarkaði
ÞING Bandalags starfsmanna rfkis og bæja hið 30. f
röðinni hófst f gærmorgun að Hótel Sögu. Þing
bandalagsins sækja að þessu sinni 233 fulltrúar en
alls eru félagar BSRB rúmlega 12 þúsund. Höfuðvið-
fangsefni þingsins er mótun stefnu f væntanlegum
kjarasamningum BSRB á næsta ári en þeir samning-
ar verða þeir fyrstu, sem BSRB gerir hafandi verk-
fallsrétt til að fyigja eftir kröfum sfnum. Kristján
Thorlacius, formaður BSRB, setti þingið og sfðan
tóku til máls fulltrúar annarra launaþegasamtaka,
sem borðið var til þingsins. Þingforseti var kjörinn
Albert Kristinsson úr Hafnarfirði og varaforsetar
þau Kristín Tryggvadóttir og Guðmundur Gunnars-
son.
1 upphafi þingsetningarræðu
sinnar minntist Kristján Thor-
lacius, félagsmanna BSRB, sem
látist hafa frá síðasta þingi sam-
bandsins. Þá rakti Kristján
nokkuð þróun kjaramála opin-
berra starfsmanna frá því að
siðasta þing BSRB var haldið
og tók fram að höfuðviðfangs-
efni þessa þings yrði mótun
stefnu vegna væntanlegra
kjarasamninga á næsta ári en
þeir samningar yrðu í fyrsta
skipti gerðir i skjóli verkfalls-
réttar.
Um siðustu aðalkjara-
samninga opinberra starfs-
manna sagði Kristján að með
þeim samningum hefði verið
stefnt að því að ná eins langt
með launahækkanir og unnt
var til að vega á móti verð-
hækkunum og ekki sist að ná
fram verkfalls rétti til þess að
samtökin þyrftu ekki í framtíð-
inni að heyja jafn vonlitla
kjarabaráttu og löngum áður,
eins og Kristján orðaði það.
Sagði Kristján stærsta verk-
efni launþegasamtakanna, sem
framundan blasti væri að vinna
upp þá stórkostlegu kjaraskerð-
ingu, sem launafólk hefði orðið
fyrir á síðustu árum. auk þess
sem óhjákvæmilegt væri að
samræma launakjör annars
vegar starfsmanna hjá ríki og
sveitarfélögum og hins vegar
hjá öðrum atvinnurekendum í
landinu.
Með samanburði á launum
opinberra starfsmanna í ná-
grannalöndunum og hér sýndi
Kristján fram á áð þrátt fyrir
háar þjóðartekjur er íslenzkt
launafólk ekki nema hálfdrætt-
ingar f launum miðað við launa-
fólk á Norðurlöndunum.
Lægstu mánaðarlaun opinberra
starfsmanna í Danmörku voru í
april 1976 126 þúsund fsl. krón-
ur en hér á landi voru þau 63
þúsund krónur.
Kristján gerði þessu næst að
umtalsefni hversu mjög opin-
berir starfsmenn hafa dregist
afturúr f laununum og bar sam-
an hækkun vísitölunnar, ann-
ars vegar frá því að hætt var að
greiða visitöluuppbót eftir 1.
marz til 1. ágúst 1976 og hins
vegar launahækkanir, sem
opinberir starfsmenn hafa
fengið á sama tíma. Sagði
Kristján að vfsitala framfærslu-
kostnaðar hefði á þessu tíma-
bili hækkað um 150% og ef
kaupgjaldsvfsitala hefði verið
reiknuð út á þessu tfmabili
hefði hún líklega hækkað um
130%. Aftur á móti hefði kaup
opinberra starfsmanna hækkað
á sama tíma um 40—70%.
Um skattamál sagði Kristján
orðrétt: „Stefnan i skattamál-
um er óþolandi. Atvinnu-
rekendur sleppa að mestu við
tekjuskatt. Þeim er lögheimil-
aður frádráttur vegna fyrninga,
vaxtaútgjalda, varasjóðs o.fl.
liða. Síðan er söluhagnaður
vegna verðbólgu við sölu at-
vinnutækja skattfrjáls. Vegna
þessa er auðvelt fyrir atvinnu-
rekendur að stofna nýtt fyrir-
tæki, selja þvi atvinnutækin og
byrja að fyrna á nýjan leik.“
Kristján ræddi þá almennt um
kjaramál launafólks og efna-
hagsmál þjóðarinnar og sagði
að launaþegasamtökunum bæri
réttur og skylda til þess að
beita áhrifum sinum, ekki að-
eins á kjaramál í þrengstu
merkingu, heldur á öllum svið-
um efnahagsmálanna. Hann
tók fram að forgangsverkefnið
nú, sem höfuðsamtök launa-
fólks ættu að vinna að sam-
eiginlega, væri að ná fram
auknum kaupmætti launa í
landinu.
Að síðustu ræddi Kristján
nokkuð þær skoðanir, sem fram
hafa komið i fjölmiðlum að
undanförnu að samtök opin-
berra starfsmanna væru að
gliðna i sundur og f því sam-
bandi sagði hann orðrétt:
„Öánægja með launakjörin
koma mér síst á óvart og ekki
heldur þótt einstaklingar og
jafnvel einstakir smáhópar
hugsi svo þröngt, að þeir sjái
ekki skóginn fyrir trjánum. En
þegar slikar raddir eru birtar i
fjölmiðlum á áberandi hátt,
verður ekki hjá því komist að
um þær verði rætt á þessu þingi
— þar verði fjallað um sjálfa
Kristján Thorlacius, for-
maður BSRB, setur þing
bandalagsins.
tilveru samtakanna. Þessar
raddir geta veikt aðstöðu sam-
takanna, ef þær eru ekki
ræddar og svarað skýrt af þing-
inu. Ég skal segja mína skoðun
strax. Ég tel, að allt frá stofnun
BSRB hafi verið mikil þörf
fyrir félög opinberra starfs-
manna að hafa með sér heildar-
samtök. Og að aldrei — aldrei
— hafi þörfin fyrir heildar-
samtökin verið brýnni en ein-
mitt nú.“
Þegar Kristján Thorlacius
hafði sett 30. þing BSRB tóku
til máls gestir þingsins. Björn
Jónsson, forseti Alþýðu-
sambands íslands, sagði að
islenskir launamenn litu með
eftirvæntingu til þings BSRB
nú og þings ASÍ, sem haldið
yrði innan skamms. Barátta síð-
ustu missera hefði einkennst af
varnarbaráttu en nú væri það
krafa islenskra launamanna að
þessari varnarbaráttu yrði
lokið. Sagði Björn að þrátt fyrir
áfanga i lífeyrissjóðamálinu á
vettvangi ASÍ og verkfallsrétt
til handa félögum BSRB, yrði
ekki framhjá því litið að launa-
kjörum hefði stórlega hrakað
og verðbólgan haldið áfram að
geysa. Þá hvatti Björn til auk-
ins samstarfs BSRB og ASÍ og
sagði að menn yrðu að viður-
kenna það hreinskilnislega að
þetta samstarf hefði ekki verið
nóg en óþarfi væri að tilgreina
þar ástæður. Að endingu
fagnaði Björn þeim tillögum,
sem liggja fyrir þingi BSRB um
inngöngu BSRB i Alþýðu-
samband Norðurlanda og
Alþýðusamband Evrópu.
Aðrir gestir, sem töluðu við
þingsetninguna, voru Jónas
Bjarnason, formaður Banda-
lags háskólamanna, Ingólfur
Stefánsson, fulltrúi Farmanna
og fiskimannasambands ís-
lands, Sólon Sigurðsson, for-
maður Sambands ísl. banka-
manna og Sæmundur Friðriks-
son, fulltrúi Stéttarsambands
bænda. Þá tilkynnti formaður
BSRB að þrjú ný félög hefðu
gengið í BSRB frá því að siðasta
þing var haldið en það eru
Félag starfsmanna Mosfells-
hrepps, Starfsmannafélag Sel-
tjarnarness og Starfsmanna-
félag Garðabæjar.
Eftir hádegi i gær flutti
Kristján Thorlacius skýrslu
stjórnar BSRB, Einar Olafsson
gjaldkeri skýrði reikninga og
gerð var grein fyrir tillögum,
sem lagðar voru fyrir þingið, en
þar má nefna tillögur um kjara-
mál, vinnuvernd, samningsrétt,
skattamál, efnahagsmál, jafn-
réttismál og tillögu um stofnun
Reiknistofnunar launamála.
Þingi BSRB verður fram-
haldið í dag en gert er ráð fyrir
að því Ijúki siðdegis á fimmtu-
dag.
FERÐIR TIL GAGNS OG GLEÐI
MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNI...........
\
Alþjóðleg sýning ■ á skrifstofuvörum mSSk köln | ■ ig._24.okt.'76 H _ 14. IKA Alþjóðleg matreiðslusýning |j FRANKFURT WJ 21—28 okt. '76 ^^'Pantið snemma Hótelherbergin verða af- pöntuð 7 dögum fyrir sýningu Ódýrar Lundúnaferðir eru aö hefjast aftur. Brottför hvern laugardag.
m SIAL '76 Alþjóðleg matvælasýning pP PARÍS 1 5 —20 nóv '76 Pantið snemma. Hótelherbergin verða af pöntuð 7 dögum fyrir sýningu. Alþjóðleg vélasýning ^ fyrir fataiðnað KÖLN 3.— 7. nóv. '76 Pantið snemma Hótelherbergin verða af- pöntuð 7 dögum fyrir sýningu Kanaríeyjaferðir byrja 27. október. Pantið tímalega.
JT """ Utvegum sýningarskrár, sýningarsvæði, aðgöngumiða, hótelherbergi
Seljum einnig farseöla með öllum flugfélögum um allan heim á sérstaklega hagkvæmum fargjöldum.