Morgunblaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976 ÞAÐ ætti ekki að verða erfitt verk fyrir FH-inga að komast f aðra umferð Evrópubikarkeppnf meistaraliða f handknattleik að þessu sinni. Á laugardaginn léku Hafnfirðingarnir fyrri leik sinn f fyrstu umferðinni við færeysku rneistarana frá Vestmanna- fþróttafélagi, og sigruðu f leikn- um með 15 marka mun. Þótt úti- leikurinn verði FH-ingum örugg- lega erfiðari en leikurinn á laug- ardaginn, þá má ætla að hann verði þeim einnig auðunninn, þar sem mjög mikill getumunur er á þessum tveimur liðum. Það var aðeins einu sinni i leiknum á laugardaginn að staðan var jöfn, eða þegar liðin höfðu Geir Hallsteinsson dregur greinilega ekki af sér er hann stekkur inn f teiginn hjá Færeysku meisturunum og skorar. Færeysku meistararnir höfðu ekki mikið í fríska FH-inga að gera skorað sitt hvort markið. Eftir það sigu FH-ingar jafnt og þétt fram úr, og hefðu ef til vill getað sigrað með enn meiri markamun, hefðu þeir lagt á það áherzlu, en langtimum saman i leiknum á laugardaginn var auðséð að FH- ingar lögðu meiri áherzlu á að skemmta áhorfendum en að þjarma að andstæðingi sfnum. Og vfst er að þeim tókst lika að veita þeim fáu er lögðu leið sína til þess að fylgjast með leiknum skemmt- un með brellum sínum. Voru þeir Geir H rllsteinsson og Viðar Sfmonarson þar fremstir í flokki og heppnaðist þeim hvað eftir annað að leika svo á færeysku handknattleiksmennina að þeir stóðu og horfðu á þá og göptu af undrun. Undirritaður er þeirrar skoðun- ar að FH-liðið hafi, þrátt fyrir allt, haft gott af tapi sfnu fyrir ÍR f fyrsta leik Islandsmótsins. Að minnsta kosti var allt annað að sjá til liðsins nú en í fyrri hálfleik þess leiks, sérstaklega var sóknar- leikur FH-liðsins nú beittur og fjölbreyttur. Vörnin var hins veg- ar slakari svo og markvarzlan, en flest mörkin sem Færeyingarnir gerðu í leiknum á laugardaginn voru af ódýrustu tegundinni. Auðvitað er mjög erfitt að leggja mat á FH-liðið eftir leik sem þann á laugardaginn. Til þess voru andstæðingarnir alltof slappir. Efa verður að Ieikmenn FH komist upp með brellur þær er þeir sýndu f leiknum á móti íslenzkum liðum, sem þekkja vel til leikmannanna. Lið Vestmanna-íþróttafélags er sennilega mjög svipað að styrk- leika og slakari liðin hér í 2. deild eða þau beztu í 3. deild. Alla ógn- un vantaði í sóknarleik liðsins, enda hafði það nánast engum skyttum yfir að ráða. Og í vörn gerðu einstakir leikmenn sig seka um byrjendavillur. Beztu leikmenn FH f leiknum á laugardaginn voru þeir Geir Hall- steinsson og Viðar Símonarson. Sérstaklega þó Geir sem var i essinu sínu. Skoraði hann glæsi- leg mörk og átti margar frábærar sendingar á félaga sfna sem gáfu mörk. Er greinilegt að Geir verð- ur sterkur f vetur. Það eina sem honum virðist vanta um þessar mundir er örlftið meiri snerpa, en hún ætti að koma með æfingu. I FH-liðinu vakti einnig athygli ungur nýliði, Júlíus Pálsson að nafni. Þar er á ferðinni piltur sem mikils má af vænta þegar hann öðlast meiri leikreynslu. Beztu menn færeyska liðsins voru þeir Johnny Joensen og Hanns Joensen, en þeir einir myndu eiga aðgang að íslenzkum 1. deildar liðum. — stjl. Gunnsteinn Skúlason stekkur inn úr horninu og skorar eitt marka sinna f leiknum við IR. IR VAR ENGIN HINDRUN FYRIR VAL Valsmenn sýndu oft góöan leik og unnu með 9 marka mun fR-liðið sem tapaði leik sínum við Val á sunnu- dagskvöldið var ekki nema svipur hjá sjón frá því það bar sigurorð af íslands- meisturum FH fyrra sunnudag. Að vfsu voru andstæðingarnir nú greini- lega betri en FH-ingarnir, en samt sem áður var fR- liðið ákaflega dauft og óákveðið f leiknum. Tím- unum saman virtust leik- menn liðsins vera hálf ráð- villtir í sóknarleiknum og í varnarleiknum létu þeir Valsmenn alltof oft plata sig svo illa, að næsta auð- velt var fyrir Valsmenn að skora. Má vera að fjarvera „gamla mannsins“, Gunnlaugs Hjálmars- sonar, hafi haft sitt að segja fyrir ÍR-inga, og eins gengu tveir leik- manna liðsins, Vilhjálmur Sigur- geirsson og Bjarni Bessason, ekki heilir til skógar. Þyngst á metun- um var þó að sá leikmaður sem tvfmælalaust er burðarás liðsins, Brynjólfur Markússon, var langt frá því að vera í essinu sfnu á sunnudagskvöldið og er langt sfð- an maður hefur séð hann leika jafnslakan leik. En því verður heldur ekki á móti mælt, að Valsmenn léku þennan leik mjög vel á köflum og þá sérstaklega í fyrri hálflefk. All- an leikinn var vörn liðsins ákaf- lega virk og hreyfanleg og hafði yfir sér dálítið af hinum rómaða „mulingsvélarblæ", þótt vélin gengi öllu þýðar og átakaminna en oft áður. Það má mikið vera ef Valsmenn verða ekki í baráttunni á toppnum í vetur. Liðið hefur í það minnsta alla burði til þess, ef svo heldur sem horfir. Sóknarleikur Valsmannanna í fyrri hálfleik á sunnudagskvöldið var oft mjög skemmtilegur og fjölbreyttur. Þannig var t.d. ÍR- vörnin hvað eftir annað teygð út í hornin, og sfðan opnuð rækilega með snöggum sendingum og hraða Valsmannanna. Nokkur markanna sem liðið gerði í leikn- um voru hreinlega gullfalleg, eins og t.d. sendingar úr hornunum inn á línumennina, og eins komu mörk úr þrumuskotum utan frá punktalínu. Áttu þar einkum tveir leikmenn hlut að máli, þeir Jón Pétur Jónsson og Þorbjörn Guðmundsson, en þeir eru greini- lega báðir i mikilli framför um þessar mundir, einkum þó sá fyrr- nefndi, sem sennilega hefur leik- ið þarna sinn bezta leik til þessa. Auk þess að vera mjög drjúgur í sóknarleiknum stóð Jón Pétur sig með miklum ágætum í vörninni, þar sem hann gegndi veigamiklu hlutverki. Þá er það ekki lítill styrkur fyrir Yalsliðið að hafa yf- ir jafn góðum hornamönnum og Bjarna Guðmundssyni og Gunn- steini Skúlasyni að ráða, en Gunn- steinn gerði þrjú mjög falleg mörk undir lok leiksips. Sveif hann langt inn í teiginn úr blá- horninu og skoraði með föstum skotum. Minntu tilþrif hans á „gömlu góðu dagana“ þegar Gunnsteinn lék þetta hvað eftir annað, bæði f félagsleikjum og landsleikjum. Sem fyrr greinir virkaði IR- liðið mjög dauft í þessum leik, og aldrei brá fyrir þeirri snerpu og leikgleði sem færði liðinu 11 marka forystu í hálfleik á móti FH á dögunum. Leikmennirnir reyndu alltof mikið að hnoða inn f hina sterku vörn Vals og spilið gekk mest upp á miðjuna, þar sem oft var þröngt á þingi. Svo mikið ráðleysi var f spili ÍR-inga að a.m.k. tvfvegis var knötturinn dæmdur af því vegna ógnunar- leysis í sóknarleiknum. En þrátt fyrir að svona gengi í leik þessum, þarf varla að gera öðru skóna en að IR-Iiðið hressist —stjl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.