Morgunblaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÖBER 1976
1 lok hvers námskeiðs fer fram keppni f ýmsum þrautum milli
þátttakenda f námskeiðunum. Þessi mynd var tekin af sigurvegaran-
um á námskeiðinu f Keflavfk.
Svíi leiðbeinir eigend-
um léttra bifhjóla
ÞESSA dagana dvelur hér á landi
á vegum Bindindisfélags öku-
manna (BFÖ) sænskur leiðbein-
andi, Ivar Norén, frá Jönköping.
Hann er hingað komínn til að
leiðbeina eigendum léttra bif-
hjóla á námskeiðum, sem haldin
eru á sex stöðum. Nú þegar hafa
verið haldin námskeið f Vest-
mannaeyjum og Keflavfk. Næsta
námskeið verður 6.—7. oktðber
n.k. f Hafnarfirði. Þá verða nám-
skeið á Akranesi 1. og 12. þessa
mánaðar og f Kópavogi 13. og 14.
október.
í fréttatilkynningu frá BFÖ
segir að slys á ökumönnum vél-
hjóla hafi verið mjög tið hér á
landi og sé brýnt að sporna á móti
þeirri þróun. 1 þeim tilgangi sneri
BFÖ sér til Bindindisfélags öku-
manna í Sviþjóð (MHF), sem
heldur skipulögð námskeið fyrir
unga ökumenn vélhjóla, með
beiðni um, að þeir aðstoðuðu við
að halda sams konar námskeið
hér.
Námskeið þessi eru byggð upp
þannig, að sýndar eru kvikmynd-
ir, er fjalla um hjólin, viðhald
þeirra og akstur, og um tækniæf-
inga- og törfæruþrautir. Sýnt er
fram á mikilvægi öryggishjálma
og þátttakendur fá að spreyta sig
á ýmsum þrautum og jafnvel tor-
færuakstri, sem leiðbeinandinn
leggúr fyrir þá.
Erfitt að meta efni fyr-
ir börn og unglinga
NÝLEGA sendu kennarar f Foss-
vogsskóla frá sér ályktun, þar
sem skorað er á yfirstjórn sjón-
varpsins að breyta niðurröðun
dagskrárefnis f sjónvarpi, svo að
efni ætlað börnum og unglingum
verði fyrr f dagskránni, en ekki
svo seint, sem kennararnir töldu.
Morgunblaðið leitaði í gær til
Jóns Þórarinssonar, deildarstjóra
lista- og skemmtideildar sjón-
varpsins, og spurðist fyrir um
það, hvort sjónvarpið ætlaði að
verða við þessum tilmælum. Jón
sagði að sjónvarpið væri löngu
búið að gera sér grein fyrir þvi að
röðun dagskrárefnis dagskrárefn-
is yrði að vera framkvæmd með
mið af þessari þörf og allt starf
dagskrármanna miðaðist m.a. að
því að uppfylla þessar kröfur.
Hins vegar vandaðist málið, þegar
kæmi að þvf að dæma, hvaða efni
væri barnaefni og hvað ekki.
Jón nefndi sem dæmi heims-
styrjaldarþættina, sem sýndir
hefðu verið i fyrravetur. Að mati
sjónvarpsins hefði þar verið ýmis-
legt, sem ekki hefði verið talið við
hæfi barna og því verið ákveðið
að hafa þættina sðdaf dagskránni.
Skömmu siðar eða eftir að
sýningr á þáttunum voru hafnar
komu kvartanir, m.a. frá kennur-
um, þar sem það var átalið
hversueet esir þættis væru vegna
þess að börn og unglingar ættu að
fá tækifæri til þess að sjá þá. Þá
sagði Jón að það hefði einnig
verið mat sjónvarpsins að ýmsir
sakamálaþættir ættu ekki að vera
fyrir börn, en kannski væru það
einmitt þættirnir sem börn
sæktust mest eftir. Jón sagði að
auðvelt væri að setja upp ákveðna
reglu um niðurröðun
dagskrárefnis, en þegar að
framkvæmd hennar síðan kæmi
byrjuðu erfiðleikarnir.
Skoðunarferd
til Reykiavíkur
ROTARY-klúbbur Akraness
bauð eldri borgurum á staðnum í
skoðunar- og skemmtiferð til
Reykjavfkur 26. ágúst s.l.
Lagt var af stað frá Bifreiðastöð
Akraness kl. 12.30 I tveimur bfl-
um, og voru f ferðinni um 90
manns. Þegar til Reykjavfkur
kom var safn Einars Jónssonar
skoðað. Voru allir mjög hrifnir og
undrandi yfir að sjá, hvað einn
maður hafði afkastað með gerð
þessara gullfallegu mynda. Dval-
ið var f safninu á hálfan annan
tíma.
Siðan var farið f skoðunarferð
um Reykjavík. Voru fengnir tveir
leiðsögumenn hvor í sinn bíl, ekið
vítt og breytt um borgina og saga
hennar skýrð eftir þvf sem hægt
var á stuttum tfma. Fræddust
margir um margt, sem þeir vissu
ekki áður um höfuðborgina. Síð-
ast v?r farið í Árbæjarsafnið, það
skoðað og þar drukkið kaffi og
súkkulaði. Um klukkan 7 var svo
haldið heimleiðis.
Á heimleiðinni var farið f
kringum Meðalfell. Þótti fólki
fallegt að fara fram með vatninu
og sjá alla þessa sumarbústaði þar
og fólk við veiðar. Komið var við í
Botnsskála og fengu menn sér
hressingu. Síðan var haldið heim
og komið til Akraness kl. 9.30 um
kvöldið eftir vel heppnaðan dag.
Allir dáðust að veðrinu, sem lék
við ferðalagana, glaða sólskin,
þótt rignt hefði mikið bæði fyrir
og eftir.
Mikið var sungið á leiðinni og
lesin upp kvæði.
Þetta var yndislegur dagur,
sögðu allir og veðurguðirnir áttu
sinn þátt í því: Sól úti, sól í sinni
og sól alls staðar.
Ó.
Ríkið en
ekki ÁTVR
MISHERMT var eftir Jóni Kjart-
anssyni forstjóra Áfengis- og
tóbaksverzlunar rfkisins f blaðinu
á sunnudag, að ÁTVR ætti hús við
Grensásveg. Það er „rfkið“,
þ.e.a.s. ríkissjóður, sem á þetta
hús.
Eftirlit með losun
úrgangsefna í hafið
FYRSTI fundur aðildarrfkja að
Alþjóðasamþykktinni um varnir
gegn mengun sjávar vegna los-
unar úrgangs og annarra efna f
hafið var haldinn fyrir skömmu f
aðalstöðvum Alþjóðasiglinga-
malastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, IMCO, f London.
Fundurinn ræddi mörg
áríðandi málefni, m.a. losun
geislavirkra úrgangsefna og
ræddi í þvf sambandi frumdrög
að skilgreiningu á mjög geisla-
virkum úrgangsefnum og ráð-
leggingum um meðhöndlun
þeirra. Einnig var rætt um
hvernig bezt mætti skipuleggja
alþjóðakerfi um heimildir til los-
unar í hafið og samræma til-
kynningar og skráningu slfkra
heimilda og um samstarf til að
samræma allar aðgerðir til varnar
gegn losun úrgangsefna á öllum
hafsvæðum.
Þá var einnig fjallað um leiðir
til að auka tæknilega aðstoð við
þau lönd, sem þurfa á aðstoð að
halda til að geta hrundið f fram-
kvæmd ákvæðum þessarar
alþjóðasamþykktar.
Þessi mál hafa verið til umræðu
um árabil á alþjóðavettvangi og
1972 var undirrituð í London
alþjóðasamþykkt um varnir gegn
losun úrgangsefna f hafið sem
oftast er nefnd Lundúnasam-
þykktin. Þessi samþykkt, sem tók
gildi 1975, var undanfari þessa
fundar en þar voru mættir full-
trúar 14 rfkja af 29 aðildarríkjum
samþykktarinnar auk 23 annarra
rfkja sem flest eru að undirbúa
staðfestingu á samþykktinni. Auk
þessa voru áheyrnarfulltrúar frá
ýmsum stofnunum á fundinum.
Hjálmar R. Bárðarson, siglinga-
málastjóri Islands var einróma
kjörinn formaður á fundinum, en
hann hefur átt verulegan þátt f
þeim samningum sem að lokum
leiddu til þessarar Alþjóðasam-
þykktar og hann hefur tekið
virkan þátt f starfi IMCO, einkan-
lega að þvf er varðar öryggi fiski-
skipa og varnir gegn mengun.
}ÞURF/D ÞER H/BYL/
★ Espigerði
4ra herb. íbúð á 2. hæð
sérþvottah. sérhiti.
if Sólvallagata
4ra herb. íbúð á 2. hæð verð kr.
6.8 millj. útb. 4 millj.
if Flókagata
4ra herb. risíb. svalir íb. er laus.
if Vesturbrún
4ra herb. jarðhæð, sérinng.
if Vesturgata
4ra herb. íb. sér inng. verð kr.
7.0 millj. útb. kr. 4.5 millj.
if Furugrund
4ra herb. íb. tilbúnar undir tré-
verk til afhendingar strax.
if Barmahlíð
3ja herb. jarðhæð sérínng.
if Hverfisgata
2ja herb. ib. á 1. hæð. sérinng.
HÍBYLI & SKIP
Garðastræti 38 Sími 26277
Gísli Ólafsson 201 78
2ja—3ja herb. íbúðir
Hringbraut, Ránargötu, Grettis-
götu, Hraunbæ, Njálsgötu,
Tjarnarból, Nýbýlavegi, Ásbraut,
Hafnarfirði, norðurbæ.
4ra—6 herb. íbúðir
Háaleitisbraut, Hæðargalrði,
Langagerði Ljósheimum, Rauða-
læk, Dunhaga, Skipholti, Njáls-
götu, Hraunbæ, Breiðholti.
Kópavogi, Hafnarfirði og viðar.
Einbýlishús og raðhús
Ný — Gömul — Fokheld
Reykjavik, Kópavogí, Mosfells-
sveit.
ÓSKUM EFTIR ÖLLUM STÆRÐ-
UM ÍBÚÐA Á SÖLUSKRÁ
íbúðarsalan
Borg
Laugavegi 84 sími 14430
Heimasími 14537
Lögm. Finnur T. Stefánsson
Fasteignasalan
JLaugavegi 18^_
simi 17374
Fálkagata
Glæsileg 8 herb. ibúð í nýlegu
húsi. Eign i sérflokki.
Til sölu
2ja herb. íbúðir við Nýlendu-
götu,
við Dvergabakka,
við Hamraborg,
3ja herb. íbúðir
við Barmahlíð,
við Rauðagerði,
við Engjasel,
við Þinghólsbraut
4ra—5 herb. íbúðir
við Ljósheima,
við Kleppsveg
við Vesturberg,
við Hrafnhóla,
við Löngubrekku,
við Álfaskeið,
við Suðurvang.
Sérhæðir
við Nýbýlaveg,
við Unnarbraut,
við Grenigrund.
Einbýlishús og raðhús
í Smaibúðahverfi,
við Álfhólsveg,
við Núpabakka,
við Selbraut,
við Ásbúð,
í Mosfellssveit
og Ólafsfirði,
Iðnaðarhúsnæði
Iðnaðarhúsnæði, um
150 ferm. á jarðhæð i
Vogahverfi (lofthæð 3,4
metrar) Mjög góð inn-
keyrsla. Allt sér.
Seljendur athugið
Höfum ávallt kaupendur að flest-
um stærðum og gerðum
fasteigna.
Athugið kvöldsímann 421 68
Haraldur Magnússon viðskipta-
fræðingur,
Sigurður Benediktsson sölu-
maður.
Vesturbær — sérhæð
Höfum fengið í einkasölu 130 fm. sérhæð á Högunum. fbúðin
skiptist i tvær samliggjandi stofur, tvö svefnherb.. eldhús með rúm-
góðum borðkrók, eitt herb. í risi fylgir, suður svalir, bílskúrsréttur.
Eign í góðu ástandi. Verð 14.5
millj., útb. 10—1 1 millj. Uppl.
aðeins á skrifstofunni.
tiÚSANAUSTI
SKIPA-FASTEIGNA OG VERÐBRÍFASAIA
VESTURGÖTU 16 - REYKJAVIK
21920 22628
Austurstræti 7
Simar. 20424 — 14120
Heima. 42822 — 30008
Sölustj. Sverrir Kristjánss,
viðskfr. Kristj. Þorsteins.
Við Garðsenda
2ja herb. kjallaraíbúð ca. 60 fm.
Verð kr. 5 millj. Útb. 3.5 millj.
Við Nönnugötu
ca 70 til 80 fm. 3ja herb. ris-
íbúð. Svalir. Sérhiti. Verð 7.5
millj. Útb. 4.5 millj.
Við Lundarbrekku
stór 2ja herb. ibúð á 1. hæð.
Laus.
Við Miðvang
stór 2ja herb. ibúð í lyftuhúsi,
þvottaherb. á hæðínni. Mjög
góð og mikil sameign.
Við Vallartröð
góð kjallaraibúð ca 65 fm. Verð
kr. 4.5 millj. Útb. 3.0—3.5
millj.
í Austurbæ
Til sölu 100 fm. inndregin efsta-
hæð í fjórbýlishúsi (inngangur
með efrihæð) íbúðin er nú nýtt
þannig. hol, skáli, saml. stofur,
eldhús með góðri innréttingu,
borðkrókur, innaf eldhúsi er
þvottaherb. m/skápum, flisalagt
bað og hjónaherb. Suður svalir.
LAUS STRAX. Þessi íbúð hentar
mjög vel barnlausu fólki með
mikla búslóð.
Hátún
Til sölu 3ja herb. íbúð á 7. hæð.
Mikið útsýni. Laus fljótt við góða
útb. Höfum einnig 4ra herb. ca
1 1 7 fm. íbúð á 6. hæð. Útb. má
skipta. Vönduð íbúð.
Sjávarlóð
til sölu á Seltjarnarnesi. Verð 5
millj. Allt að kr. 1.6 millj. lánað
til 5 ára. Lóðin er byggingarhæf.
Eskihlíð
af sérstökum ástæðum eigum
við eftir eina 3ja herb. ibúð á 2.
hæð í húsi sem er verið að
byggja við Eskihlið. íbúðinni
verður skilað fullbúinni án gólf-
teppa 1. júlí.
í Mávahlíð
ca 70 fm. 4ra herb. risibúð.
Við Breiðvang Hafn.
til sölu 4ra herb. ibúð um 100
fm. Ibúðin rúmlega tilbúin undir
tréverk. Laus strax.
Við Suðurvang
ca. 1 40 fm. 4ra til 5 herb. ibúð
á 1. hæð. Þvottaherb. á hæð-
inni.
í smiðum
í Mosfellssveit
við Brekkutanga
fokhelt raðhús kjallari og tvær
hæðir, ásamt innbyggðum bíl-
skúr, samtals ca. 280 fm. Verð
kr. 8.0 millj.
Í Seljahverfi
fokhelt raðhús. kjallari og tvær
hæðir, steypt loftplata (ekki bratt
þak). Verð kr. 7.5—8.0 millj.
í Hafnarfirði
Raðhús á einní hæð ásamt
innbyggðum bilskúr, samtals ca
1 90 fm. Húsið er rúmlega tilbú-
ið undir tréverk. l'búðarhæft.
Á Álftanesi
145 fm. fokhelt einbýlishús á
einni hæð. Einingahús, frágeng-
ið þak, gler i gluggum. Æskileg
skipti á 3ja herb. ibúð.
Við Lynghaga
mjög góð 4ra herb. risibúð. G5ð-
ir kvistir. Suður svalir. (búðin er
nýstandsett.