Morgunblaðið - 12.10.1976, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR fl. OKTÖBER 1976
Ljósm. Mbl RAX
Eg
kann
kvota-
Valdimar kokkur í eldhúsinu.
Síldinni hellt í kassa.
Skroppið á síldarmiðin
SILFUR hafsins — síldin — er nú
farin að setja svip á sjávarpláss á
Suðurlandi á ný og undanfarið
hefur verið saltað af miklum
krafti á mörgum söltunarstöðvun-
um. Ekki er ólíklegt að eitthvað
fækki á biðstofum lækna sums
staðar meðan aðalsöltunin stend-
ur yfir. í það minnsta var það svo,
að meðan síidin var og hét, hér
fyrr á árum, var lítið um að kven-
fólk kæmi á biðstofur lækna á
meðan svo stóó á. „Nú já, er sölt-
un í dag?“ sagði þekktur læknir á
Suðurnesjum þegar engin konan
sást á biðstofunni. En það er ekki
aðeins að það þurfi að salta síld-
ina, fyrst er að veiða hana og nú
er sumargotssiidin veidd í annað
sinn eftir nokkurra ára friðun,
sem virðist ætla að bera góðan
árangur. Á þessu hausti er heim-
iit að veiða 15 þúsund lestir af
síld, þar af mega hringnótabátar
veióa allt að 10 þús. lestir, en alls
hafa 52 skip heimild til að veiða
það magn eftir ákveðinni kvóta-
skiptingu, þannig að hvert skip
má veiða rétt um 200 lestir.
LENGDUR UM
FIMM METRA
er heimahöfn skipsins. Þórarinn
skipstjóri gerði ráð fyrir 18 klst.
siglingu á miðin, en síðustu daga
höfðu sildarskipin aðallega verið
að veiðum austan við Ingólfs-
höfða og mörg fengið þar góðan
afla. Menn áttu því ekki von á að
neitt gerðist á næstu klukku-
stundum, en engu að síður fór það
svo, að um morguninn er Albert
var kominn nokkuð austur fyrir
Vestmannaeyjar, að fréttist að
Harpa RE hefði fundið sild
skammt undan Alviðru og fengið
þar gott kast, — sildin er ekki vön
að gera boð á undan sér. Það var
því ekki eftir neinu að biða og
strákarnir kallaðir út til að gera
allt klárt, fyrir fyrsta kastið, — en
oft á tíðum er það svo að eftir
breytingar koma upp ýmis vanda-
mál í fyrstu skiptin, sem veiðar-
færi eru látin í sjó.
„LAGÓ"
„Ég kann vel við kvótaskipting-
una, það er alltaf svo að fyrst
þegar reglur sem þessar eru sett-
ar, þá tala menn mikið um þær og
sitt sýnist hverjum, en þegar frá
líður held ég að allir muni kunna
vel við þetta,“ sagði Þórarinn
Ólafsson skipstjóri og eigandi
Alberts GK 31, en blaðamaður og
ljósmyndari Morgunblaðsins
skruppu meó Albert í fyrsta
síldartúrinn i haust í s.l. viku.
Albert var þá kominn fyrir þrem-
ur dögum frá Noregi, þar sem
skipið var lengt um 5 metra og
byggt yfir aðalþilfar þess. Kemur
þetta sér mjög vel á öllum veiði-
skap, enda er það spá manna að
búið verði að byggja yfir þilfar
flestra fiskiskipa á islandi, innan
fárra ára. Fyrir lengingu tók
Albert góð 250 tonn af loðnu, en
nú mun skipið taka yfir 500 tonn,
þá er núna miklu fljótlegra að
kassa síld í skipið, auk þess sem
það tekur helmingi fleiri kassa en
áður, og hefur það ekki svo lítið
að segja á síldveiðum, bæði hér
heima og í Norðursjónum.
Það var blíðuveður þegar við
lögðum af stað frá Grindavík, sem
Þegar Albert kom á síldarslóð-
ina undan Alviðru var Harpa þar
með gott kast á síðunni. Þegar
Harpa fékk þetta kast var hún á
leið til lands frá Ingólfshöfða-
miðunum með þokkalegan afla,
en þarna fylltí hún alla kassa um
borð. Ekki vorum við búnir að
vera lengi á þessum slóðum, þeg-
ar sæmileg torfa kom inn á asdik-
ið, og kallað var klárir. Þórarinn
fór nokkra hringi kringum torf-
una til að kanna hvernig hún
gengi og eins þurfti að athuga vei
með botninn, þar sem slæmur
botn er þarna og þvi getur iila
farið ef nótin nær að leggjast í
botn. Svo kom hrópið alit i einu.
„Lagó,“ var kallað og nótin
byrjaði að renna út úr nótakass-
anum aftast á skipinu og að lok-
um var hún öll komin út, og skip-
ið komið hringinn.
Þegar nokkur hluti nótarinnar
var kominn inn á ný, fór að koma
síld í garnið og því fór ekki milli
mála að eitthvað var í garninu.
Þórarinn skipstjóri vildi ekki
meina að mörg tonn væru í nót-
inni, „en nokkrar pöddur ættu
vera í,“ sagði hann. Að lokum var
búið að draga og þurrka að. Menn
gizkuðu á hve mikið væri, i, og
flestir héldu fram 30—50 tonn.
40 KÍLÓ í KASSA
Nú var farió að dæla síldinni-
um borð, og allt gert klárt til að
Nótin dregin inn.
una
segir Þórarinn
w
Olafsson skip-
stjóri á Albert GK