Morgunblaðið - 12.10.1976, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
Forseti íslands vid þingsetningu:
„Þar munu allir
þættir efnahagsmála
verða efstir á blaði”
Háski landhelgisátaka liðinn hjá
HÉR fer á eftir ávarp forseta íslands, herra Kristjáns
Eldjárns, sem hann flutti í sameinuSu þingi I gær, eftir að
hafa lesið forsetabréf um samkomudag Alþingis, lýst því
yfir að Alþingi íslendinga væri sett og boðið alþingis-
menn velkoma til starfa.
Heiðarleiki,
Kærleikur,
réttlæti,
stöðuglyndi
og
hógværð
,,Mér er IjúfY að bjóða alla al
þingismenn velkomna til starfa á
nýju þingi. Sagt er að fyrr á tíð
hafi þingsetningardagur jafnan
vakið talsverða athyggli f bæjarlff
inu hér í Reykjavík Nú hafa menn
stundum á orði að honum sé Iftill
gaumur gefinn, enda sé það að
vonum þar sem landsmenn láti sig
yfirleitt iftið varða um Alþingi og
störf þess. Þetta á að vera til
marks um að vegur Alþingis fari
þverrandi með þjóðinni. Um þetta
er þó erfitt að dæma með öruggri
vissu en margt virðist mér benda
til að slfk ummæli eigi ekki við rök
að styðjast. Menn eru ósparir á að
gagnrýna allt og alla, og Alþingi
fer ekki varhluta f því efni. Til
gagnrýni hafa menn rétt, eða allt
að þvf skyldu, er stundum sagt, f
lýðfrjálsu landi. En gagnrýni er
ekki sama og óvirðing eða for-
dæming. Og það er ekki heldur
sérstakt nútfmafyrirbrigði að
menn segi Alþingi til syndanna. í
þingsetningarpredikun árið 1925
var afstöðu almennings lýst á
J þessa lund orðrétt: „Alþingi verð
ur fyrir þungum áfellisdómum.
Varla heyrist nokkur maður leggja
þvf liðsyrði sem þar fer fram".
Þannig stóðu málin þá, ef taka
mætti þessi stóru orð bókstaflega.
Ætla mætti að sú stofnun væri
komin að fótum fram sem ætti sér
ekki formælendur fleiri en hér er
lýst. En sfðan þessi orð voru mælt
i sjálfri dómkirkjunni hafa lands
menn nú f hálfa öld haldið áfram
að kjósa fulltrúa sfna til Alþingis,
oftast með miklum áhuga og at
hygli, og sýna þeim traust til að
fara með málefni sfn þar. Jafn
framt er þá f verki sýndur skilning-
ur á grundvallarþýðingu Alþingis f
þjóðlffi voru. Þetta ætla ég aðgefi
sanna mynd af stöðu þingsins f
vitund þjóðarinnar ef þörf væri á
að minna á jafn sjálfsagðan hlut f
grónu lýðræðis og þingræðisþjóð
félagi eins og þvf sem vér búum f.
Hvað sem öllum dagdómum líð
ur bæði fyrr og nú er það stað-
reynd að fslenska þjóðin hefur
ætfð sett traust sitt á forustu og
forsjá Alþingis um mál sfn, og hún
gerir það enn. Þess vegna fer sá
dagur þegar þingið kemur saman
að nýju eftir nokkurt hlé, þing-
setningardagurinn, ekki fram hjá
þeim sem um þjóðmál hugsa, og
þeir eru margir. Þvert á móti er nú
hingað hugsað f dag og þess beðið
með eftirvæntingu hversu skipast
um lausn þeirra vandamála sem
nú knýja á. Þvf að ekki þarf að
fara í grafgötur um að fyrir hverju
nýju þingi liggja mörg og vanda-
söm úrlausnarefni. Þess er að
minnast að sfðasta þing hófst á
þeim örlagatfma þegar óséð var
hvernig oss reiddi af f átökunum
um fiskimiðin kringum landið. Sá
háski er nú liðinn hjá, vonandi
Framhald á bls. 31
HÉR fer á eftir predikun
sr. Gunnars Gíslasonar,
sóknarprests að Glaumbæ í
Skagafirði, fyrrum alþing-
ismanns, er hann flutti við
guðsþjónustu í dómkirkj-
unni í Reykjavík í gær, að
viðstöddum þorra þing-
manna og gesta við þing-
setningu.
„Gæt þú þín, að þú gleymir
ekki Drottni".
Náð sé með yður og friður frá
Guði föður ogDrottni Jesú Kristi.
Vart getur hjá því farið, að
óhug veki með öllum hugsandi
mönnum, að nær dagiega berast
okkur til eyrna váleg tíðindi af
hryðju- og hermdarverkum og
hvers kyns afbrotum, sem framin
eru I heimi okkar mannanna. Og
það er ekki aðeins, að slík tíðindi
berist okkur utan frá hinum stóra
heimi; einnig hér í fámennu þjóð-
lífi okkar Islendinga eru framin
hin verstu verk, jafnvel voðaverk.
Það er talað um að afbrotaalda
gangi yfir og hafi gengið yfir f
þjóðfélagi okkar. „Ottalegt og
hryllilegt er það, sem við ber
landinu" (Jerimias).
Það gengur illa, að þvi er virð-
ist, að upplýsa mörg þessara mála.
Ljóst virðist þó, að mörg eru þessi
afbrot framin i auðgunarskyni.
Það sýnir okkur þann gamla og
nýja sannleika, að fégirndin er
rót og undirstaða alls þess, sem
illt er. Það sýnir okkur, að oft fer
svo sem segir i I. bréfi Páls
postula til Timoteusar, að þeir
sem rikir vilji verða, „falli i
freistni og snörur og margar
óviturlegar fýsnir og skaðlegar,
er sökkvi mönnunum niður í tor-
tíming og glötun". Þráfaldlega
varar heilög ritning okkur, og
ekki sízt Jesú Kristur í orðum
sínum, við fégirndinni. Gætið
þess að varast alla ágirnd, því að
þó að einhver hafi allsnægtir, þá
er lif hans ekki tryggt með eign-
um hans. „Sá, sem treystir á auð
sinn, mun falla, en hinn réttláti
mun grænka eins og laufið". Og
Jesú varaði við áhyggjunum, sem
svo oft eru auðnum samfara:
„Þeir sem láta áhyggjur og auð-
æfi og unaðssemdir lifsins glepja
sig, bera engan þroskaðan ávöxt“.
Og er hann segir söguna af hinum
rangláta ráðsmanni og hugleið-
ingar út frá henni, þá segir hann:
„Þér getið ekki þjónað Guði og
Mammon." Sem sagt, með orðum
sem þessum segir Jesús að auð-
girnin leiði til þess, að maðurinn
gleymi Guði skapara sínum og
Drottni, að sá, „sem gerir gullið
að athvarfi sinu, hann drýgi þá
synd að afneita Guði á hæðum.“
„Þar sem fjársjóður þinn er þar
mun og hjarta þitt vera“. Og
þegar Jesús ræddi um auðgirnd-
ina á þennan veg og varaði við
henni, þá segir, að farisearnir,
sem voru menn fégjarnir, eða á
þann veg lýst, hafi gert gys að
honum. Þá var það að hann sagði
söguna um ríka manninn og
Lazarus. Ekki er þess getið, að sú
saga hafi orðið fariseunum um-
hugsunarefni. Ekki er fyrir að
taka að svo hafi orðið, og enn er
lærdómur þeirar sögu ferskur og
gildur. Enn eru næg dæmi um
mismun auðs og fátæktar, bæði
með einstaklingum og þjóðum, og
enn gerast þess dæmin, sem sýna,
hversu viðsjáll auðurinn er,
hvern veg hann afvegaleiðir — og
að hann er valtastur vina. 1 þeirri
sögu erum við vöruð við að „gera
gullið að athvarfi okkar“, þvi þá
gleymist að leita þeirra gæða, sem
eru hinum jarðnesku svo óendan-
lega miklu verðmætari og æðri,
þeirra gæða, er hvorki mölur né
ryð fá grandað. Gæða, sem hafa
varanlegt gildi og eru okkur til
blessunar, ekki aðeins í þessu lifi,
heldur og einnig í því komandi.
Þess vegna þarf boðið: „leitið
fyrst ríkis Guðs og réttlætis" að
veru okkur sífelldlega i huga og
minni. Ræktin við það má ekki
niður falla, en þá rætist fyrirheit-
ið: „allt annað veitist yður að
auki.“
Þetta var ráðið sem Jesús gaf
okkur til þess að lifa eftir. Fyrst
og fremst ber að leita hinna and-
legu og eilifu gæða. En heilagt
orð hans bannar ekki að leitað sé
hinna stundlegu gæða. Það er
engum bannað að afla sér
jarðneskra fjármuna með heiðar-
legu móti og njóta þeirra. Ef svo
væri þá fengjum við ekki skilið,
hvers vegna Guð skapaði jörðina
með öllum hennar gögnum og
gæðum, og „skapaði manninn í
sinni mynd og lét hann rikja yfir
handaverkum sínum — og lagði
að fótum hans sauðfénað allan og
öll dýr merkurinnar, fugla lofts-
ins og fiska hafsins.“ Af slíkum
orðum heilagrar ritningar og
fleirum áþekkum er ljóst, að okk-
ur er fyllilega frjálst að leita okk-
ur nægta og viðurlífs af jörðinni
og auðsuppsprettum hennar.
Þetta eigum við að gera. „I sveita
andlits þins skalt þú neyta brauðs
þíns“. Jesús bauð lærisveinum
sinum að leggja net sín til fiski-
dráttar og hann bauð þeim að fara
vel með það sem aflaðist. „Takið
saman brauðbrotin, sem afgangs
eru, til þess að ekkert fari til
ónýtis,“ sagði hann, er hann í
mæfti sínum hafði mettað þús-
undirnar. Og sem viti til varnaðar
setti hann okkur dæmi sonarins,
sem heimtaði arfshluta sinn, sem
hann og fékk, en sólundaði I
sukki og ólifnaði. Hin jarðnesku
gæði eru ekki slik, að með þau
megum við fara eins og okkur
sýnist eða bezt líkar. Það skal
munað, að þau eru okkur færð
sem lán eða gjöf frá Guði, frá
Predikun sr. Gunnars Gísla-
sonar viö þingsetningu í gær
Alfreðs Gíslasonar
og Birgis Kjarans
minnzt á Alþingi í gær
ALDURSFORSETI Sameinaðs
þings, Guðlaugur Gfslason,
minntist tveggja látinna þing-
manna, þeirra Alfreðs Gíslasonar
og Birgis Kjarans, að lokinni
þingsetningu f gær. Fara orð hans
hér á eftir:
Frá lokum síðasta þings hafa
andast tveir fyrrverandi alþingis-
menn, Alfreð Gíslason fyrrver-
andi bæjarfógeti, sem andaðist
aðfaranótt sunnudagsins 30. maf,
á sjötugasta og fyrsta aldursári,
og Birgir Kjaran hagfræðingur,
sem varð bráðkvaddur að kvöldi
fimmtudagsins 12. ágúst, sextug-
ur að aldri.
Vlfreð Gislason var fæddur I
Reykjavik 7. júlí 1905. Foreldrar
hans voru Gísli búfræðingur og
fasteignasali i Reykjavik Þor-
bjarnarson bónda að Einifelli og
siðar Bjargarsteini í Stafholts-
tungum Gíslasonar og kona hans,
Jóhanna Sigríður Þorsteinsdóttir
bónda að Brú í Biskupstungum
Narfasonar. Alfreð Gíslason
brautskráðist frá Menntaskólan-
um í Reykjavik árið 1927 og lauk
Iögfræðiprófi í Háskóla íslands
vorið 1932. Að námi loknu
starfaði hann um skeið í lög-
mannsskrifstofum í Reykjavi, var
um tima á árinu 1934 fulltrúi við
lögtök I Vestmannaeyjum og rak
síðan málflutningsskrifstofu í
Reykjavík þar til hann var skipað-
ur lögreglustjóri í Keflavík 1.
janúar 1938. Gegndi hann því
embætti þar til Keflavík fékk
kaupstaðarréttindi árið 1949. Þá
var hann skipaður bæjarfógeti
þar. Lausn frá þvi embætti fékk
hann 1. júli 1961, en var aftur
skipaður í það í september 1962.
Jafnframt þeim bæjarfógetastörf-
um var hann sýslumaður í Gull-
bringusýslu frá 1. janúar 1974 og
bæjarfógeti í Grindavík frá 10.
aprfl 1974. Af bæjarfógeta- og
sýslumannsstörfum lét hann rúm-
lega sjötugur i septemberlok
1975.
Alfreð Gíslason var oddviti
hreppsnefndar í Keflavík
1938—1946. Síðar átti hann sæti í
bæjarstjórn Keflavíkur
1954—1970 og var forseti bæjar-
stjórnar þann tíma að undan-
skildu rúmu ári 1961—1962, er
hann var bæjarstjóri í Keflavík.
Hann átti sæti f stjórn lands-
hafnar f Keflavík frá 1947 og í
flugráði 1964—1975. Á Alþingi
átti hann sæti sem landskjörinn
Alfreð Gfslason
þingmaður á árunum 1959—1963,
sat á fjórum þingum.
Alfreð Gislason vann megin-
hluta ævistarfs sins I Keflavík og
í þágu Keflvíkinga. Hann lifði þar
mikla breytinga-, framkvæmda-
og framfaratíma. Var hann þar i
fararbroddi á mörgum sviðum,
sem lögreglustjóri og bæjarfógeti,
forustumaður í sveitarstjórn og
Birgir KJaran
sfðar bæjarstjórn og frumkvöðull
og formaður menningar- og
líknarfélaga. Hann öðlaðist fljótt
vinsældir og traust samborgara
sinna, var ráðhollur og tryggur
samstarfsmaður og drengilegur
andstæðingur. Hann var skiln-
ingsgóður og réttsýnn í embættis-
störfum og mildur í dómum.
Hann átti ekki langa setu á