Morgunblaðið - 12.10.1976, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
21
m
n I—i
Elías
setti
íslands-
met í
fimmtar-
þraut
- bætti eldra metið
um 66 stig
„Ég veit ekki hvernig stendur á
þessu, ég er alltaf í beztu formi á
haustin. Svona hefur þetta verið
a.m.k. hin síðustu ár. Kannski er
þetta einhver galli í kerfinu hjá
manni, en það er auðvitað ekki
gott um það að segja. En hvað sem
Einar Bollason skorar fyrir KR f leik gegn IS.
KR-ingar sigurstranglegir
- í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik
NÚ HAFA veriS leiknir fjórir leikir i
Reykjavikurmeistaramótinu i körfu-
knattleik og að þeim loknum hafa
KR-ingar tekið forystu, og háfa hlot-
ið 4 stig. Hafa KR-ingar lagt bæði ÍS
og Ármann af velli, og verða þeir að
teljast mjög sigurstranglegir i
mótinu að þessu sinni.
Fyrstu leikir mótsins fóru fram s.l
fimmtudagskvöld og léku þá fyrst KR
og Fram og siðan Ármann og ÍS. Um
helgina fóru svo fram tveir leikir g
mættust þá fyrst Valur og ÍR og síðan
KR og Ármann
Allir þessir fjórir leikir voru heldur
slakir, nema þá helzt leikur KR og
Ármanns. Er greinilegt að kröfuknatt-
leiksmennirnir eru tæpast komnir i
æfingu enn. Hins vegar bendir margt
til þess að íslandsmótið verði jafnara
og tvisýnna að þessu sinni en oft áður.
En vikjum þá að einstökum leikjum.
KR — Fram, 85—67. Framliðið er
slakt og verður það sennilega i fall-
baráttunni i vetur, enda búast menn
ekki við miklu af þvi. Það er í raun og
veru aðeins einn maður, Helgi
Valdimarsson, sem hægt er að segja
að sé góður, enda skoraði hann 3 1 stig
eða hér um bil helming stiga liðsins.
Um KR-inga er það að segja að þeir
voru mun slakari en búast mátti við og
verða þeir að laga ýmislegt fyrir vetur-
inn Skástu menn þeirra voru gömlu
kapparnir Einar Bollason, sem varð
stigahæstur KR-inga með 16 stig, og
Kolbeinn Pálsson, sem skoraði 1 2 stig
Ármann — ÍS 77—69. Þó að þessi
leikur væri slakur var hann mun betri
en sá fyrri, enda var hann jafnari og i
honum sýndu menn oft skemmtileg
tilþrif Alveg fram i miðjan seinni hálf-
leik var jafnt, stúdentar þó oftast með
nauma forystu, en um miðjan seinni
hálfleik kom slæmur kafli hjá
stúdentum, sem Ármenningar nýttu
vel og komust i 1 0 stiga forystu og það
reyndist of mikið fyrir stúdenta Beztu
menn Ámanns i þessum leik voru þeir
Jimmy Rogers, sem gerði margt mjög
fallegt eins og honum einum er lagið,
en hann skoraði 28 stig, þá var Jón
Sigurðsson góður að vanda, gerði 16
stig og átti auk þess mikið af góðum
sendingum Stúdentarnir voru frekar
daufir i þessum leik en beztu menn
þeirra voru Ingi Stefánsson, sem skor-
aði 1 9 stig, og Bjarni Gunnar Sveins-
son, sem gerði 1 8 stig og átti auk þess
mikið af frákröstum
Valur — ÍR 74—69. Þetta var
frernur slakur leikur og voru ÍR-ingar
mun slakari en við mátji búast en þess
ber þó að gæta að Kristinn Jörundsson
lék ekki með Kristinn er erlendis en
verður með í vetur og það var greini-
Myndir þessar tók ágás á laugardaginn er Eltas setti met sitt. Efri
myndin er af Ólafi Unnsteinssyni og Björgvin Hólm, sem fyrir 17
árum settu met f þessari fþróttagrein, Ólafur unglingamet g Björgvin
íslandsmet. Neóri myndin er svo af hinum nýja methafa, er hann var
að búa sig undir spjótkastið f fimmtarþrautinni.
legt að ÍR-inga munaði mikið um hann
Hins vegar hefur Val borizt góður liðs-
auki, þar sem Kristján Ágústsson er,
en hann var beztur V lsmanna ásamt
Þóri Magnússyni. Flest stig Valsmanna
gerðu þeir Þórir 22 og Kristján 12
Flest stig ÍR-inga gerðu Kolbeinn
Kristinsson 14, Jón Jörundsson 11,
Þorsteinn Guðnason 1 1 og Sigurður
Gíslason 1 1.
KR- Ármann 71 — 63. Þetta var
nokkuð fjörugur leikur, Ármenningar
tóku forystuna i byrjun og komust i
20—1 2 en KR-ingar jöfnuðu 20 £ 20
og voru yfir 37—32 i leikhléi í upp-
hafi seinni hálfleiks kom þokkalegur
leikkafli hjá Ármanni, jafnframt þvi
sem KR-ingar slöppuðu dálitið af og
þegar 1 1 mínútur voru liðnar af hálf-
leiknum komust Ármenningar yfir
54—53. Eftir það kom mjög slakur
leikkafli hjá Ármanni og þeir gerðu
aðeins 9 stig það sem eftir var leiksins,
en KR-ingar léku þá mun betur og sigu
fram úr og unnu verðskuldað. Beztu
menn KR-inga voru þeir Einar Bolla-
son, sem gerði 1 9 stig, Kolbeinn Páls-
son með 18 stig og Bjarni Jóhanns-
son, sem var þeirra beztur, en hann
gerði 1 7 stig
Hjá Ármanni eru og verða sennilega
ekki nema tveir góðir menn i vetur,
þeir Jimmy Rogers og Jón Sigurðs-
son Rogers gerði 22 stig, en Jón 16
Næstu leikir verða á miðvikudag i
Hagaskóla og hefjast kl 20 H.G.
þvi líður, þá er ég ánægður með
að hafa náð metinu því hefði það
ekki komið núna hefði ég reynt
um næstu helgi, en það hefði ver-
ið afar útslitandi að standa i svo-
leiðis. Nú er ég að vísu laus við að
þurfa þess, en verst er að hafa
ekki getað bætt metið aðeins
meira.“ Þetta voru orð Elíasar
Sveinssonar þegar hann hafði ný-
lokið við að setja nýtt íslandsmet
i fimmtarþraut á Melavellinum sl.
laugardag. Elias lék á alsoddi eft-
ir að hann hafði jafnað sig eftir
1500 metrana sem var siðasta
grein, enda þetta hans fyrsta
islandsmet. Hlaut hann alls 3533
stig, en eldra metið var 3467 stig,
sem Björgvin Hólm setti 3. okt.
1969 á Melavellinum.
Elias var í miklum ham þegar i
upphafi, og það var greinilegt
hvað hann ætlaði sér. Er hann
vanur að gefa frá sér mikil hljóð
þegar hann tekur á honum stóra
sínum, og í þetta sinn voru þessi
hljóð öllu meiri en menn eiga að
venjast. Eftir langstökkið stóð
árangur Björgvins betur, því
Björgvin stökk 6.97 m á móti 6.53
m Eliasar. Það bar þó ekkert á
neinni örvæntingu hjá Elíasi, því
hann vissi að hann átti eftir grein-
ar sem yrðu honum drjúgar.
Að spjótkastinu loknu hafði Eli-
as saxað á forskot Björgvins þvi
hann kastaði 60.84 m á móti 55.97
m Björgvins. Stigin stóðu nú 1525
— 1492 fyrir Björgvin. Árangur
Eliasar i spjótkastinu er hans
bezti í ár. Það urðu engar breyt-
ingar á stöðunni að 200 metrun-
um loknum þvi Elías hljóp á sama
tíma og Björgvin hafði náð. þ.e.
23,1 sek. Stigin voru nú 2254 —
2221 fyrir Björgvin.
Nú var komið að kringlukast-
inu, en í þeirri grein er Elias
nokkuð sterkur. Kastaði hann
46,06 m, en Björgvin hafði kastað
42.28 í sinni keppni, og nú tók
Elias forystuna i stigun;, þvi stað-
an var nú 3022 — 2984 fyrir Elias.
Siðustu greinina, 1500 m, hljóp
Elías nokkuð yfirvegað á 4:42,3
mín og hlaut því alls i keppninni
3533 stig, sem er 66 stigum betra
en eldra metið.
Annar i keppninni var knatt-
spurnumaðurinn kunni, Ingi
Björn Albertsson. Hlaut hann
1989 stig, en árangur hans varð
6.32 m í langstökki, sem er nokk-
uð gott af byrjanda, 34.11 m f
spjótkasti, 24,1 sek. í 200 m, 18,62
m í kringlukasti og 6:10.0 min, í
1500 m.
VÍKINGSSTÚLKUR MEISTARAR
Nú hafa verið leiknir tveir leik-
ir í Reykjavikurmótinu í blaki
bæði í meistaraflokki karla og
kvenna. i kvennaflokknum hafá
Vikingar unnið báða sina leiki og
eru þar með orðnir Reykjavíkur-
meistarar. Fyrst unnu Víkingar
Þrótt 3—1 og i gærkvöldi unnu
þeir ÍS 3—0. Víkings-stúlkurnar
eru vel að sigrinum komnar, þær
hafa sýnt áberandi bezta leiki og
er ólikt meira lif í þeim en hinum
liðunum. 1 karlaflokknum hafa
Vikingar einnig leikið tvo leiki,
fyrst við Þrótt og síðan við ÍS. í
fyrri leiknum unnu Þróttarar
3—2 í spennandi og fjörugum
leik. i seinni leiknum, sem leik-
inn var á sunnudagskvöldið, unnu
stúdentar Víkingana 3—0. Vík-
ingar voru mjög daufir og fremur
slakir þegar á heildina er litið, þó
þeir sæktu sig i lokin. Hávörnin
var óvenju slök og „bagger" var
lélegur og réð það miklu. Stúdent-
ar voru mun öruggari og mér sýn-
ist að ekki verði nein breyting á
sigurgöngu þeirra, þeir eru enn
með bezta liðið og halda ábyggi-
lega áfram að vinna flest mót,
sem þeir taka þátt í.
H.G.