Morgunblaðið - 12.10.1976, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 12.10.1976, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKT0BER 1976 Blóðug átök áhorfenda í vin- áttuleik Villa og Rangers Middlesbrough — liðið hans Jackie Charltons — hefur nú náð forystunni I ensku 1. deildinni. Liðið þykir ekki leika skemmtilega knattspyrnu, en hún er greinilega mjög árangursrfk. VEGNA leikja I undankeppni heimsmeístarakeppninnar I knattspyrnu I næstu viku fór aðeins einn leikur fram f ensku 1. deildar keppninni f knattspyrnu á laugardaginn, og einn leikur f skozku úrvalsdeildarkeppninni. Þrátt fyrir að ekki væri meira um að vera hjá beztu liðunum, þá var engan veginn tfðindalaust á knattspyrnuvígstöðvunum f Eng- landi á laugardaginn og þar kom til alvarlegri átaka og óláta en um langt skeið. Var það f vináttuleik Aston Villa og skozka liðsins Glasgow Rangers sem upp úr sauð og áttu þar dómari og leik- menn fótum fjör að launa er æstur múgurinn ruddist inn á völlinn, þegar seinni hálfleikur leiksins var nýlega hafinn. Eini 1. deildarleikurinn sem fram fór á laugardaginn var milli Middlesbrough og Norwich og lauk honum með sigri Middles- brough 1—0. Hefur Middles- brough þar með unnið alla leiki sína á heimavelli í vetur, fimm talsins, en markatalan i leikjum þessum er aðeins 6—1. Middles- brough tók með þessum sigri for- ystu i 1. deildar keppninni og hefur liðið hlotið 13 stig eftir 9 leiki. Markið sem færði Middles- brough sigurinn í leiknum á laugardaginn skoraði Souness á 84. mínútu, en sigur Middles- brough í þessum leik var i hæsta máta verðskuldaður. Liðið var í sókn nær allan leikinn, og var auðséð að leikmenn Norwich freistuðu að leika sama leikinn og hefur gefizt Middlesbrough svo vel er liðið leikur á útivelli — að leika upp á markalaust jafntefli. I 2. deild var svo mikið um að vera, og þar var nokkuð um óvænt úrslit. Þannig vann Blackburn 6—1 sigur í leik sinum við Notts County og Notthingham Forest lagði Sheffield United að velli með sömu markatölu. Fyrr í vikunni hafði svo Southampton sigrað Ulfana á útivelli með sex mörkum gegn 2. Staðan á toppn- um í 2. deild er óbreytt eftir leiki laugardagsins. Hin þekktu lið Chelsea og Wolverhampton Wanderes eru þar í forystu. I leik Charlton Atletic við Hull City skoraði sami leikmaðurinn, Derek Hales, öll þrjú mörk Charltons og er þetta í annað skiptið I vetur sem hann skorar þrennu. Er Hales jafnframt mark- hæsti leikmaðurinn í deildar- keppninni í Englandi og er búinn að skora 13 mörk. Fjölmargir áhangendur Glas- gow Rangers fylgdu liðinu til Birmingham, þar sem það átti að leika vináttuleik við Aston Villa. Þegar hópurinn kom til Birming- ham voru margir orðnir mjög ölvaðir og slógu um sig. Hafði lögreglan handtekið um 50 manns áður en leikurinn hófst. I fyrri hálfleik hafði lýðurinn tiltölulega hægt um sig en er Aston Villa náði 2—0 forystu á 53. minútu leiksins var sem æði gripi um sig. Áhangendur Glasgow Rangers ruddust inn á völlinn, og réð fjöl- mennt lögreglulið ekki neitt við neitt. Leikmennirnir og dómararnir áttuðu sig á hættunnni i tima og tókst að forða sér áður en áhorfendur náðu til þeirra. Langan tíma tók að stilla til friðar á vellinum og meiddust um 100 áhorfendur og um 30 lög- reglumenn í þeim átökum, þar af fjórir lögreglumenn mjög alvar- lega. Iþróttamálaráðherra Englands, Denis Howell, lýsti þvi svo yfir á laugardagskvöldið að hann myndi fara fram á rannsókn á máli þessu, og lýsti hann miklum áhyggjum sínum á því hvernig komið væri. En það var ekki bara I Birming- ham sem ólæti urðu. Tottenham sótti Arsenal heim á laugardaginn og léku liðin vináttuleik. Totten- ham hafði algjöra yfirburði í þeim leik, en sigraði þó ekki nema 2—1. Eftir leikinn sló i brýnu milli áhangenda liðanna og slösuðust þar margir og lögreglan handtók 70 ólátaseggi. Mikið tjón varð á mannvirkjum í grennd við völl Arsenals og einnig voru unnin skemmdarverk á mörkum bifreiðum og almenningsvögnum. UEFA RBÐIR VÖNDINN LEIÐTOGAR UEFA — Evrópu- sambands knattspyrnumanna — komu saman til fundar í Helsinki um helgina og var þar fjallað um mál leikmanna og knattspyrnufé- laga sem brotlega höfðu gerzt I Evrópubikarkeppninni f knatt- spyrnu, en sem kunnugt er hefur UEFA lagt á það mikla áherzlu að halda uppi röð og reglu I leikjum þessum, og hefur ekki verið hikað við að beita hörðum refsingum til þess að ná því markmiði. Refsivöndur UEFA féll líka á mörg lið og leikmenn að þessu sinni. Einna harðastan dóm fékk franska liðið Olympic Marseilles, sem dæmt var i 1.200 sterlings- punda sekt og gert að leika næsta leik sinn í Evrópubikarkeppninni i a.m.k. 300 kílómetra fjarlægð frá heimaborg sinni. Refsingu þessa fékk liðið vegna framkomu áhangenda sinna i Evrópubikar- leik gegn enska liðinu Southamp- ton á dögunum. Auk þess var svo einn af leikmönnum Marseilles, Lambert Emon, dæmdur i fimm leikja bann vegna mótmæla sinna við dómarann í umræddum leik. Southampton slapp heldur ekki við refsingu, þar sem einn leík- manna liðsins, Hugh Fisher, var dæmd’tr I þriggja leikja bann I Evrópukeppni. FC Porto frá Portúgal var dæmt til þess að leika næsta heimaleik sinn í 200 kílómetra fjarlægð frá heimavelli sinum, vegna þess að áhangendur liðsins gerðu aðsúg UEFA reynir að stemma stigu við ólátum áhorfenda á knattspyrnu- leikjum, en stundum fer þó allt á verri veg eins og sjá má á mynd þessari þar sem stólsetum og stól- um hefur verið grýtt inn á völl- inn. að dómara f leik liðsins við vestur- þýzka liðið Schalke 04 í UEFA- bikarkeppninni. Hollenzku landsliðsmennirnir Wim van Hanegem og Johan Nesskens voru dæmdir í fjögurra og þriggja leikja keppnisbann vegna framkomu sinnar í úrslita- leik Evrópubikarkeppninnar í knattspyrnu 16. júni s.l. önnur lið sem dæmd voru til refsingar voru eftirtalin: FC ZUrich frá Sviss og Glasgow Rangers frá Skotlandi voru dæmd í 250 sterlingspunda sekt. Partizan Belgrad var dæmt í 1.200 punda sekt vegna þess að áhang- endur liðsins köstuðu flöskum inn á völlinn og skutu flugeldum er liðið mætti Dynamo Kiev í Evrópubikarkeppninni. Austria Vín var dæmt i 500 punda sekt, Akademik Sofia var dæmt í 250 punda sekt og nokkur önnur félög fengu minni sektir vegna brota leikmanna eða áhorfenda. ' Eftirtaldir leikmenn voru dæmdir í fjögurra leikja bann: Giancarlo Oddi (Cesena), Nurettin Guenes (Adanaspor), Engin Verel (Fererbahce Istanbul.). Þriggja leikja bann fengu: Vladimir Onitchenko (Dynamo Kiev), Ivo Lubas (Slavia Prag), GiorgioMariani (Cesena). Tveggja leikja bann: Herbert Prohaska (Austria Vin) Eins leiks bann: Stefan Parvano (Akademik Sofia), Derek Johnstone (Glasgow Rang- ers), Borislav Sredkov (SSK Sofia), N. Keilen (nuddari hjá Roda FC), Frank Vercauteren (Anderlecht), Julianivano (Akademik Sofia) Max Heer (FC Zúrich), John Buchanan (Cardiff City), Andras Sarlos (Ujpest Dosza), Necip Erdogan (Adana- spor), Marius Ciugarin (Sportul Studentes) og Simeon Jankov (Akademik Sofia). | 1. DEILD | I. HEIMA Uti STIG Middlesbrough 9 5 0 0 6—1 0 3 1 0—2 13 Manchester City 9 4 0 1 9—6 1 3 0 6—4 12 Manchester United 8 1 1 1 6—5 3 2 0 9—3 11 Everton 9 2 2 1 8—5 2 , 1 1 7—4 11 Liverpool 8 3 1 0 6—1 2 0 2 5—5 11 Arsenal 8 2 1 1 6—4 2 1 1 8—6 10 Newcastle United 9 2 3 0 7—4 1 1 2 6—6 10 Ipswich Town 8 2 2 0 8—4 1 1 2 6—9 9 West Bromwich Albion 9 2 1 1 7—4 1 2 2 5—7 9 Leicester City 9 1 3 0 6—5 0 3 1 1—3 9 Stoke City 9 3 1 0 5—2 0 2 3 1—7 9 Aston Villa 8 3 0 1 12—4 1 0 3 3—5 8 Birmingham City 8 2 1 I 7—3 1 1 2 5—6 8 Coventry City 8 3 1 I 9—6 0 1 2 2—5 8 Queens Park Rangers 9 3 0 2 7—8 0 2 2 6—8 8 Norwich City 10 2 1 1 5—5 1 1 4 4—9 8 Bristol City 8 1 2 1 7—5 1 1 2 2—4 7 Leeds United 9 1 2 1 6—6 1 1 3 5—7 7 Tottenham Hotspur 8 1 2 1 2—3 1 0 3 6—11 6 Derby County 8 0 3 1 4—5 0 2 2 3—9 5 West Ham United 9 1 2 2 3—6 0 1 3 4—11 5 Sunderland 8 0 2 2 2—5 0 2 2 3—7 4 • * » % • * V 2. DEILD L HEIMA UTI ! STIG Chelsea 9 3 1 0 7—4 3 1 1 7—7 14 Wolverhampton Wand. 9 2 1 2 11—8 2 2 0 11—4 11 Oldham Athletic 9 3 2 0 8—3 1 1 2 3—8 10 Notthingham Forest 9 3 1 1 17—9 0 3 1 4—5 10 Blackpool 9 2 ' 3 7—7 3 0 1 8—3 10 Millwall 9 3 0 8—0 1 1 3 6—10 10 Charlton Athletic 9 3 . 1 14—9 1 1 2 5—9 10 Bristol Rovers 9 2 2 I 9—7 1 1 2 2—4 9 Bolton Wanderes 9 3 0 1 10—5 1 1 3 6—9 9 Fulham 8 2 2 0 7—3 1 1 2 5—8 9 Luton Town 9 2 1 2 8—7 2 0 2 5—6 9 IIuII City 9 3 1 0 9—2 0 2 3 3—10 9 Sheffield United 9 2 3 0 8—4 0 2 2 3—10 9 Notts County 9 2 0 2 4—3 2 1 2 8—15 9 Blackburn Rovers 9 2 1 1 9—3 1 1 3 3—9 8 Carlisle United 8 2 2 0 9—6 1 0 3 4—11 8 Cardiff City 9 2 1 2 8—8 1 0 3 5—8 7 Southampton 9 1 2 I 7—5 2 1 3 8—14 7 Hereford United 9 2 0 2 6—8 0 2 3 7—13 6 Orient 9 1 1 2 5—4 0 2 3 3—9 5 I Knatlspyrnuúrsilt ...- ...... ■ . . 11 - ENGLAND 1. DEILD: Middlesbrough — Norwich 1—0 ENGLAND 2. DEILD: Blackburn — Notts County 6—1 Blackpool — Plymouth 0—2 Burnley — Orient 3—3 Cardiff — Bolton 3—2 Charlton—Hull 3—1 Luton — Hereford 2—0 Notthingham — Sheffield Utd. 6—1 Oldham — Millwall 2—1 Fulham—Carlisle frestað ENGLAND 3. DEILD: Bury — Brighton 3—0 Chesterfield — Readang 4—0 Crystal Palace — Oxford 2—2 Grimsby—Chester 0—0 Peterborough — Mansfield 2—1 Portsmouth — Walsall 1—1 Sheffield Wed. — Gillingham 2—0 Swindon — Shrewsbury 1—0 Wrexham—Lincoln 3—0 York — Rotherham 1—1 ENGLAND 4. DEILD: Aldershot—Stockport 2—0 Bournemouth—Exeter 2—0 Brentford — Newport 1—1 Crewe — Wathford 2—0 Doncaster — Barnsley 2—1 Halifax—Scunthorpe 0—1 Hartlepool—Cambridge 2—2 Huddersfield — Bradford 3—0 Workington — Rochdale 0—2 Torquay — Swansea 2—1 SKOTLAND — (JRVALSDEILD: Hearts — Ayr United 2—2 Skotland 1. DEILD: Dumbarton — Morton 1—1 Dundee — Raith Rovers 3—1 East Fife—Airdrieonians 0—4 Falkirk — Arbroath 1—3 Hamilton—Clydebank 3—2 Queen of the South—Montrose 4—2 St. Johnstone — St. Mirren 1—1 SKOTLAND 2. DEILD: Berwick — Forfar 2—2 Brechin — Stenhousemuir 3—3 Cowdenbeath—Clyde 4—3 East Stirling — Albion Rovers 1—1 Meadowbank — Stranraer 2—1 Queens Park—Dunfermline 0—0 Stirling Albion—Alloa 2—1 AUSTURRlKI l.DEILD: Sturm — Vienna 0—0 SSWInnsbruck — Voeest Linz 4—0 Lask — Rapid 2—2 Austria Salzburg — GAK 0—1 AustriaWAC—AdmiraWacker 1—I SSW Innsbruck hefur forystu f deildinni með 15 stig, en næstu lið eru Rapid og Austria WAC með 14 stig. AUSTUR-ÞVZKALAND 1. DEILD: Lok. Leipzig — Vorwaerts Frankfurt 1 —0 Hansa Rostock — Sachsenring Zwickau 1—0 Rot-WeissErfurt — Dynamo Dresden 0—1 Union Berlfn — Carl Zeiss Jena 2—1 Stahl Riesa — Karl-Marx Stadt 1—0 WismutAue—ChemieHalle 1—1 Magdeburg — Dynamo Berlfn 2—1 VESTUR-ÞYZKALAND 1. DEILD: Borussia Dortmund — WerderBremen 2—4 Hertha SC Berlín — Rot-Weiss Essen 2—1 Karlsruhe SC — Eintracht Braunschweig 1—1 FC Saarbruecken — Tennis Borussia 0—0 Bayern Munchen — Schalke 04 0—7 Borussia Mönchengladbach — Fortuna Dusseldorf 3—1 MSV Duisburg — Eintracht Frankfurt 4—3 VFL Bochum — Kaiserslautern 1—0 HamburgerSV — FC Köln 2—1 Borussia Mönchengladbach hefur nú for- ystu í þýzku 1. deildar keppninni og er liðið með 16 stig eftir 9 leiki. Eintracht Braunschweig er f öðru sæti með 14 stig, en með 12 stig eru svo Köln, Duisburg og Hertha Berlfn. STAÐANÍ SKOTLANDI STAÐAN í skozku úrvalsdeildinni I knattspyrnu er nú þessi: Dundee United 5 5 0 O 11 — 3 10 Aberdeen 5 2 3 0 7 Rangers 5 1 4 f - o 6 Celtic E 1 3 1 9 r Hearts 6 0 5 1 •» o 1 9 6 Motherwell 5 1 2 4 Hibernian 5 0 4 1 ö— 6 4 Partick 5 1 2 2 5— 6 4 Ayr United 6 1 2 3 7— 16 4 Kilmarnock 5 0 3 2 3— 9 3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.