Morgunblaðið - 12.10.1976, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
31
— Predikun
Sr. Gunnars
Framhald af bls. 19
ætluð að fullnægja þörfum hans;
þau skyldu einnig notast til þess
að bæta úr þörfum þeirra, sem
með honum lifðu, til að bæta úr
annarra neyð, til þess að lina
þjáningar annarra. Það var það
sem miskunnsami Samverjinn
gjörði. Því er hann fyrir sjónir
okkar settur sem sigild fyrir-
mynd, stöðug og ævarandi áminn-
ing' um að „gjöra slikt hið sama“
og hann gjörði. Og ríka manninn
skorti skilning á þvi að auðsöfn-
unin getur með engu móti, og má
ekki vera, mannsins æðsta mark
og mið i lífinu.
Æðsta gæfan og rikasta ánægj-
an verður aldrei í því fólgin að
bæta krónu við krónu og eyða til
þess öllum kröftum sínum að
safna fé með öllu mögulegu móti;
stundum með þeim hætti, sem
dæmin sanna, að gert er með
óheiðarleika og sviksemi. Sá, sem
þannig lifir, og um þetta eitt
hugsar, sá þarf sannarlega að gá
að sér; gá að sér að hann vegna
auðhyggju sinnar biði ekki tjón á
sálu sinni. Við það að hann gleym-
ir Guði, gleymir hann þvi að lif
hans og velferð er ekki tryggð
með eignum hans, heldur þeim
verðmætum, sem hafa gildi fyrir
eilífa framtíð hans.
Sjálfsagt hljóma þessi orð eins
og hégómaþvaður í eyrum þeirra,
sem óhrjáleg efnishyggja hefur
með öllu blindað. Þeir sem láta
auðhyggjuna blinda sig opna ekki
hlustir við slíkum kenningum. En
það verða þeir þó að gera. Undir
því er komin heill þeirra. Þeir
verða að sjá og skilja, hvað það er,
sem er eftirsóknarverðast, sjá hið
eina nauðsynlega, það að gleyma
ekki Drottni. Það „að leita rikis
Guðs og réttlætis". — Það er langt
síðan, að á það var bent, að mað-
urinn þyrfti að gæta sín, þegar
auðurinn er annars vegar, ekki
sízt ef auðurinn hefur borizt hon-
um i hendur án þess, að hann hafi
aflað sér hans í sveita síns andlits.
í 5. bók Móse, sem texti minn er
tekinn úr, getur að lesa þessi orð:
„Þegar Drottinn Guð þinn leiðir
þig inn í landið, sem hann... feðr-
um þinum Abraham, Isak og Jak-
ob að gefa þér, stórar og fagrar
borgir, sem þú hefur ekki reist,
og hús fullt af góðum hlutum, án
þess að þú hafir fyllt þau, út-
höggna brunna, sem þú hefir ekki
út höggið, vingarða og oliutré,
sem þú hefir ekki gróðursett, og
þú etur og verður saddur, þá gæt
þú þin, að þú gleymir ekki
Drottni."
„Þá gæt þín að þú gleymir ekki
Drottni." Þetta var sagt við ísra-
elsmenn er þeir höfðu fengið í
hendur eignir, sem þeir höfðu
ekki aflað sér með þvi að vinna
hörðum höndum ár og eindaga.
Hversu oft höfum við ekki heyrt
og séð þessa sögu endurtaka sig;
að i gleði sinni yfir auðnum hafi
maðurinn gleymt Guði sínum? Og
hversu oft höfum við ekki séð
auðfenginn aflahlut skjótlega
eyðast og verða til lítilla nytja?
Það hafa fleiri sólundað arfahlut
sinum í óhófslifnaði en giataði
sonurinn og þar með orðið með
honum glataðir synir og dætur.
Lát ekki verða hægt að segja um
þig; „Þetta er maðurinn, sem ekki
gerði Guð að verund sinni, heldur
treysti á hin miklu auðæfi sin og
þrjóskaðist í illsku sinni.“
Auður er valtastur vina. Það
eru sannleiksorð. „1 sveita andlits
þins skaltu neyta brauðs þíns.“
Það er heilnæmt heilræði. Það
styður að því að þú gleymir ekki
Guði þinum, að þú gleymir ekki
„að frá honum, fyrir hann og til
hans eru allir hlutir", að þú
gleymir þvi ekki að gjafir hans átt
þú að nota i samræmi við það, að
þær eru gjafir frá honum.
Gleymdu ekki Drottni þínum og
gleymdu ekki hættum þeim, sem
auðnum eru samfara fyrir líf þitt,
hamingju og velferð. Við höfum
séð dæmi þess að þeir sem auð-
gast ekki sízt með skjótum hætti,
ofmetnast og verða drembilátir og
sjálfselskir. Þeim finnst að allir
vegir séu þeim færir, þeir séu upp
á engan komnir, hvorki Guð né
menn. Slíkir álykta oft að þeir séu
öðrum meiri, og eigi iof skilið, og
þeim beri vegsemd og virðing.
„Þeir elska meira lofstír manna
en dýrð Guðs". Segja jafnvel:
„Guð ég þakka þér, að ég er ekki
eins og aðrir menn, ekki eins og
þessi tollheimtumaður," eða
bjálfinn hann Lazarus, sem liggur
þarna utan við dyrnar. Þannig
ofurseljast menn því versta og
heimskulegasta, sem getur i fari
nokkurs manns, drambinu og
hrokanum, verða „af aurum ap-
ar“. — „Skömm- er óhófs æfi“,
segir í Hrafnkötlu. Þau orð sagði
lærifaðir minn, Sigurður skóia-
meistari, að væru sálin í sögunni,
innsti kjarni hennar, lífsspeki
hennar og lærdómur. „Skömm er
óhófs ævi.“ „Dramb er falli
næst.“ „Sá, sem þykist standa,
gæti að sér, að hann ekki falli".
„Haf gát á sjálftim þér.“ Gott er
okkur að muna upphafsorð fjall-
ræðunnar. „Sælir eru fátækir I
anda, því þeirra er himnaríki."
Við þekkjum lifshagsmuna-
kapphlaupið. Við þekkjum barátt-
una um hin efnislegu gæði. Hún
er sífellt háð, einnig í þjóðlífi
okkar, ef til vill ekki hvað sizt i
þjóðfélagi okkar í dag. Og við
erum þátttakendur i þessari bar-
áttu, látum ekki af að gera kröfur
um hærri Iaun, meiri peninga,
hvar í stétt sem við stöndum. En
höfum við nokkuð leitt hugann að
því til hverra tiðinda þessi bar-
átta, sem oft vill verða illvig, get-
ur dregið? Höfum við gert okkur
ljóst, að los I fjármála— og efna-
hagslífi og sá verðbólguvandi,
sem árum saman hefur svifið yfir
og svifur enn yfir vötnunum í
þjóðlífi okkar, getur leitt til þess
ófarnaðar sem m.a. verður að af-
brotaöldu? Að þessu þurfa þeir að
hyggja sem þjóðin hefur valið og
treyst til að ráða fram úr þeim
vandamálum sem upp koma. Þeir
þurfa að hyggja að því, hvernig
þeir fái með völdum sínum og
áhrifum stuðlað að þvi, að sið-
ferðileg verðmæti, Guðstrú og
góðir siðir, svo sem heiðarleiki,
réttlæti, kærleikur, stöðuglyndi
og hógværð njóti vegs og virðing-
ar með þjóðinni — og að í stað
togstreitu og sundurlyndis verði
barizt trúarinnar góðu baráttu.
Styrkur stuðningur við kirkju og
kristni er I þessum efnum gildis-
mikill og mikilsverður.
Sú þjóð, já og hver einstakling-
ur þarf að gá að sér, sem fremur
leitar sér munaðar en þeirra gæða
sem gefin eru í rósemi hugans,
friði hjartans, góðri samvizku—
og trúin á Guð, föðurinn him-
neska, ein getur veitt. Það sem
okkur þvi á mestu riður er afstaða
okkar til Guðs og samfélagið við
hann, að við gleymum honum
aldrei og látum orð hans og vilja
vera okkur leiðarljós í framgangi
okkar og breytni.
„Gætið þvi þess að gjöra sem
Drottinn Guð yðar hefur boðið
yður. Víkið eigi frá þvi, hvorki til
hægri né vinstri. Gangið þann
veg, sem Drottinn Guð yðar hefur
boðið yður.
Guð gefi forustumönnum þjóðar
okkar vit og styrk, svo að gjöra —
og þjóðinni allri giftu til að feta
þann veg er til lífsins liggur.
Amen.
— Ávarp forseta
Framhald af bls. 18
fyrir fullt og allt. Þökk sé öllum
sem átt hafa gó5an hlut að þeirri
lausn Nú gefst Alþingi og rlkis-
stjórn meira svigrúm til að snúast
með óskiptari kröftum við öðrum
málum sem ráða þarf fram úr. Þar
munu allir þættir efnahagsmála
verða efstir á blaði. Gera má ráð
fyrir að athyggli þjóðarinnar muni
nú mjög beinast að því hversu
tekst að finna þar færar leiðir. Sú
er vissulega ósk og von allra
landsmanna við upphaf þessa
þings, að í þeim efnum megi giftu
samlega til takast. Undir það vil
ég taka af einlægum huga. Ég býð
yður heila til þings komna. Megi
störf yðar verða landi og lýð til
farsældar I hvlvetna.
Að svo mæltu bið ég þingheim
að minnast fósturjarðarinnar með
því að rísa úr sætum."
— Þingmanna
minnzt
Framhald af bls. 19
Isiands. Hann var vandfýsinn
bókamaður og bókaútgefandi.
Honum voru falin vandasöm og
viðurhlutamikii störf i þeim
stjórnmálaflokki, sem hann skip-
aði sér í. i þessum og öðrum
trúnaðarstörfum svndi hann elju
og ósérhlífni, forustuhæfileika,
skipulagsgáfu og baráttuhug.
Hann unni náttúru íslands og
starf og forusta í Náttúruverndar-
ráði var honum mjög að skapi.
Hann naut þess að ferðast um
landið og dást að náttúru þess,
fegurð hennar og fjölbreytni i
smáu og stóru. Auk ritstarfa um
stjórnmál og efnahagsmál samdi
hann og birti nokkrar bækur, þar
sem hann segir frá auðnustund-
um sínum á ferðalögum um Is-
land af næmri tilfinningu og með
hlýjum huga.
Ég vil biðja þingheim að minn-
ast hinna látnu manna, Alfreðs
Gislasonar og Birgis Kjarans, með
þvi að rísa úr sætum.
— Borgarstjórn
Framhald af bls. 34
draga persónur umsækjendanna
inn I deilurnar. Deilurnar væru
milli ráðherra og fræðsluráðs. Þá
taldi hann ósmekklegt af Alfreð
Þorsteinssyni að draga fram allar
stöðuumsóknir dr. Braga og telja
saman atkvæðin sem hann hlaut
hjá umsagnaraðiljum. Lauk þar
þessari snörpu umræðu um marg-
umrædda stöðuveitingu. Umræð-
an stóð i nærri tvær klukkustund-
ir og gustaði nokkuð um sal
borgarstjórnar á meðan sem sjá
má á málflutningi borgarfulltrúa.
Þaðpassarfrá
LeeGaoper
Gallabuxur og
flauelsbuxur í úrvali.
KÓRÓNA
BÚÐIRNAR
KJÖRDÆMAFUNDIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
Geir Hallgrfmsson, forsætisráðherra
flytur ræðu og svarar
fyrirspurnum fundargesta
r REYKJANESKJÖRDÆMI
Suðurnesjum
þriðjudaginn 12 október kl 2 1 . í Stapa
L A
Takið þátt í fundum
forsætísráðherra
UTRÍK OG HAGKVAM HEIMILISSAMS1ÆÐA0 FYRIR VIÐRÁÐANLEGT VERÐ
now
HIJSGAGNAVERZLUN
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
l.augav«gi 13 Reykjavik simi 25870