Morgunblaðið - 12.10.1976, Side 34

Morgunblaðið - 12.10.1976, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKT0BER 1976 Ragnar Júlíusson: Dr. Bragi Jósepsson hafði víðtæk- asta menntun allra umsækienda Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ urðu snarpar umræður í borgarstjórn Reykjavíkur um veitingu stöðu aðstoðarskólameistara við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti. Mun flestum nokkuð kunnugt um málavexti og þykir ekki ástæða til að rekja þá nánar en skýra þess í stað frá umræðunum. Fyrstur tók til máls Ragnar Júlfusson (S) og rakti aðdraganda að þeirri ákvörðun menntamálaráðherra að ganga gegn vilja fræðsluráðs og veita ekki stöðuna þeim aðila sem fékk flest atkvæði er leitað var álits þar, eða 5 atkvæði. Hins vegar veitti ráðherra þeim manni stöðuna sem fékk eitt atkvæði, reyndar eftir að leitað hafði verið umsagnar fræðslustjórans í Reykjavík og skólameistara Fjöl- brautaskólans. Borgarfulltrúinn sagði að fræðsluráðsmenn hefðu aflað sér eins greinargóðra upp- lýsinga og unnt var um alla þrjá umsækjendurna áður en til hinnar leynilegu atkvæðagreiðslu kom í fræðsluráði um veitingu stöðunnar. Ragnar sagði að FRA BORGAR- STJÓRN ákvörðun ráðherrans væri í meira lagi mjög umdeilanleg og hreint út sagt ögrandi í garð Reykjavík- urborgar. Kvaðst hann fullviss um að engum fræðsluráðsmanni hefði dottið það I hug að ráðherr- ann færi ekki að vilja þeirra. Sagði borgarfulltrúinn síðan að í grunnskólalögunum væri gert ráð fyrir sem mestri valddreifingu og að samskipti menntamálaráð- herra við fræðsluráð Reykja- víkurborgar hefði einkennzt af slíkum ákvörðunum utan sára- fárra undantekninga. Þá sgði borgarfulltrúinn að auðvitað væri endanlega valdið hjá ráðherra, það væri óumdeilanlegt, en vald ráðherra ætti fyrst og fremst að vera varnagli ef mjög ríkar ástæð- ur kæmu til. En væri slikt vald notað nánast sem liður í persónu- legum ofsóknum gegn tilteknum einstakling þá væri illa farið. Vegna ákvörðunar ráðherra mætti því ætla að fræðsluráði hefði orðið á geysileg mistök er það mælti með dr. Braga Jósefs- syni. Ragnai'sagði að ef umsóknir umsækjendanna væru teknar til athugunar kæmi í Ijós að dr. Bragi Jósefsson hefði víðtækustu menntunina af öllum þremur um- sækjendunum til að gegna um- ræddu starfi. Þá hafi dr. Bragi stundað mikil rannsóknastörf á sviði skólamála og ennfremur sýnt mikinn dugnað í starfi sem deildarstjórí í menntamálaráðu- neytinu. Ekki kvaðst borgarfull- trúinn vilja ræða frekar ágrein- ing dr. Braga og ráðuneytisstjór- ans sem leiddi til þess að honum var veitt lausn frá embætti — með ólögmætum hætti ef marka mætti nýgenginn úrskurð borgar- dóms Reykjavíkur. Kvaðst Ragnar vilja halda þeim málum öllum, sem enn sæi ekki fyrir endann á, utan þessara umræðna þvi ella væri ekki fjarri, að hugur- inn beindist að því sem virzt gætu ógeðfelldar persónuofsóknir og þá um leið glórulaus misbeiting valds. Væri hins vegar vikið að hinum umsækjandanum væri Rögnvald- ir Sæmundsson ágætlega menntaður maður og hefði haft meó höndum 24 ára stjórnun á -.kólurn i Keflavik. Rögnvaldur hefði enn fremur átt stóran þátt í undirbúningi Fjölbrautaskóla Suðurnesja og sótt um starf skóla- meistara þar en ekkert atkvæði hlotið umsagnaraðila ráðherra þar. Hinum sama ráðherra hefði þótt hlýða að skipa kennara við menntaskóla hér í Reykjavík skólameistara þar en ganga fram hjá þeim sem mestan veg hafði haft af undirbúningi að stofnun skólans syðra. Sagði Ragnar að þessi staðreynd vekti óneitanleg grunsemdir um, að ekki hefði verið með þessari ráðningu í Breiðholti verið að ráða Rögnvald Sæmundsson heldur verið að koma sér hjá með öllum tiltækum ráðum að ráða dr. Braga Jósefs- son. Kvaðst Ragnar harma að borgarfulltrúinn Kristján Bene- diktsson skyldi á borgaráðsfundi kjósa að bregða sér úr borgarfull- trúastarfinu sem hann er til kjör- inn og launaður til að gegna og tala þar eins og hver annar launaður starfsmaður þingflokks Framsóknarflokksins og verja framferði ráðherra sem gengi þvert gegn hagsmunum og óskum borgarstofnunar. Þessi afstaða kæmi flestum á óvart ekki sízt þeim sem þekktu Kristján Bene- diktsson vel. Sagðist Ragnar Júliusson vel geta fellt sig við tillögu Björgvins Guðmundssonar sem lögð var fram á borgarráðs- fundi 21. sept. þar sem stöðuveit- ingunni er harðlega mótmælt. Kristján Benediktsson (F) sagðist líta á umrædda deilu sem misklið milli fræðslustjórans í Reykjavik og formanns fræðslu- ráðs, Ragnars Júlíussonar. Barátt- an sem fram kæmi í deilu þessari væri hrein valdabarátta milli þeirra tveggja. Sagðist Kristján ekki taka minna mark á umsögn þess ágæta skólamanns Kristjáns Gunnarssonar fræðslustjóra en meirihluta fræðsluráðs. Ennfrem- ur yrðu menn að gera sér grein fyrir þvi að fræðsluráð væri að- eins umsagnaraðili en ráðherra bæri ábyrgðina. Kvað Kristján meirihluta fræðsluráðs vera þann pólitiskasta meirihluta sem til væri í starfandi nefnd eða ráði á vegum borgarinnar. Hann sagðist siðan vilja lýsa furðu sinni að formaður fræðsluráðs talaði um glórulaust ofstæki og persónuleg- ar árásir og þar meinaði hann liklega menntamálaráðherra. Kristján Benediktsson kvaðst vilja gera orð Ágústs kaupmanns í Stykkishólmi að lokaorðum sín- um: „Þetta væru stór orð „Ragnar" ef einhver annar hefði sagt þau en þú.“ Björgvin Guðmundsson (A) sagðist vilja gera grein fyrir afstöðu sinni. Ástæðurnar fyrir stuðningi sínum við dr. Braga Jósefsson væru: 1) Dr. Bragi hefur mun meiri menntun en sá er stöðuna hlaut. 2) Dr. Bragi væri góður stjórn- andi og hefðu störf hans i ráðu- neytinu borið vitni um það. 3) Bragi væri mun yngri maður. Björgvin sagði siðan að við þessa embættisveitingu hefði ráð- herra misbeitt valdi sínu og þar hefðu annarleg sjónarmið ráðið. EHn Pálmadóttir (S) sagði að deilurnar hefðu verið gagnlegar þó ekki væru þær skemmtilegar. Hún sagðist ekki ætla að meta persónur mannanna. Skrifin bentu aðeins á framkomu ráð- herra gagnvart sveitarstjórn og fræðsluráði. Ráðherra túlkaði lög- in kannski svo að ráð og nefndir mættu svo sem segja sina skoðun en hann hefði valdið. Ráðherra getur dregið úr áhrifum „heima- stjórnar" með þvi að skýla sér á bak við fræðslustjóra. Elín sagðist ekki efast um að þeir sem leitað var til með umsögn um mennina hefðu unnið eins samvizkusam- lega og þeim var unnt. Þá veltu menn fyrir sér stórri spurningu. Hvers vegna var Rögnvaldur ekki ráðinn til Fjölbrautaskóla Suður- nesja? Síðan sagði Elin að sjálf- sagt væri að ræða stöðuveiting- una við Fjölbrautaskólann ekki eingöngu vegna stöðuveitingar þessarar heldur vegna þess hversu alvarlegt mál væri hér á ferðinni. Alfreð Þorsteinsson (F) spurði Ragnar Júlíusson hvað hann ætti við þegar hann ræddi um ógeðfelldar persónuárásir. Hvað fælist í þvi, hver hefði stað- ið I sliku og hvernig væru þær. Sagði hann að Ragnar yrði að standa við þessi orð ef hann ætl- aðist til að honum yrði trúað. Ragnar Júlíusson sagði greinilegt að Alfreð hefði misskilið sig, sjá nánar orðrétt úr ræðu Ragnars hér að framan. Alfreð Þorsteins- son sagðist ekki sjá annað Ragnar hefði ekki staðið við orð sín. Taldi Alfreð síðan upp sjö stöður sem dr. Bragi hefur sótt um undanfar- in ár og greindi nákvæmlega frá hvernig atkvæði hefðu fallið hjá umsagnaraðila á hverjum stað. Albert Guðmundsson (S) sagði eftir mál Alfreðs að allir sem hlutu stuðning fræðsluráða á hverjum stað hefðu hlotið um- ræddar sjö stöður. Kvaðst Albert vilja benda á að bæði sá er fékk umdeilda stöðu í læknadeild HI fyrir nokkru og sá er fékk stöð- una í Breiðholti væru báðir fram- sóknarmenn. Þetta væri kannski tilviljun. Kristján Benediktsson sagði að deilan snerist að miklu leyti hvort hér hefðu verið framin embættisglöp af ráðherra. Ekki væri hægt að sakfella mennta- málaráðherra fyrir að leita álits fræðslustjóra. Kristján sagði að sín ósk væri að deila dr. Braga við kerfið yrði senn á enda; henni lyki á sómasamlegan hátt fyrir hann. Kvaðst hann fúslega vilja styðja Ragnar Júlíusson til að koma dr. Braga I gott og vel laun- að embætti hjá Reykjavíkurborg sem þá um losaði dr. Braga úr hinu mikla sálarstriði sem hann ætti i við hið vonda menntamála- ráðuneyti. Davið Oddsson (S) lýsti undrun sinni yfir hversu ákafir borgarfulltrúar Fram- sóknarflokksins væru í að verja gerðir ráðherra sem framkvæmd- ar væru þvert gegn vilja meiri- hluta fræðsluráðs. Kvað hann menntamálaráðuneytið ofstýrt ráðuneyti. Og öllum ætti að vera ljóst að dr. Bragi Jósefsson hefði lengi staðið i striði við einræðis- herrann i menntamálaráðuneyt- inu; ráðuneytisstjórann Birgi Thorlacius. Sagði Davið að tvi- skinningur hefði verið hjá Kr. Benediktssyni er hann lýsti yfir áköfum stuðningi við veitingu á góðri stöðu til dr. Braga á næst- unni. Nú er tækifærið liðið Kristján og af hverju notaðir þú það ekki? spurði Davíð. Elín Pálmadóttir sagði að Kr. Ben. hefði sagzt mundu styðja dr. Braga í góða stöðu hjá borginni. En málið væri ekki svona einfalt. Sérgrein dr. Braga væru einmitt fjölbrautaskólar og Fjölbrauta- skólinn i Breiðholti hefði einmitt verið heppilegur fyrir svo víð- menntaðan mann sem dr. Braga. Sigurjón Pétursson (ABL) sagð- ist telja það sjálfsagt að ráðherra notaði vald sitt í svona málum þar sem nægilega sterk rök lægju til. En þvi væri ekki til að dreifa hér. Sigurjón taldi ósmekklegt að Framhald á bls. 31 Misskilningur í sím- tali leiddi til mistaka Páll Gíslason: Hagkvæm kaup á húsgögnum Undanfarið hafa orðið nokkrar umræður i biöðum um kaup á húsgögnum fyrir Heilsugæzlu- stöðina í Árbæ. Mál þetta kQm til umræðu á borgarstjórnarfundi síðastliðinn fimmtudag. Rakti Sigurjón Pétursson (ABL) máls- atvik og vitnaði síðan í greinar- gerð bygginganefndar Heilsu- gæzlustöðvarinnar sem birtist í Morgunblaðinu 7. október. í máli Sigurjóns kom fram að borgarstjórn hefði samþykkt hvernig standa skyldi að innkaup- um fyrir Reykjavíkurborg. Hann sagði að húsgögnin hefðu verið keypt og flutt í heilsugæzlustöð- ina áður en stjórn Innkaupastofn- unar Reykjavíkur kom saman til að ræða málið. Þetta taldi Sigur- jón slæmt. Síðan sagðist hann vel geta sætt sig við kaupin á hús- gögnunum i sjálfu sér, því ekki væri hægt að neita að kaupin væru nokkuð hagstæð þar sem kaupsamningurinn hljóðaði upp á 40% Iægri upphæð en áætlað hefði verið. Samt sem áður þó svo kaupin hefðu verið hagstæð og sjálfsögð vegna verðs og gæða kvaðst Sigurjón vita hvernig að kaupunum hefði verið staðið. Það væri alls ekki á valdsvði byggingarnefndar að ákveóa um húsgagnakaup — heldur stjórnar Innkaupastofnunarinnar. Næst talaði Páll Gíslason, en hann á sæti I umræddri byggingarnefnd. Sagði Páll að hér lægi ljóst fyrir að misskilningur í simtali hefði leitt til þessara mis- taka. Þessi misskilningur hefði nú leitt til nokkurra deilna. 1 máli Páls kom fram að hann teldi þetta hagkvæm kaup enda hefði áætl- unin hljóðað upp á rúmar 4,5 milljónir. Hins vegar hefðu hús- gögninfengizt á 2,7 milljónir sem væri u.þ.b. 1,7 milljónum undir áætlun. Af þvi mætti augljóslega sjá að kaupin hefðu verið mjög hagkvæm. Um það væri ekki hægt að deila. Páll sagði að byggingar- nefndin hefði gert allt hvað hún gat til að gera kaupin sem hag- kvæmust og þá bætti hann þvi við að vel hefði verið staðið að undir- búningi húsgagnakaupanna. Alfreö Þorsteinsson (F) sagði að byggingarnefndin væri að reyna að koma ábyrgðínni yfir á aðra aðila i borgarkerfinu og að greinargerðin bæri vott um dóm- greindarleysi. Varpaði Alfreð fram þeirri spurningu hvort svona nokkuð hefði kannski gerzt áður. Sigurjón Pétursson sagði að greinargerðin hefði verið óþörf og jafnvel gæti verið að hún væri röng. Margrét Einarsdóttir (S) kvaðst lýsa harmi sínum vegna þessara mistaka, en minnti um leið á að mistök væru mannleg. Sagði hún að Alfreð Þorsteinsson og Sigurjón Pétursson hefðu haft í frammi mikla útúrsnúninga. Mistök væru mannleg og gætu alltaf hent. Páll Gislason talaði síðan aftur og endurtók að vel hefði verið staðið að undirbúningi kaupanna hvað sem öðru liði. Svo kom i ljós i máli hans að öllum dagblöðun- um hefði verið send greinargerð byggingarnefndar sama daginn. En ekki hefðu nú öll blöðin séð þörf á að birta hana strax, og gætu menn velt því fyrir sér hver ástæðan væri. Þá komu til umræðu byggingar- framkvæmdir í Arnarholti vegna fyrirspurnar frá Öddu Báru Sig- fúsdóttur (ABL). Framkvæmd- unum átti að vera lokið 1. ágúst 1976 en er enn ekki lokið. Spurði Adda Bára borgarstjóra hvað nú myndi gerast. Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri (S) rakti sögu málsins og sagði að núverandi verktaki hefði hætt framkvæmdum að miklum hluta verksins en héldi áfram með ýmislegt innan húss. Væri borgin nú að leita nýs verktaka í afgang verksins. Sagði borgarstjóri að verkinu myndi seinka nokkuð, jafnvel um eitt ár. Adda Bára lýsti ánægju sinni með að verkið væri ekki strandað, og myndi nú áfram haldið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.