Morgunblaðið - 12.10.1976, Side 46

Morgunblaðið - 12.10.1976, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR Í2. OKTÓBER 1976 Réðust inn í sendiráð Sýr- lands í Róm Róm, 11. október. Reuter. ÞRÍR skæruliðar sem fylgja Palestínumönnum að málum réðust inn í sýr- lenzka sendiráðið í Róm í dag vopnaðir vélbyssum og handsprengjum, en gáfust upp fyrir lögreglunni. Einn maður særðist af völdum þeirra. Foringi skæruliðanna sagði að árásin hefði verið gerð til að beina athygli almennings að ör- lögum Palestínumanna í Líbanon. Bertil prins fær að eiga leikkonuna Stokkhólmi, 11. október. Reuter. Bertil Svíaprins geng- ur að eiga Lilian Craig, fyrrverandi velska leik- konu 7. desember og þau fara í brúðkaupsferð til Kenya f janúar að því er tilkynnt var f konungs- höllinni f Stokkhólmi f dag. Kynni þeirra hófust fyrir 33 árum í London þegar hún var hjúkrunarkona og hann her- málafulltrúi. Bertil prins segir að það hafi verið ósk föður hans, Gústafs konungs Adolfs, að hann kvæntist ekki Lillian Craig fyrr en Karl Gústaf nú- verandi konungur væri kvænt- ur. Gústaf konu ur Adolf lézt í september 1973. Sonarsonur hans Karl Gústaf, varð kon- ungur og kvæntist Siliviu Sommerlath frá Vestur- Þýzkalandi í júni. Fyrir helgi veitti Karl Gústaf frænda sinum formlegt leyfi til að kvænast frú Craig að höfðu samráði við nýju stjórnina. Frú Craig sagði blaðamönn- um að hún vonaðist til að fá sænskan borgararétt í næsta mánuði. Hún fluttist til Stokk- hólms á árunum fyrir 1960 þegar hún hafði skilið við skozka leikarann Ian Craig. Friðarverðlaunin veitt á föstudag Ósló, ll.oklóber. NTB. NAFN friðarverðlaunahafa Nóbels verður birt á föstudag. Að þessu sinni koma 50 menn til greina. Ekkert hefur spurzt út um hver komi helzt til greina. Sagt er að eins gæti verið að engum verði veitt friðarverðlaunum f ár. Hann sagði að þeir væru félagar i „Svarta júní“, hreyfingu sem hef- ur aðsetur í írak og er kennd við mánuðinn þegar Sýrlendingar sóttu inn í Líbanon í ár. Samtökin sögðust bera ábyrgð á árás sem var gerð á hótel í Dam- askus i siðasta mánuði þegar fjór- ir gíslar voru drepnir. Þrir árása- mannanna voru hengdir í gálgum fyrir utan hótelið daginn eftir. Lögreglan telur að árásin hafi verið gerð til að taka Farouk A1 Shara sendiherra i gislingu, en hann var ekki í byggingunni þeg- ar árásin var gerð. Um svipað leyti réðust þrir palestínskir stúdentar inn í sýr- lenzka sendiráðið í Islamabad i Pakistan. Einn þeirra féll í skot- bardaga við öryggisverði. Stúdentarnir ruddust inn á sendiráðslóðina og vörpuðu hand- sprengjum inn í bygginguna, ber- sýnilega til að mótmæla íhlutun Sýrlendinga i Libanon. Rúður brotnuðu en annars varð lítið tjón i árásinni. Slmamynd AP. Starfsmanni sýrlenzka sendiráðsins gefinn blóðvökvi f sjúkrabfl á leiðinni f sjúkrahús. Árás á írskar fridarkonur Belfast, 11. október. Reuter. FÉLAGAR úr Provisional- armi trska lýðveldishers- ins (IRA) réðust áleiðtoga friðarhreyfingar kvenna á Norður-írlandi, Betty Williams og Mairead Corrigan, á fjöldafundi í Belfast í gærkvöldi. Þær sakaði lítið og þeim Tal efstur Varese. Italfu, 11. október. MIKHAIL Tal frá Sovétíkjunum gerði jafntefli við Lajos Portisch frá Ungverjalandi f annarri um- ferð millisvæðamótsins á Varese á Italfu f gærkvöldi. Hann gerði jafntefli við landa sinn Tigran Petrosjan i fyrstu umferðinni. Keppendurnir eru aðeins þrír og Tal er efstur með tvo vinninga en Petrosjan og Portisch hafa hálfan vinning hvor. Telfdar verða 12 skákir. Tveir efstu menn á mótinu tefla- á móti átta skákmanna á næsta ári og sigurvegarinn í þvf móti öðlast rétt til að skora á heimsmeistar- ann Anatoly Karpov 1978. Bobby Fischer frá Bandarfkjunum hefur öðlazt rétt til þátttöku á mótinu 1977. tókst að komast undan f bifreið að sögn lögreglunn- ar. Unglingar sem grýttu þær eyðilögðu bíl þeirra sjálfra. Flestir IRA-félagarnir sem réð- ust á frú Williams og frú Corrigan voru konur. F'jöldafundurinn þar sem árásin var gerð var haldinn til að mótmæla því að 13 ára gam- all piltur lézt af völdum meiðsla sem hann hlaut í mótmælaaðgerð- um fyrir 10 dögum. Pilturinn varð fyrir plastkúlu af sömu gerð og brezkir hermenn nota. Mairead Corrigan var nýtekin til máls þegar ungur maður þreif hljóðnemann frá henni. Skömmu síðar réðust á hana konur úr hópi áhorfenda. Þær spörkuðu f hana og drógu hana á hárinu. Margar konur réðust á frú Williams sem féll f öngvit. Um klukkustundu síðar var þeim smygglað út úr byggingunni. Brenndur til bana Áður hafði kaþólskur maður verið brenndur til bana í bænum Ballymena og það virtist vera verk mótmælenda sem vildu mót- mæla eldsprengjuárás skæruliða IRA á bæinn. Manninum hafði verið misþyrmt áður en hann var brenndur til bana. flokkur á Spáni Madrid. 11. október. Reuter. SJÖ hægrisinnaðir stjórn- málamenn á Spání, þar á meðal Manuel Fraga Iribarne fyrrverandi inn- anrfkisráðherra, hafa til- kynnt stofnun nýs íhalds- flokks, sem muni styðja stjórnmálaumbætur en leggjast gegn þvf að tengsl- in við fortfðina verði rofin. Fraga sagði I viðtali við blaðið Informaciones í Madrid að Spán- verjar þyrftu stjórnmálaflokk eins og Ihaldsflokkinn í Bretlandi og gaullistaflokkurinn í Frakk- landi. Flokkurinn kallast Alþýðu- bandalagið og er stofnaður til að bjóða fram í þingkosningum sem eiga að fara fram í júní sam- kvæmt áætlunum stjórnarinnar. Flokkurinn leggur áherzlu á lög og reglu og er þvf andvígur að samtökum kommúnista, hryðju- verkamannanna og aðskilnaðar- sinna verði leyft að starfa þótt hann vilji leyfa starfsemi annarra flokka. Flokkurinn styður kon- ungdæmið, vill efna heraflann og lögregluna og standa vörð um fjölskyldulíf og „sigild verðmæti almenns siðgæðis". 1 stefnuskrá flokksins er harm- að að grafið hafi verið undan friði og reglu og þjóðareiningu. Þar segir að núverandi kreppa í stjórnmálum og efnahagsmálum séu skylda fyrirbrigði og vaxandi verðbólga og atvinnuleysi valdi mörgum Spánverjum alvarlegum erfiðleikum. Flokkurinn gagnrýn- ir síðustu sparnaðarráðstafanir stjórnarinnar, þar á meðal tveggja mánaða verðstöðvun og skatt til að draga úr orkuneyzlu þar sem þær séu ófullnægjandi og ljósar. Allir leiðtogar flokksins nema einn voru ráðherrar í tíð Francos hershöfðinga og auk Fraga eru Framhald á bls. 47 Loftbelg bjargað Ramstein, Vestur-Þýzkalandi, 11. október. Reuter. TII.RAUN Bandarlkjamannsins Kdward Yost til að fljúga fyrstur 1 loftbelg yfir Atlantshaf fór út um þúfur f gær þegar hann hrap- aði f sjóinn um 300 km suður af Azor-eyjum. Honum var bjargað um borð f vestur-þýzkt vöruflutn- ingaskip. Frönskumenn í Belgíu sigra Briissel, 11. október. Reuter. FYLGISAUKNING flokks herskárra frönskumælandi manna í bæjarstjórnar- kosnmgunum í Briissel hefur haft í för með sér hættu á því að tungumála- deilur frönsku og hol- lenzkumælandi Belga blossi upp á nýjan leik. Flokkurinn (Front demorcatique des francophones) bætti við sig 10% atkvæða í kosn- ingunum sem fóru fram í gær. sigraði í fimm af 19 hverfum borgarinnar og dró mikið fylgi frá stuðningsflokkum núverandi samsteypustjórnar mið- og hægri flokka og sósíalistaflokknum sem er í stjórnarandstöðu. FDF jók einnig fylgi sitt í bæj- Framhald á bls. 47 Skömmtun matvæla er spáð 1 Bretlandi London, 11. október. Reuter. CROMER lávarður, fyrrver- andi bankastjóri Englands- banka, hefur varað við þvf að standi Bretar ekki f skilum við erlenda lánardrottna verði skortur á Iffsnauðsynjum er hafa muni matvælaskömmtun f för með sér. Þessi viðvörun kemur f þann mund sem þingmenn snúa aft- ur úr sumarleyfum sfnum og umræður hefjast f Neðri mál- stofunni um efnahagsmál. Gert er ráð fyrir að stjórnin verði að grfpa til nýrra sparnaðar- ráðstafana þar sem ráðstafanir sem hún gerði í sfðustu viku virðast ekki hafa nægt. Stjórnin stendur illa að vígi og verður að standa gegn kröfum íhaldsmanna um niður- skurð ríkisútgjalda og kröfum vinstrisinna um að ríkisútgjöld verði ekki skorin niður. Vax- andi áhrif vinstri sinna f Verka- mannaflokknum hafa orðið til þess að íhaldsmenn gera sér vonir um að stjórnin klofni og hrökklist frá völdpm. Staða pundsins hefur ekki batnað þrátt fyrir hækkun út- lánsvaxta Englandsbanka í 15% og fleiri sparnaðar- ráðstafanir og því er gert ráð fyrir að stjórnin verði að grípa til róttækari ráða til að tryggja sér 3.9 milljarða dollara lán sem hún hefur farið fram á hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum (IMF). Talið er að stjórnin verði annað hvort að hækka neyzlu- skatta eða draga úr erlendum lánum sem nema 10 milljörðum punda á ári. Þar sem neyzlu- skattar munu auka verðbólg- una munu þeir stofna í hættu samkomulagi stjórnarinnar og verkalýðsforingja um hófstill- ingu í launamálum. íhaldsmenn byggja kenningu sina um að Verkamanna- flokkurinn muni klofna á því að ekki verði hægt að samræma kröfur vinstrisinna um aukin útgjöld og innflutningshömlur og þá stefnu stjórnarinnar að bjarga sér á erlendum lánum. Stuðningsmenn Verkamanna- flokksins eru þó vissir um að flokkurinn haldi völdunum þrátt fyrir nauman þingmeiri- hluta. Vinstri armur Verkamanna- flokksins hefur tekið fram að hann hyggi ekki á uppreisn sem gæti komið íhaldsflokknum til valda þrátt fyrir ágreininginn við stjórnina. Auk þess hefur orðið vart við reiði í garð vinstrisinna hjá miðjumönnum og hægri armi flokksins vegna kröfu þeirra um víðtæka þjóð- nýtingu og aukin rikisútgjöld. Hófsamir þingmenn Verka- mannaflokksins íhuga nú hvort þeir eigi að leggjast gegn því að vinstrisinninn Michael Foot verði skipaður aðstoðarleiðtogi flokksins og leggja til að frú Shirley Williams, sem er hóf- söm, verði skipuð i hans stað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.