Morgunblaðið - 19.10.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19. OKTÓBER 1976
3
Frá setningu Menningarvikunnar f Kópavogi. Auk fulltrúa frá félög-
um f Kópavogi og boðsgesta má sjá nokkra af hinum 20 fulltrúum frá
vinabæjum Kópavogs á myndinni. (ljósm. Mbl. Ól. K. Mag.).
Menningarvika
hófst í Kópavogi
á laugardag
NORRÆNA menningarvika hófst
f Kópavogi á laugardaginn en auk
Kópavogskaupstaðar taka vinabæ-
irnir Norrköping, Odense,
Tampere, Þrándheimur, Ang-
magsalik, Klakksvfk og
Mariehamn þátt f menningarvik-
unni. Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra setti menn-
ingarvikuna á laugardaginn að
viðstöddum forsetahjónunum.
Við athöfnina fluttu ávörp Rjörg-
vin Sæmundsson bæjarstjóri f
Kópavogi, Else Skjerven frá
Þránheimi og Hjálmar Ólafsson
formaður Norrænu félaganna á
lslandi. Þá fluttu þeir Garðar
Cortes og Halldór Kristinsson fs-
lenzk þjóðlög og rfmnalög.
Sýningar voru sfðan opnaðar að
Hamraborg 1 og má þar nefna
Grafiksýningu og sýningu þar
sem lýst er mannlífi og atvinnu-
háttum f vinabæjunum, sem þátt
taka I menningarvikunni. Á laug-
ardagskvöldið frumsýndi Leikfé-
lag Kópavogs síðan leikritið
„Glataðir snillingar" í Félags-
heimili Kópavogs. Á sunnudaginn
hófst ráðstefna um tómstunda-
málefni f vinabæjunum í Félags-
heimilinu og lýkur þeirri ráð-
stefnu f dag.
I gær var meðal atriða á menn-
ingarvikunni fyrirlestur Cliffords
Long um fornleifarannsóknir í
Þrándheimi, en þar er mjög
stuðzt við íslenzkar heimildir. 1
kvöld verður í Félagsheimili
Kópavogs dágskrá um Norrköp-
ing, Odense, Tampere og Þrán-
heim, en á sunnudaginn var dag-
skrá um Mariehamn,
Angmagsalik, Klakksvík og Kópa-
vog.
Herferd gegn
slysum á bömnm
UNDANFARNA mánuði hefur
starfshópur á vegum Landsam-
bands íslenskra barnaverndar-
félaga unnið að öflun og
greiningu víðtækra upplýsinga
um slys á börnum á aldrinum
0—10 ára hér á landi. Ma. hefur
verið stuðst við skýrslur slysa-
deildar Borgarspítalans um
þessi mál og úttekt gerð á þeim
með aðstoð tölvu.
Landsamband fsl. barna-
verndarfélaga, sem nú mun
taka upp heitið og kjörorðið
„BYRGJUM BRUNNINN"
fyrir starfsemi sína, vonar að
þær upplýsingar sem birtast
munu f dagblöðunum á næst-
unni um slys á börnum, muni
vekja almenning til vaxandi
skilnings á nauðsyn þess að
„byrgja brunninn" í þessu efni
sem öðru, þar sem börn eiga í
hlut.
Fyrrnefndur starfshópur
hefur þar með skilað fyrsta
áfanga verkefnisins, en f
framhaldi af honum mun verða
leitast við að fylgja málinu eftir
á ýmsan hátt, þ.á m. með athug-
un á löggjöf um öryggismál og
framkvæmd hennar.
Starfshóp L.Í.B. um slys á
börnum skipa Eiríkur Ragnars-
son félagsráðgjafi, Regína
Höskuldsdóttir sérkennari og
Margrét Sæmundsdóttir fóstra,
og hafa þau unnið að þessari
könnun ásamt Jóni Björnssyni,
sálfræðingi, sem samræmt
hefur og undirbúið verkið f.h.
Landsambands ísl. barna-
verndarfélaga.
(Frá Landsambandi
íslenskra barnaverndarfélaga)
Loðnan;
Skipin luku við
að fylla sig á
nokkrumtímum
GÓÐ veiði var hjá þeim fáu
loðnuskipum, sem voru á
miðunum fyrir vestan land f
fyrrakvöld og fylltu öll skipin sig
þar á skömmum tfma.
Guðmundur fékk 750 tonn, sem
skipið fór með til Keflavfkur,
Hrafn fékk 400 tonn sem farið var
með til Siglufjarðar og Arsæll
Sigurðsson fékk 200 tonn, sem
skipið fór með til Bolungarvfkur.
Hjálmar Vilhjálmsson
leiðangursstjóri á rannsóknaskip-
inu Bjarna Sæmundssyni sagði i
samtali við Morgunblaðið f fyrra-
kvöld, að loðnuskipin hefðu öll
haldið sig á svokölluðu syðra
svæði þar til f fyrramorgun og
fyrrakvöld. Þeir á Bjarna
Framhald á bls. 43
Iðnkynningarvika
á Akureyri hafin
IÐNKYNNINGARVIK-
AN á Akureyri hófst
formlega í gærmorgun
kl. 9 með stuttri athöfn
við fánastöng Akureyrar-
bæjar nyrzt á klöppunum
austan Þórunnarstrætis.
Margt manna var viðstatt
í fegursta veðri, m.a. fjöl-
mennti iðnverkafólk frá
verksmiðjum SÍS í kaffi-
tíma sínum til athafnar-
innar.
Formaður undirbún-
ingsnefndar iðnkynning-
ar á Akureyri, Jón Arn-
þórsson, setti athöfnina
með ræðu og stýrði
henni, en einnig tóku til
máls Höskuldur Stefáns-
son iðnverkamaður og
Hjalti Geir Kristjánsson
formaður verkefnaráðs
islenzkrar iðnkynningar.
Jón rakti aðdraganda
hinnar akureyrsku aðn-
kynningarviku í ræðu
sinni. Sagði hann, að i
upphafi hefði ætlunin
verið að halda hátíðlegan
dag iðnaðarins á Akur-
eyri og kynna við það
tækifæri iðnað Akureyr-
inga. Fljótlega hefói það
þó sýnt sig, að ekki dygði
minna en ein vika til að
gera slíkri iðnkynningu
sæmileg skil.
Jón Arnþórsson
teiknaði Fanney Valgarðsdóttir
auglýsingateiknari, starfs-
maður Auglýsingastofu Gisla B.
Björnssonar. Merkið er í
fslenzku fánalitunum.
I tilefni iðnkynningarinnar á
Akureyri kom í gærmorgun út
kynningarrit um iðnfyrirtæki á
Akureyri. Ritið er 84 bls. að
stærð, en það hefur að geyma
miklar upplýsingar og sögu-
legan fróðleik um akureyrskan
iðnað. Ritstjóri og ábyrgðar-
maður er Jón Arnþórsson, kápu
hannaði Kristján Kristjánsson
en Prentsmiðja Björns
Jónssonar prentaði ritið.
I gær var einnig opnuð
farandssýning með ýmsum
fróðleik um íslenzkan iðnað, og
verður sýningin í afgreiðslu-
sölum Búnaðarbankans,
Iðnaðarbankans, Lands-
bankans og Utvegsbankans.
Einnig kynna verzlanir
islenzka iðnvöru i sýningar-
gluggum sfnum í þessari viku,
og eru margar gluggasýningar
afar smekklegar.
Sv.P. ágás
n
á*m
Hjalti Geir Kristjánsson
Þá rakti Jón dagskrá vikunn-
ar, sérstaklega dagskrá dags
iðnaðarins sem verður 22. okt.,
en f lokin hvatti hann til auk-
inna átaka og umsvifa, iðnaðin-
um á Akureyri og allri fslenzku
þjóðinni til eflingar.
Höskuldur Stefánsson iðn-
verkamaður kom víða við í
ávarpi sínu. Sagði hann m.a., að
þrátt fyrir miklar framfarir á
síðustu árum í vélvæðingu iðn-
aðarins væri enn margt óunnið
á því sviði. Sagði hann betri
árangur nást í hvaða starfi, þar
sem aðstaða vinnandi fólks
væri bætt, og fyrirhyggja réði
framleiðslu. En þrátt fyrir
tækniþróun sagði Höskuldur að
nálægð verkamannsins yrði
áfram höfuðnauðsyn, því víða
þyrfti hugur og hönd að grípa
inn í verk það sem vélar vinna.
Hjalti Geir lýsti aðdraganda
stofnunar islenzkrar iðn-
kynningar og tilgangi átaks
þess. Þá sagði Hjalti það sam-
dóma álit, að mjög vel færi á
þvf að fyrsti fánaíslenzkrar iðn-
kynningar væri dreginn að
húni á Akureyri, ef höfð væri í
huga hin mikla og stórbrotna
iðnaðaruppbygging sem Akur-
eyringar hafa komið á fót.
Sagði hann þá uppbyggingu
hafa verið hvata iðnaðarupp-
byggingar annars staðar á
landinu.
Athöfninni lauk með því að
Þórey Aðalsteinsdóttir,
Höskuldur Stefánsson
iðnverkamaður i Fataverk-
smiðjunni Heklu, dró fána
Islenzkrar iðnkynningar að
húni i fyrsta sinn, og vigði þar
með merki hennar. Merkið
Fáni lslenzkrar iðnkvnningar hefur verið dreginn að húni (ljósm.
Sv.P.)