Morgunblaðið - 19.10.1976, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.10.1976, Blaðsíða 36
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19. OKTÓBER 1976 Sykurnáma Siggu gömlu r Eftir Ann Richards „Þetta er gripurinn," hrópaði Ingunn, og þar sem þetta var gjaldrahúfa, hafði hún auðvitað eitthvað furðulegt aðdráttarafl í för með sér, og Tobbi stóðst því alls ekki freistinguna. Þetta var líka svo fallegur bolli. ,,Að drekka úr þessum bolla, hlýtur að vera bæði hressandi og skemmtilegt,“ hugsaði hann. Svo kallaði hann kurteislega: „Þakka þér fyrir, Ingunn, ég kem strax.“ Eftir að hafa drukkið kaffið, sat hann og rabbaði við Ingunni íkorna. Þau gæddu sér líka á nokkrum hnetum. Nú stóð svo á, að heimili Tobba íkorna var ákaflega snoturt og þægilegt, og Tobbi hafði verið á mörgum heimilum, sem eins var ástatt um. Það var af þess- um ástæðum, að hann tók eftir því, að heimili Ingunnar íkorna var alls ekki í sem bestu ásigkomulagi. Sólin skein til dæmis beint á hnakkann á honum. „Fjárinn sjálfur“, tísti hann. „Sólin er að steikja á mér höfuðið." „Hérna,“ sagði Ingunn og fékk honum hugvekjuhúfuna. „Settu þessa upp — hún ætti að halda höfðinu á þér svölu.“ Ekki vissi hún, hver árangurinn mundi verða, því að þeim kosti mundi henni aldrei hafa komið til hugar að gera þetta, en hvernig átti hún að vita, að þetta var galdrahúfa? Tobbi, íkorni tók hlægjandi á móti húfunni og setti hana upp, og andartaki síðar var hausinn á honum orðinn ískaldur. Aumingja Ingunn íkorni, hugsaði hann. Á einu andartaki fannst honum, að hann vissi allt um allt. Honum þótti sem gæti hann svarað hvaða spurningu, sem væri og um hvað sem væri. Og einn af hlutunum, sem hann vissi, var, að Ingunni íkorna dauðlangaði að fá að komast í hnetuforðann hans. Hann varð alvarlegur á svipinn: „Svo þú ert eins og þær allar eru!“ sagði hann. „Býður mér upp á kaffi, aðeins svo þú fáir að eta af hnetunum mínum í vetur. Jæja, en þér verður nú ekki kápan úr því klæðinu!" Þegar hann sagði þetta, stóð hann allt í LÆKNIR! Er ekki sjálfsgagn- rýni hans kom- in út í öfgar? MOBÖJK/-Í0^_ KAFP/NO \\ r® Ætlið þér sjálfur að taka með yður eplaskrælinginn, eða ð að senda hann heim til yðar? Hvort er hann dáleiddur af þér eða mér eða vinnuleiður? Flugfiskar geta aðeins synt flugsund. Þegar hann kom heim I fyrri- nðtt sagðist ég vera orðlaus — það hefur aldrei komið fyrir áður. Biskupinn af Hereford hitti eitt sinn lávarð, sem var mjög hrokafullur. „ftg fer aldrei I kirkju," sagði lávarðurinn, „ef til vill hafið þér tekið eftir því.“ „Já, ég hef veitt þvl eftir- tekt,“ svaraði biskupinn alvar- lega. „Ástæðan er sú,“ sagði Ið- varðurinn," að þar eru alltaf svo margir hræsnarar.** „Látið þér það ekki hafa áhrif á yður,“ svaraði biskup- inn brosandi. „Það er alltaf nðg rúm fyrir einn I viðbót.“ Maður nokkur lét grafa á leg- stein konu sinnar: „Tár geta ekki kallað þig til lífsins aftur. Þess vegna græt ég.“ Umsjónarmaður fangahúss er kominn ( eftirlitsferð og skoðar það, sem fangarnir hafa smlðað. „Þetta er hrákasmfði," seg- irhann við einn fangann. „Þetta er alveg ónýtt.“ „Nú , ef þér eruð óánægðir með það, sem ég vinn,“ svaraði fanginn," þá er bezt að ég fari héðan undir eins.“ Frúin: Þetta er I þriðja skipti, sem ég kem að þér þar se þú ert að kyssa vinnukon- una. Ef það kemur fyrir einu sinni enn rek ég hana burtu og bý til matinn sjálf. Maðurinn: Það kemur örugglega ekki fyrir aftur. Fangelsi óttans Framhaldssaga eftir Rosemary Gatenby Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 48 með Jamie til Baja? Og hana hingað. Það var vissulega blessun að breyta um verustað, hún var orðin hundleið á Cabo San Lucas. Og hér hafði hún eftirlætis- hestinn sinn Tascha. Enginn af þeim hestum, sem Tim hafði út- vegað henni eftir miklar fortölur komst I hálfkvisti við hann. En þeir höfðu þó gefið henni tæki- færa til að komast frá húsfnu og hún hafði riðið meðfram ströndinni og það hafði llka gert Tim erfiðara fyrir, þar sem hann varð að halda henni frá Consuelu og börnunum. Hún mátti alls ekki tala við þau. Hún bjóst við að þeim hefði verið sagt að hún hefði bilast á geðsmunum í siysfnu og veslings bróðir hennar hefði sent hana hingað til að hún gæti reynt að ná bata. Consuela hefði heldur ekkert getað gert, né heldur Rosalia eða Emilio. Ef þau hefðu reynt að gera eitthvað yrði Jamie drepinn. Tim hafði sagt henni það. Og hún efaðíst ekki um að hann segði satt. Við öliu mátti búast af Art Whelock. Allt var eins hér á búgarðinum. Tfm bannaði hennf að tala við strákana sem unnu ( hesthúsun- um. Hann náði sjálfur I hestínn fyrir hana. Kannskí sagði hann piltunum l(ka að hún væri geð- veik og myndi því kveikja I hest- húsunum ef hún kæmi þar inn. Henni hefði þótt fróðlegt að vita hvað fólkinu hér hafði eiginlega verið sagt — hvar héldu þau öll að hún hefði verip/þetta slðasta ár. Stundum furðaði hún sig á þvi, hvernig hún hafði afborið þetta. Allan þennan t(ma hafði hún að- eins hitt Tim og konu hans. Minnstu hafði munað að hún reyndi að binda enda á þetta allt, þegar þau fóru yfir landamærin. Það hafði verið svo ákaflega freistandi að varpa sér ( fang ein- hvers af tollvörðunum. En það hefði aldrei blessazt. Tim var á undan Myru og fanga þeirra, svo að hann hefði bara horfið fjöld- ann og hefndin hefðí lent á Jamie. Eða hvað? Hún vissi ekki leng- ur hverju hún átti að trúa. Hún var þegjandaleg þegar Tim kom rfðandi með Tascha. Hann sagði heldur ekkert. Stórt andlit hans með litlum pfrðum augunum var svipbrigðalaust með öllu. Hún flýtti sér að stlga á bak áður en hann kæmi þjótandi til að aðstoða hana. Hún hataði Tim. Hún gat ekki hugsað sér að hann kæmi við sig. Hún var Kka hrædd við hann, vegna þess hún vissi að hann vflaði ekki fyrir sér að drepa hana. Hann hafði notið þess um daginn þegar hún ætlaði að fara f útreiðartúr á Tascha ( fyrsta skiptið. — Þú skalt ekki reyna að slcppa frá mér, Helene... Þá skýt ég hestinn þinn... Hún var Kka viss um að hann tæki slfku tækifæri fagnandi. Þegar hún var komín á bak Tascha fannst henni hún ekki lengur ein. Milli hennar og hests- ins lá sá leyniþráður trausts og elsku sem veitti henni ótrúlega öryggiskennd. Þau riðu af stað og hún sá að skammbyssan var ( belti hans eins og fyrri daginn... — Dokaðu við, heyrðist hrópað að ofan. — Ég vil vera alveg viss. Fylgstu með honum. — Sjálfsagt. Tlminn þokaðist áfram. Skuggi leíð yfir lokuð augun, sennilega einhver hræfuglanna að nálgast. Hann fann grjótið sem hann lá á nuddast inn f bak sér og sársauk- inn um allan Kkamann var svo ægilegur að hann varð að beita sig ótrúlegum viljastyrk til að geta legið kyrr. En hann þorði ekki að bæra á sér. Bannsett slangan og Wheeloek f.vlgdust bæði með honum. Hann einbeitti sér að þvf að hugsa um Linn til að láta tfmann Kða. Hennar vegna varð hann að sleppa lifandi héðan. Og auðvitað var einnig um Everest að tefla. Það var harla kyndugt að hann hafði verið gagntekinn þeirri löngun að frelsa Everest, en nú snerist allur hans hugur um Linn og hvernig henni reiddi af. Kannski kæmi eitthvað fyrir Everest, en Linn kæmist undan. Nei, nei. Þannig vildi hann ekki að Linn slyppi. Hann óskaði að- eins að hún kæmi til hans af fúsum og frjálsum vilja. Hann varð þess var að hann hafði örlftið hreyft sig og fylltist skelfingu. En ekkert gerðist. Voru þeir farn- ir. Hann opnaði augun og leit f kringum sig og sá hvergi hreyf- ingu. Þá mundi hann eftir slöng- unni en sá hana hvergi. Hann gat að minnsta kosti ekki komið auga á hana. Hann hóf nú baráttu fyrir Iffi sfnu. Með þvf að reyna að glöggva sig á þeim hættum sem að honum steðjuðu enda þótt þeir Art og Bayles væru ef til vill horfnir á braut. Hann leit á kiettasnös fyrir ofan sig og sá þá slönguna hlvkkj- ast I burtu. Og þá var að snúa sér að þvl hvort honum væri ein- hverrar undankomu auðið...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.