Morgunblaðið - 19.10.1976, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 19.10.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19. OKTÖBER 1976 15 Kjartan Gunnarsson, formaöur SFHÍ: Þekktum Alþýðubandalagslög- f ræðingi beitt til að koma i veg f yrir f r jálsar kosningar í Hl Þaðpassarfvá SJALDAN eða aldrei hafa háskólastúdentar fengið að kynn- ast betur en sfðustu dagana lyðræðisfjandskap vinstri manna og kommúnista. Málið sem að þessu sinni hefur leitt I ljós þeirra rétta andlit og eðli er kjör hátfðarnefndar 1. desembers n.k. En stúdentar halda fullveldisdag- inn hátíðlegan eins og kunnugt er. Nokkur blaðaskrif hafa nú þegar orðið um nefndarkjörið að þessu sinni. Þau skrif hafa spunnist um fyrirkomulag kosninganna. Lýðræðissinnaðir stúdentar hafa viljað gera sem allra flestum mögulegt að kjósa, en vinstri menn hafa gert allt sem I þeirra valdi hefur staðið til að koma í veg fyrir að nema fáeinir stúdentar geti tekið þátt í kjöri nefndarinnar. Deilan hefur staðið um það hvort kjörstaður eigi að vera opinn þá 3—4 tfma sem lík- legt er að kosningafundurinn standi eða hvort aðeins eigi að kjósa f lok fundarins þannig að þeir einir fái að kjósa, sem komn- ir eru á fundann fyrir tiltekinn tíma og sitja hann til enda. í viðtali Morgunblaðsins við Þorvald Friðriksson, formann Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, á sunnudag kemur fram, að Vaka neitaði að taka þátt f kosningunum nema fundurinn yrði opinn og kosið yrði allan fundartímann. Þorvaldur rekur hvernig kjörstjórn hafði fyrst hafnað þessum skilyrðum Vöku Ingi R. Helgason en sfðan gengið að þeim. t milli- tíðinni hafði m.a. verið haldinn Stúdentaráðsfundur sem sam- þykkti með 17 atkvæðum gegn 9 áskorun á kjörstjórn um að rýmka kosningafyrirkomulagið á þann veg sem Vaka krafðist. Formaður kjörstjórnar, sem var á móti rýmkuninni, sagði af sér þegar hann lenti f minnihluta f henni. Næst gerist það, að á sunnudag þegar skipaður hefur verið nýr formaður kjörstjórnar, Atli Árna- son, að haldinn er fundur f kjör- stjórninni og hinn nýi formaður krefst þess að allar fyrri ákvarðanir séu ógiltar og horfið aftur til hins ólýðræðislega kosningafyrirkomulags. Fulltrúi lýðræðissinna f kjörstjórninni lagðist auðvitað gegn þvf og átti ekki von á öðru en hinn fulltrúi vinstri manna, sem hafði ásamt honum tekað þátt f því að sam- þykkja rýmkun kosningafyrir- komulagsins mundi standa við þá ákvörðun sína. En það var öðru nær. Sá ágæti maður hafði greini- lega verið settur í gapastokkinn um helgina. Hann taldi nú allar fyrri ákvarðanir sfnar löglausar og að hið eina rétta væri að beita reglunum þannig að þorra stúdenta yrði ókleift að kjósa. Blessaður maðurinn hafði verið barinn svo rækilega til hlýðni við ofstækisfyllstu afturhaldsöflin f röðum vinstri manna að undrum sætti. Þegar gengið var á mann- inn og hann beðinn að skýra af- Kjartan Gunnarsson stöðu sfna fór nú heldur betur að færast fjör f leikinn. Það kom sem sagt f ljós, að þeir sem annazt höfðu heilaþvottinn voru lög- fræðingarnir Ingi R. Helgason og Sigurður Baldursson, báðir tveir tryggir málsvarar fslenzkra kommúnista hverju nafni sem þeir nefnast. Hinn „staðfasti" kjörstjórnarmaður kvaðst hafa borið gerðir sfnar undir þessa menn og þeir báðir talið að ólög- legt væri með öllu að rýmka kosningafyrirkomulagið þannig að allir stúdentar ættu þess kost að kjósa. Hér hafa vissulega orðið þátta- skil i háskólapólitikinni, tveir kunnir vinstri sinnaðir lög- fræðingar hafa nú tekið að sér, með pólitfskum lögskýringum, að svipta þorra stúdenta atkvæðis- rétti f kosningum innan skólans. Næst geta stúdentar vafalaust átt von á því að Lúðvík Jósepsson verði formaður Stúdentaráðs og Jónas Arnason fulltrúi þeirra f háskólaráði. Lítum nú á lögskýringar hinna nýju stúdentaleiðtoga. Kjör- stjórnarmaðurinn, sem guggnaði á lýðræðinu vegna þess að hann taldi það ólöglegt, ber tvennu við. A) Nýtt fyrirkomulag kosning- anna ákveðið og auglýst eftir að framboðsfrestur rann út, en annað fyrirkomulag hafði verið auglýst áður. B) Kjósa á á stúdentafundi þar sem frambjóðendum sé gefinn kostur á að kynna stefnu sína. Kosning geti því ekki farið fram fyrr en að umræðum loknum. Þessi atriði kveðst kjörstjórnar- maðurinn hafa borið undir hina vfsu lögspekinga Inga R. og Sigurð Baldursson og þeir báðir talið, að skylt væri að kosningin færi fram f fundarlok að loknum umræðum og að kjörstjórn gæti ekki breytt fyrstu ákvörðun sinni og um kosningafyrirkomulagið. Fá þessar fullyrðingar staðist eða er hér um pólitfskan loddarahátt að ræða sem á ekkert skylt við lögfræði? I kosningareglugerðinni segir: „Nefndarmenn skulu kosnir leynilegri listakosningu á stúdentafundi á tímabilinu 16—22 október. A þessum fundi skal frambjóðendum gefinn kostur á að kynna stefnu sfna varðandi 1. desember; almennar umræður skulu einnig leyfðar. Kosningarétt og kjörgengi, skulu hafa allir þeir, sem eru innritaðir f Háskóla Islands haustið er kosning fer fram.“ Hér er einungis kveðið á um að fram- bjóðendum skuli gefinn kostur á að kynna stefnu sina og að kosning skuli fara fram á stúdentafundi. Er hugsanlegt að skýra þetta á þann veg að þeir einir skuli hafa kosningarétt sem mæta á fundinn áður en honum er lokað kl. 21.00 eða 21.30 og sitja út fundinn, sem jafnan stendur töluvert fram yfir miðnætti og er haldinn í húsi sem rúmar 1000 manns en stúdentar eru 3000. Lögskýring þeirra félaganna krefst þess, að allir, sem ætla að taka þátt i kosningunni séu sam- tfmis staddir í húsinu það eitt ætti að nægja til að sýna fram á fáran- leik raka þeirra því þar með eru 2/3 stúdenta eða um 2000 manns fyrirfram sviptir öllum möguleik- um á að kjósa. Þar fyrir utan stendur ekki f reglugerðinni, að þeir einir skuli hafa kosningarétt, sem hlýtt hafi á framboðsræður f 3—4 tfma heldur stendur aðeins að „frambjóðendum skuli gefinn kostur á að kynna stefnu sfna.“ Þetta ákvæði tryggir sem sagt að málfrelsi skuli ríkja á fundinum en gefur kjörstjórn alls ekki heimild til gerræðislegrar tak- mörkunar á kosningarétti. Það hefur lfka gerzt, að reglurnar hafa verið túlkaðar á rýmri hátt. Árið 1973 fóru þessar kosningar þannig fram að kjörfundur var opinn í anddyri Háskólabíós en framboðsfundur fór fram í bíósalnum. Ekki bárust kjör- stjórn þeirra kosninga ábendingar um að þetta væri ólög- legt þá. Um hitt atriðið hvort kjör- stjórn hafi mátt breyta fyrri ákvörðun sinni um kosningafyrir- komulagið þarf ekki mörg orð. Engar reglur eru f reglugerðinni um auglýsingu fyrirkomulags kosninganna fyrir fram aðeins þarf að auglýsa kjördag með 15 daga fyrirvara og 10 daga fram- boðsfrestur skal vera. Fyrirkomu- lagsbreytingin, sem kjörstjórn samþykkti, var til þess fallin að gera stúdentum auðveldara og mögulegra að kjósa en áður hafði verið. Kjörstjórnin hafði til þess fulla heimild og hefur ekki verið bent á nein ákvæði í 1. des. reglu- gerð eða almennum landslögum, sem kveða á um hið gagnstæða. Auk þess var kjörstjórnin með ákvörðun sinni að túlka reglu- gerðina í anda þeirrar samþykkt- ar, sem æðsta stofnun stúdenta. Stúdentaráð, hafði samþykkt með miklum meirihluta, en Stúdenta- ráð er kjörið af öllum stúdentum f allsherjarkosningum f Háskólan- um. Framhald á bls. 27 Hárgreiðsla aöeiginvild Meö hárgreiðslusetti frá Remington er leikur einn aö haga hárgreiðslunni aö vild sinni. Þú getur burstaö, greitt, þurrkaö, liðað og lagt háriö eins og hugurinn girnist. Tvenns konar sett fyrirliggjandi: HW 23, meö hárliðun- arjárni, þrem tegundum bursta og greiðu og HW 22 meö tveim burstum og greiöu. Þægilegt handfang meö innbyggöum varmablásara og leiðslu sem snýst ekki upp á. Fullkomin varahluta og viögeröarþjónusta. Laugavegi 178 Sími 38000 <5M?[5eO faCaþeS -passaráþig LAUGAVEGI 47 Við framleiðum glugga og svalahurðir með innfræstum TE-TU þéttilista einnig útidyra- og bílskúrshurðir af ýmsum gerðum. Það getur borgað sig fyrir þig teikningu eða koma og skoða — ef þú ert að byggja einbýlis- hús eða fjölbýlishús, að senda framleiðsluna, athuga afgreiðslutíma og fá verðtilboð. gluggaog hurðaveiksmiðja YTRI-NJARÐVIK Sími 92-1601 Pósthólf 14 Keflavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.