Morgunblaðið - 19.10.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19. OKTÓBER 1976
13
Jaqueline minnist áður á
„einkennadilluna", en nú segist
hún vera haldin „sfmadillu".
„Hvar sem hann er staddur f
veröldinni hringjumst við á
daglega. Við höfum alltaf haft
þessa þörf fyrir að vera saman.
Ástin er það, sem hefur gert
okkur mögulegt að kljást við
þessa erfiðleika. Þegar maður
verður að gjörbreyta lifnarhátt-
um sfnum og skipuleggja lffið
upp á nýtt með því að halda f
höndina á hinum aðilanum, þá
er það ástin, sem heldur öllu
saman,“ segir Jaqueline.
Þegar styrjöldin f Miðaustur-
löndum hófst f október 1973 R*
Daniei Barenboim til Israels til
að halda tónleika fyrir her-
mennina þar. Fjórum dögum
eftir að hann kom þangað sagði
Jaqueline honum, að hún væri
á leiðinni 1 sjúkrahúsið til rann-
sóknar. Hann hafði tafarlaust
samband við lækni hennar og
vildi fá að vita hvað væri eigin-
leg að. Læknirinn vildi sem
minnst segja um það, en Daniel
gekk á hann og vildi fá að vita
hvað væri það versta sem búast
mætti við. Læknirinn sagði þá,
að verið gæti, að Jaqueline væri
með multiple sclerosis.
„Ég hafði varla heyrt minnzt
á þennan sjúkdóm. Þetta var
meðan strfðið stóð sem hæst og
um reglulegar áætlunarferðir
flugvéla var ekki að ræða.
Sama dag aflaði ég mér eins
mikilla upplýsinga um þennan
sjúkdóm hjá taugasérfræðing-
um og hægt var, og síðan tókst
mér að fá far með flugvél, sem
flutti útlendinga úr landi vegna
ástandsins. „Þegar hann kom
til Lundúna höfðu læknar
Jaqueline komizt að raun um
hvað að henni var.“
„Þótt undarlegt megi virðast
þá var það nokkurs konar léttir
að fá að vita hvað var að Jackie.
Þá vissum við þó hvað við var
að etja. Ég hafði haft mestar
áhyggjur af því að þetta væri
einhver sálrænn sjúkdómur.
Menn þurfa að geta beitt sálar-
kröftum sfnum til að sigrast á
sjúkdómum, sem eru lfkamlegs
eðlis, líkamleg heilsa getur
ekki aðstoðað þá við að sigrast á
sálrænum sjúkdómum."
Hætt við að
draga sig í hlé
Og hann heldur áfram: „Það
var erfiðast að sætta sig við, að
geta ekkert að gert. Ég hef ver-
Jacqueline og Daniel áður en
barðttan við „multiple
sclerosis" hófst.
ið frekar jákvæð sál alla mína
ævi, en þarna stóð ég allt f einu
andspænis nokkru, sem ég gat
alls engin áhrif haft á. Ég
ákvað strax í upphafi að taka
ekki að mér verkefni, sem
hefðu það f för með sér, að ég
yrði lengi f burtu frá henni í
einu. Fyrsta árið aflýsti ég öll-
um samningum mfnum f
Amerfku. Ég átti að stjórna
Sinfónfuhljómsveitinni í
Chicago og Fílharmóníuhljóm-
sveitinni í New York, sem
báðar eru stórkostlegar. En það
Hvað er
„multiple
sclerosis"?
„MULTIPLE sclerosis" er sjúk
dómur. sem herjar á miðtauga
kerfið. Sjúkdómurinn er hverki
arfgengur né smitandi. Nafniö
er þannig til komið a8 sjúk-
dómurinn skilur eftir sig fjöt-
mörg ör á himnu, sem hllfir
sjálfum taugunum. þannig aS
taugatrefjarnar skemmast.
Þetta getur haft I för með sér
lomun. sem stigmagnast.
Sjúkdómurinn leggst mjög
misjafnlega á fólk. Suma lamar
hann og leggur aS velli á
tiltölulega skömmum tlma. en
aSrir ganga meS sjúkdóminn I
marga áratugi, án þess aS
hann hafi veruleg áhrif á
hreyfingar og þrek. Fyrstu ein-
kenni geta veriS þau. aS einn
eSa fleiri útlimir lamast,
sjúklingurinn sér tvöfalt eBa I
þoku, jafnvaegisskyn minnkar
eSa hverfur. þvaglát eru óeSli
lega tlS. sjúklingurinn finnur
að staSaldri til kulda og/eSa
dofa I fótum og fótleggjum.
Læknar og vlsindamenn hafa
háS baráttu viS þennan sjúk
dóm I meira en eina öld
Lengst af náðist lltill sem eng-
inn árangur, en á undanförnum
árum hefur tilefni gefizt til ör-
lltillar bjartsýni, þótt ekki hafi
veriS komiit fyrir um upptok
sjúkdómsins eSa einstakar aS
ferSir hafi reynzt öSrum
árangursrlkari til aS lækna
sjúkdóminn eSa koma I veg
fyrir hann.
eru þó nokkrar frábærar hljóm
sveitir í til I heiminum, en aftui
á móti er ekki til nema ein
Jackie."
Daniel Barenboim finnst
hann ekki hafa fórnað sjálfum
sér. „Það er ekki aðeins skylda
mín að hugsa um hana, heldur
er þetta nokkuð, sem ég vil
endilega gera. Ég velti því
alvarlega fyrir mér að draga
mig í hlé, en komst að þeirri
niðurstöðu, að tónlistin væri
svo rikur þáttur í lífi mlnu, að
ef ég þyrfti að vera án þess að
starfa á þessu sviði, þá væri ég
ekkert lengur. Og þá hefði ég
heldur ekki verið fær um að
hjálpa henni. Niðurstaðan
hefði orðið sú, að tvær
manneskjur hafðu orðið óvirk-
ar í stað einnar."
„Jacie er að þvi leyti óvenju-
lega gerð, að hún gerir sér
grein fyrir þvl, að hún þarfnast
stuðnings I rlkum mæli, en er
samt sem áður gersneydd
sjálfsvorkunn. Hún hefur
aldrei kvartað og hún býst
aldrei við þvl, að henni sé sýnd
samúð. Hún hefur alltaf látið
mig finna að ég get-og á að
halda áfram að sinna tónlist-
inni á þann hátt, sem mér
finnst sjálfum skipta máli.“
„Framtlðin? Að halda þvl
fram, að þetta sé ólæknandi
sjúkdómur og ekkert sé hægt
að gera nema sitja og blða þess
sem koma skal er auðvitað
ömurlegt og niðurdrepandi. En
að það sé aðeins tlmaspursmál
hvenær vísindamenn hafi
sigrast á sjúkdómnum, að bati
sé framundan og að hún eigi
eftir að spila á ný, — slíkt tal er
ekkl síður niðurdrepandi, af
þvl að það er óraunsætt. Það
þýðir ekkert að velta þvl fyrir
sér hvort þetta sé réttlátt eða
ekki. Þetta er raunveruleiki, og
þvl fyrr sem hægt er að gera sér
grein fyrir þvl, þeim mun meiri
möguleikar eru á þvl að hægt sé
að sigrast á erfiðleikunum,"
segir Daniel Barenboim að lok-
um.
(Þýtt úr The Sunday Times
Magazine).
Nýtt
íra
Andvöku
Hjónatrygging
Odýr,
sameiginleg líftrygging
fyrir hjón
LEITIÐ NANARI UPPLÝSINGA
UFTKYGGIIMIVIKIAUI)
ANDVAKA
Gagnkvæmt vátryggingafélag
Liftryggingar. sjúkra - og slysatryggingar
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38500
Þaðpassarfiá
LeeCooper
ÞÉR TRYGGIÐ RÉTT LJÓSMAGN OG
GÓÐA LÝSINGU MEÐ ÞVÍ AÐ VELJA
RÉTTA PERU
Engin ein pera getur fullnægt öllum kröfum yöar. Þess vegna
býöur OSRAM yður fjölbreytt úrval af hvers konar perum, til þess
aö þér getið valiö rétta peru og þaö Ijósmagn sem þér þarfnist.
Peru-úrval OSRAM gerir yöur kleift að velja rétta lýsingu.
OSRAM
vegna gæðanna