Morgunblaðið - 19.10.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19. OKTÓBER 1976
25
lKUREYRI — idnkynningarvika á AKUREYRI — idnkynningarvika á AKUREYRI — iðnkynning
orfhælum.
Ljósastaur ( smfðum
Frá heithúðuninni. Fljótandi zinkið er um 400 gráðu heitt.
Jóhann Guðmundsson,
forstjóri
vélin
Akureyrsk iðnkynningar-
vika hófst með þvi að fáni
íslenzkrar iðnkynningar var
dreginn að húni i nágrenni
verksmiðja SÍS. Fáni þessi
er jafnframt merki islenzkr-
ar iðnkynningar en hann er
ifánalitunum íslenzku.
Þegar Morgunblaðið var á
ferð nyrðra i sl. viku voru
teknar þessar myndir frá
gerð fánans. Áannarri
þeirra eru þau Þorsteinn
Gunnarsson og Jóna Aðal-
björnsdóttir að leggja sið-
ustu hönd á verkið, en á
hinni sýna þær Jóna og
Halla Guðmundsdóttir okk-
urfánann fullfrágenginn.
Þau þremenningarnir
sögðu tiðindamanni, að
það hefði verið sérlega
skemmtilegt og spennandi
að vinna að þessu verki.
Framleida svo
til alla
ljósastaura
hér á landí
Sandblástur og málmhúdun hf.
„VEGNA vaxandi verkefna er
húsrými hér fyrir löngu orðið of
lftið. Við hefðum eiginlega þurft
að stækka við okkur fyrir mörg-
um árum en lóð okkar hér er
alltof lftil, ef hugsað er til fram-
tfðarinnar. Fyrirtækið hefur ekki
fengið lóð ennþá, en við gerum
okkur vonir um úrbætur f þeim
efnum.“ Þannig fórust orð
Jóhanni Guðmundssyni forstjóra
fyrirtækisins Sandblástur og
málmhúðun h/f á Akureyri, f við-
tali við Mbl.
Það var á árinu 1960 að Jóhann
stofnaði fyrirtækið ásamt bróður
sfnum Aðalgeir. Fyrst um sinn
var einvörðungu fengizt við alls
konar sandblástur ásamt kálkhúð-
un og sprautuhúðun málmhluta.
Með tilkomu eigin húsnæðis og
aukins starfsrýmis var alls konar
járnsmiðum bætt við starfsemina.
A árinu 1972 hófst rekstur heit-
húðunar, en þar eru ýmsir málm-
hlutir varðir tæringu með þvi að,
þeir eru baðaðir zinki, sem er um
400 stiga heitt.
EITT
SINNAR TEGUNDAR
Jóhann sagði okkur, að með til-
komu zink-baðkarsins og heithúð-
unarinnar væri fyrirtækið orðið
sérstætt innan íslenzks iðnaðar,
og í reynd eitt sinnar tegundar á
landinu. „Aðstaðan í dag býður
upp á mjög fjölþætt verkefni,
enda sýnir listi viðskiptavinanna
það mjög vel. Það yrði langt mál
að telja þá upp því þeir eru úr
öllum áttum og alls staðar að af
landinu. En til að gefa einhverja
hugmynd þá má nefna þá stærstu.
Við höfum smíðað nokkuð af
grindamöstrum fyrir Vita- og
hafnamálaskrifstofuna, sem sett
eru niður á bryggjum, þá fram-
leiðum við töluvert af stellverki
fyrir endastöðvar langlinu en það
gerum við fyrir Rafmagnsveitur
ríkisins. Talsvert höfum við fram-
leitt af frystirömmum fyrir SlS,
og einnig sorpílát fyrir Akureyr-
arbæ.“
FRAMLEIÐA
ALLA LJÓSA-
STAURA LANDSINS
„Þessi framangreind verkefni
eru öll innan sandblástursins ogj
kaldhúðunarinnar hjá okkur, en|
auk þeirra er eitt verkefni sem|
ekki má gleyma, en það eru ljósa-j
staurarnir. Við höfum undanfarinl
ár framleitt alla málm ljósastaural
fyrir rafveitur landsins. Viðj
smíðum staurinn alveg fráj
byrjun. Flytjum við efnið að |
sunnan, sögum niður, skeytum
saman, sandblásum og gal-
vaniserum. Síðan er staurinn
fluttur ýmist suður, vestur,
norður eða austur. Við smfðuðum
um 2000 straura 1975, en i ár
erum við ekki komnir ýkja langt
með þetta verkefni, en það á þó
eftir að verða meira. Þessa fram-
leiðslu, þ.e. aðstöðu hennar, erum
við alltaf að reyna að byggja
betur og betur upp, en þetta er
skemmtilegt verkefni að vinna.
Við höfum litla samkeppni í |
þessu, en þó mun annað fyrirtæki
framleiða eitthvað af staurum ]
lika fyrir Reykjavíkurborg. Það
sem ég hef talið upp hér að |
framan, en það er alls ekki
tæmandi, er allt nýsmíði. Við I
stundum eingöngu nýsmiði.
Með tilkomu heithúðunarinnar I
höfum við getað tekið að okkur
mörg skemmtileg verkefni. Auk
okkar eigin smíði og framleiðslu
þá húðum við alls konar stykki
fyrir Slippstöðina hér svo og fyrir
alla þá er á okkar þjónustu þurfa
að halda. Stærsti aðilinn í heit-
húðuninni er þó án efa Rafmagns-
veitur ríkisins. Fyrir þær höfum
við smíðað og húðað allt járnverk
varðandi byggðalinuna og Kröflu-
línu. En auk rafveitnanna þá er
Slippstöðin hérna mjög stór og
góður viðskiptavinur okkar. Við
húðum fyrir stöðina allskyns
hluti sem viðkoma skipasmíðinni.
LÍTIL
SAMKEPPNI
— VERKEFNIN
AUKAST
Núna vinna hjá okkur um 15
Framhald á bls. 43
Myndir og texti:
Ágúst Ásgeirsson
Iðnaður undir-
staða atvinnulífs
IÐNAÐUR á Akur-
eyri er sú megin-
stoð sem atvinnulff
kaupstaðarins hvfl-
ir á. Sú iðnvæðing
sem þar nú rfkir á
sér nokkuð langan
aðdraganda. Það
var mjög snemma
að áhugi vaknaði á
iðnaði sem notaði
afurðir landbúnað-
arins sem hráefni
til útflutnings.
Þessi iðnaður var í
smáum stfl f fyrstu
en honum hefur
vaxið mjög fiskur
um hrygg sfðustu
árin. Með vaxandi
fólksfjölda og ytri
þörf og eftirspurn
hefur svo þróazt
meðfram land-
búnaðariðnaðinum
annar iðnaður af
ýmsu tagi. Þá hefur
átt sér stað með ár-
unum nokkuð ör
framleiðni-
aukning, en það má
rekja til framfara f
verktækni og
stjórnun. Ekki eru
til nýrri tölur um
atvinnuskiptingu
en frá 1. desember
1974, en þær sýna
að hlutur iðnaðar f
atvinnulffi Akur-
eyrar er afar stór.
Þannig er hinn al-
menni iðnaður
33,3% af öllum
starfsgreinum.
Auk þessa er svo
fiskiðnaður 6,6%
og hlutur
byggingarstarf-
semi er 12,4%.
Af þessum tölum
má sjá að hlutur
iðnaðar er mikill f
efnahagslffi Akur-
eyringa, og á þessi
hlutur eflaust eftir
að aukast, þvf það
er samdóma álit
sérfræðinga að það
vinnuafl sem
kemur á vinnu-
markaðinn f náinni
framtfð verði f
auknum mæli að
sækja á svið fram-
leiðsluiðnaðar.