Morgunblaðið - 19.10.1976, Síða 41
JíloijjunXiIat»ií>
Á LAUGARDAGINN áttu a8 fara
fram tveir leikir I reykjavlkurmótinu i
körfuknattleik ÍR—KR OG
VALUR—FRAM, en aðeins leikur
Vals og Fram var leikinn vegna þess
að Kristbjörn Albertsson dómari
heimilaði ÍR-ingum ekki að leika
með Þorstein Hallgrímsson vegna
þess að hann hafði verið dæmdur í
leikbann. Þessu vildu ÍR-ingar ekki
hlita, töldu að tilkynning um leik-
bannið hefði borizt of seint, en hún
kom ekki fyrr en 2 minútum fyrir
auglýstan leiktima. Mikið málaskak
varð úr þessu og reyndu menn ýmsar
leiðir til að leikurinn yrði leikinn, en
bæði ÍR-ingar og Kristbjörn voru
óhagganlegir og endaði þetta þvi
þannig að Kristbjörn flautaði leikinn
af og dæmid KR-ingum sigur 2—0.
Ekki voru allir sammála þessum
málalokum og munu ÍR-ingar kæra
þessi úrslit. I fyrsta lagi telja þeir að
tilkynningin um leikbannið hafi
borizt of seint og ekki á réttan hátt
og einnig töldu þeir að Kristbirni
bæri aðeins að dæma leikinn og
gætu þá KR-ingar kært ef þeir vildu.
Blaðið sneri sér til Kristbjörns og
sagði hann um þetta: „Okkur barst
bréf aganefndar i hendur um að Þor-
steinn Hallgrimsson væri i leikbanni
næsta leik i Reykjavikurmótinu. Ef
hann spilar þennan leik, getur hann
ekki tekið bannið út i öðrum leik þvi
að bannið gildir aðeins fyrir þennan
tiltekna leik. Ennfremur, ef lið ætlar
forystu 39—33 í leikhléi, en Fram-
arar börðust af miklli hörku og tókst
að jafna i upphafi seinni hálfleiks
50—50, og komust þeir svo yfir
57—56. mest fyrir stórleik
Guðmundur Böðvarssonar sem
barðist af miklum dugnaði bæði i
vörn og sókn og skoraði hann alls 29
stig I leiknum. Fram-liðið vex með
hverjum leik og verða þeir ábyggi-
lega skeinuhættir stóru liðunum i
vetur. Valsmenn eru ekki eins góðir
og við mætti búast, Kristján Ágústs-
son er ekki eins góður og i fyrra en
hann var með Snæfelli. en ekki er öll
nótt úti enn og Valsmenn eru til alls
visir og gætu gert stóra hluti i vetur.
Þórir Magnússon skorar alltaf mikið
af stigum og Torfi Magnússon og
Rikharður Hrafnkelsson eru góðir,
leikmenn og vaxandi leikmenn. Þeir
voru lika beztu menn Vals i þessum
leik, Þórir Magnússon var með 27
stig Torfi Magnússon með 21 og
Rikharður Hrafnkelsson 16. Hjá
Fram voru þeir stigahæstir
Guðmundur Böðvarson með 29 stig
og Þorvaldur Geirsson með 1 6.
H.G.
EFTIR skemmtilega leikfléttu stekkur Bjarni Guðmundsson inn úr horninu og skorar fyrir úrvalsliðið.
Ljósm. Friðþjófur.
Msliðið átti létt með Dankersen
Leiknr ÍR og KR fór
ekki fram vegna deilna
að spila með ólöglegan leikmann,
læt ég leikinn ekki fara fram til að
hunza ekki úrskurð aganefndar og til
að sýna samstöðu með dómurum. Ég
fer eftir sannfæringu minni í þessu
máli vegna þess að engin lög eru til
yfir svona mál." Þá er það leikurinn
sem fór fram: Valur — Fram
89—82. Framarar eru í stöðugri
sókn og áttu Valsarar I miklum
vandræðum með þá, voru þó með
LÍTIÐ samæft og illa samstillt
(slenzkt úrvalslið, landslið, gerði
sér lítið fyrir og rassskellti vest-
ur-þýzka liðið Dankersen f sfðasta
leik Þjóðverjanna f Islandsheims-
ókninni, sem fram fór f Laugar-
dalshölllinni á laugardaginn. Með
sigrinum 20:15, bjargaði úrvals-
lið þetta heiðri fslenzks hand-
knattleiks, en Dankersen hafði
unnið alla leiki sfna hér við fs-
lenzk félagslið með nokkrum og
upp f miklum mun. Komu þeir
sigrar Dankersen nokkuð á óvart,
þegar tekið er tillit til þess að lið
þetta virðist vera mjög svipað að
styrkleika og betri fslenzku 1.
deildar liðin. Má vera að ástæðan
til sigurs Dankersen yfir félags-
liðunum hafi verið sú, að þau
Signrganga IS rofin
ÞRÓTTARAR rufu sigurgöngu
Stúdenta f blakinu á sunnudags-
kvöldið er þeir unnu þá 3—1 og
urðu þvf Reykjavfkurmeistarar
1976 úrslit einstakra hrina urðu
þau að sú fyrsta fór 12—15 fyrir
IS en hinar vann Þróttur 15—9,
15—13 og 16—14. Þróttarar voru
nokkuð frfskir f þessum leik og
hin góða hávörn þeirra setti
Stúdenta alveg út af laginu. Beztu
menn Þróttar voru þeir Anton
Bjarnson, Valdimar Jónasson og
Guðmundur Böðvarsson. Þrótt-
arar verðskulduðu fyllilega sigur-
inn f þessum leik, voru mun
frfskari og baráttuglaðari og
vönduðu spil sitt mun meira en
stúdentar, sem voru mjög daufir f
leiknum og gerðu sig seka um
óvenju mikið af mistökum. Þetta
tap stúdenta eftir tveggja og hálfs
árs sigurgöngu leiðir lfkur að
jafnara og skemmtilegra fslands-
móti en verið hefur undanfarin
ár og vonandi verður blakið bæði
spennandi og skemmtilegt f
vetur. H.G.
Reykjavfkurmeistara Þróttar 1976 í blaki. Fremri röð frá vinstri Magnús Óskarsson formaður Þróttar,
Guðmundur Stefánsson, Valdemar Jónasson, Gunnar Ariiason, fyrirliði og Leifur Harðarson. Aftari röð
frá vinstri: Anton Bjarnason, Jason tvarsson, Sæmundur Sverrisson, Guðmundur Böðvarsson,
Guðmundur Pálsson og Ólafur Jóhannsson. Ljósm. Elfas Nfelsson.
lögðu ekki mikla áherzlu á leiki
þessa. Öll liðin áttu að leika f 1.
deildinni um þessa helgi, og
höfðu þau greinilega miklu meiri
áhuga á þeim leikjum, en harðri
viðureign við þýzka liðið. Hins
vegar var leikjunum sem vera
áttu á sunnudagskvöldið frestað
vegna leiksins á laugardaginn.
Sigur íslenzka landsliðsins á
laugardag var mun minni en efni
stóðu til. Allan leikinn, og þó sér-
staklega í seinni hálfleik, var ís-
lenzka liðið hinu þýzka miklu
betra, bæði f sókn og vörn. Mestur
varð munurinn 7 mörk er 3 mfn-
útur voru til leiksloka, en Islend-
ingarnir flýttu sér um of á loka-
mínútunum og í stað þess að auka
forystu sína fengu þeir á sig tvö
sáraódýr mörk.
1 leiknum á laugardaginn mun-
aði mestu um frábæra frammi-
stöðu Geirs Hallsteinssonar, sem
hefur ekki i langan tfma náð eins
góðum leik. Hann var hreint og
beint óstöðvandi í leiknum. Þó
lögðu leikmenn Dankersen mikla
áherzlu á að gæta hans — komu
jafnan vel út á móti honum, og
reyndu að trufla. En allt kom
fyrir ekki. Geir sneri stundum svo
á þá að áhorfendur gátu tæpast
varist hlátri. Það var aðeins í víta-
köstunum sem Geir brást boga-
listin I leik þessum, en tvfvegis lét
hann þýzka markvörðinn verja
frá sér vítaköst.
Leikur islenzka liðsins var ann-
ars, þegar á heildina er litið, oft
ágætur á laugardaginn, og þá sér-
staklega varnarleikurinn, en þar
voru leikmennirnir á mjög góðri
hreyfingu og trufluðu „keyrslur"
Þjóðverjanna, svo að þau kerfi
sem þeir ætluðu sér að leika eftir,
gengu sjaldnast upp. Sóknarleik-
urinn var líka oft hinn lfflegasti,
en einstakir leikmenn liðsins
gerðu sig þó seka um óþarflega
mikla græðgi. Sú ógnun sem var í
leik Geirs Hallsteinssonar opnaði
oft vörn Þjóóverjanna, þannig að
linumennirnir voru orðnir frfir,
en oft voru útispilararnir of sein-
ir að átta sig á möguleikum
þeirra. í annan tfma virtist svo
hreinlega ákveðið að sóknin ætti
að enda með sendingu inn á línu,
og þá voru línumennirnir á tfðum
ekki í aðstöðu til þess að taka við
þeim.
Auk Geirs Hallsteinssonar áttu
Árni Indriðason, Björgvin Björg-
vinsson og Þorbergur Aðalsteins-
son góðan leik með úrvalsliðinu,
einkum þó Árni sem skilaði
varnarhlutverki sfnu næstum óað-
finnanlega, og var drjúgur i
sóknarleiknum.
Gangur leiksins var í stuttu
máli sá, að allan fyrri hálfleikinn
var leikurinn tiltölulega jafn.
Dankersen komst tvö mörk yfir
þegar 8 mínútur voru af leik, og
staðan var 3:1. tfrvalsliðið jafnaði
3:3, og eftir það var jafnt á öllum
tölum upp í 6:6. Þá náði íslenzka
liðið þriggja marka forystu 9:6,
sem Þjóðverjunum tókst síðan að
minnka með vitakasti á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks. Stóð 9:7 að
honum loknum.
Dankersen skoraði svo þrjú
fyrstu mörk seinni hálfleiksins og
komst yfir f 10:9. Sfðast var jafn-
tefli í leiknum 11:11, en eftir það
seig fslenzka liðið jafnt og þétt
framúr. Mátti sjá tölur eins og
16:12, 18:13 og 20:13 á markatöfl-
unni.
Bestir f liði Dankersen f leik
þessum voru markvörðurinn
Martin Karcher sem varði oft
ágætlega, Bernhard Busch og
Ölafur H. Jónsson, en nokkra
furðu vekur annars hvernig hann
er notaður hjá Dankersenliðinu
og virðist koma mun minna út úr
leik hans en efni standa til.
Mörk úrvalsliðsins skoruðu:
Geir Hallsteinsson 5, Árni
Indriðason 4 (3 v), Björgvin
Björgvinsson 3, Þorbergur Aðal-
steinsson 3, Ölafur Einarsson 2,
Bjarni Guðmundsson 2, Þórarinn
Ragnarsson 1.
Mörk Dankersen: Dieter
Waltke 4, Axel Axelsson 3, Bern-
hard Busch 3 (2 v), Ólafur H.
Jónsson 1, Gerd Becker 1, Hans
Kramer 1, Walter von Oepen 1
(v), Jiirgen Hans Grund 1.
Tveimur leikmanna Dankersen
var vfsað af veili, þeim Walter
van Oepen og Hans Kramer, en
engum úrvalsliðsmanni.
Dómarar voru Hannes Þ.
Sigurðsson og Karl Jóhannsson og
dæmdu þeir vel. —stjl.