Morgunblaðið - 19.10.1976, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19. OKTÓBER 1976
23
Enn eitt atriði í sambandi við
knattspyrnumótin langar mig að
gera að umtalsefni, og er það ekki
hvað veigaminnst. Það er sú nauð-
syn að félögin leiki á sínum heima-
velli, og þar á ég við velli sem félög-
in eiga sjálf. Að því hlýtur að koma í
framtíðinni, en hér er á ferðinni
mál sem hrinda verður í fram-
kvæmd áður en lagt um líður. Sum
félaganna eiga nú þegar yfir að ráða
góðum grasvöllum, en við þá vantar
áhorfendasvæði. Viðkomandi yfir-
völd þurfa að hlaupa undir bagga
með félögunum og styrkja þau til
þess að koma upp slíkri áhorfenda-
aðstöðu. Með því móti væri einnig
hægt að spara verulega Laugardals-
völlinn, en sem kunnugt er hefur
hann farið afar illa á hverju sumri
vegna hinnar miklu notkunar.
Laugardalsvöllurinn yrði aðeins
fyrir meiri háttar knattspyrnuleiki,
svo sem landsleiki og Evrópubikar-
leiki félaganna. En það er líka nauð-
synlegt að koma upp flóðljósum við
hann. Evrópubikarkeppni félagsliða
fer t.d fram síðsumars, og er ekkert
vafamál að það dregur verulega úr
aðsókn að félögin verða að láta leiki
þessa am það snemma, að fjöldi
manns er ekki laus úr vinnu sinni.
bikarhafa f haust. Kefl-
n sinni, að frammistaða
ígjanleg undirbúnings-
leikinn
Morgunblaðið hefur haft þann
hátt á að gefa leikmönnum einkunn
fyrir hvern og einn leik. Þetta tel ég
ákaflega lofsvert og skapar greini-
lega áhuga hjá leikmönnunum. Hins
vegar getur það hent í slíkri
einkunnagjöf, að hjá blaðamönnun-
um kemur upp allt önnur staða en
horfir við þjálfaranum. Það kemur
stundum fyrir að leikmaður sem
vinnur verk sitt mjög vel og fer eftir
öllum fyrirmælum þjálfarans fær
ekki eins góðan vitnisburð og sá
leikmaður, sem gerir sig jafnvel
sekan um margar villur, eri gerir
inn á milli fallega hluti f leiknum.
Með þessum orðum mínum um
fslenzka íþróttafréttamenn hef ég
reynt að fjalla um skrif þeirra á sem
breiðustum grunni, og ég vona að
þeir fyrirgefi mér, hafi ég ekki rétt
fyrir mér, og taki tillit til þess að ég
er því miður ekki fær um að lesa
skrif þeirra sjálfur.
KAIMSLI
MEB FVLkl, EN
VAl 20:16
KA HÓF þátttöku sína f 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik að
þessu sinni með sigri yfir Fylki í
Skemmunni á Akureyri á laugardag.
Lokatölurnar urðu 20 mörk gegn 16
fyrir heimamenn, eftir að staðan
hafði verið 10 gegn 8 I leikhléi. Þrátt
fyrir að KA hafi þarna krækt sér í tvö
stig í sfnum fyrsta leik var leikur
liðsins langt í frá sannfærandi. Með
svipuðum leik gegn stærri spámönn-
um en Fylki er hætt við að úrslitin
hefðu orðið önnur.
Það var aðeins einu sinni í leiknum
sem Fylki tókst að ná forystu, komst í
tvö gegn einu, eftir það hafði KA ætíð
forystuna, sem varð raunar minnst í
upphafi siðari hálfleiks, 1 1 mörk gegn
10. Eftir það sigldi KA síðan fram úr
og sigraði fremur auðveldlega með 20
mörkum gegn 1 6 sem fyrr getur
Leikurinn sem slfkur var annars held-
ur illa leikinn af báðum liðum, sem ef
til vill markaðist að nokkru leyti af
mjög tíðum brottrekstrum leikmanna
af velli, en alls voru sex leikmenn
reknir af velli í tvær minútur og einn
fékk að hvíla tvívegis í tvær minútur
Þrátt fyrir það var leikurinn ekki grófur.
Því má skjóta hér inn til gamans að um
helgina var haldið á Akureyri dómara-
námskeið í handknattleik og ef til vill
hafa dómararnir verið að sýna læri-
sveinum hvernig ætti að bera sig að
við dómgæsluna
Menn hafa löngum búist við að
Fylkisliðið hætti að vera efnilegt og
yrði sterkt hansknattleikslið Sú von
virðist ekki ætla að rætast Það eru
sömu leikmennirnir sem skipað hafa
liðið undanfarin ár og framfarirnar eru
vægast sagt litlar. Allur leikur liðsins er
fálmkenndur stundum svg að leikmenn
virðast ekki hafa hugmynd um hvar á
vellinum þeir eiga að vera. Slíkt kann
ekki góðri lukku að stýra og Fylkir hefir
enda tapað tveimur fyrstu leikjum sín-
um í 2. deildinni í ár, fyrst fyrir KR og
nú fyrir KA.
KA hefur tvö undanfarin ár hafnað í
öðru sæti í 2. deild Liðið nú er að
mestu skipað sömu leikmönnum og
þessi tvö undanfarin ár og gera margir
sér þær vonir að liðinu takist í ár að
vinna sér sæti i 1 deild. Vist er um
það að KA ætti að hafa ailgóða mögu-
leika á sigri i deildinni, alla vega mun
liðið blanda sér mjög i toppbaráttuna. í
leiknum á laugardag voru flestir leik-
manna líðsins nokkuð frá sinu besta og
raunar aðeins tveir leikmenn sem
stóðu fyrir sinu, þeir Magnús Gauti
markvörður sem varði af prýði á mikil-
vægum augnablikum og Guðmundur
Lárusson, sem er vaxandi línumaður
Auk þess að skora tvö mörk fiskaði
Guðmundur nokkur vitaköst.
Maður leiksins: Magnús Gauti,
markvörður KA.
Mörk KA: Sigurður Sigurðsson 7 (4v),
Þorleifur Ananiasson og Jóhann Ein-
arsson 3 hvor, Guðmundur Lárusson
og Ármann Sverrisson 2 hvor, Halldór
Rafnsson, Hörður Hilmarsson og Al-
bert Ágústsson eitt mark hver
Dómarar voru Kristján Örn og Kjart-
an Steinbach Sigb.G.
Frá leik Þórs og Armanns á Akureyri og á báðum myndunum eru þad
leikmenn Þórs, sem eru I skotfæri. Armenningar sigruðu hins vegar I
leiknum og er sá sigur mjög mikilvægur fyrir þá f keppninni I 2.
deildinni.
Aimann kom með tvö stig frá Akureyri
ÞÓRSURUM gekk ekki eins vel í
sinum fyrsta leik f 2. deild og erki-
STJAMiMI BUADI
ÍBK 24-13
STJARNAN úr Garðabæ vann mik-
inn yfirburðasigur I leik slnum við
Keflvikinga i 2. deildar keppni ís-
landsmótsins i handknattleik á
sunnudaginn, en leikur þessi fór
fram á heimavelli Keflvikinganna, i
Njarðvik. Það var aðeins i upphafi
leiksins sem hann var i jafnvægi.
Keflvikingar skoruðu fyrsta markið,
höfðu siðan yfir 2—1 og 3—2, en
eftir að Stjarnan jafnaði 3—3,
beindist leikurinn i þann farveg að
Keflvikingar réðu ekki við friska og
ákveðna leikmenn Stjörnunnar.
Einkum og sér i lagi gekk Keflviking-
um illa að finna smugur á vörn
Stjörnunnar, sem er greinilega sterk-
ari hlið liðsins, enda hefur liðið að
þjálfara leikmanna þann sem tvi-
mælalaust var i hópi beztu varnar-
leikmanna íslands fyrr og siðar, Sig-
urð Einarsson úr Fram.
Staðan i hálfleik var orðin 12—5
fyrir Stjörnuna og i seinni hálfleik
hélt bilið áfram að breikka. Mestur
varð munurinn 12 mörk er staðan
var 20—8 fyrir Stjörnuna. Undir lok
leiksins slökuðu Stjörnumenn greini-
lega nokkuð á og þá tókst Keflvik-
ingum að rétta nokkuð hlut sinn.
Úrslit leiksins urðu 24—13.
Beztu menn Stjörnunnar i þessum
leik voru þeir Magnús Andrésson
sem er mjög góður varnarleikmaður
og harður i sókninni og Magnús
Teitsson. Annars virðist Stjörnuliðið
nokkuð jafnt og leikur af miklum
áhuga. Hefur það farið mjög vel af
stað i deildinni að þessu sinni, gerði
fyrst jafntefli 19—19 i leik sfnum
við Ármann og vinnur svo Keflavik. I
Keflavfkurliðinu bar einna mest á
Guðmundi Jóhannssyni, en liðið er
annars fremur slakt; það hefur eng-
an þjálfara og áhuginn virðist i lág-
marki, enda aðstaðan næstum eng-
in. ,
Mörk Keflvikinga sléiptust nokkuð
jafnt á leikmenn liðsins, en mörk
Stjörnunnar skoruðu: Eyjólfur Braga-
son 7. Magnús Andrésson 7, Magn-
ús Teitsson 5, Gunnar Björnsson 3,
Magnús Arnarson 1, Viðar Halldórs-
son 1.
Maður leiksins: Magnús Andrés-
son, Stjörnunni.
fjendunum KA. Þórsarar töpuðu á
sunnudag fyrir Ármanni með 25
mörkum gegn 21 i leik sem háður
var I Skemmunni á Akureyri. Ár-
menningar voru greinilega sterkari
aðilinn á vetlinum og.höfðu forstuna
nærallan leiktimann.
Ármenningar skoruðu fyrsta markið,
en Þórsarar svöruðu með þremur
mörkum i röð Fjögur næstu mörkin
komu frá Ármanni og síðan juku Ár-
menningar smátt og smátt forystuna
og höfðu skorað 12 mörk i leikhléi
gegn niu Þórsara. í siðari hálfleiknum
söxuðu Þórsarar á forskotið og náðu að
jafna um miðbik hálfleiksins 17 17, en
slökuðu síðan á og Ármenningar sigu
fram úr og sigruðu örugglega með 2 5
mörkum gegn 2 1
Bestu menn Ármanns í leiknum
gegn Þór voru Pétuf Ingólfsson, geysi-
lega laginn og útsjónarsamur leikmað
ur, Jón Sigurðsson og Egill Steinþórs-
son i markinu. Þá átti Hörður Harð-
arson og góðan leik
Maður leiksins Pétur Ingólfsson, Ár-
manni.
Mörk Ármanns: Pétur 8 (1 v), Hörður 7
(2v). Jón 5 (1 v). Björn Jóhannsson og
Óskar Ásmundsson 2 hvor og Einar
Þórhallsson eitt
Mörk Þórs Sigtryggur Sigtryggsson 7
(2v), Þorbjörn Jensson 4, Einar Björns-
son 3, Elis Jónasson og Óskar Gunn-
arsson 2 hvor, Árni Gunnarsson,
Gunnar Gunnarsson og Ragnar Sverr-
isson eitt mark hver
Leikinn dæmdu Kristján Örn og
Kjartan Steinbach
Sigb.G.
Islandsmeistarinn tapaði í
nndannrslitnnnm - .lóhann
Kjartansson varð signrvegari
EKKI verður annað sagt en aS
úrslit i fyrsta badmintonmóti
vetrarins, sem var úrtökumót
B.S.Í. fyrir NorSurlandameistara-
mótið sem haldið verður 20.—21.
nóvember n.k. hafi komið veru-
lega á óvart. Það var hinn ungi, en
bráðefnilegi leikmaður, Jóhann
Kjartansson úr TBR sem vann sig-
ur I mótinu eftir úrslitaleik við
Sigfús Ægi Árnason, TBR. sem
áður hafði lagt íslandsmeistarann.
Sigurð Haraldsson, TBR, að velli.
Var ekki annað aS sjá á móti
þessu en aS margir af okkar beztu
badmintonmönnum væru I hinni
ágætustu æfingu og Hklegir til
þess að standa sig vel I vetur.
Haraldur Korneliusson, TBR,
margfaldur íslandsmeistari i grein-
inni var þó undantekningin. Hann
virtist fremur þungur og æfinga
litill. átti i brösum i fyrsta leik
sinum og tapaði siSan þeim
næsta.
j fyrstu umferð urSu úrslit þau
að Sigurður Haraldsson sigraSi
Jóhann Möller yngri 15:12 og
15:7, Reynir Þorsteinsson. KR
vann Steinar Petersen, TBR 15:4
og 15:7. Sigfús Ægir Árnason,
TBR vann Friðrik Arngrimsson
15:5 og 15:6, Sigurður Kolbeins-
son, TBR vann Ottó Guðjónsson,
TBR 15:11 og 15:12. Jóhann
Kjartansson, TBR vann ViSar
GuSjónsson, TBR 15:1 og 15:3.
FriSleifur Stefánsson KR vann
Hæng Þorsteinsson, TBR 15:2 og
1 5:3, HörSur Ragnarsson, ÍA vann
Jóhann Möller eldri 15:9 og 15:0
og loks vann Haraldur Kornelius-
son Eystein Björnsson I miklum
baráttuleik 15:9, 14:17og 15:4.
I annarri umferS vann SigurSur
Haraldsson sigur yfir Reyni Þor-
steinssyni 15:1 2 og 15:7. Sigfús
Ægir Árnason vann SigurS
Kolbeinsson 18:15 og 15:2.
Jóhann Kjartansson vann FriSleif
Stefánsson 15:8 og 15:9 og
Hörður Ragnarsson vann Harald
Korneliusson 1 5:12 og 1 5:4.
j undanúrslitunum vann fyrst
Sigfús Ægir Árnason SigurS
Haraldsson i mjög spennandi og
oft vel leiknum leik 15:8, 13:15
og 15:7 og siSan vann Jóhann
Kjartansson HörS Ragnarsson
15:9 og 17:16. Sá leikur var
einnig mjög tvisýnn og skemmti-
legur. einkum þó seinni lotan.
í úrslitaleiknum hafSi Jóhann
Kjartansson oftast betur og vann
öruggan sigur 15:9 og 15:13.
Sýndi Jóhann oft ágætan leik, og
er greinilegt aS framfarir hans frá í
fyrra eru næstum ótrúlega miklar.
Af úrslitum þessa móts má
marka að ungu mennirnir eru i
stöðugri sókn, og verða örugglega
þeim eldri og reyndari erfiSir
keppinautar i vetur.