Morgunblaðið - 19.10.1976, Qupperneq 30
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19. OKTÖBER 1976
Minning:
EinarB. Waage
hljómlistarmaður
Á lífsins göngu verður á vegi
okkar fjöldi samferðamanna, sem
meiri eða minni vináttutengsl
myndast við, sumum verður mað-
ur rétt málkunnugur, aðrir verða
góðir kunningjar en örfáir verða
það, sem kallast vinir manns f
orðsins bestu merkingu. Slikir
vinir gefa lífinu gildi, en hætt er
við að við teljum það til sjálf-
sagðra hluta að fá að njóta sam-
fylgdardinnar við þessa sönnu
vini um ókomin ár. Við fyrirvara-
lausa, óvænta og ótímabæra burt-
köllun slíkra manna setur okkur
hljóða og við eigum erfitt með að
skilja að við fáum ekki að vera
samvistum við þá meir I bili.
1 dag kveðjum við vin okkar,
Einar B. Waage, sem lést í
Borgarsjúkrahúsinu þann 12. okt.
s.l., aðeins 53 ára að aldri. Við
fráfall Einars hverfur af sjónar-
sviðinu enn einn frumherjanna á
sviði tónlistarmanna islenzkra,
sem með lifi sínu og starfi lagði
sinn stóra skerf til þess að búa í
haginn fyrir eftirkomendur i list-
greininni. Ungur að aldri lagði
hann út á þá mjög svo ótryggu
braut að gera hljóðfæraleik að
atvinnu. Á þeim árum þótti hrein-
asta fásinna að ætla sér þann
starfa til framfærslu, enda engin
sinfóníuhljómsveit starfandi,
ekkert Þjóðleikhús og litlar
tekjur að hafa af hljóðfæraleik
aðrar en að leika á danshúsum,
sem voru fá og buðu upp á litla
vinnu. Einar setti það ekki fyrir
sig, því hann var trúr köllun
sinni. Honum var vandvirknin og
samviskusemin í blóð borin og því
undi hann því ekki að gefa sig að
þessu starfi án þess að hafa notið
tilsagnar í meðferð hljóðfærisins,
þótt hann hafi strax sýnt mikla
hæfni og hefði vel komist af í
starfi með sfna meðfæddu hæfi-
leika, svo hann fór til Banda-
rfkjanna til náms. Þar náði hann
þeim árangri að komast að hjá
eftirsóttasta kennara og fremsta
bassaleikara New York borgar,
Zimmerman, en hann var þá sóló-
bassaleikari New York-
fílharmónfuhljómsveitarinnar.
Einar varð eftirlætisnemandi
Zimmermans, sem sýndi nemanda
sínum þá sjaldgæfu viðurkenn-
ingu að láta hann leika með sér á
æfingum þessarar heimsfrægu
hljómsveitar. Einar var þarna við
nám á meðan peningar entust, en
á þeim árum var lítið um náms-
styrki og nám f hljóðfæraleik
þótti naumast styrkhæft, svo
hann bar allan námskostnað sjálf-
ur. Hann kom heim aftur árið
1945 og tók þá til við eina starfið
sem bauðst, danshús, auk þess
sem hann var ráðinn bassaleikd-
ari í útvarpshljómsveitinni. I júnf
árið 1947 var haldin hér Beet-
hoven-tónlistarhátíð og voru
fengnir heimsfrægir tónlistar-
menn fráBandaríkjunum og Bret-
landi til aðleika átónleikun-
um.Þarvarm.a. flutt verk.sem
notaþurfti kontrabassa f og var
Einar fenginn til þess að leika
með hinum heimsfrægu mönnum.
Fóru þeir miklum viðurkenn-
ingarorðum um leik Einars og var
hann landinu til mikils sóma í
þessum glæsilega félagsskap.
Þegar Sinfóníuhljómsveit
íslands var formlega stofnuð árið
1950 var Einar sjálfsagður 1.
bassaleikari hljómsveitarinnar og
þeirri stöðu hélt hann fram til
sfðasta dags. Einar var kröfuharð-
ur við sjálfan sig jafnt sem sam-
starfsmenn sína og gat aldrei sætt
sig við hálfkák f neinni mynd.
Hann sneri sér snemma að félags-
málum og gegndi um ævina ýms-
um ábyrgðarstöðum í þágu tón-
listarmanna. Sama samviskusem-
in og ósérhlífnin sýndi sig hjá
honum f þeim þætti sem öðrum.
Atvikin höguðu því þannig að
leiðir okkar lágu snemma saman
og átti ég því þess kost að kynnast
honum jafnt sem vini, f starfi, f
félagsmálum og sem heimilisföð-
ur. Hann var vinum sfnum sem
óhagganlegur klettur, framúr-
skarandi raungóðurog hjálpfús, í
félagsmálum var hann ómetanleg
stoð, fylginn sér svo af bar og
sanngjarn, en fjölskyldan og
heimilið var honum allt.
Einar fæddist 8. ágúst 1924 I
Reykjavík, foreldrar hans voru
Elfsabet Waage f. Einarsdóttir og
Benedikt Waage, forseti ÍSÍ. Tón-
list var f hávegum höfð á bernsku-
heimili hans, svo ekki var að
undra þótt hugur hans hneigðist
snemma að músfk, enda voru þær
móðir hans og systir hennar,
Marfa Markan, landskunnar söng-
konur og bræður þeirra miklir
söngmenn. Ifyrsta hjónabandi
sínu, með Guðrúnu Þorsteinsdótt-
ur, eignaðist Einar tvær dætur,
Elísabetu og Benediktu, eneftir-
lifandi kona hanser Magnea
Hannesdóttir Waage og eignuðust
þau tvær dætur, Elfsabetu og
Kristínu, sem báðar eru f foreldra
húsum. Var hjónaband þeirra
Magneu og Einars einstaklega
gott og féll þar aldrei skuggi á.
Þau lifðu bæði tvö fyrir heimilið
og börnin, enda bar glæsilegt
heimili þeirra að Háaleitisbraut
141 þess ótvfræð merki, því þar
rfkti góður andi.
Vinátta okkar Einars hefur ver-
ið mér mikils virði og er ég for-
sjóninni þakklátur fyrir að hafa
gefið mér kost á að kynnast hon-
um og umgangast, þvf tryggari
vin getur vart. Félagar hans f
Starfsmannafélagi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands hafa beðið
mig að bera fram sfnar innileg-
ustu þakkir fyrir starf hans og
ósérhlffni f þeirra þágu, sem
aldrei verður fullþakkað og öll
sendum við konu hans, dætrum
og móður hugheilar samúðar-
kveðjur við missi góðs drengs.
Gunnar Egilson.
Það tók mig langan tfma að átta
mig á þvf sem staðreynd, að vinur
minn og svili, Einar B. Waage,
væri látinn, svo óvænt var fregnin
um lát hans. Allt virtist leika í
lyndi hjá honum og engin ástæða
til að búast við neinum breyting-
um þar á sfðast þegar við hitt-
umst. Það er erfitt að sætta sig við
þá tilhugsun að eiga þess ekki
kost að njóta félagsskapar hans
sem fyrr, en vegir guðs eru órann-
sakanlegir.
Þau 16 ár sem kynni okkar Ein-
ars stóðu eru mér ómetanleg. Hér
kynntist ég góðum dreng, sem
stöðugt vann á i viðkynningu.
Stórbrotnum persónuleika, trygg-
um vini vina sinna, sem ætíð var
reiðubúinn til að taka málstað
þeirra þegar á þá var hallað og
greiða götu þeirra.
Einar var höfðingi f lund og fasi
og höfðingi heim að sækja. Kostir
hans voru slfkir, að þótt hans rfka
lund og hreinskilni yrði, á stund-
um, til þess að undan sviði, hurfu
þau áhrif sem dögg fyrir sólu
vegna mannkosta hans.
Þetta er sú mynd sem standa
mun mér fyrir hugskotssjónum af
svila mfnum Einari. Aðrir, sem
betur þekktu Einar á hans yngri
árum munu rekja æviágrip hans,
en það kæmi mér ekki á óvart þó
að það kæmi í ljós, að ég hefði
orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að
þekkja Einar á þeim tfma ævi
hans, þegar gæfusól hans var
hvað hæst á lofti.
Þeim sem þekktu Einar gjörla
mun finnast sem skarð sé fyrir
skildi og sakna sáran góðs drengs.
Ég votta frú Magneu Waage,
dætrunum og móður og öðrum
aðstandendum mfna innilegustu
samúð.
Minningin um Einar B. Waage
mun ávallt verða mér og minni
fjölskyldu kær.
Guðmundur Matthfasson.
Langt samtal áttum við Einar á
heimili hans deginum áður en
hann „ætlaði að skreppa á sjúkra-
hús i nokkra daga“, eins og hann
komst að orði. Þá var hann glaður
og reifur að vanda, áhugasamur
um hin mörgu verkefni sem fram-
undan voru til hagsbóta fyrir stétt
okkar. Þegar við kvöddumst, bað
hann mig um að heimsækja sig
eftir 4—5 daga, svo við gætum
rætt málin nánar, en það fór á
annan veg. Hann lézt á Borgar-
sjúkrahúsinu aðfaranótt 12. þ.m.
aðeins 52ja ára að aldri.
Einar var fæddur í Reykjavik 8.
ágúst 1924, sonur sæmdarhjón-
anna Elísabetar Einarsdóttur og
Benedikts G. Waage, hins þjóð-
kunna íþróttafrömuðar, sem var
m.a. forseti Íþróttasambands ís-
lands í 37 ár. Siðustu æviárin
dvaldi Benedikt á heimili sonar
síns og tengdadóttur og lézt þar 8.
nóvember 1966.
Einar hlaut í arf eðliskosti for-
eldra sinna, góðar gáfur, áræði og
fórnarlund, sem allir tóku eftir og
mátu er kynntust honum. Fljót-
lega kom i ljós, að hann bjó yfir
óvenju mikilli tónlistargáfu. Varð
hann einn af meðlimum Drengja-
kórs Reykjavíkur, sem Jón Ísleifs-
son stofnaði og stjórnaði á árun-
um 1937—38. Annars hóf Einar
nám í Menntaskólanum í Reykja-
vfk að loknu barnaskólanámi, en
hvarf þaðan fljótlega til að helga
sig tónlistinni. Allar götur frá
þeim tfma var hann meðal
fremstu tónlistarmanna þjóðar-
innar.
Námsferill Einars var stuttur á
nútima mælikvarða, en yfirburða
hæfileikar hans komu þá gleggst f
ljós og að góðum nótum. Hann hóf
nám í fiðluleik hjá Birni Ólafs-
syni, en jafnframt og síðar nám
hjá Fritz Weisshappel f kontra-
bassaleik. Fritz heitinn varð mág-
ur hans, er hann kvæntist Helgu
listmálara, systur hans. Á þeim
árum máttu íslenzkir hljómlistar-
menn þreyja þorran með því að
leika fyrir dansi. Sinfóníuh.ljóm-
sveit islands var óstofnuð og að-
eins strjálar uppfærslur áhuga-
manna og Tónlistarfélagsins á
klassískri tónlist tíðkuðust.
i lok seinni heimsstyrjaldarinn-
ar innritaðist Einar í Julliard
School of Music f New York.
Hann var svo lánsamur að fá
kontrabassaleikarann Fredrik
Zimmermann fyrir kennara, þann
hinn sama og ritað hefur kennslu-
bækur, sem enn í dag eru notaðar.
Með þeim tókst góð vinátta og
varanleg. Er námi lauk bauð Fritz
Reiner, stjórnandi Pittsburgh
Sinfony Orchestra, Einari starf í
þeirri hljómsveit, en hann kaus
að hverfa heim, fslenzku tónlist-
arlífi til ómetanlegs gagns.
Strax eftir heimkomuna réðst
hann til Ríkisútvarpsins og lék
með Utvarpshljómsveitinni, und-
anfara Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands, unz hin síðarnefnda var
stofnuð 1950, en Einar gegndi
stöðu 1. kontrabassaleikara þar
allt til dauðadags, að frátöldum
árunum 1958 og '59, er hann varð
að gangast undir mikinn upp-
skurð í Noregi.
Þegar hinn frægi fiðluleikari
Ádolf Buch (tengdafaðir Rudolf
Serkin) kom hingað með strok-
kvartett sinn 1947, en koma hans
var liður í Beethoven-hátíð Tón-
listarfélagsins, þá styrkti hann lið
sitt í sumum verkanna með is-
lenzkum tónlistarmönnum. Meðal
þeirra var Einar. Eftir siðustu
æfinguna gekk Buch til hans og
faðmaði hann að sér fyrir frammi-
stöðuna. Ekki lét hann þar við
sitja, heldur bauð honum starf í
Bandaríkjunum, en sem betur fór
stóðst Einar freistinguna öðru
sinni.
Fastráðinn kennari við Tónlist-
arskólann í Reykjavík var Einar
frá 1946.
i dag kveðja íslenzkir hljóð-
færaleikarar ekki eingöngu frá-
bæran hljómlistarmann, heldur
einn þann bezta málsvara, sem
þeir hafa átt. I áraraðir var Einar
formaður Starfsmannafélags Sin-
Framhald á bls. 27
útfaraskreytingar
blómciual
Groðurhusið v/Sigtun simi 36770
S. Helgason hf. STEINIÐJA
llnholti 4 Slmar 74477 og 147S4
t
Hjartkær móðir okkar
EGILSÍNA JÓNSDÓTTIR
Akurgerði 1 7
lést í Landspitalanum föstudaginn 1 5. október
Guðrún Jónsdóttir,
Sigrlður G. Jónsdóttir,
Jónaslna H. Jónsdóttir Eilbergas.
Eiginmaður minn
PÁLLÓSKAR GUNNARSSON
vélstjóri
Hltðarvegi 42
Kópavogi
sem lést sunnudaginn 10 október Verður jarðsunginn miðvikudaginn
20 október kl 1.30 frá Fossvogskirkju
Fyrir mina hönd, föðurs, systkina og annarra vandamanna,
Margrét Eiriksdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS SIGURÐSSONAR
Sóleyjargötu 1 2
Akranesi
Helga Gunnarsdóttir
Sigurður Gunnarsson
Gunnlaugur Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Skrifstofur STEFS
verða lokaðar
eftir hádegi þriðjudaginn 19. október vegna
útfarar Einars B. Waage hljómlistarmanns.
t
Móðir mln,
THERESIA EINARSSON
Skólavörðustig 43
andaðist á Borgarspitalanum að morgni þ 1 8 okt.
Lydia Pálsdóttir.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR
verður jarðsett frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20 okt. kl. 10:30
árdegís
Bóas Jónatansson,
Erling S. Tómasson,
Gúrún Bóasdóttir,
Sigurgeir Bóasson.
t Faðir okkar og tengdafaðir
MAGNUS PÉTURSSON
Fyrrum kennari á Akureyri
til heimilis að Þorfinnsgötu 4, Reykjavik andaðist að morgni hins 1 7
október sl
Sverrir H Magnússon Erla Haraldsdóttir
Bragi H. Magnússon Gail Magnússon
Ingibjörg R. Magnúsdóttir
Bjarni V. Magnússon Stefánfa Þ. Árnadóttir
RagnarM. Magnússon Þórunn Ingjaldsdóttir
Gunnar V. Magnússon Jóhanna Haraldsdóttir.