Morgunblaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976 3 A æfingu I Háskólabíöi I gær. Ib Lanzki — Otto og Gunnar Staern. Sinfóníuhljómsveitin: Síðustu tónleik- arnir fyrir jól SÍÐUSTU tónleikar Sinfónlu- hljómsveitar Islands fyrir jól og þeir sjöttu á þessu ári verða haldnir I Háskólabfói kl. 8.30 I kvöld. Einleikari á horn er Ib Lanzki-Otto og stjórnandi er sænski hljómsveitarstjórinn Gunnar Staern. A efnisskrá er forleikur eftir Dvorak, konsert fyrir horn eftir Hindemith, konsert n. 2 fyrir horn, eftir Mozart og Sinfónfa n. 4. eftir Schumann. Stjórnandinn, Gunnar Staern, var fastráðinn stjórn- andi við óperuna f Stokkhólmi í fjögur ár. Hann hefur stjórnað hljómsveitum á ýmsum tón- listarhátiðum, svo sem alþjóða tónlistarhátíðinni f Hastings og hinum frægu óperuhátíðum f Wexford. Hann er nú fastur stjórnandi óperunnar i Gauta- borg. Ib Lanzki-Otto hefur verið aðalhornleikari f Fílharmóníu- hljómsveitinni í Stokkhólmi sfðan 1967. Hann þykir einn mesti hornleikari, sem nú er uppi. Hann hefur komið fram sem einleikari með ýmsum hljómsveitum og hlotið frábæra dóma fyrir leik sinn. Lanzki er hljómleikagestum hér að góðu kunnur og telur sig reyndar hálfgerðan heima- mann hér, þar sem hann bjó á Islandi um árabil sem drengur, þegar Wilhelm faðir hans var kennari við Tónlistarskólann. Níu metra hátt tré fellt á Hallormsstað — 1000 jólatré koma þaðan HÆSTA tré, sem nokkru sinna hefur verið fellt i Hallormsstaðarskógi og þá um leið á tslandi, var höggvið niður fyrir nokkr- um dögum. Er tréð um það bil 9 metra hátt og mun það væntanlega setja svip á einhverja byggðina á Austurlandi um hátfðirnar. Sigurður Blöndal, skógarvörður á Hallormsstað, sagði I samtali við Morgunblaðið i gær, að ástæðan fyrir þvf, að tréð hefði verið fellt, væri að nauðsynlegt hefði verið að grisja reitinn, sem tréð stóð f, við skógræktarstöðina í Hallorms- staðarskógi. Kvað hann hæsta tré, sem áður hefði verið fellt f Hallormsstaðarskógi, hafa verið um 7 metra hátt. — Þá felldum við 7 metra háan fjallaþin, sem nú stendur ljósum prýddur fyrir framan félagsheimilið Egilsbúð í Neskaupstað en þetta er eitt fallegasta tré sem hér hefur verið fellt, og bæjaryfirvöld í Neskaup- stað tóku annað tré, sem er yfir 7 metra hátt. Morgunblaðið spurði Sigurð hvort það væri orðið algengt að 6—8 metra há tré væru felld í Hallormsstað. Kvað hann nei við. Slík tré væru ekki felld, nema þegar þyrfti að grisja, enda væru reitirnir frá þvf fyrir stríð ekki það stórir að þeir gætu gefið mörg tré af sér á ári. Sigurður Blöndal sagði, að fyrir þessi jól yrðu felld um 1000 tré i Hallormsstaðarskógi. Langflest þeirra færu á Austfirðina þ.e. frá Bakkafirði til Hornafjarðar, en nokkur væru pöntuð á Stór- Reykjavíkursvæðið. Helzt væru það gamlir Austfirðingar, sem vildu hafa ekta austfirzkan trjá- ilm f stofunum hjá sér um jólin. Aldrei meira úrval af herrafötum TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS Simi frá skiptiborði 281S5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.