Morgunblaðið - 16.12.1976, Side 19

Morgunblaðið - 16.12.1976, Side 19
19 MORGlíNÖLAÐIÐ, FIMMÍtfDAGUR 16. DESEMBER 1976 Ljósm. RAX. Arnór Valgeirsson, framkvæmdastjóri Dráttarvéla hf., fyrir framan nýju tegundina frá Massey-Ferguson, MF-500. Ný tegund dráttar- véla með ökumanns- húsi á markaðinn DRATTARVÉLAR hf. sem fara með einkaumboð hér á landi fyrir Massey-Ferguson, kynntu blaða- mönnum I gær nýja tegund dráttarvéla frá fyrrnefndu fyrir- tæki, sem koma á markaðinn bráðlega. Þessi nýja tegund er kölluð Ferguson 500 llnan og er með ökumannshúsi I samræmi við nýjustu kröfur um aðbúnað ökumanns og hljóðeinangrun. Að sögn Arnórs Valgeirssonar, framkvæmdastjóra Dráttarvéla hf., á þetta ökumannshús að draga stórlega úr hávaða af völd- um titrings, vegna þéttilista og gúmmfpúða, þar sem húsið nemur við einstaka hluta dráttarvélar- innar. ökumannshúsið er enn- fremur einangrað að innan, gólfið f húsinu er eins og f bifreið, einn- ig er miðstöð f húsinu, loftræsti- kerfi, rúðuþurrkur, hliðarspeglar og fleira. Hvað snertir annan búnað dráttarvélanna, þá eru þær allar búnar vökvastýri af Hydrostatic- gerð, sem þýðir að engin vélræn tengsl eru á milli stýris og stýris- búnaðar, eingöngu vökvakerfi. Losar það ökumann við höggáhrif á ósléttum vegi, sem ávallt verður þegar um vélræn tengsl er að ræða, eftir þvf sem Arnór sagði. I nýju tegundinni er aflúrtak alger- lega óháð „kúplingunni" þannig að hægt er að tengja eða aftengja vinnutæki, svo sem sláttuþyrlur, heytætlur og heybindivélar án þess að frátengja þurfi á meðan. Af nýju Massey-Ferguson dráttarvélunum, munu Ðrátta- vélar hf. bjóða strax þrjár gerðir, Mf 550, 49 hestöfl, MF 575, 69 hestöfl og MF 590, 79 hestöfl. Allar eru dráttarvélarnar búnar Perkins dieselvélum. Áætlað verð nýju tegundar- innar er frá kr. 1.800.000 til 2.600.000 — miðað við núgildandi innkaupsverð og gengi pundsins. Arnór sagði að Dráttarvélar hf. mundu halda áfram að selja dráttarvélar með öryggisgrind i stað húss, þar til Ferguson hætti að framleiða þær f Bretlandi. En f júlf síðastl. var tekið í lög f Bret- landi að einungis má selja dráttarvélar með ökumannshús- um innanlands, en enn sem komið er gera fslenzk lög ekki ráð fyrir meiru en öryggisgrind. Þessi fimm ungmenni lögðu drjúgan skerf af mörkum, er þau héldu hlutaveltu og gáfu orgelsjóðnum ágóðann, 18 þúsund krónur. Frá vinstri: Heiðrún Arnþórsdóttir, Þórhallur Vigfússon, Valgerður Vig- fúsdóttir, Gunnar M. Arnþórsson, Vigfús Már Vigfússon og sóknar- presturinn, séra Sigurður H. Guðmundsdon. (Ljósm. Hreggviður Guð- geirsson) Safnaði 1 orgel- sjóð á Reyðarfirði Reyðarfirði 3. desember N(J STENDUR yfir söfnun f or- gelsjóð kirkjunnar, en sóknar- nefnd hefur fest kaup á vönduðu rafmagnsorgeli, sem verið er að ganga frá. Kaupverð er um 1.2 milljónir króna. Margar góðar gjafir hafa borizt i orgelsjóðinn frá einstaklingum og félögum á staðnum. Nemur söfnunarféð nú um 523 þúsund krónum. Orgelkaupin eru í framhaldi af miklum endurbótum á kirkjunni, sem gerðar hafa verið innan og utan húss á siðastliðnu ári. 20. nóvember afhentu fimm börn sóknarprestinum, séra Sigurði H. Guðmundssyni, 18 þúsund króna gjöf, en peninganna öfluðu þau með hlutaveltu. Formaður sóknarnefndar er Steingrímur Bjarnason. _ Gréta Whittaker v syngur 12 jólalög. Suðurlandsbraut 8 Hvers vegna er Erica (Fear of flying) víðfræg bók? Vegna þess að hún á engan keppinaut. Vegna þess að hún er jHB berorðari um sálarlíf og kynferðismál en nokkur önnur bók. Vegna þess að hún hefur hvarvetna hlotið frábært lof gagnrýnenda og lesenda og aflað höfundinum Ericu Jong heimsfrægðar. ígisútgáfan {Islenska upplagið er takmarkað og það getur orðið hver dagur sá síðasti, að ná í þessa i sérstæðu bók. Ægisútgáfan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.