Morgunblaðið - 16.12.1976, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976
37
\
Komið
og skoðið
xaaiooær
Armúla 38, simi 31133.
(Gengið inn frá Selmúla)
Njálsgötu 22, simi 21377
Hreinsun á f atnaði
Reykjavík, 9. des. 1976.
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi opið bréf til Félags fslenzkra
iðnrekenda og Félags efnalauga-
eigenda frá Neytendasamtökun-
um.
Athuganir sem Neytendasam-
tökin hafa gert eru tilefni eftir-
farandi fyrirspurna og athuga-
semda.
1. Hreinsiprófa íslenskir fata-
framleiðendur flíkur áður en þær
eru látnar á markað? Ef svo er,
væri Neytendasamtökunum þökk
á að fá upplýsingar um niðurstöð-
ur á meðan framleiðendur sjá sér
ekki fært að merkja flíkurnar
með hreinsimerkjum.
2. A markaðnum eru flikur, inn-
lendar og erlendar, með tölum
sem leysast upp í algengasta
hreinsivökvanum „perklór" og
spennur, sem losna i sundur i
hreinsivökvanum.
3. Hér á landi eru framleidd
herraföt úr barmfóðri, eða milli-
fóðri, sem aflagast í hreinsun.
4. Okkur vitanlega, þola flikur
úr loðskinni, rúskinni, „mokka“
og leðurflikur hvorki „venjulega“
hreinsimeðferð í efnalaug sé það
sem stundum er kallað fljót-
hreinsun, eða þurrhreinsun í litl-
um sjálfvirkum vélum. Skinn eru
mjög vandmeðfarin í hreinsun og
seljendur ættu að brýna fyrir
kaupendum að hreinsa þurfi þess-
ar flíkur á sérstakan hátt þar eð
venjulega eru engar leiðbeining-
ar saumaðar á flíkina sjálfa.
Frekari upplýsingar um þessi
atriði varða alla neytendur og
óskast birtar i fjölmiðlum.
Ragnar Tómasson:
Kastljósþáttur um Fast-
eignamiðlun ríkisins
EFTIRFARANDI langar mig að
biðja Mbl. fyrir, til glöggvunar
þeim, er fylgdust með Kastljósi
s.l. föstudag.
Vegna tfmaleysis varð stjórn-
andi að fella niður m.a. það sem
hér greinir:
1. Flutningsmenn tillögunnar
um Fasteignamiðlun rikisins
segja í greinargerð að fáir fast-
eignaeigendur hagnist á verð-
bólgu. Hér eru höfð endaskipti á
staðreyndum. Langflestir kaupa
eða byggja fyrir lánsfé. Sá sem i
upphafi skuldar allt húsverðið,
skuldar það kannski aðeins að
hálfu eftir 2 ár. Gifurleg eignar-
færsla á sér því stað frá sparifjár-
eigendum til lántakenda.
2. Fasteignamiðlun rfkisins á að
stuðla að lækkun fasteignaverðs
án lagaboða eða banna. Spurt var
og spurt er: Hvernig?
3. Fasteignamiðlun ríkisins á að
selja þjónustu sina á kostnaðar-
verði. Ríkisstarfsmaður kostar
ekki undir 2000 kr. á klst. Sölu-
laun til Fasteignaþjónustunnar
fyrstu níu mánuði ársins, svo
dæmi sé tekið, jafngilda tekjum
að fjárhæð 1800—1900 á hverja
vinnustund. Af þvf greiðast laun,
húsaleiga, auglýsingar, simi, bif-
reiðakostnaður o.fl.
Og að lokum:
Við getum ekki sagt hvernig
Sjúkrahótel-
inu sérlega
veltekið
aí utan-
bæjarfólki
Á AKUREYRI verður í byrjun
janúar opnað sjúkrahótel á veg-
um Rauða kross íslands, en slíkt
hótel hefur verið starfrækt í
Reykjavík í tvö ár. Eru þessi hótel
rekin í tengslum við sjúkrahúsin,
þannig að læknar frá þeim hafa
eftirlit með sjúklingum, sem
komnir eru út af spítölunum, en
eru áfram i meðferð. Veita
sjúkrahótelin ekki sérfræði-
aðstoð, en trúnaðarlæknir starfar
á vegum Rauða krossins í sam-
bandi við þau. Að sögn Eggerts
Ásgeirssonar hjá Rauða krossin-
um hefur sjúkrahótelinu í
Reykjavík verið sérlega vel tekið,
og hefur utanbæjarfólki, sem t.d.
á við erfið beinbrot að stríða eða
er í nokkurra vikna geislameð-
ferð, mikið notað hótelið.
markaðsverð ákvarðast heldur að-
eins upplýst hvað það sé. Þar
kemur til álita staðsetning, frá-
gangur íbúða, sameign o.fl. Sömu
vinnubrögð notar Fasteignamat
ríkisins og vænti ég þó ekki að
Ingi Tryggvason saki þá stofnun
um að draga taum seljanda.
Virðingarfyllst,
Ragnar Tómasson.
IV d%\V er eitt af þeim nýju glæsilegu
► iflu lÆXf hljómtækjum sem við höfum nú
á boðstólum í hinni nýju verzlun
okkar, að Ármúla 38. Auk hljóm
rtv tækjaúrvals, þá bjóðum við heyrnartæki,
^ töskur fyrir kasettur. Ný sending af Scott
mögnurum og Fisher hátölurum komin, að ógleymdu
MIKLU ÚRVALI AF HLJÓMPLÖTUM OG KASETTUM.
Jólatréssalan
er í fullum
gangi ITKuM'
Ókeypis nælonnet
pökkun.
— Verzlið timanlega —
Opið kl. 10-22
alla daga