Morgunblaðið - 16.12.1976, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976
Steinunn S. Magnús-
dóttir—Minningarorð
1 blóma lífs míns kynntist ég
Steinunni Magnúsdóttur. Alla
mína æfi er ég þakklát fyrir þau
kynni.
Á aðventu frétti ég að Steinunn
væri öll. Það setti að mér trega, og
ég felldi tár. Þess vegna rita ég
þessar línur. Hún hafði tekið mig
í sitt hlýja, sterka fang, og hvítu
lokkarnir hennar léku um vanga
mina ungrar. Brosið hennar og
birtan, sem af því stafaði, var fáu
líkt í minum augum. Hvar sem
hún gekk, fannst mér fara kona,
sem við allar hinar ættum að
reyna að likjast. Hún var stór í
sniðum og sterk. Hún var falleg,
greind og gáfuð, en þó um fram
allt góð. Og henni var í blóð borin
göfugmennska, veglyndi og tign.
Aðdáun fyllir huga minn, sökn-
uður brjóst mitt. Ég kveð Stein-
unni um sinn-aneð virðingu og
þökk.
Bryndfs Jakobsdóttir.
Biskupsfrú Steinunn Sigriður
Magnúsdóttir frá Gilsbakka
verður jarðsungin í dag. Ekki er
þörf að rekja ættir hennar, enda
eru þær landskunnar. Öllum sem
kynntust frú Steinunni verður
hún ógleymanleg. Framganga
hennar öll og framkoma var svo
tíguleg og höfðingleg, að ekki
varð hjá þvi komist, að menn
veittu henni athygli. Sjálf sagði
hún mér einu sinni frá því, að
erlendur maður hefði stöðvað sig
á götu, og beðið um að fá að taka
mynd af þeim hjónum, en þá var
hún á gangi með manni sínum,
Ásmundi Guðmundssyni, biskup,
og var hún þá klædd islenskum
búningi, sem hún ætið hélt tryggð
við.
Þeim sem þetta ritar verður
minnisstætt, að hann á unga aldri
kynntist bróður Steinunnar, Pétri
Magnússyni, hæstaréttarlög-
manni. Pétur heitinn var einhver
glæsilegasti lögmaður, sem undir-
ritaður hefir kynnst. Hann átti til
það lítillæti, að taka ungum
manni, nýkomnum frá prófborð-
inu, eins og jafninga sínum. I
málflutningi var hann svo sterkur
og sannfærandi að jafnvel sem
andstæðingi hans fannst manni,
að hann hefði á réttu að standa.
Drengskapur hans og ráðlegging-
ar gagnvart mér, er ég flutti sem
mitt fyrsta prófmál í Hæstarétti
eitthvert erfiðasta mál, sem þar
hefir verið til meðferðar, gleym-
ist mér ekki, en Pétur var með-
verjandi minn í því máli. Hann
vissi hvað ég sem prófmaður
mátti ganga langt í málflutningn-
um, og benti mér á það. Ég efast
um, að við eldri lögmenn séum
núna eins hollráðir yngri kolleg-
um okkar i stéttinni. —
Steinunn Sigríður var lík bróð-
ur sínum að öllum mannkostum.
Hvergi mátti hún aumt sjá eða
vita, án þess að bæta úr eða hug-
hreysta. Hún hlaut sínar sorgir og
áföll í lífinu, eins og aðrir, en bar
það með hetjulund, og barnabörn-
um sinum var hún svo góð, að þau
munu geyma minningu hennar
alla tíð í þakklátum huga sinum.
Þar er nú skarð fyrir, þegar
amma er farin. —
Steinunn heitin var svo einstök
kona, að öllum, sem kynntust
henni, finnst nú eins og skamm-
degisskuggarnir séu þungbærari
og tilfinnanlegri en áður. Ég votta
fjölskyldu hennar og öllum ást-
vinum dýpstu samúð okkar hjón-
anna við fráfall hennar. —
Egill Sigurgeirsson.
Nokkur þakkarorð.
I hugum okkar Reykvíkinga
hefur Laufásvegurinn nokkra
sérstöðu og það með réttu. Þessi
fallega gata hefur yfir sér sér-
stakan og virðulegan blæ, sem
skapast hefur og mótast fyrir til-
stilli þess fólks, sem við götuna
hefur búið. Laufásvegurinn
geymir spor margra og mætra
manna og kvenna, og i dag kveðj-
um við með söknuði og þökk i
huga yndislega konu, sem svo
sannarlega setti sinn svip á sitt
umhverfi.
Móðir mín +
ANTONIE LUKESOVA,
frá Prag,
andaðist í Borgarspítalanum siðar 14 desember Jarðarförin verður auglýst
Jarmila Ólafsson Ægir Ólafsson og fjölskylda.
+
Ástkær móðir min, tengdamóðir. amma okkar og langamma,
INGVELDUR INGIBJORG JÓNSDÓTTIR.
Ásgarði 14, Reykjavik,
lézt hinn 6 desember sl
Útför hefur þegar farið fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu
Guðrún G. Hjaltested, Magnús P. Hjaltested,
Bruno Hjaltested, ArnfriSurÓ. Hjaltested,
Edda Hjaltested, Sveinn Jóhannesson,
og barnaböm
t
Þökknm innilega samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins
míns
BJARNA VALDIMARSSONAR,
Bólstaðarhlið 35.
Áslaug Helgadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Þegar ég gekk fyrst á fund frú
Steinunnar Magnúsdóttur, var
það ekki án kvíða og nokkurrar
óvissu. Hún hafði þá nokkrum
árum áður orðið fyrir þeirri
miklu sorg að sjá á bak syni sin-
um ástkærum I hörmulegu slysi,
en það varð mitt hlutskipti að
giftast ekkju hans. Og hvernig
Steinunn tók mér, fyrst og alla
tíð, mun ég seint fá þakkað og
aldrei gleyma. Ast, umhyggja og
ríkur skilningur á fólki og lifinu
voru einkenni þessarar mætu
konu.
Þau verða tómlegri jólin, sem í
hönd fara, en á þessari hátíð
friðar og kærleika hafði Steinunn
jafnan sína nánustu hjá sér að
Laufásvegi 75, og þar ríkti alltaf
sannkölluð jólagleði og friður.
Ég kveð með virðingu fallega og
góða konu, drottningu meðal
biskupsfrúa, og þakka Guði fyrir
að hafa fengið tækifæri til að
verða henni samferða þennan
spöl lífsleiðarinnar.
Pétur Pétursson.
Bílgreinasambandið:
Arleg bifreiðaskoðun verði
færð meir inn á verkstæðin
„1 FRAMHALDI þeirra umræðna
sem átt hafa sér stað á sfðustu
misserum um stöðu bifreiðaeftir-
litsins og aðstöðu þess, og vegna
samþykktar FfB á aðalfundi
þeirra samtaka í fyrra, þá fannst
okkur sem við hefðum eitthvað til
skoðunarmálanna að leggja, og
þvf setti stjórn Bflgreinasam-
bandsins (BGS) á laggirnar
nefnd til að afla upplýsinga um
starfstilhögun bifreiðaeftirlits f
nágrannalöndunum, og gera til-
lögur um stefnu BGS hvernig
bifreiðaskoðun skyldi háttað hér
á landi. Þetta er Ifka orðið til að
þvf tilefni að við höfum ekki trú á
að byggð verði fullkomin og nauð-
synleg aðstaða fyrir Bifreiðaeftir-
lit rfkisins f framtfðinni, fremur
en útvarpshöll o.s.frv., og að tölur
þær um slfka aðstöðu sem liggja
nú fyrir fjárveitinganefnd
Alþingis eru mjög stórar, stærri
en við teljum að þurfi til að koma
bifreiðaskoðun f gott og hag-
kvæmt lag, sérstaklega fyrir
neytendurna sjálfa,“ sagði Geir
Þorsteinsson formaður Bflgreina-
sambandsins á blm.fundi f gær.
Það er tillaga nefndarinnar, en
í henni voru þeir Jónas Þór
Steinarsson skrifstofustjóri BGS,
Finnbogi Eyjólfsson verzlunar-
stjóri og Jón Bergsson verk-
fræðingur, að skoðun bifreiða
verði meir færð inn á bifreiða-
verkstæðin, þvi núverandi starfs-
aðstaða og fyrirkomulag Bifreiða-
eftirlits ríkisins sé bæði dýrt,
tækniþekking þess oft litil og
fyrirkomulagið óhagkvæmt fyrir
neytendurna, þ.e. bifreiða-
eigendurna. Segja þeir að út-
búnaður Bifreiðaeftirlitsins til
skoðunar sé fyrir hendi á öllum
bifreiðaverkstæðum, og þar sé
einnig fyrir hendi öll sú tækni-
þekking sem nauðsynleg er, en
með þvi að færa skoðunina meir
inn á verkstæðin segja þeir að
minnka muni mikið snúningar
alls konar sem neytandinn verði
að ganga í gegnum með
núverandi fyrirkomulagi.
„Hvað sem úr verður, þá verður
Bifreiðaeftirlit ríkisins alltaf
æðsti aðili allra mála, og það er
síður en svo að við séum að segja
þeim fyrir verkum. Við teljum
það raunar aðalatriði að byggt
verði yfir Bifreiðaeftirlitið, út frá
núverandi aðstöðu þess, en okkur
finnst bara sem við höfum eitt-
hvað til málanna að leggja, og við
höfum neytendurna og þjóðar-
heald fyrst og fremst í huga.
Núverandi fyrirkomulag er óhag-
kvæmt fyrir þjóðina auk þess að f
raun og veru skortir allar starfs-
reglur um bifreiðaeftirlit, og við
teljum að koma megi málunum I
mjög gott horf án þess að miklir
fjármunir þurfi að koma til,“
sögðu þeir félagar.
Alit nefndarinnar er annars
eftirfarandi:
„Nefndin leggur til, að stefnt
verði að því að breyta umferðar-
lögum frá 23. apríl 1968 I þá átt,
að þau bifreiðaverkstæði, sem
þess óska og til þess eru útbúin að
mati þar til kvaddra og dómbærra
aðila, fái heimild til að annast
lögboðna skoðun að öllu leyti eða
hluta til, sé um sér þjónustu verk-
stæða að ræða.
Að sjálfsögðu verði þessi skoð-
un framkvæmd undir yfirumsjón
Bifreiðaeftirlits ríkisins, er hefur
fulla heimild til að endurskoða
bifreiðir á verkstæðunum eða i
sínum eigin skoðunarstöðvum,
auk þess, sem Bifreiðaeftirlit
ríkisins fylgist að staðaldri með
þeim bifreiðaverkstæðum, sem
framkvæma skoðun.
Forsenda þess að bifreiða-
verkstæðin geti tekið að sér lög-
boðna skoðun ökutækja er að
fyrir hendi séu starfsreglur um
skoðun, en engar heildarreglur
um þessi efni eru nú til. Bíl-
greinasambandið er reiðubúið að
tilnefna menn í starfsnefnd til að
semja slikar reglur. Nefndin telur
nauðsynlegt, að fulltrúar Bil-
greinasambandsins eigi aðild að
samningu þessara starfsreglna,
þar sem félagar Bílgreinasam-
bandsins hafi undir höndum
veigamiklar upplýsingar frá
framleiðendum bifreiða varðandi
slitmörk o.fl.
Nefndin telur, að slíkar starfs-
reglur muni draga úr óþarfa
ágreiningi um bifreiðaskoðun
milli bifreiðaeigenda og
verkstæða annars vegar og
Bifreiðaeftirlits rikisins hins
vegar.
Nefndin visar til fyrri
samþykkta aðalfunda Bílgreina-
sambandsins um starfsaðstöðu
Bifreiðaeftirlits ríkisins, sem hún
telur algjörlega óviðunandi og
áréttar, að starfsaðstaða þess
verði stórlega bætt frá þvi sem nú
er.
Nefndin telur, að nýtt fyrir-
komulag þar sem hluti ökutækja
verði skoðaður á viðurkenndum
verkstæðum, jafnframt sem
starfsaðstaða Bifreiðaeftirlits
ríkisins verða stórlega bætt, muni
stuðla að virkara og raunveru-
legra eftirliti með ástandi öku-
tækja og þar með auknu
umferðaröryggi.
Auk þess muni skoðunar-
kostnaður bifreiða lækka í heild.
Þá mun þessi nýbreytni minnka
snúninga og umstang bifreiða-
eigenda að mun, dreifa skoðun-
inni á lengri tima og færa hana af
annatíma verkstæða."
SVAR MITT np
EFTIR BILLY GRAHAM \MX
Senn lýk ég námi ( menntaskóla. Vinsamlegast segið
mér, hvernig ég get komizt að raun um, hvað Guð vill
varðandi Hf mitt.
Guð hefur ákveðna fyrirætlun með lif yðar. Það
má vera, að hann sé að kalla yður til þess að þjóna
sér sem prestur, kristniboði eða kennari. En hafið
þetta í huga: Vilji hann, að þér verðið kaupmaður,
iðnaðarmaður eða lögfræðingur, þá er það sú háa
köllun, sem hann kallar yður til. Takið henni, og
reynið að vegsama hann í jafnríkum mæli og þótt
þér gegnduð öðru starfi.
Sé sá einhver, sem vill í sannleika vita, hver vilji
Guðs er varðandi líf hans, þá getur hann farið
einfalda leið til að komast að niðurstöðu. Hann á að
lúta Guði í hjarta sínu og lífi og vera fús til að gera
vilja hans, hver svo sem hann reynist vera. Guð
lætur ekki að sér hæða. Hann vill vita, hvort þér
spyrjið af einlægni eða ekki. Hann hefur heitið
okkur aftur og aftur í Biblíunni að leiðbeina þeim,
sem biðja hann þess í trú. Hér er eitt fyrirheit hans:
„Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á
eigið hyggjuvit. Mundu til hans á öllum þínum
vegum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta."
(Orðskv. 3,5—6). Þetta er loforð Guðs sjálfs, og
hann mun efna það. Gefið yður á vald honum og
syni hans, Drottni Jesú Kristi.