Morgunblaðið - 16.12.1976, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976
Stefán og Valbjöm
jafna íslandsmet
STEFÁN Hallgrímsson og Valbjörn
Þorláksson jöfnuðu íslandsmetið t
50 m grindahlaupi innan húss á
innanfélagsmóti ÍR í Baldurshaga í
fyrrakvöld, þegar þeir hlupu báðir á
6.8 sekúndum. Þriðji I hlaupinu var
svo Jón S. Þórðarson á 6.9 sek.,
sem er hans bezti árangur, og jafn-
framt islenzkt unglingamet.
Að sögn framkvæmdaraðila
mótsins voru klukkurnar eitthvað
ekki upp á það bezta, því Stefán var
greinilega á undan Valbirni, og mið-
að við mannlegan hraða og hraða
Ijóss þá hefði átt að vera tíma-
mismunur á þeim tveimur, Stefáni
og Valbirni. Siðan hafi Jón verið
einnig nokkuð á eftir Valbirni,
þannig að tími hans sé einnig
vefengjanlegur, nema þá að timi
fyrsta manns hafi verið rangt tekinn,
og átt að vera 6.7 sek.
Atvik sem þetta, þ.e. að tímatöku
beri ekki saman við raunveruleik-
ann, er alltof algengt hérlendis og
kemur meira og minna fyrir á hverju
móti, og sennilega er hægt að kenna
hvoru tveggja um, klukkunum og
þeim sem timana taka. Er það ekki
verkefni fyrir FRÍ að standa fyrir
námskeiði i timatöku hér á höfuð-
borgarsvæðinu, þvi þessi vandræði
koma upp á hverju einasta frjáls-
íþróttamóti?
Arangur Stefáns i grindahlaupinu
er annars athyglisverður þegar það
er haft i huga að þetta er fyrsta
keppni hans i greininni Í mjög langan
tima, þvi á sl. sumri gat hann ekkert
beitt sér í þessari grein vegna
meiðsla sem hann hlaut í byrjun
sumars. Þá eru framfarir Jóns
'Sævars stórstígar og ekki að efa að
hann mun velgja þeim Stefáni og
Valbirni undir uggum á sumri
komanda, ágás
V :
K,* *
^ J
j
Þrumuskot Geirs Hallsteinssonar á leið f danska markið f leiknum s.l. sunnudag. Ljósm. S.S.
Tel íslenzka liðið
- sagði landsliðsþjálfarinn Janusz
STJÓRN Handknattleikssambands
íslands efndi til blaðamannafundar í
gær, og kynnti þar danska og
Islenzka landsliðið sem leika munu
þrjá landsleiki um helgina. Verður
fyrsti leikurinn á föstudagskvöld, kl.
21.00, annar leikurinn I Vestmanna-
eyjum kl. 14.00 á laugardegi og
eiga góða
Cerwinski
þriðji leikurinn í Laugardalshöllinni
kl. 20,30 á sunnudaginn.
íslenzka landsliðið, sem leikur þessa
leiki, verður eins skipað og það var í
Mynd þessa tók Sigtryggur Sigtryggsson f Berlfn f sfðustu viku er Ólafur Jónsson og Axel Axelsson mættu
þar til viðræðna við þá Birgi Björnsson, formann landsliðsnefndar og Januz Cerwinski landsliðsþjálfara.
Frá vinstri ólafur, Janusz, Birgir og Axel.
Alh ,bendir til að Axel
og Olafur verði með í HM
ALLAR Kkur benda til þess að
Ólafur H. Jónsson og Axel Axels-
son, sem leika með vestur-þýzka
liðinu Dankersen, taki þátt ( und-
irbúningi íslenzka landsliðsins
fyrir B-heimsmeistarakeppnina I
Austurrlki og verði með (leikjum
þess þar. Það kann þó að setja
strik ( reikninginn að lið þeirra
komst áfram f Evrópubikar-
keppninni.
— Við höfum mikinn áhuga á
að fá þá Axel og Ólaf inn i liðið,
sagði Birgir Björnsson, formaður
landsliðsnefndar HSl, á fundi
með fréttamönnum í gær, — og
þeir hafa einnig mikinn áhuga á
því að leika með okkur. — Hins
vegar liggur það fyrir að til þess
að þeir komi að tilætluðum notum
er nauðsynlegt að þeir æfi með
landsliðinu og komist vel inn I
það sem það ætlar að gera. Axel
Axelsson kemur heim núna um
jólin og mun þá æfa með landslið-
inu til 8. janúar, en þá heldur
hann utan. Dankersen á svo leik í
þýzku keppninni 15. eða 19. jan-
úar og strax að þeim leik loknum
munu þeir koma hingað heim til
æfinga og þá sennilega taka þátt í
landsleikjunum við Pólland. 29.
janúar eiga þeir aftur leik með
Dankersen, en ætlunin er að þeir
komi heim 31. janúar og verði hér
við æfingar fram til 11. febrúar.
Taka þeir þá þátt f leikjum ís-
lenzka landsliðsins við Vestur-
Þjóðverja. Sfðan halda þeir utan
og munu ekki æfa meira með
landsliðinu, en koma til móts við
það í Austurríki og taka þátt í
æfingaprógrammi liðsins fyrir B-
keppnina, en ætlunin er að ís-
lénzka liðið dvelji í vikutíma í
Austurríki fyrir keppnina og leiki
þar æfangaleiki við austurrisk lið.
— Takist þeim Ólafi og Axel að
taka þátt í landsliðsæfingunum á
þessu tímabili, er ég viss um að
það nægir þeim til þess að falla
vel inn i hópinn og leikkerfi liðs-
ins, sagði Birgir Björnsson á
fundinum f gær.
Þá kom einnig fram að vonir
standa til þess að Árni Indriðason
geti hafið æfingar með landsLð-
inu eftir áramótin, en hann hefur
verið önnum kafinn f námi sínu
að undanförnu. Kom fram hjá
Januszi Cerwinski, landsliðsþjálf-
ara, að hann hefur mjög mikið
álit á Arna sem varnarleikmanni,
en landsliðsþjálfarinn lét svo um-
mælt á fundinum í gærkvöldi að
vörnin væri veikasta hlið islenzka
liðsins og raunar allra íslenzkra
félagsliða. Sagði hann að það væri
raunverulega ekki nema eitt ís-
lenzkt lið sem léki sæmilega vörn,
Valur. Janusz sagði ennfremur,
að íslenzka landsliðið hefði tæp-
ast yfir nema tveimur góðum
varnarleikmönnum að ráða um
þessar mundir, þeim Þórarna
Ragnarssyni og Þorbirni Guð-
mundssyni. — Við verðum að
leggja aðaláherzluna á að bæta
varnarleikinn, og þar er mikið
verk sem þarf að vinna, sagði
Janusz.
sjgurmöguleika
keppnisferðinni til Austur-Þýzkalands,
og Danmerkur á dögunum. með þeirri
undantekningu, að í landsliðshópinn er
nú valinn fjórði markvörðurinn, Örn
Guðmundsson úr ÍR Þarf það val ekki
að koma á óvart, þar sem Örn hefur
staðið sig með ágætum í leikjum ÍR-
liðsins í vetur og átti einnig ágæta leiki
með pressuliðinu, þá er það mætti
landsliðinu á dögunum. Þá er Sigurður
Sveinsson einnig aftur í landsliðshópn-
um.
íslenzka liðið verður þannig skipað
— tala landsleikja viðkomandi leik-
manna i sviga
Markverðir
Ólafur Benediktsson, Val (60)
Gunnar Einarsson, Haukum (24)
Kristján Sigmundsson, Þrótti (1)
Örn Guðmundsson, ÍR (0)
Aðrir leikmenn:
Jón H Karlsson, Val (36)
Bjarni Guðmundsson, Val (8)
Þorbjörn Guðmundsson, Val (8)
Geir Hallsteinsson, FH (89)
Viðar Símonarson, FH (89)
Þórarinn Ragnarsson, FH (9)
Viggó Sigurðsson, Víkingi (1 6)
Björgvin Björgvinsson, Víkingi (82)
Þorbergur Aðalsteinsson, Víkingi (2)
Magnús Guðmundsson, Víkingi (3)
Ólafur Einarsson, Vikingi (29)
Ágúst Svavarsson, ÍR (21)
Sigurður Sveinsson, Þrótti (0)
Danska liðið
Danska landsliðið sem hingað kemur
verður skipað eftirtöldum leikmönnum:
Kay Jörgensen, Stjernen (14 7)
Mogens Jeppesen, Fredericia KFUM
(5)
Johnny Piechnik, HG (36)
Anders-Dahl-Nielsen Fredericia KFUM.
(70)
Heine Sörensen, Fredericia KFUM
(22)
Michael Berg, Holte (8)
Sören Andersen, Fredericia KFUM
(35)
Flemminq Hansen, Fredericia KFUM
(74)
Sören Skouborg, Skovbakken (0)
Ole Madsen, Fredericia KFUM (5)
Lars Avngaard, MK 31 (8)
Henrik Jacobsgaard, Saga (22)
Jesper Petersen, Fredericia KFUM
(43)
Erik Bue Petersen, Skovbakken (11)
Danska landsliðið er að mestu
skipað sömu mönnum og léku við
íslendinga í Bröndbyhallen í Kaup-
mannahöfn s.l. sunnudag Þeir þrír
leikmenn sem þá léku með en koma
ekki hingað voru þeir Thomas Patzyj,
Lars Bock og Thor Munkager Tveir
þeir fyrrnefndu leika með sænska
liðinu Olympia, og gátu ekki fengið
leyfi þess til íslandsferðarinnar en
Munkager mun ekki hafa getað fengið
leyfi frá vinnu sinni. Þá var álitið að
Flemming Hansen gæti ekki tekið þátt í
ferðinni til íslands, en hann er talinn
með í liði því sem Danir gáfu HSÍ upp,
og sögðu forráðamenn HSÍ á
fréttamannafundinum í gær, að þeir
teldu mjög líklegt að Hansen væri
með, þar sem danska sambandið væri
jafnan mjög nákvæmt þegar það gæfi
upp nöfn leikmanna, og fljótt að láta
vita, ef breytingar yrðu
Góðir sigurmöguleikar
Fram kom á fundinum að forráða-
menn HSÍ og pólski landsliðsþjálfarinn
Janusz Cerwinski eru mjög bjartsýnir á
að íslenzka landsliðinu takist að vinna
leiki sína við Dani að þessu sinni —
Það þurfti mikla heppni þeirra til þess
að ná fram sigrinum í Kaupmanna-
höfn, sögðu þeir, — og víst er að alltaf
munar miklu að leika á heimavelli, ekki
sízt þegar keppt er við Dani, en þá eru
áhorfendur venjulega vel með á nótun-
um og veita okkar mönnum góðan
stuðning Þótt tíminn fyrir þessa
heimsókn geti ekki talizt góður, von-
umst við fastlega til þess að íslenzkir
handknattleiksunnendur láti ekki
deigan síga, mæti á leikinn, og hvetji
okkar lið til sigurs
Fá 7000 kr. f dagpeninga
Það kom fram á fundinum l gær, að
HSÍ verður að greiða Dönum allan
kostnað af ferðalagi þeirra hingað. —
Okkur þykir það auðvitað dálítið hart,
en það var ekki um annað að gera.
sagði Sigurður Jónsson, formaður
sambandsins — Við erum nýkomnir
frá Danmörku þar sem við greiddum
mestan hluta kostnaðarins sjálfir. HSÍ
verður t d að greiða aönsku leik-
mönnunum dagpeninga i þessari ferð,
og er það upphæð sem nemur um
300,000,00 kr. Mun því láta nærri að
hver danskur handknattleiksmaður hafi
um 7000,00 kr. á dag í dagpeninga,
en geta má þess að íslenzku
leikmennirnir fá ekki nema um
2,500,00 á dag þegar þeim eru
greiddar bætur fyrir tapaða vinnu
vegna keppnisferða íslenzka landsliðs-
ins.
DANKERSEN KOMST ÁFRAM
VESTUR-þýzka handknattleiks-
liðið Gun-Weiss Dankersen sem
þeir Ólafur H. Jónsson og Axel
Axelsson leika með tapaði seinni
leik slnum ( Evrópubikarkeppni
bikarhafa við sænska liðið Heim,
16—17 ( fyrrakvöld, er leikið var í
Gautaborg. Staðan ( hálfleik var
10—7 fyrir Heim. Dankersen
kemst eigi að sfður áfram, þar
sem liðið vann fyrri leikinn
21—18 og markatalan eftir leik-
ina tvo er þvf 37—35 fyrir
Dankersen.
Erfiðlega gekk að afla frétta af
leik þessum ( gær, en eftir þvf
sem næst verður komizt var þarna
um mjög harðan og jafnan leik að
ræða. Sænska liðið hafði jafnan
frumkvæðið f leiknum og náði 4
marka forystu um tfma f fyrri
hálfleik. Undir lok leiksins sótti
Ðankersen svo I sig veðrið og
. tókst að tryggja sér áframhald-
andi keppnisrétt f Evrópubikar-
keppninni.
tslendingarnir tveir, Ólafur og
Axel, voru sagðir beztu menn
Dankersenliðsans f leiknum, en
ekki tókst Morgunblaðinu að fá
vitneskju um hversu mörg mörk
þeir skoruðu f leiknum.