Morgunblaðið - 16.12.1976, Síða 47

Morgunblaðið - 16.12.1976, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976 47 Margir danskir knattspyrnumenn leika með v-þýzkum liSum og hafa getið sér þar gott orð. fáir þó eins og Allan Simonsen. sem átti stjörnuleik með liði slnu s.l. laugardag. Mynd þessi er af Preben Larsen sem leikur með FC Köln og þykir einn af beztu mönnum liðs slns. Ford sigraði í Crystal Palace víðavangshlaupinu Bernie Ford frá Bretlandi sigraði I miklu vlSavangsklaupi sem fram fór I London á sunnudaginn. Hófst hlaup þetta og lauk á Crystal Palace- leikvanginum, en vegalengdin sem var hlaupin var 8.580 metrar. Tlmi Fords var 26.20 mín. í öðru sæti varð Dave Black frá Bretlandi á 26.22 mln., þriðji varð Carlos Lopez frá Portúgal á 26.26 mín.. Dave Moorcroft frá Bretlandi varð fjórði á 26.30 mln. og fimmti varð Mark McLeod frá Bretlandi á 26.33 min. HEIMSMET Sovétmaðurinn Yurik Vardanyan setti nýtt heimsmet ( snörun ( 75 kg þyngdarflokki lyftinga á móti sem fram fór f Moskvu um helg- ina. Lyfti hann 155.5 kg og bætti metið sem Búlgarinn Iordan Mitkov átti um 0.5 kg. Simonsen færði Borussia sigur í leik liðsins við Bayem Miinchen Á LAUGARDAGINN fór fram 17. stórkostlega góð. Það var hinn voru um 54 þúsund talsins. umferð vestur-þýzku 1. deildar keppninnar ( knattspyrnu — og var það sfðasta umferðin fyrir fimm vikna langt vetrarhlé sem jafnan er gert f Vestur- Þýzkalandi kringum jól og nýjár. Ljóst má vera að baráttan um þýzka meistaratitilinn verður geysilega hörð og spennandi f ár, og er það mál manna að sjaldan eða aldrei hafi knattspyrnan f Þýzkalandi verið betri en einmitt nú. Hafa margir leikirnir hingað til boðið upp á mörg mörk sem skoruð hafa verið eftir glæsilegar sóknarlotur og yfarleitt er sóknar- knattspyrna mun meira áberandi f Þýzkalandi en verið hefur. Sá leikur sem vakti mesta at- hygli á laugardaginn var viður- eign risanna Borussia Mönchen- gladbach og Bayern Milnchen, en leikur þessi fór fram á heimavelli Borussia, Bökkelberg Stadium, að viðstöddum 34.500 áhorfendum og fengu þeir sannarlega nokkuð fyrir aurana sfna, þvf knattspyrn- an sem liðin buðu upp á var oft danski miðherji Borussia Mön- chengladbach, Allan Simonsen, sem tvimælalaust var maður þessa leiks. Sýndi hann oft stór- kostleg tilþrif og það var hann sem skoraði eina mark leiksins á 52. mínútu. I seinni hálfleik sótti Bayern Munchen mun meira og þá komst hinn sænski leikmaður liðsins Conny Torsteinsson einu sinni í dauðafæri, en brást boga- listin í skoti sínu. Knötturinn fór í stöng og hrökk þaðan út á völlinn, þar sem Borussiamönnum tókst að bægja hættunni frá. Liðið sem var mótherji ÍBV í Evrópubikarkeppni bikarhafa, Hamburger SV, tapaði leik sínum við VFL Bochum á útivelli á laug- ardaginn. I leik þessum skoraði Kaczor þrennu fyrir Bochum, en fjórða mark liðsins gerði Köper. Bæði mörk Hamburger SV skor- aði Steffenhagen. Þá vakti leikur Borussia Dort- mund og Schalke 04 mikla at- hygli, en áhorfendur á honum Schalke náði snemma forystu í leiknum með marki Bongartz, en Hartl jafnaði fyrir Borussia á 26. mfnútu. A 37. mínútu fékk Schalke svo á sig sjálfsmark, en Lippens tókst að jafna metin skömmu fyrir leikslok. Staðan f v-þýzku 1. deildar keppninni, þegar vetrarhléið hefst er þannig að Borussia Mön- chengladbach hefur dágóða for- ystu og er Iiðið með 27 stig, eftir 17 umferðir. Eintracht Brauns- wick er í öðru sæti með 23 stig, og Bayern Munchen er f þriðja sæti með 22 stig. Siðan koma: Hertha Berlín með 21 stig, FC Köln með 20 stig, Schalke 04 með 20 stig, Duisburg með 19 stig, Dortmund, Bremen, Bochum, Dusseldorf og Hamburger SV hafa 17 stig, Frankfurt og Karlsruhe eru með 14 stig, Kaiserlautern með 12 stig, Tennis Borussia með 10 stig, Saarbrueck með 9 stig og á botn- inum er svo Rot-Weiss Essen með 8 stig. Skautafólk bvrjar vertíðina vel SOVÉZKA stúlkan Vera Krasnova náði bezta tlma I 500 metra skauta- hlaupi sem kona hefur náð I heimin- um á þessu ári er hún hljóp á 42.88 sek. á móti sem fram fór I Vestur- Berlin um helgina, en rösklega 40 skautahlauparar frá átta löndum tóku þátt I móti þessu. Skilyrði til keppni þóttu ekki sem bezt og afrek sovézku stúlkunnar þvl þeim mun athyglisverSara þess vegna. Önnur I hlaupinu varð ung hollensk stúlka Haitske Pijlman sem hljóp á 44. 19 sek. og þriðja varð Sylvia Burka frá Kanada sem hljóp á 44.23 sek. í 100 metra hlaupi kvenna sigraði hins vetar Ute Dix frá Austur- Þýzkalandi á 1:29.11 min., sem einn- ig er ágætur timi. í öðru sæti varð Sitie van der Lende frá Hollandi á 1:30 60 mln. og þriðja varð Sylvia Burka frá Kanada á 1:30.96 min. Mjög hörð keppni var i 500 metra hlaupi karla Sigurvegari varð Yevgeni Kulikov frá Sovétrikjunum, gullverð- launahafi frá Olympiuleikunum i Inns- bruck en hann hljóp á 39.04 sek. í öðru sæti varð Alexander Safronov frá Sovétríkjunum á 39.20 sek , Sies Uilkema frá Hollandi varð þriðji á 39 57 sek. og i fjórða sæti varð Norð- maðurinn Per Björang á 39.65 sek Alls hlupu 9 hlauparar á betri tima en 40 sek. ( 100 metra hleupinu sigraði svo Johan Granath frá Svíþjóð á 1:19.63 min., Kulikov varð annar á 1:20.02 min. og i þriðja sæti varð Jon Didrik- sen frá Noregi á 1:20.37 mín. En skautamenn voru viðar á ferðinni en i Berlln um helgina Norðmenn héldu mikið skautamót í Kongsberg og bar þar helzt til tíðinda að Stens- hjemmet sigraði I 3000 metra hlaupi á 4:14.5 min. og varð á undan hinum þekkta hlaupara Sten Stensen sem hljóp á 4:18 4 mln Norðmaður varð einnig í þriðja sæti, var það Erik Stor- holt sem hljóp á 4:1 9.0 min. Þá fór fram um helgina landsleikur I Isknattleik milli Svia og Tékka. Leikið var I Prag og lauk leiknum með óvænt- um sigri Svia 3—1 Var þessi sigur Svia fyllilega verðskuldaður og hefði eftir atvikum átt að vera enn stærri. Dómarinn átti lögregl- unni líf srtt að launa LITLU munaði að illa færi er knattspyrnulandsliðsmenn Kúbu réðust á Jose Luis Montagne knattspyrnudómara frá Puerto Rico sem <j,æmdi leik þeirra og Haiti f undankeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu, en leikur þessi fór fram í Port au Prince á Haiti á sunnudaginn. Vildi það dómar- anum til að lögreglumenn brugðu skjótt við og komu hon-. um til aðstoðar, en þá höfðu kúbönsku knattspyrnumenn- irnir veitt honum töluverða áverka. Jafntefli varð í leik þessum 1—1, en liðin höfðu keppt fyrr 1 mánuðinum í Havana á Kúbu og þá einnig gert jafntefli. Þurfa þau því að leika aukaleik um sæti í sex-liða undankeppni heimsmeistarakeppninnar, en það lið sem sigrar f þeirri keppni kemst til Argentínu. I umræddum leik í Port au Prince skaði Kúba mark á 78. mínútu, en Haiti jafnaði sex mínútum sfðar. Á 85. mínútu skoraði Kúba annað mark, en dómarinn dæmdi það af og rak síðan einn af leikmönnum Kúbu af velli fyrir mótmæla Strax og dómarinn flautaði leikinn af réðust svo Kúbu- mennirnir á hann og börðu og spörkuðu. FRAMSTÚLKUR GEFA ÚT PLATTA STULKUR f handknattleiksdeild Fram hafa nú ráðist f að gefa út veggplatta' „Framplattann“ eins og þær kalla hann. Komu plattar þessir f þær verzlanir sem sjá um sölu þeirra nú um helgina, og er það von stúlknanna að Framarar, yngri sem eldri festi kaup á þessum skemmtilega hlut. Verð plattans er kr. 3.200.- og verður hann til sölu f Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar og f Iþrótta- húsi Álftamýrarskóla. Einnig eru gefnar upplýsingar um sölu á plattanum f sfma 84212. Stúlkurnar gefa plattann út f fjáaöflunarskyni vegna þátttöku sinnar f Evrópubikarkeppni meistaraliða f handknattleik, en sem kunnugt er voru Framstúlk- urnar svo óheppnar að dragast á móti júgóslavneska liðinu Randnici, þannig að ferðakostn- aður þeirra er gffurlega mikill, og verða þær sjálfar að afla þeirra peninga sem þarf til ferð- arinnar. Breitner dæmdur í sekt VESTUR-ÞYZKI knattspyrnu- maðurinn Paul Breitner, sem nú leikur með spánska liðinu Real Madrid var um helgina dæmdur til þess að greiða 18.000 marka sekt fyrir ólöglegan vopnaburð. Var það dómstóll f Munchen sem kvað upp dóminn. Það var 11. júlf s.l. sem Breitner var handtekinn f flughöfninni i Miinchen og bar hann þá á sér skammbyssu af gerðinni Beretta 6,35. Sagðist Breitner hafa þegið byssu þessa að gjöf frá lögreglu- manni árið 1971 „til þess að ég gæti varið mig og fjölskyldu mina“, eins og hann orðaði það i réttinum. Saksóknari krafðist þess að Breitner yrði gert að greiða 36.000 mörk f sekt, með tilliti til þess hve tekjur hans væru miklar. Þess má svo geta að Breitner hefur bæði v-þýzkt og spánskt byssuleyfi, en Þjóðverjar taka ekki með neinum silkihönsk- um á þeim sem bera vopn í flug- höfnum. Týr sigraði í Eyjaslagnum TYR sigraði f „Eyjaslagnum" f 3. deildinni f handknattleik s.l. laugardag, sigraði Þór með 23 mörkum gegn 20. Leikurinn átti að hefjast kl. 16 en ófært var til flugs og þvf engir dómar- ar mættír. Dómararnir, Árni Júlfusson og Vilhjálmur Jóns- son, létu sér þó ekki muna um það að taka sér far með Herjólfi og var þeim fagnað sem þjóðhöfðingjum er þeir gengu f salinn kl. 19 rjóðir og sællegir eftir 5 klst. siglingu f SA rokinu. Sjávarloftið hefur Ifka gert þeim gott eitt, þvf þeir dæmdu leikinn af stakri prýði. Um leikinn er það að segja, að hann var allan timann mjög jafn en Týr þó lengstum méð forustuna og hafði yfir í hálf- leik 12—10. Er 10. mín. lifðu af s.h. náði Þór að jafna og komast yfir 18—17. Týr jafnaði þó fljótlega aftur og þegar rúmar 2 mín. voru eftir var staðan 21—20 fyrir Tý. Var nú allt komið á suðupunkt i húsinu og stemningin gífurleg. Þá gerðist það að tveimur Týsurum er vís- að af leikvelli með hálfrar mfn. millibila Þrátt fyrir þetta hélt Týsliðið sínum hlut lék uppá það að láta andstæðinginn brjóta af sér og það sem meira er, skoraði tvö mörk þótt tveimur færri væru á vellinum. Sigur Týs, 23—20 var þvi stað- reynd og fögnuður þeirra og stuðningsfólks þeirra var óstjórnlegur. Sigurlás Þorleifsson var maður dagsins hjá Tý, mjög snöggur og lipur spilari. Einnig átti Haraldur Óskarsson góðan leik og skoraði mörg mörk þegar Sigurlás var tekinn úr umferð. Eins og fyrr bar Hannes Leifsson höfuð og herðar yfir meðspilara sina I Þór og skoraði helming marka liðsins þó hann væri lengstum í strangri gæslu. Mörk Týs: Sigurlás Þorleifs- son 9, Haraldur Óskarsson 7, Páll Guðlaugsson 3, Hjalti Eliasson 2, Ingibergur Einars- son 1, Snorri Rútsson 1. Mörk Þórs: Hannes Leifsson 10, Herbert Þorleifsson 3, As- mundur Friðriksson 2, Erlendur Pétursson 2, Stefán Agnarsson 2, Arngrímur Magnússonl. —hkj.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.