Morgunblaðið - 22.12.1976, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1976
Sjðtugur:
Maríus Helgason
umdæmisstjóri
Maríus Helgason, umdæmis-
stjóri Pósts og slma á Akureyri og
fyrrv. forseti Sambands ísl.
berklasjúklinga er 70 ára í dag.
Hann fæddist á Stokkseyri
þann 22. des. 1906, sonur Helga
Halldórssonar trésmiðs þar og
konu hans Guðrúnar Benedikts-
dóttur. Með foreldrum sínum
fluttist hann á unga aldri til
Reykjavikur og lauk þar loft-
skeytaprófi 1925.
Hann var um allmörg ár loft-
skeytamaður á togurum Kveld-
úlfs, en 1934 réðst hann til Lands-
slmans og hefir starfað þar óslitið
síðan.
Hjá Landsslmanum vann
Maríus hin fjölbreyttustu störf,
hann byrjaði þar á skólaaldri sem
sendill, vann slðan alllengi á loft-
skeytastöðinni gömlu I Reykjavík
og síðar á ritsímastöðinni.
Varðstjóri við ritsímann I
Reykjavík var hann á árunum
1951—1956. Árið 1956 varð mikil
breyting á högum Marlusar.
Það ár var honum veitt embætti
stöðvarstjóra Pósts og síma á ísa-
firði og þar bjó hann til ársins
1966 er hann gerðist umdæmis-
stjóri Landssímans á Akureyri.
Þvi starfi gegndi hann þar til nú
nýlega að hann lét af störfum
vegna aldurs.
Þótt starfsferill Maríusar sé
langur og starf hans með miklum
ágætum hjá einni þörfustu
þjónustustofnun landsmanna,
Landssíma íslands, þá er þar þó
ekki nema hálf saga Maríusar um
framlag hans til framfara og
þróunar síðustu áratuganna. Alla
sina starfsævi hefir hann unnið
mikið og óeigingjarnt félagsmála-
starf jafnhliða slnu aðalstarfi.
Ungur að aldri veiktast hann af
lungnaberklum og var sjúklingur
á Vlfilsstöðum alllengi.
Hann varð þess vegna fljótt
virkur félagi I Samtökum berkla-
sjúklinga. Eftir að hafa verið I
stjórn félagsdeildar SlBS I
Reykjavík frá stofnun hennar, þá
var hann kjörinn I miðstjórn
Sambandsins árið 1942. Skömmu
síðar varð hann varaforseti og for-
seti Sambands ísl. berklasjúkl-
inga var hann á árunum
1946—1956. Vegna veikinda for-
seta Sambandsins, Andrésar
Straumland, þá kom það I hlut
Maríusar sem varaforseta að
flytja aðalræðuna við vigslu
Reykjarlundar þann 1. febr. 1945.
Eftir það gegndi Maríus störf-
um sem forystumaður SlBS þar
til að hann fluttist til Isafjarðar
árið 1956. Forsetastörfum
Marlusar verður ekki betur lýst
en með oróum Þórðar Benedikts-
sonar er tók við störfum hans.
Hann sagði: Ferill Maríusar I
stöðu forystumanns Sambandsins
var bæði þvl og honum til mikils
sóma. Framkoma hans öll sómdi
vel forystumanni, var I senn
virðuleg og prúðmannleg.
Störf hans I þágu Samtakanna
innti hann af hendi með einstakri
alúð og samviskusemi.
Hann fylgdist af nákvæmni
með öllum daglegum störfum,
hvort sem unnin voru I aðalstöðv-
um Sambandsins eða úti um
byggðir landsins. Persónuleg
kynni og góð tókust með honum
og öllum trúnaðarmönnum
Sambandsins hvar I sveit sem
þeir voru settir, enda notaði hann
löngum sumarfrf sin til þess að
ferðast um landið og heimsækja
þá og treysta samstarfið.
Þótt Marfus hyrfi úr forystu-
störfum hjá SlBS vegna fjarlægð-
ar frá aðalstöðvunum, þá er fjarri
því að starfi hans fyrir Samtök
berklasjúklinga væri þar með lok-
ið. Fram á þennan dag hefir hann
verið liðtækur og áhugasamur
félagi okkar. Maður sem við leit-
um gjarnan ráða hjá, áður en
mikilvægar ákvarðanir eru
teknar. En það eru fleiri félög, en
StBS sem hafa notið hollráða
Maríusar. Hann hefir gegnt ýms-
um trúnaðarstörfum I Félagi Isl.
simamanna og hann hefir átt sæti
i stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja. Sem meðlimur
Oddfellowreglunnar og Lions-
félagi, þá hafa honum verið falin
ýmis félagsmála- og liknarstörf.
Nú síðustu árin hefir hann
einnig gerst ákafur talsmaður
bættrar aðhlynningar og verndar
dýra. Vegna þessara mikilvægu
og fjölbreyttu starfa hans að
félagsmálum, þá sæmdi forseti Is-
lands hann riddarakrossi hinnar
Isl. fálkaorðu þann 1. jan. 1954.
Margs konar annar sómi hefir
Maríusi verið sýndur og nú I dag
hefir sijórn Sambands ísl. berkla-
sjúklinga samþykkt að sæma
hann gullmerki Sambandsins,
sem lltinn þakklætisvott fyrir
hans mikilvægu störf I þágu
berklasjúklinga.
Lengst af .hefir Maríus haft
mikinn áhuga á stjórnmálum og
tekið virkan þátt I starfspmi Sjálf-
stæðisflokksins. Nú síðustu árin
hefir hann verið kjörinn I
fulltrúaráð flokksins I Norður-
landskjördæmi eystra og var þar
formaður Kjördæmisráðs um all-
langa hrlð.
I þvl starfi sem annars staðar
reyndist hann nýtur og hygginn
starfsmaður og munu margir
sjálfstæðismenn I Norðurlandi
eystra sakna hans er hann nú
hefir orðið að láta af störfum
vegna versnandi heilsu.
I nafni Sambands isl. berkla-
sjúklinga flyt ég afmælisbarninu
hugheilar áranaðaróskir með
þakklæti fyrir hans mikla fram-
lag til félagsmála síðustu áratuga.
Persónulega þakka ég honum
áratuga vináttu og samstarf er
hefir verið mér bæði ánægjulegt
og lærdómsríkt. Án efa verður
gestkvæmt hjá þeim hjónum I
dag. Þau eru bæði vinmörg og
heimili þeirra á Akureyri þekkt
að gestrisni og myndarskap.
Oddur Ólafsson.
hljomtæki
eru þekkt fyrir gæði og
frábæra endingu.
jr
30 ára reynsla á Islandi
///
///
n
///
V BUÐIRNAR
Skipholti 19 viö Nóatún,
simi 23800
Klapparstig 26. simi 19800
25 ár i fararbroddi.