Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANUAR 1977 — Jú þetta gekk allt vel fyrir sig og dótturinni heilsast bara vel, sagði Þorbjörg Sigurðardóttir móðir fyrsta barns ársins 1977 þegar Morgunblaðsmenn heimsóttu með þeim foreldrunum, Þorbjörgu og Kristni Jónssyni, fyrirtæki þau sem í samvinnu við Mbl. færðu fyrsta barni ársins 1977 ýmsar gjafir. Dóttir þeirra Þorbjargar og Kristins var, auk þess að vera þeim mikill gleðigjafi, fyrsta barn ársins sem áður segir. Kom dóttirin i heiminn þegar 30 mínútur voru liðnar af nýju ári, en frumburður þessi fæddist á Fæðingardeild Landspítalans. Reyndist stúlkan litla 15 merkur að þyngd og 52 sm að lengd. í samvinnu við Morgunblaðið ákváðu 13 fyrirtæki að þessu sinni að heiðra fyrsta barn ársins með því að færa því og foreldrum þess gjafir. Þetta er annað árið í röð sem blaðið gengst fyrir þessu, og munu flest fyrirtækjanna f ár einnig hafa heiðrað fyrsta barn ársins 1976. Þær gjafir sem um ræðir eru yfirleitt mjög veglegar, og margar hverjar munu þær koma sér vel á fyrstu og jafnframt mikilvægustu árum uppvaxtar barnsins. Sl. fimmtudag sóttu þau Þorbjörg og Kristinn heim fyrirtæki þau sem um ræðir, og siógust Morgunblaðsmenn með í förina. SUSEfc-* Fyrst lá leiðin f Kjötmiðstöðina við Lauga- læk. Þar afhenti Hrafn Bachman for- eldrum og dóttur stóra og mikla matar- körfu að gjöf frá verzluninni. Hjá Myndiðjunni Ástþór afhenti Óli Páll Kristjánsson Ijósmyndari foreldrunum að gjöf skfrteini fyrir myndatöku f lit af barninu og foreldrum, og einni litfilmu og framköllun á henni. Og þar sem foreldrarn- ir áttu ekki myndavél var snarlega bætt úr því með þvf að láta Hanimex-vasamyndavél fylgja með. Var nú haldið niður f Þverholt 19 þar sem Sól hf. er til húsa. Afhenti Haukur Gröndal foreldrunum þar skírteini upp á að barninu (og foreldrunum) væri boðið upp á ókeypis Tropicana-appelsfnusafa f eitt ár. Við afhendinguna þótti viðeigandi að drekka glas af „sólargeislanum“. Lá nú leiðin niður Laugaveginn. Litum við inn f Leikfangabúðina við nr. 72 og þar afhenti Grétar Eirfksson verzlunarstjóri forldrunum þenna hjólahest, sem er eitt hinna vönduðu Fisher-Price leikfanga. f hestinum bæði hneggjar og brestur. FÁLKINN* Suðurlandsbraut 8. Þá var litið við i t- álkanum að Suðurlands- braut. Ólafur Haraldsson afhenti forláta ungharnastól með áföstu borði. Jón °9 $^0 Við nr. 70 er úra- og skartgripaverzlun Jóns og Óskars, en þeir félagar gáfu dótturinni silfurmyndaramma og stáihnffapör og for- eidrunum fullkomna vekjaraklukku. Það er Óskar sem er nær á myndinni en Jón fjær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.