Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANUAR 1977 Dag nokkurn var dyrabjöllunni hringt hjá gamalli konu. Þeg- ar hún kom til dyra. rak hún upp stór augu. Fyrir framan hana stóö lítill drengur með kött í fanginu. „Hvaö er þér á hönd- um, drengur minn?“ spurði hún vingjarn- lega. „Ég er að koma með kanaríufuglinn þinn,“ svaraði drengurinn, „og mig langar til þess að fá fundarlaun.“ „Já, en þú ert með kött í fanginu, en ekki kanaríufugl," sagði gamla konan. „Ég veit það vel,“ svaraði drengurinn, „en fuglinn er í mag- anum á kettinum." Skntlur „Heyrðu marnma," sagði Svandís, „hefur Anna nokkuð sagt þér frá því, hvað ég hef verið vond?“ „Nei,“ svaraði mamma hennar. „Jæja, það var gott. Og úr því að hún hefur ekki borið út sögur um mig, ætla ég ekki held- ur að segja frá því, að hún braut fína vasann í stofunni." Umsjón: Rúna Gfsladóttir og Þórir S. Guðbergsson. Barna- og fjölskyldusíða Morgunblaósins Gle|í te^T Brúður í búningi... & Marvlslegar brúður má gera á einfaldan hátt. Myndin sýnir, hvernig vír er beygður til, og efst er sett t.d. tréperla fyrir höfuð (eða perla af öðru tagi, svo sem úr gamalli festi). Ilár- ið er gert úr þunnu ullargarni og límt á perluna. „Fötin“ (merkt 1) eru vafin utan um vírinn og fest með saumspori. Klippt er upp 1 til að gera buxnaskálmar, þær svo saum- aðar saman og rykktar að neðan (trúðurinn og hollendingur- inn). Hattar, húfur og annar höfuðbúnaður (merkt 2, 3, 4) eru sniðin úr pappfr eða þunnu kartoni og llmt á. En skemmti- legast er að reyna sjálfur að geraeigin búninga. Hér er galdur, sem vekja mun athygli. Klipptu til fimm papparæmur, og spurðu gesti þína eða vini, hvort þeir geti lyft öllum ræmunum fimm upp með þvf að snerta aðeins eina ræmuna. Þeir geta það eflaust ekki, en á teikningunni sérðu, hvernig þú átt að fara að. LjÓS og mgrkur VIÐ KÖLLUM desember dimmasta mánuð ársins. Og nú er kominn janúar með nýju ári og við segjum, að daginn fari að lengja. Hvað þýðir það eiginlega? Það merkir, að bjarti timinn á daginn fer að verða lengri — smátt og smátt. Og mörgum fullorðnum léttir, þegar daginn fer að lengja, þeir segjast verða fegnir og léttari í skapi. En er dimmi tíminn svo leiðinlegur? Er ekki margt gott við hann líka? Við getum kveikt ljós inni og stytt okkur stundir við svo margt. Um jólin keppast allir við að gera notalegt á heimilunum, en getum við ekki haldið því áfram lika í janúar og febrúar, og kannski svolitið lengur? Við getum setzt saman við borð og föndrað — spjallað saman eða unnið saman að einhverju. Eða einn lesið upphátt fyrir hina á heimilinu. Og ekki er heldur ónýtt að skreppa út síðari hluta dagsins og lita á stjörnurnar, ef himininn er skýjalaus. Fullorðna fólkið veit vafalaust einhver deili á þeim — því að þær hafa margar — og blika sumar skært. Undan- farið hefur Venus verið skær á vesturhimni á kvöldin. Og þegar tungliö sendir geisla sina á drifhvíta snjóbreiðu er oft heillandi að fá sér kvöldgöngu. Við þurfum ekki að vera seint á ferð né lengi til þess að hrifast af því. Og gleymum því ekki heldur, að hér á íslandi höfum við norðurljós og sú fegurð er ein af sér-eignum okkar, því að þau sjást ekki svo víða annars staðar. Við skulum reyna að njóta þess, að við getum á hverjum árstíma og hafa athyglina vakandi fyrir því, sem gerist í kringum okkur og þeim möguleik- um sem við höfum. Afaría og Jósef, for- eldrar Jesú, ferðuðust á hverju ári upp til Jerú- salemborgar um pásk- aná. Og þegar Jesús var orðinn tólf ára, fékk hann að fara með þeim þangað. Þau voru þar nokkra daga og héldu hátíðina með vinum og ættingjum. Loks kom að þvf, að þau skyldu halria heim aftur. María og Jósef voru neð frændfólki sfnu og allt fólkið ferðaðist fót- gangandi. Þau voru húin að ganga góðan spöl, þegar þau áttuðu sig á að Jesús var hvergi nálægt Litla sagan: Jesús tólf ára þeim. Þau spurðust fyr- ur um hann meðal barn- anna og ýmissa vina, sem voru samferða þeim, en enginn hafði séð Jesúm á heimleið- inni. Þegar Marfa og Jósef höfðu gengið allan daginn og ekki fundið Jesúm í hópi samferða- fólksins, sneru þau við og fóru aftur til borgar- innar. Þau leituðu að honum fram á nótt, og hðfu leitina aftur snemma morguninn eft- ir. En þau fundu hann ekki. Loks að þremur dögum liðnum datt þeim f hug að athuga f helgi- dóminum, þar sem menn komu saman til guðsþjónustu og bæna. Og þar sat hann, eins og ekkert væri sjálfsagð- ara, og var innan um lærimeistara og fróða menn og spurði þá út úr og hlustaði á þá. Og kringum þá voru margir að fylgjast með, og alla furðaði á skilningi Jesú og svörum. Þegar Marfa og Jósef sáu hann, urðu þau undrandi. Marfa sagði við hann: „Barn, þvf gerðirðu okkur þetta? Faðir þinn og ég höfum leitað þín lengi og verið sárhrygg“. En Jesús svaraði: „Hvers vegna voruð þið að leita að mér? Vissuð þið ekki, að mér ber að vera í húsi FÖÐUR míns?“ En þau skildu ekki, hvað hann átti við. En Jesús fór heim með þeim, og kom til Nazaret, - heimabæjar þeirra. Og hann var þeim hlýðinn. Og móðir hans get ekki gleymt orðum hans. Hann hafði kallað helgidóminn „hús föður síns“, og átti þá við, að Guð væri faðir hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.