Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANUAR 1977 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANUAR 1977 25 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulitrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1 100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60.00 kr. eintakið. Mannréttindabarátta í Austur-Evrópu Sagan endurtekur sig, segir máltækið. Á tfmum keisaradæmis í Rússlandi mynduðust vfða f Vestur-Evrðpu nýlendur landflðtta Rússa, er margir hverjir voru frumherjar hins nýja þjððskipulags, sem nú er 60 ára reynsla af í Sovétrfkjunum. Og enn eru nýlendur landflðtta Sovétmanna vfða um hinn frjálsa heim. Hið nýja alræði hefur dregið dám af þvf gamla. Fðlk, sem ekki hefur átt skoðanalega samleið með ráðandi aðilum, hefur neyðst tal að yfirgefa feðraslðð sfna og leita nýrra heimkynna, þeirra á meðal heimsþekkt skáld, vfsinda- maður, skákmenn og fþrðttamenn. Og viðurstyggð kynþáttafordóma gegn Gyðingum blómstrar á ný f Sovétrfkjunum. Allir kunna skil á uppljðstrunum Sovétmanna sjálfra um voðaverk Stalfnstfmabilsins. En ástandið hefur Iftið breytzt. fangelsanir og geðveikrahæli gegna enn sínu hlutverki austur þar. Hins vegar er sú breyting að verða á, að Sovétstjórnin treystir sér ekki lengur til að láta andstæðinga sfna hverfa sporlaust. Og hún á æ erfiðara með að tjðnka við þá. Þess vegna hefur hún gripið til þess að gera þá útlæga. Sú er meginorsök fyrir tilvist hinna nýju nýlendna landflðtta Rússa. 1 gær var hér í leiðara blaðsins vitnað til viðtals við fslenzkan skipstjðra, sem dvaldist tvo mánuði f Póllandi, um aðbúð alls almenn- ings þar f landi, vöruþurrð og verðhækkanir. Þar f landi hefur bðlað mikið á andðfi verkafðlks gegn ráðandi aðilum, sem brotizt hefur út f beinum átökum. Fjöldi verkamanna hefur þar verið handtekinn. Réttarhöldin yfir verkamanninum Josef Smágowski vöktu athygli um gjörvallan heim. En það sem mestu máii skaptir er e.t.v. sú staðhæfing fréttaskýrenda, að þar f landi sé f raun að myndast stjðrnarandstaða, sem samanstandi af þremur megin þáttum: verkamönnum, mennta- mönnum og kaþðlsku kirkjunni. Þessi „stjðrnarandstaða“ sé svo sterk, að stjórnvöld neyðist senn til að semja við hana, nema þau grfpi til þess að brjðta hana niður með hervalda, en beiting rússnesks hervalds á sér fordæmi bæði f Tékkóslóvakíu og Ungverjalandi. Nýjustu fréttir frá Tékkóslóvakfu bera þess ljósan vottinn að stuðningsmenn Dubceks eiga þar enn sterkar rætur. Allstór hópur kunnra menntamanna þar f landi hefur látið frá sér fara yfirlýsingu, sem kölluð hefur verið „Mannréttindi 1977“, og borizt hefur vestræn- um fjölmiðlum. Undir þessa mannréttindayfirlýsingu rituðu m.a. Jiri Hajek, fyrrverandi utanrfk’sráðherra, Vaclav Havel leikritaskáld, og Jan Patocka heimspekiprðfessor. 1 kjölfar hennar fylgdu fjöldahand- tökur og yfirheyrslur. En tékknesk yfirvöld hafa ekki treyst sér til að sýna fyrri hörku f meðferð handtekinna enn sem komið er og hvað sem verður. Fréttir berast og um vfðtækar andðfsaðgerðir í Austur-Þýzkalandi. Þar hafa stjðrnvöld neyðst til að grfpa til rússnesks fordæmis um brottvísun úr landi. Nægir f þvf efni að minna á a-þýzka listamanninn W'olf Biermann, sem telur sig sðsfalista. Sfðustu fréttir greina frá fangelsun fðlks sem leyfði sér að mótmæla útlegð Biermanns. Aþekk dæmi væri hægt að tína til úr flestum A-Evrópurfkjum. Sú spurning leitar þvf á hugi manna, hvort þetta stjðrnkerfi, sem hefur valdið fleiri mönnum vonbrigðum en nokkurt annað, muni fyrr en menn hingað til hafa gert ráð fyrir gliðna innan frá. Sú spurning styðst við þá staðreynd, að það er hægt að fangelsa og Iffláta menn en ekki skoðanir og hugsjónir. Þær lifa af hvers konar ofbeldi og skepnuskap. Augljðs tengsl eru milli þessarar þrðunar f Sovétrfkjunum og A-Evrðpu og nýrrar stefnumörkun kommúnistaflokka f V-Evrðpu, einkum á Italfu, Frakklandi og Spáni. Italskir kommúnistar hafa tekið afstöðu með aðild lands sfns að Atlantshafsbandalaginu'. Foringi þeirra segir að auðveldara sé að framfylgja frjálsum sðsíalisma innan en utan varnarbandalags vestrænm rfkja. Foringi spánskra kommúnista telur og rétt að Spánn fái aðild að EBE og og Nato. Hann gengur jafnvel svo langt að telja æskilegt að bandarískar herstöðvar verði áfram á Spáni. Báðir rökstyðja þeir afstöðu sína með þvf að rangt sé að raska núverandi valdajafnvægi f heiminum. Þessi breytta afstaða ber þó ekki sfður vott um viðleitni til að hasla sér völl f sjálfstæðri afstöðu gagnvart Sovétrfkjunum. Alþýðubandalagið er einn af fáum slfkum flokkum f V-Evrðpu, sem enn heldur fast við hina gömlu Moskvulínu f afstöðu sinni til Atlantshafsbandalagsins. Þessi breytta afstaða vestrænna kommúnistaflokka hefur á sinn hátt styrkt afstöðu mannréttindahðpa austan járntjalds. Þannig sagði tékkneski andðfsmaðurinn Kohouts f viðtali við fréttamenn Reuters: „Hvernig sem allt fer vona ég að kommúnistaflokkar á Vesturlöndum geri sitt bezta til að koma f veg fyrir að mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjððanna verði fðtum troðin f Tékkðslðvakfu.“ Hætt er við að málið fái ekki þann hljðmgrunn f Þjððviljanum, sem tékkneski andðfsmaðurinn vænti. Nýlega undirstrikuðu tvö rfki tilvist pðlitfskra fanga opinskátt. Þetta voru Sovétrfkin og Chile. Þau sömdu einfaldlega um að skipta á tveimur slíkum, verzla með einstaklinga og skoðanir þeirra. Þessi heimssögulegi atburður varpar nýju Ijðsi á mannréttindabaráttuna austan tjalds. Hann svarar að vfsu ekki spurningunni um, hvort þetta stjðrnkerfi muni gliðna innan frá. En hann áréttar þá brýnu þörf sem er á siðferðilegum stuðningi frjálshyggjumanna um gjörvallan heim við mannréttindabaráttu f rfkjum kommúnismans. Rey k j aví kurbréf Laugardagur 15. janúar Lýðveldi og herstöðvar Minnzt var á siðasta hefti Skírn- is í Reykjavíkurbréfi fyrir ára- mótin og ekki ástæða til að vega í sama knérunn að öðru leyti en því að höggva lítillega í athyglisverða grein, sem í ritinu birtist, Lýð- veldi og herstöðvar, eftir Þór Whitehead. Grein þessi hefur sýnilega vakið verðskuldaða at- hygli, en þó hefur samt farið fyrir henni eins og ýmsu öðru, sem lent hefur í fjölmiðlaskolpræsum is- lenzkrar samtiðar, að hún hefur verið misnotuð á hinn herfileg- asta hátt — og þá einkum í mál- gagni kommúnista, þar sem reynt hefur verið að nota hana i því skyni að gera leiðtoga lýðræðis- flokkanna á árunum eftir síðari heimsstyrjöld að ófyrirleitnum tækifærissinnum, eða jafnvel ill- skeyttum landráðamönnum. Hérí Reykjavíkurbréfi hefur oft verið minnzt á þessi landráðabrigzl, sem virðast vera einhverskonar sjúkdómseinkenni á mörgum ís- lendingum og má geta þess til samanburðar, að það heyrir til algerra undantekninga í sið- menntuðum lýðræðisríkjum að vega þannig stöðugt að æru manna og orðstír, þó að gerðir þeirra séu gagnrýndar með öðr- um hætti. Menn hafa fyrr og síðar verið á öndverðum meiði um það, hvernig ríkjum þeirra sé bezt borgið, og hefur það átt við ís- lenzka stjórnmálamenn ekki síð- ur en erlenda. Það er frumskylda þeirra, sem um slík mál fjalla á opinberum vettvangi, að kynna sér allar heimildar, sem tiltækar eru, svo og málavöxtu, og þá ekki sízt að komast inn í hugarheim þeirra, sem um er rætt. Það er t.d. dálítið annað að standa á sjónar- hóli ársins 1977 og fjalla um at- burði, sem gerðust í síðustu heimsstyrjöld eða upp úr henni, eða þá að vera þátttakandi í þeim hildarleik og þeim gífurlegu átökum, sem eiga rætur að rekja til skiptingar heimsins og valda- röskunar, sem þá blasti við allra augum. Sigurvegarar síðustu styrjaldar höfðu ekki fyrr staðið yfir höfuðsvörðum nazismans en kommúnistar byrjuðu að leggja undir sig lönd i Evrópu og þenja ríki sitt út í allar áttir og hefja með þeim hætti heimsvaldastefnu í anda gamals, rússnesks imperialisma. Þetta voru höfuð- einkenni stalínismans, sem ógnað hefur síðan lýðræðisríkjum um allan heim og náði hámarki með valdaráninu í Tékkóslóvakíu, sem varð til þess að lýðræðisþjóðir vesturálfu hrukku svo kyrfilega við, að þær sameinuðust að lokum í öflugu varnarbandalagi NATO, sem síðan hefur séð til þess, að ekkert ríki Evrópu hefur orðið kommúnisma að bráð eða þeirri stalinistfsku útþenslustefnu, sem fylgdi í kjölfar síðustu heims- styrjaldar, enda þótt Rússar hafi gert innrás í lönd eins og Tékkó- slóvakíu og Ungverjaland. Þannig var sú ákvörðun Islend- inga að taka þátt í varnarsam- starfi vestrænna ríkja byggð á staðreyndum sins tíma en for- sendurnar fyrir öryggisstefnu okkar hafa síður en svo brostið, því miður mætti vel segja, svo óhugnanlegt sem vígbúnaðar- kapphlaupið er i flestum þeim rikjum heims, sem telja hag sín- um bezt borgið undir brýndum spjótsoddum. Þeir sem lesa grein Þórs White- heads hljóta að setja sig i spor þeirra manna, sem lifðu árin 1945 og 1946 og báru ábyrgð á fyrstu sporum ungs lýðveldis, sem Bandaríkjamenn höfðu átt mik- inn þátt í að komið yrði á hér á landi þrátt fyrir það, að þeir hik- uðu nokkurn tíma, vegna þess að bandamenn þearra í Danmörku lágu í blóði sínu undir járnhæl nazismans og með engu móti mátti draga úr siðferðisþreki þeirra. Þegar Bandaríkjamenn höfðu loks sannfærzt um, að lýð- veldisstofnun á Islandi væri rétt og sjálfsögð, þrátt fyrir ástandið í heiminum í miðri heimsstyrjöld, urðu þeir fyrstir manna til að styðja lýðveldisstofnun hér á landi. Bandaríkjamenn voru með herlið á Islandi þegar þetta gerð- ist, enda þótt Bretar sæju að mestu um þau ógnlegu átök, sem urðu við Þjóðverja á Atlantshafi. Bretar höfðu aðstöðu hér á landi, sem ýmsir telja, að ráðið hafi úr- slitum um hergagnaflutning milli Bandaríkjanna og Evrópu, og þá ekki sízt til Sovétríkjanna. Án þessarar aðstoðar Bandaríkjanna hefði þrek og geta Breta, Rússa og annarra þeirra, sem áttu í blóð- ugri styrjöld við möndulveldin, ýmist í eigin landi eða i túngarð- inum, verið brotin á bak aftur með þeim hætti, að þúsundára villimannaríki nazismans hefði getað séð dagsins ljós. Þannig átti Island og aðild þess að átökunum þátt í því að unnt var að hrínda af höndum sér árás- um nazismans og efna til þess friðar, sem átti að reisa á rústum styrjaldarinnar, en heimurinn hefur því miður ekki þekkt, eins og vonazt var til. Stalín og kompaní sáu um það, að enginn trúði lengur á frið, sem ekki styddist við öflugar varnir. Eftir að Stalín og kommúnistar höfðu sýnt klærnar í öllum áttum — og þá ekki sízt með styrjöldinni við Sameinuðu þjóðirnar í Kóreu — varð íslendingum ljóst, að þeir gátu ekki setið auðum höndum í varnarlausu landi, og stigu það spor að leyfa hér varnarlið á veg- um Atlantshafsbandalagsins til að efla öryggi Islands og tengja það nauðsynlegu varnarkerfi vestrænna lýðræðisríkja. Atökin 1945 og 1946 Af grein Þórs Whiteheads má sjá, að leiðtogar Islendinga 1945 og 1946 — og þá ekki sízt forystu- menn Sjálfstæðisflokksins með Ólaf Thors í fararbroddi — hugð- ust leysa öryggismál tslands með einhvers konar tengslum við Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og eru til margar heimildir þess efnis. I þeim samningi sem ís- lenzk stjórnvöld gerðu svo við Bandaríkin 1946, þ.e. Keflavíkur- samningnum, var gert ráð fyrir að bandarískt herlið færi frá land- inu, en Bandaríkjamenn fengju einungis aðstöðu hér á landi til að sjá um herlið sitt í Vestur- Þýzkalandi, en þá var álitið að mörg ár, eða jafnvel áratugir gætu liðið, áður en unnt yrði að létta hernámi af Vestur- Þjóðverjum. Það gekk þó fljótar fyrir sig en flestir töldu, að unnt gæti orðið, enda urðu Vestur- Þjóðverjar fljótlega ein helzta lýðræðisþjóð samtímans og tóku þegar virkan þátt i samstarfi vest- rænna lýðræðisrikja. Aftur á móti er hernámi Rússa i Austur- Þýzkalandi ekki lokið af augljós- um ástæðum. Samkv. Keflavíkur- samningnum skyldi Bandaríkja- stjórn heimilt að reka flugvöllinn með óbreyttum borgurum og bún- aði sem reksturinn krefðist, og bandarískum flugvélum áskilinn afnotaréttur af vellinum. Þeir, sem sjá vilja atburðina 1945 og 1946 í réttu ljósi og í samhengi við þær aðstæður, sem þá ríktu, verða einnig að setja sig í spor Bandaríkjamanna, því að með því einu er unnt að skilja óbilgirni þeirra og áleitni við íslenzk stjórnvöld, en af heimildum má ráða, að Bandaríkjamenn hafi fyr- ir alla muni viljað hafa tsland að herbækistöð vegna þess, hvernig Stalín lagði hálfa Evrópu undir sig og af ótta við frekari útþenslu- SVEINN BJÖRNSSON 0 # 1 / ■"V | HERMANNJÓNASSON | stefnu hans. Hitt er svo annað mál, og mætti ef til vill taka það upp á öðrum vettvangi, að fulltrúi Bandaríkjamanna hér á þessum árum, Dreyfus sendiherra, var ekki allur, þar sem hann var séð- ur, enda lék hann skollaleik, sem engum sendiherra er sæmandi. I grein Þórs Whiteheads kemur meðal annars í ljós að hann sendir lognar upplýsingar til stjórnar sinnar í Washington um afstöðu Ólafs Thors, afflytur mál hans með þeim hætti, að Ólafur skilur í raun og veru ekki svar Banda- ríkjastjórnar við ósk hans um frestun umræðna um her- stöðvarmálið, frá 6. nóvember 1945. Ólafur Thors og stjórnarfor- ysta Nýsköpunarstjórnarinnar stóðu svo fast í íslenzka ístaðinu gagnvart óbilgirni bandaríska sendiherrans, að aðdáun hlýtur að vekja og þakklæti í brjósti hvers þess íslendings, sem annars vegar fagnar staðfestu gagnvart áleitni útlendinga og hins vegar þvi innra þreki, sem islenzku þjóðinni er í blóð borið og hefur raunar alla tið varðað veg hennar til sjálfstæðis. Nú sjáum við’einn- ig, hvernig þetta íslenzka sjálf- stæðisþrek hefur varðað veginn eftir lýðveldistöku. Hitt er svo annað mál, að athyglisvert er að sjá, hvernig ýmsir framsóknar- menn hafa brugðizt við átökunum 1945, eins og þau birtast í skýrsl- um Dreyfusar. Enginn efar, að Framsóknarflokkurinn stóð jafnvel gegn erlendri ásælni og stjórnarflokkarnir, en leiðtogar Framsóknarflokksins virðast þó hafa leikið venjulegan skollaleik hér á landi, þegar um pólitisk völd er að tefla, og svo virðist sem þeir hafi talað upp í eyrun á Bandaríkjamönnum og reynt að ná fram valdatakmarki sinu hér á landi með ýmiss konar henti- stefnu. Raunar er ekkert við því að segja, svo mjög sem öll stjórn- málabarátta, ekki sízt hér á landi, er henti- og tækifærisstefna og er t.d. afstaða núverandi stjórnar- andstöðu til landhelgisbar- áttunnar glöggt dæmi um það sama að hvorki þá né nú hafa íslenzkir stjórnmálamenn hikað við að nota hin viðkvæmustu utanrikismál sjálfum sér og flokkum sinum til framdráttar í baráttu um völdin innanlands. Forystumenn allra íslenzkra stjórnmálaflokka stóðu augsýni- lega gegn langtíma herstöðvum hér á landi en um það snerust óskir Bandaríkjamanna, enda þótt þeir næðu þeim aldrei fram eins og kunnugt er. Islendingar höfnuðu þessum óskum. Þær voru stundum bornar fram af mikilli óbilgirni af hálfu fyrrnefnds sendiherra Bandaríkjamanna, en auðvitað var hann ekki að túlka málstað Islendinga í þessum átökum heldur stjórnar sinnar, og skulu menn varast að ímynda sér annað en ríkisstjórnir, hvort sem þær eru rikisstjórnir einvalda- eða lýðræðisríkja, hugsi fyrst og síðast um eigin hagsmuni, og verða þeir í flestum tilfellum ofan á, jafnvel þegar vinveitt ríki eiga hlut að máli. Aftur á móti virðist af þessum gögnum sem ýmsir aðstandendur Utanþings- stjórnarinnar hafi með öllum ráðum viljað koma Nýsköpunar- stjórninni frá völdum, og þá með aðstoð Bandaríkjamanna, enda áttu Bandaríkjamenn að því er virðist miklum vinum að fagna í röðum utanþingsstjórnar manna. Þeir virðast hafa átt þá ósk heitasta að sprengja stjórn Ölafs Thors og ekki sízt að ryðja kommúnistum úr Nýsköpunar- stjórninni, en á því varð bið — og raunar tókst engum að koma kommúnistum úr stjórninni nema son sagði við Ölaf Thors, að kommúnistar ættu ekki sizt aðild að Nýsköpunarstjórninni til að koma í veg fyrir aðstöðu Banda- ríkjamanna hér á landi. Fleiri skjöl eru til um ýmis atriði þessa máls, sem fróðlegt væri að minnast á við önnur tækifæri, en niðurstaðan af grein Þórs White- heads er sú að lslendingar létu ekki segja sér fyrir verkum. Sú niðurstaða er rétt. Leiðtogar Sjálfstæðisflokksins höfðu um það forystu að hrinda áleitni Bandaríkjamanna af höndum sér og ákveða, að Islendingar sjálfir mörkuðu eigin stefnu í utanrákis- og öryggismálum, enda varð sú stefna ofan á, og hafa íslenzk stjórnvöld ávallt síðan markað öryggisstefnu sína samkvæmt þessum ákvörðunum, enda þótt frávik hafi orðið á hentistefnu- timum vinstri stjórna í landinu, eins og kunnugt er. Bandarfkjamenn komu til tslands 7. júlf 1941 samkvæmt herverndar- samningi rfkjanna. A myndinni sjást Reykvíkingar horfa á fyrstu bandarfsku herskipin nálgast Reykjavfkurhöfn þennan dag. ÓLAFUR THORS þeim sjalfum, þegar þeir vegna skammsýni féllust ekki á Kefla- víkursamninginn, þó að þar væru jafnvel ákvæði um að bandaríski herinn skyldi hverfa af landi brott. Þegar upp var staðið voru Bandaríkjamenn ekki ánægðir með árangur af erfiði sínu. Islenzkir ráðamenn voru ákveðnir í því að móta sjálfir utanríkis- og öryggisstefnu sína, eins og síðar kom í ljós, því að Bandaríkjamenn fengu enga að- stöðu hér á landi, fyrr en íslenzk stjórnvöld voru orðin sannfærð um, að öryggi Islands væri bezt borgið með aðild að Atlantshafs- bandalaginu og varnarstöð Bandarikjamanna hér á landi. Skammsýni kommúnista 1946 er eldur sem enn brennur á þeim, enda má ætla að afstaða þeirra hafi m.a. mótazt af þeirri ,,linu“ sem þeir fengu frá Moskvu, þ.e. að hindra að Bandaríkjamenn fengju aðstöðu hér á landi i hvaða mynd sem væri, enda eru til skjöl þess efnis, að Brynjólfur Bjarna- Niðurstöður: Lágmarksréttindi Þór Whitehead segir í niður- stöðum sínum: „Að áliti banda- riska utanríkisráðuneytisins var Keflavíkursamntngurinn „það bezta sem hægt var að ná fram undir núverandi kringumstæðum i stjórnmálum íslands". Banda- ríkin hefðu hlotið „lágmarks- réttindi“ fyrir niðurfellingu her- verndarsamnings. Frá bæjardyr- um yfirherráðsins og þeirrar stjórnardeildar, er fóru með hermál, var samningurinn talinn meingaliaður. 1 júní 1946 hafði yfirherráðið skipað lslandi efst á blað í nýrri herstöðvaáætlun. I águst lagði flotamálaráðuneytið til, að reynt yrði að halda her- verndarsamningnum við lýði, þótt setuliðið yrði kallað brott. Allt til loka samningaviðræðnanna í Reykjavík hélt ráðuneytið fast við kröfuna um leguréttindi herskipa f íslenzkri landhelgi. Hermála- ráðuneytið taldi að við niður- fellingu herverndarsamningsins mætti „gefa út einhliða yfir- lýsingu (af Bandaríkjastjórn), er miðaði í þá átt að aftra öðrum ríkjum frá því að afla herstöðvar- réttinda á Islandi og legði jafn- framt grunninn að því framtíðar- verkefni okkar að ná öllum að- kallandi hernaðarmarkmiðum", eins og segir í einni þeirra bandarísku heimilda, sem Þór Whitehead hefur fundið og notar við samningu ritgerðar sinnar. „I afstöðu lýðræðisflokkanna til Keflavikursamnings má í fyrsta lagi greina hagnýt skammtíma- sjónarmið. Rekstur flugvallarins var Islandi ofviða. Samningurinn tryggði framtíð flugstöðvar í Keflavik og gaf fyrirheit um fjár- hagslegan ábata. Þessi atriði hefðu þó aldrei rekið Ölaf Thors til þess að tefla stjórnarsamvinn- unni í tvisýnu." Og Þór Whitehead lýkur grein sinni á þessum orðum: „Með Keflavíkur- samningnum var stigið skref til lausnar þeim viðfangsefnum í öryggis- og viðskiptamálum, sem blöstu við tslandi í stríðslok. Samningurinn átti að treysta þau nánu bönd, sem myndazt höfðu við vesturveldin á ófriðarárunum. Hann átti að vera Islandi lág- markstrygging gegn markaðs- hruni og kreppu — skjól til þess að laga utanríkisverzlunina að nýjum kringumstæðum í strfðshrjáðum heimi. Hann átti að veita vörn gegn þeim hættum, er ráðamenn töldu lýðveldinu stafa af Rússlandi Stalíns og alþjóð- legum kommúnisma i gervi Sósíalistaflokksins. Kefla- víkursamningurinn gekk skemmra en þær hugmyndir um lausn öryggismála, sem ríkjandi voru meðal leiðtoga iýðræðis- JÓNAS FRÁ IIRIFLU I DREYFUS VILHJALMUR þór flokkanna haustið 1945. Banda- ríkjamenn gáfu flokkunum hvorki ráðrúm né tíma til þess að semja um gagngerari lausn. Að því leyti var samningurinn af- sprengi bandarískrar óbilgirni. En i sögulegu tilliti varðaði hann veg- inn frá hlutleysi til varnarbanda- lags við þau ríki, sem Island hafði deilt með örlögum í stríði." Dreyfus — vond heimild Að lokum verður ekki hjá því komizt að minna enn einu sinni á hversu slæm heimild Dreyfus er. Sést það bezt á því, eins og fyrr greinir, að hann lýgur beinlínis að stjórn sinni til að koma málum sínum hér á landi í þá höfn, sem hann ætlar sér, enda er það al- kunna að diplómatar reyna að þóknast stjórnum sínum eins vel og unnt er, svo að þeir geti hækk- að i metorðastigum og sýnt árangur af erfiði sínu. Þetta er alkunna úr sögu diplómatfskra viðskipta, en sú ódiplómatíska frekja, sem Dreyfus sýnir íslenzk- um stjórnmálaleiðtogum verður að lokum sá eldur, sem brennur á honum sjálfum. Þó að hann hafi sýnt íslendingum vissa vinsemd, til að mynda í sambandi við lýð- veldistökuna 1944 og aðild Islend- inga að Sameinuðu þjóðunum 1946, er út í hött að byggja við- horf okkar nú til atburða þess^ tímabils á tilvitnunum í málflutn- ing hans, svo brenglaður sem hann augsýnilega er. Skýrslur hans sýna í raun og veru ekkert annað en hugmyndaheim hans sjálfs og þann erindis rekstur sem hann telur sig eiga við íslendinga. Þetta verðum við að hafa í huga, ekki sízt þegar hann tíundar vin- áttu ákveðinna Islendinga við Bandaríkin með þeim afleiðing- um, að þeir hafa jafnvel verið kallaðir Bandarikjaleppar, og má þar tilnefna Jónas Jónsson frá Hriflu og Vilhjálm Þór, sem sendiherrann kallar bezta vin Bandaríkjanna. Fyrsti forseti lýð- veldisins, Sveinn Björnsson fer jafnvel ekki varhluta af þessu, þó að enginn hafi leyfi til að draga ættjarðarást hans í efa. Ýmsir vildu, að kommúnistar færu um- fram allt úr ríkisstjórninni og töldu náið samstarf við Banda- rikin Islendingum fyrir beztu. En málefnalega gengu þessir menn of langt, á þvi er lítill vafi, en auðvitað höfðu þeir heimild til þess að treysta á Bandaríkin með þeim hætti, sem þeir gerðu, enda þótt okkur hinum þyki engin ástæða til að veðja á stórveldi með þeim hætti og teljum, að umgang- ast beri öll stórveldi með varúð, hverju nafni sem nefnast. Markmið Jónasar frá Hriflu og Vilhjálms Þór verður þó að skoða í ljósi þess að skýrslur Dreyfusar eru sizt af öllu fallnar til þess að sýna afstöðu manna og flokka til þess, sem gerðist á íslandi árin 1945 og 1946. Dreyfus virðist ekki geta unnt neinum sannmælis, sem ekki vildi hlusta á kröfur hans og stjórnar um langtíma herstöðvar á Islandi, en gælir við hina, sem á slíkt hlusta af ýmsum ástæðum, bæði vegna dálætis á Bandaríkj- unum og haturs á ríkisstjórn Ólafs Thors, sumir vafalaust einn- ig vegna haturs á kommúnistum, og aðild þeirra að stjórninni. En í úttekt sem þessari er nauðsynlegt að takamið af öllum hliðum máls- ins. Það hljóta að vera til fleiri íslenzk skjöl varðandi þetta örlagaríka tímabil en Þór Whitehead hefur við höndina, og ef slík skjöl kæmu í ljós, er eng- inn vafi á því, að ýmis blæbrigði þeirrar myndar, sem hann dregur upp, mundu breytast, enda þótt heildarmyndin sé vafalaust rétt, og þær niðurstöður, sem hann dregur af þeim plöggum, sem hann vinnur úr. Á einum stað segir Þór Whitehead til að mynda: „Við samanburð á þess- um frásögnum (þ.e. frásögnum Ólafs Thors og Dreyfusar í sam- bandi við svar Ólafs Thors til Bandaríkjastjórnar 6. nóvember 1945, þar sem hann tekur ekkert undir kröfur Bandaríkjastjórnar og vill drepa málinu á dreif með því að fresta því) vakna þær grunsemdir, að sendiherrann hafi af ráðnum hug vanrækt að skýra yfirboðurum sínum frá aðal- atriðunum í máli forsætirráð- herrans“. Hér er sterklega að orði kveðið, en þó mætti bæta því við, að engar grunsemdir þurfa að vakna í þessu sambandi, svo aug- ljóst sem það er, að sendiherrann afflytur mál Ólafs Thors. Skýrslur þeirra Ólafs Thors og Dreyfusar eru ekki „allólikar", eins og Þór Whitehead segir, að minnsta kosti ekki þegar þær einar eru hafðar í huga, heldur gjörólíkar- og raun- ar er það fagnaðarefni, að Þór Whitehead skuli hafa haft minnisblöð Ólafs Thors við hönd- ina, þegar hann ritaði grein sina, svo gjörólíkt sem efni þeirra er allri þeirri brengluðu óskhyggju og afvegaleiðandi þrjósku og þrákelkni, svo að ekki sé talað um þá frekju og yfirgang, sem ein- kennt hefur Dreyfus í máli þessu, eins og fram kemur í skýrslum hans og minnismiðum. Má raunar varpa þeirri spurningu fram, hvort nokkur heil brú væri í mál- flutningi, sem byggði eingöngu á einhliða mati á skýrslum diplómata eins og Dreyfusar, svo fáranlegar sem þær eru oft og einatt. Tilvitnanirnar í Dreyfus eru þó athyglisverðar, því að hann var aðalsamningamaður Bandarikjamanna og fulltrúi hér á landi og nauðsynlegt að skyggn- ast um í hugskoti þess, sem rak erindi annarra en Islendinga. Að öllu þessu samanlögðu eru um- mæli hans um einstaka Islend- inga, hvort sem þeir heita Jónas frá Hriflu, Vilhjálmur Þór, Hermann Jónasson eða „tækifærissinninn" Ólafur Thors, í raun og veru dauð heimild og ómerk, sem a.m.k. verður að taka með miklum fyrirvara. En fram- sóknarmenn með þessa forystumenn sína i fararbroddi virðast hafa notað heldur ógeð- felldar aðferðir til að bola Nýsköpunarstjórninni frá. Það sýna m.a. heimildir sem enn hafa ekki séð dagsins ljós. Og vitaskuld voru menn misjafnlega hallir undir bandamenn — og þá ekki sizt Bandaríkjamenn og Sovétrik- in — á þessum árum. En spyrja má til gamans: hvernig hefði slík úttekt orðið, eins og sú sem um hefur verið fjallað í þessu Reykjavíkurbréfi, þar sem ekki hefði verið unnt að byggja á öðrum heimildum en þeim bandarísku, svo varhuga- verðar sem þær virðast oft vera? Þór Whitehead fékk minnisblöð Ólafs Thors i hendur og hefur sagt við þann, er þetta ritar, að það hafi breytt myndinni í veru- legum atriðum. Við eigum ekki að láta Bandaríkjamenn eða ein- hverja útlendinga meta íslenzka sögu, það eigum við að gera sjálfir — og taka erlendum heimildum með varúð. En þá verðum við líka að veita ábyrgum fræðimönnum eins og Þór Whitehead aðgang að þeim islenzku skjölúm, sem nauð- synleg eru til að draga upp rétta mynd af íslenzkri samtímasögu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.