Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANÚAR 1977 39 Staðhæfingum um morðsamsæri gegn Kissinger vísað á bug Það er sárt að sjá á bak góðri og ástrikri eiginkonu, elskulegri og umhyggjusamri móður, tengda- móður og ömmu, en trúin á að okkar bíði betra lif hinumegin landamæranna mildar þá sorg og bið ég góðan Guð að styrkja hennar nánustu. Við bróðurbörn Lóu frænku og fjölskyldur okkar þökkum henni fyrir allt og allt og óskum henni Guðs blessunar á sinni nýju tilverubraut. Dagmar Washington, 14. janúar. Reuter. BANDARlSKA utanríkisráðu- neytið visaði f dag á bug staðhæf- ingum New York-blaðsins „Daily News“ um að í fyrrakvöld hafi aðstoðarmaður Kissingers utan- rfkisráðherra komizt á snoðir um samsæri fsraelskra öfgamanna um að ráða Kissinger af dögum. I fregn blaðsins segir, að I.ikud- flokkurinn, sem er f stjórnarand- stöðu í tsrael, hafi greitt 150 þús- und dali til að koma ráðherranum fyrir kattarnef. Fulltrúi utanríkisráðuneytisins lét svo um mælt í þessu sambandi í dag: „I samræmi við þá reglu að ræða ekki sögusagnir um ákveðn- ar hótanir skal þess getið, að við höfum aldrei fengið upplýsingar um hótanir, sem rekja má til stjórnmálaflokka í Israel, eða hópa innan ísraelskra stjórnmála- flokka, og þar er hinn tilgreindi Likud-flokkur meðtalinn.'* Leiðtogi Likud-flokksins, Menahem Begin, sagði i dag, að ásakanir blaðsins væru út í hött og hefðu svo fáránleg brigzlyrði aldrei birzt í nokkru dagblaði fram að þessu, en leyniþjónusta Bandaríkjanna vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið. Nánar tiltekið segir „Daily News“ að klofningshópur innan Likud-flokksins hafi greitt leigu- morðingjum 150 þúsund dali fyrirfram, en tilgangurinn með þvi að ráða Kissinger af dögum væri að koma fram hefndum vegna þess að hann hafi ekki gætt hagsmuna Israelsmanna sem skyldi i afskiptum sínum af deilu- málum fyrir botni Miðjarðarhafs. Lovísa Eyjólfsdótt- ir—Minningarorð Lóa frænka er látin. Hún lést á St. Jósepsspítala i Hafnarfirði að morgni 7. janúar. Fullu nafni hét hún Anna Dagmar Lovisa Eyjólfs- dóttir. Hún fæddist a Sauðárkróki 12. júlí 1907 og var næst yngst af 8 börnum þeirra Eyjólfs Isaks- sonar og Sólveigar Hjálmars- dóttur. Niu ára gömul fluttist hún til Hafnarfjarðar og siðan til Reykjavíkur ásamt foreldrum. sínum og yngri systkinum. Eru nú aðeins þrjú eftirlifandi af syst- kinahópnum, þau Margrét, húsfreyja á Eyrarbakka, Haraldur, fyrrum bóndi í Gauts- dal, nú búsettur á Blönduósi, og Sigrún, húsfreyja í Reykjavík. Látin eru María, sem lést í ágúst á síðastliðnu ári, Ágústa d. 1962, Ferdinand, d. 1946, og Vilhjálm- ur, d. 1951. Lóa frænka, eins og hún var alltaf kölluð af okkur systkinunum og fjölskyldum okkar, hefir alla tið , verið uppáhaldsfrænka okkar og var okkur sem önnur móðir alla tið og þá ekki síst eftir að móðir okkar lést fyrir 26 árum siðan. Ávallt hefir hún munað eftir afmælis- dögum okkar og barna okkar og meira að segja barnabarna minna. Hún var ávallt vakandi yfir hag okkar og bar hag okkar eigi síður fyrir brjósti heldur en sinna eigin barna og barnabarna. Lóa var stórglæsileg kona og höfðingleg i allri framkomu. Ég man alltaf eftir þvi, er ég 8 ára gömul horfði á hana leika álfkonu í leikriti á jólatrésskemmtun, sem ég var á. Ég var svo montin, að mig langaði mest til að kalla það upp yfir alla, að þessi fallega kona væri frænka min. Lóa frænka giftist eftirlifandi manni sinum, Sigurði Hannessyni, 14. nóvember 1942. Á fyrstu hjúskaparárum sínum ættleiddu þau tvö börn, Pálma, sem kom til þeirra aðeins tveggja tíma gamall, og Stellu, sem var fárra mánaða er þau fengu hana. Seinna ólu þau upp dótturson sinn Sigurð, sem nú er 18 ára. Sýnir það best, hvern mann Lóa frænka hafði að geyma, að samt hafði hún alltaf tíma til að liðsinna öllum öðrum, sem einhverrar hjálpar þurftu með. Hún stóð reyndar aldrei ein, -með annan eins mann og Sigurð sér við hlið, enda voru þau hjónin einstaklega samhent í einu og öllu og öll sambúð þeirra byggð á fölskvalausri ást og djúpri virðingú. Árum saman stundaði Sigurður sjómennsku og var þá langdvöl- um að heiman og varð Lóa þá að vera bæði húsmóðir og húsbóndi á heimilinu. Þau hjónin höfðu ráðgert að fara til Kaupmannahafnar næsta sumar í tilefni 70 ára afmælis hennar, en eftir að hún hafði snögglega þurft að gangast undir uppskurð, um miðjan október sl., og hennar nánustu gerðu sér grein fyrir, hve stuttan tíma hún gæti átt eftir hér í þessu lífi, var ákveðið að þau hjónin færu i þessa fyrirhuguðu ferð strax og hún væri orðin nógu hress til að treysta sér. Dvöldu þau í þrjár vikur á heimili Aðalheiðar, bróðurdóttur Lóu og fengu þar tækifæri til að uppiifa ýmislegt, sem slegið hafði verið á frest i gegnum árin. Heim komu þau svo á Þorláksmessudag og áttu saman jólin með börnunum og barna- börnunum, en hinn 28. desember lá leið hennar aftur á spitalann og var þá stutt i skilnaðarstundina. Afmælis- og minn- ingar- greinar Að marggefnu tilefni skal athygli vakin á þvi, að af- mælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðvikudagsblaði, að berast i sfðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Sé vitnað til ljóða eða sálma skal höfundar getið. Grein- ariiar þurfa að vera vélrit- aðar og með góðu lfnubili. AUGLÝStNGASÍMINN ER: 22480 jnorgmnbliibiþ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.