Morgunblaðið - 16.01.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANUAR 1977 19
t tfzkuverzlun unga fólksins Karnabæ var
móðurinni færð peysa að gjöf, og hér sést
Erlendur Borgþórsson verzlunarstjóri af-
henda Þorbjörgu peysuna.
Happdrætti Háskóla tslands færði hinum
nýja þjóðfélagsþegn ársmiða f happdrætt-
inu, og það er Björn Björnsson fulltrúi
happdrættisins sem hér afhendir miðann.
Hressó gefur skfrnartertuna. Hér er Sig-
mundur Smári Stefánsson yfirbakari
Hressingarskálans að afhenda for-
eldrunum gjafabréf fyrir tertunni.
Það er ekki amalegt að vera sparifjár-
eigandi strax á fyrstu dögum lífsins, en
dóttirin eignaðist einmitt eina slfka með 15
þúsund krónum í, frá Búnaðarbankanum.
Það er Stefán Þormar Guðmundsson
deildarstjóri, sem hér afhendir þessa gjöf
Búnaðarbankans, ásamt sparibauk.
Hjá Reykjalundi við Suðurgötuna beið
barnsins stór kassi fullur af Lego Duplo
Legokubbum, og hér er það Jón Benedikts-
son sem afhendir þá.
NAUST
Loks var svo komið á Naustið. Geir Zoega
bauð fararfólki upp á kaffi og pönnukökur.
Við það tækifæri afhenti Geir foreidrunum
boðsbréf til kvöldverðar áNaustinu.
Þá var komið f Austurstrætið og efst á
horninu er tfzkuverzlunin Bonaparte. Sú
verzlun færði föðurnum skyrtu eftir eigin
vali að gjöf. Það var Sigrfður Hermanns-
dóttir afgreiðslustúlka sem afhenti Kristni
skyrtuna.
(Ljósmyndir — Friðþjófur)
Þær mynduðu nokkuð stóra hrúgu gjafirnar frá fyrirtækjunum þegar
þeim hafði verið komið fyrir heima. Litla dóttirin, barn ársins 1977,
var sofandi þegar Morgunblaðið barjið og lét myndatökuna Iftið á sig fá
— og svaf vært. Það er því ekki hægt að segja að umstangið hafi haft
mikil áhrif á þennan fyrsta þjóðfélagsþegn ársins, en stúlkan á
vafalaust eftir að njóta gjafanna vel.