Morgunblaðið - 16.01.1977, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANUAR 1977
35
— Farsóttir
Framhald af bls. 23
lögðu land undir fót. Hafa sýklar
fellt fleiri menn en dóu fyrir
vopnum. Napóleon missti fleiri
menn úr taugaveiki en vopndauð-
ir urðu. 1 Krímstrfðinu 1854—56
urðu tíu sinnum fleiri brezkir
hermenn sóttdauðir en féllu fyrir
byssum Rússa. Jafnvel í Búastrfð-
inu um aldamótin síðustu voru
vopndauðir í liði Breta aðeins
fimmtungur allra fallinna; hinir
létust af sjúkdómum. Það var
ekki fyrr en i strfðinu milli Rússa
og Japana árið 1904, er Japanir
tóku upp bólusetningu í hernum,
að vopndauðir urðu fleiri en sótt-
dauðir.
En farsóttir geisa á friðartím-
um ekki síður en stríðstimum.
Frægasta farsótt, sem um getur;
var svarti dauði. Svarti dauði
mun hafa borizt frá Kfna og
Mansjúriu með Mongólum,-sem
æddu vestur yfir eins og kunnugt
er. Gerði sóttin stórfelldan usla í
Asíu áður en hún barst sjóleiðina
til Evrópu. En þar hjó hún stór
skörð. Á fáeinum árum, frá
1346—1350 eða þar um bil, drap
hún þriðjung allra Evrópubúa og
riðuðu þjóðfélagsskipan og
stjórnskipan f álfunni til ^alls á
eftir.
Ýmislegt hefur áunnizt í barátt-
unni við smitsjúkdóma og má
nefna fúkalyf og almennar bólu-
setningar. Af þessum sökum eru
nú sumar gamalkunnar sóttir úr
sögunni, a.m.k. í mörgum löndum.
Og aðrar, sem forðum voru öllum
skæðar, mislingar og hlaupabóla
t.d., eru orðnar barnasjúkdómar
einungis og börn, sem fá þá verða
ónæm við þeim það, sem eftir er
ævinnar. Nærri er búið að útrýma
bólusótt. Kólera breiðist hvergi út
í stórum stíl lengur, nema hvað
hún er enn viðvarandi sums stað-
ar í austurlöndum. Má þakka
þetta stórfelldum framförum f
heilsugæzlu og læknavisindum.
En William NcNeill bendir á það,
að þrátt fyrir aukna þekkingu og
eftirlit séu menn ennþá jafn ber-
skjaldaðir við sýklum og áður.
Það er margsýnt, að sýklum veit-
ist auðvelt að laga sig að misjöfn-
um aðstæðum og mun auðveldara
en mönnum. Sýklar geta þrifizt
bæði í dýrum og mönnum og bor-
izt á milli þeirra. Þess er skammt
að minnast, er svínaflensa kom
upp aftur ímönnum eftir margra
áratuga hlé og er ekki enn séð
fyrir endann á henni. Ekki er að
vita, nema einhver annar sýkill
fari yfir mörkin f stórum stíl á
næstunni. Og ekki verður heldur
séð, hver áhrif það gæti haft á
gang sögunnar.
Mjólkurbúð
til leigu að Bræðraborgarstígi 47
Umsóknir sendast til skrifstofu Byggingafélags
Alþýðu, Bræðraborgarstíg 47, R fyrir laugar-
daginn 22. janúar 1 977.
Stórglæsilegt iðnaðar og
verzlunarhúsnæði í Kópavogi
Höfum til sölu í miðbæ Kópavogs húseign á
þremur hæðum samtals röskir 1 100 fm og er
húseignin í mjög góðu ástandi. Á 1. hæð sem
er um 450 fm er mjög gott verzlunarpláss. Á 2.
hæð innkeyrsla um 345 fm, er góðir möguleik-
ar fyrir verzlun, skrif.stofu og iðnaðarhúsnæði.
Á 3. hæð sem er um 345 fm er sérstaklega
heppilegt skrifstofu og iðnaðarhúsnæði.
Til greina kemur hvorttveggja að sélja húseign-
ina alla einum aðila eða hverja hæð fyrir sig.
Uppl. gefur Sigurður Helgason hrl., Þinghóls-
braut 53, Kópavogi, sími 42390.
GÓÐ BÚJÖRÐ
í ÁRNESSÝSLU
Til sölu er 1 50 ha bújörð sem hentar vel fyrir
kúabúskap. Góðar byggingar og mikil ræktun
sem auðvelt er að auka. Ný vatnsveita, sjálfvirk-
ur sími og malbikaður vegur í bæjarhlaðið.
Vélar og bústofn fylgja. Gæti vel hentað fyrir
tvær fjölskyldur. Laus til ábúðar á næstu far-
dögum.
FASTEIGNIR S.F. Austurvegi 22, Selfossi,
sími 99-1884 e.h. virka daga
Sigurður Sveinsson lögfr.
Vinsælu hanzkaskinnsskórnir nýkomnir.
Laugavegi 60,
Póstsendum.
Verksmiðjuútsala
Efnisbútar úr terylene, flaueli og denim.
Barnabuxur, dömukápur, dömublússur, denimfatnaður o.m.fl.
Klæði h.f. Skipholti 7, sími 28720.
Innflytjendur —
Heildsalar
Erum kaupendur að vörum sem eru gall-
aðar, skemmdar farnar úr tísku o.s.frv.
Þeir sem kynnu að hafa áhuga á að selja
slíkar vörur leggi nafn og símanúmer á
afgr. Mbl. sem fyrst merkt „Beggja hagur
— 1311".
Dðle Carnegie
Hérna getur þú
dæmt um það, hvort
Dale Carnegie
námskeiðið gæti
komið þér að gangi.
Til þess að gera þetta og
áður en þú þiggur boð
okkar að koma á kynning-
arfund, leggt ég til, að þú
spyrjir sjálfan þig eftir-
farandi spurninga:
Vilhjálmur
Vilhjálmsson
kennari
Konráð
Adolphsson
skólastjóri
Stjórnunarskólinn hefur hlotið
verðtaun I alþjóða samkeppni
Carnegie manna. þrjú ár I róð,
fyrir árangur í kennslu og
starfi
★ Óskar þú þess oft. að þú hefðir betra starf?
★ Ef þú ert ekki stöðugt að bæta við þig I starfi, hefur þú kjark til l
þess að ræða málin við yfirmann þinn?
if Ef yfirmaður þinn biður þig, að takast á hendur meiri ábyrgð. ert
þú fær um að segja já, strax i stað þess að hugsa ..Skyldi ég
geta þetta"?
it Hefur þú nauðsynlega sjálfsstjórn til þess að geta tekið
ákvarðanir?
ir Geturðu tjáð þig af óryggi i samræðum eða á fundum?
it Finnst konunni þinni (eða eiginmanni) á þú sért „karl i krapinu"
og þið Jifið hamingjusömu f jólskyIdulifí?
it Finnst þér þú hafa of miklar áhyggjur?
it Er óll sú ánægja og hamingja i llfi þinu, sem ætti að vera?
it Vilt þú frekar hlaupa eínn kilómetra heldur en „standa upp og
segja nokkur orð?
it Hefur þú stjórn á hlutunum, þegar allt fer úr skorðum?
it Getur þú fengið fjolskylduna. vini og samstarfsmenn til að gera
það fúslega. sem þú stingur upp á?
64 ára reynsla okkar segir, að vandamál sem þessi, skapa truflun
og draga úr afkostum heima og i starfi. Ef að við getum losað okkur
við þau, verður Iffið þýðingarmeira og ánægjulegra
Oale Carnegie námskeiðin hafa hjálpað tveimur milljónum manna
og kvenna i 50 lóndum og eru þátttakendur úr ollum stéttum
þjóðfélagsins frá 15 — 75 ára. Allir þátttakendur hafa eitt sameig-
inlegt og það er ósk um meiri hæfni og framfarir.
ÞÚ GETUR SJÁLFUR DÆMT
um það hvernig Dale Carnegie námskeiðið getur hjálpað þér og
hvernig það hefur aðstoðað fjölda manns að fé stöðuhækkun. hærri
tekjur. viðurkenningu og meiri hamingju út úr tifinu.
Þú munt heyra þátttakendur segja frá þvi, hversvegna þeir tóku
þátt i námskeiðinu og hver var árangurinn.
Þú ert boðinn ásamt vinum og kunningjum, að lita við hjá okkur,
án skuldbindinga eða kostnaðar Þetta verður fræðandi og
skemmtilegt kvöld er gæti komið þér að gagni. I DAG ER ÞITT
TÆKIF/ERI
Næsti kvnninqarfundur verður haldinn 18. janúar
1977 aS SiSumúla 35 uppi
Einkaleyfi á islandt
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konráð Adolphsson.
SÍMI 82411.
" ÚTSALA--------------------ÚTSALA ~
Peysur, bútar og garn.
Anna Þórðardóttir h.f. prjónastofa, Skeifunni 6, vesturdyr.