Morgunblaðið - 16.01.1977, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANUAR 1977
Þorleifur Jónsson
Jónssen - Minning
Fæddur 13. ágúst 1908.
Dáinn 8. janúar 1977.
Séra Matthías spyr sjálfan sig
hvaó dauðinn sé raunverulega og
svarar:
ilvað rr llel?
Ollum þeim sem lifa vel
Kngill, sem IiI Ijóssins leiðir,
Ljósmóðir, sem hvflu reiðir,
Sólarbros er birta íl,
Heitir llel.
Þetta eitt af mörgum, mörgum
gullkornum séra Matthíasar finnst
mér tilheyra vel þeím manni sem
eg undirritaður minnist hér, og
sem verður óhjákvæmilega að
miklum vanmætti hjá mér og
verður aðeins lítið kvæði af kynn-
um mínum af vini mínum Þorleifi
og hinni ágætu og manndómsriku
Suðureyrarfjölskyldu sem mér og
fjölskyldum minum er mjög kær.
Jón Einirs Guðmundsson, vel
greindur og góður maður, sem ólst
upp á Suðureyri hjá afa sínum og
ömmu, J. Th. Jónssen og Þórdisi
Jónsdóttur, skrífar afmælisgrein
um Gróu móður Þorleifs þegar
hún var 80 ára, og langar mig til
með leyfi greinarhöfundar að taka
hér upp á blað þetta nánustu ætt-
liði míns góða vinar Þorleifs.
Kunnátta mín í þeim efnum er
takmörkuð þó að ég viti að vísu um
hans nánustu ættmenni. Þorleifur
var fæddur eins og áður var getið
hinn 13. dag ágústmánaðar 1908 að
Suðureyri við Tálknafjörð. Faðir
hans var Jón Jónsson bóndi og
útgerðarmaður að Suðureyri,
sonur Jóns Þorlleifs Jónssonar
Jónssen, bónda á Suðureyri.einn
16 barna hans, og má rekja þann
karllegg til Jóns er kallaður var
bóndi og bjó Jón sonur hans á
Suðureyri siðari hluta 17. aldar.
Telur Ölafur prófessor Lárusson
er reit um Jónssen látinn að
Suðureyri hafi haldist i sömu ætt-
inni um 4 aldir. Móðir Jóns yngra,
eins og hann var almennt kallaður,
var Þórdis Jónsdóttir, skipherra á
Steinanesi og voru þeir bræður
Þorleifur kaupmaður i Bílduudal,
faðir Jons eldra, og Jón skipherra,
faðir Þórdisar. Móðir Þórdísar var
Margrét Sigurðardóttir prófasts á
Hrafnseyri systir Jóns forseta, og
er sú ætt alkunn og auðrakin.
Móðir Þorleifs var Gróa Indriða-
dóttir, fædd að Naustabrekku,
Rauðasandshreppi, 13. ágúst 1879,
með afbrigðum góð og elskuleg
kona, dóttir hjónanna Indriða
Indriðasonar og Guðrúnar
Magnúsdóttur, sem ég mun minn-
ast siðar. Foreldrar Indriðæ 3'
Naustabrekku voru Indriði
Pétursson frá Trostansfirði og
Margrét Magnúsdóttir kona hans.
Allt er þetta merkis- og sæmdar-
fólk, sem ég hefi sjálfur kynnst.
Af ofanskráðu má sjá að vinur
minn Þorleifur og Suðureyrarfjöl-
skyldan þarf ekki að leita langt
fram í ættir til drengskapar og
gæða.
Þorleifur var einn af þessum
sérstöku persónum sem öllum sem
kynntust þótti vænt um og dáðu.
Hann var öruggur i loforðum, ljúf-
menni og góður i allri umgengni.
Barngóður svo af bar, enda mun
litlum frændkonum hans og
frændum hafa þótt eins vænt um
hann og besta föður. En þótt Þor-
leifur væri ekki að láta sérstaklega
á sér bera var hann hrókur alls
fagnaðar i vinahópi enda ólst hann
upp f glaðværum hópi 10 systkina
undir umsjón trúaðra og farsælla
foreldra. Slikt teljum við ung-
mennum hollt enda brást hann
ekki þvi uppeldi sem hann fékk I
foreldrahúsum um ævi alla. Eftir
lát föður sins, 30. ágúst 1943, tóku
þau systkini þrjú, Þorleifur, Guð-
rún og Þórður, við búi á Suðureyri
með móður sinni og drifu það með
Faðir okkar +
lést 1 4 janúar 1977 STEFÁN ÁRNASON, Fálkagötu 1, Börnin.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum, þeím, sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa,
ÞORSTEINS F. EINARSSONAR,
húsasmfðameistara.
Börn tengdabörn og barnabörn.
t
Jarðarför
JÓNS BJORNSSONAR,
frá Ketilsstöðum á Tjörnesi,
til heimilis að Guðrúnargötu 5, fer fram frá Fríkirkjunni i Reykjavík
þriðjudaginn 18. janúarkl 1 3 30
Fyrir hönd eiginkonu og ættingja
Hallgrímur J. Jónsson. flugstjóri.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför,
GUÐLAUGAR GÍSLADÓTTUR.
Hverfisgötu 104,B, R.
Ólafur Júlfusson,
Ólöf Anna Ólafsdóttir, Viktor Þorkelsson,
Gísli Jón Ólafsson, Margrét Berndsen,
Júlíus Sæberg Ólafsson, Sigríður I. Claessen.
+
Faðir okkar,
ODDUR ÓLAFSSON,
barnalæknir
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 18 janúar kl. 3.
Lillý Valgerður Oddsdóttir,
Runólfur Oddson, Davíð Oddsson,
Vala Agnes Oddsdóttir Ólafur Oddsson.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför sonar okkar,
dóttursonar og frænda
ARNAR SIGURÐSSONAR
Skúlagötu 5, Stykkishólmi.
Sérstaklega þökkum við af aflhug öllum þeim sem tóku þátt í leitinni að
honum Sigrún Sigurjónsdóttir, Sigurður Hjorleifsson,
íris Jóhannsdóttir, Sigurjón Helgason,
og frændsystkyni.
+
Systir mín
MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR,
nuddkona,
Laugarnesvegi 90,
sem andaðist á Sólvangi 7 janúar, verður jarðsungin frá Selfosskirkju,
þriðjudagmn 1 8 janúar kl 14
Mmningarathöfn fer fram i Aðventistakirkjunni. sama dag kl 1 0 30
Sigrlður Sigurðardóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og virðingu við andlát og útför
JÓNS ÁRNASONAR,
fyrrv. bankastjóra
Sigrlður Björnsdóttir.
Björn Jónsson. Árni Jónsson,
og fjólskyldur
+ Þökkum samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföð- +
ur og afa Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
EGILS KRISTINSSONAR jarðarför eiginmanns mins og föður okkar.
vélstjóra
Tómasarhaga 29 SIGURÐAR EINARSSONAR,
Anna Halldórsdóttir
Agnes Egilsdóttir Árni Ág. Gunnarsson Jóhanna Zoéga Henriksdóttir og synir.
og börn.
+ Þökkum hjartanlega aðstoð og vinarhug vegna fráfalls og útfarar + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hluttekningu
ÁGÚSTAR INGA GUÐMUNDSSONAR við andlát og útför
Háeyri, Vestmannaeyjum. HAFSTEINS E. HAFSTEINSSONAR,
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR Hringbraut 82, Reykjavlk,
Háeyri, Vestmannaeyjum.
GERHARD DIEDRICH HEINRICH Ása Sturlaugsdóttir,
TEGEDER Hallfríður Hafsteinsdóttir, Jarþrúður Hafsteinsdóttir,
Háeyri Vestmannaeyjum Dóra Hafsteinsdóttir, Halldóra J. Hafsteinsdóttir,
Kæru vinir, samúð ykkar er sem smyrsl á sárin Anna G. Hafstemsdóttir, Pétur V. Hafsteinsson.
Við biðjum ykkur blessunar Guðs * Ingjaldur S. Hafsteinsson.
Astvinir hinna látnu. tengdabörn og barnabörn.
miklum myndarbrag, raflýstu öll
Tiús, keyptu búvélar og margt
annað sem ekki verður talið hér.
Þegar bróðir þeirra, Þórður, flytur
til Bíldudals halda þau áfram búi á
Suuureyri, Þorleifur og Guðrún
systir hans, þar til 1964 að þau
flytja til Reykjavíkur. Á þessum
siðari árum hans á föðurerfð sinni
átti hann litinn vélbát sem hann
hafði mikið gagn og unun af og var
oftast einn um þá sjósókn. 1964
hættu þau systkin búskap að
Suðureyri og flytja til Reykjavik-
ur. Fljótlega fór hann að vinna við
Árbæjarsafn þar til hann varð að
segja því starfi lausu vegna veik-
inda sinna. 1967 kaupa þau systkin
ibúð að Laugarnesvegi 74, þar sem
hann bjó til dauðadags. Mikla un-
un hafði hann af að heimsækja
heimastaðinn Suðureyri og eyddi
þar öllurp fritímum sinum, sér til
ánægju og hressingar. Fyrir um 2
árum vildi þeim það óhapp til að
hið veglega og fallega hús að
Suðureyri brann. Hús þetta var
timburhús, tvær hæðir, norsk
teikning, mjög traust, plankabyggt
1906 og var alla tið nokkurs konar
útvörúur og sómi fjarðarins. Efir
þetta áfall byrja þau enn að prýða
staðinn með nýju og vönduðu húsi,
mér og fleiri Tálknfirðingum
finnst fjörðurinn hafa misst svip
sinn við bruna þessarar traustu
byggingar.
Trygglyndi Þorleifs vinar míns
var með eindæmum. Hann mátti
ekkert aumt sjá án þess að leggja
þvi lið ef hann sá sér færi, enda
ekki langt að sækja i ættina með
hjálpsemi og greiðvirkni.
Þegar ég nú pára um minn
trygga vin kemur að sjálfsögðu
margt í hugann af eftirminnigum
hjartans minningum um hann og
Suðureyrarfjölskylduna sem mér
og minni fjölslsyldu er mjög svo
kært eftir um 50—60 ára mikla
samveru og kynni án nokkurs
skugga. Slikra minninga er gott að
minnast i bænum sínum i ellinni.
1923 flytjum við hjónin að
Suðureyri með fyrstu dóttur okkar
I'á árs, dæturnar urðu fjórar.
Yngsta 6 ára þegar við flytjum til
Patreksfjarðar 1936. Töldum við
hjón það vera mikla gæfu þegar
við fluttum til SuðUreyrar og hafi
það haft góð áhrif á dætur okkar
að kynnast svo góðu fólki sem þar
var.
Ekki get ég skilið svo við minn-
ingar þessar að ég minnist ekki
hinnar miklu gæða- og guðstrúar-
konu Guðrúnar Magnúsdóttur,
ömmu Þorleifs, sem dætur okkar
kölluðu alltaf ömmu sína og kalla
enn þegar á hana er minnst. Ég
vona að ég halli hér ekki á neinn
þó að ég bókfesti hér að ég telji að
Guðrún Magnúsdóttir hafi verið sú
hjartahreinasta, góðgerðasamasta
og guðstrúaðsta persóna sem ég
hefi kynnst á minni löngu ævi. Það
var eins og fylgdi henni einhvers
konar birtu bjarmi og i návist
hennar leið manni alltaf svo
einstaklega vel. Þannig er það víst
alltaf með þá sem guðirnir elska,
svo fylgdu henni þessi miklu gæði
til samferðafólksins. Til allrar
hamingju eigum við hjón i fjöl-
skyldu okkar nafnið hennar til
minningar, sem er nú búin að
ljúka námi, til hjúkrunar þeim
sem útundan hafa orðið við lífs-
sköpun og meinar að gera það að
sinu lífsstarfi og ég veit að Guðrún
Magnúsdóttir verður ekki langt
frá nöfnu sinni í því mannúðar-
starfi. Blessuð veri minning þess-
arar sérstæðu, góðu og hugljúfu
konu.
Ég sá Þorleif siðast þegar hann
háði sitt siðasta strið við manninn
með ljáinn, eftir nær þriggja ára
strið sem hann vann með þraut-
seigju og án umkvörtunar. Ég sá
kyrrðina sem hvíldi yfir honum,
tilbúnum að sigla fleyi sínu yfir
móðuna miklu til strandarinnar
fögru, sem við öll siglum til.
Skáldið frá Fagraskógi segir að
þar biði vinir í varpa þegar von sé
á gesti.
Kæra Suðureyrarfjölskylda og
aðrir ættingjar og vinir hins látna,
ég og fjölskyldur mínar vottum
ykkur innilegustu samúð við burt-
köllun góðs bróður og frænda. Að
síðustu til míns trygga vinar og
systkina hans sem horfin eru
héðan af jörðu á undan honum,
Hvílið í friði, friður guðs ykkur
blessi, hafið þökk fyrir allt og allt.
Jón Guðmundsson
frá Stðra Laugardal.
Þorloifur verður jarðsettur frá Fossvogs-
kirkju á morgun, mánudag 17. jan.