Morgunblaðið - 18.01.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANUAR 1977
31
+
Faðir okkar og stjúpfaðir,
SIGURÐUR JÓNSSON,
trésmlSameistari,
Bergstaðastræti 55. Rvk.,
andaðist 1 6 jan
Elln M. Sigurðardóttir, Þórdls Sigurðardóttir,
Ruth Erla Ármannsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNHEIÐUR S. ERLENDSDÓTTIR,
Grænuhlíð 22, Reykjavík,
andaðist » Landspitalanum 1 6 janúar.
Haraldur Kristjánsson,
Börn, tengdaböm og barnabörn.
Föðurbróðir okkar +
SIGURÐUR SIGURÐSSON
Háteigsvegi 15
Reykjavik
lézt að Vifilsstöðum 1 5. janúar
Stefanía, Guðrfður, Sigríður
og Sigrún Pétursdætur.
+ Útför föður okkar
EINARS Á SCHEVING
húsasmiðs,
Hrlsateig 1 7,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudagir n 1 9 janúar kl. 1 3.30
Fyrir hönd aðstandenda.
Sigurlín Scheving, Birgir Scheving,
Árni Scheving, Órn Scheving.
+
GUÐLAUG BJÖRG JÓNSDÓTTIR,
frá Hóli í Breiðdal,
sem andaðist 13. janúar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 20 janúar kl. 3. e.h
Systkini hinnar látnu og aðrir vandamenn.
+
Sonur minn, bróðir okkar, sonarsonur og dóttursonur
LEIFUR KRISTINN SIGURÐSSON.
Samtúni 38,
andaðist 3. janúar. Útförin hefur farið fram. Þökkum hjálp og samúð
Fyrir hönd vandamanna.
Sigurður Dagnýsson.
+
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR,
Skjólbraut 4. Kópavogi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1 9 janúar kl
1 5 00
Eiginmaður, börn,
tengdabörn og barnabörn.
+
Bálför eiginmanns mlns, sonar, föður og tengdaföður,
SÆMUNDAR SIGURÐSSONAR
Gnoðavog 72,
sem lézt i Landspítalanum 8. þ m fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 1 9 jan kl 10:30
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. en þeir, sem mynnast vildu
hins látna er bent á llknarstofnanir.
Sigrlður Kristjánsdóttir,
Elln Snorradóttir,
Ása Sæmundsdóttir, Björn Bjarklind.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hluttekningu
við andlát og útför
HAFSTEINS E. GÍSLASONAR,
Hringbraut 82. Reykjavlk.
Ása Sturlaugsdóttir,
Hallfrfður Hafsteinsdóttir. Halldóra J. Hafsteinsdóttir,
Dóra Hafsteinsdóttir, Pétur V. Hafsteinsson.
Anna G. Hafsteinsdóttir Ingjaldur S. Hafsteinsson,
Jarþrúður Hafsteinsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
Minning:
Oddur Ólafsson
Oddur Ölafsson barnalæknir
varð bráðkvaddur á heimili sínu
hinn 4. janúar s.l. Hann var bor-
inn og barnfæddur Reykvíkingur,
og stóð æskuheimili hans i hjarta
bæjarins, í Þingholtsstræti 3. Þar
bjuggu foreldrar hans, Ölafur
ljósmyndari Oddsson og kona
hans Valgerður H. Briem, ásamt
sjö börnum sinum. Oddur var
næstyngstur systkina sinna. Fjöl-
skyldan í Þingholtsstræti var
vinamörg og vinaföst og atbeini
og gestrisni með þeim hætti, að
gestkomandi, sem margir voru,
fundu ekki fyrir því, þótt þröngt
væri búið.
Oddur gekk menntaveginn og
varð stúdent frá Menntaskólanum
í Reykjavik árið 1934. Þar hafði
hann verið oddviti nemenda i fé-
lagslifi þeirra, inspector scholae.
Tveimur árum siðar missti hann
föður sinn, sem varð bráðkvaddur
á vinnustað sínum, aðeins 56 ára
gamall. Oddur-reið því ekki feit-
um hesti til háskólanáms, en með
dugnaði og staðfestu og mikilli
vinnu samhliða náminu lauk
hann læknaprófi frá Háskóla ís-
lands árið 1943 með góðum vitnis-
burði. Hann stundaði læknastörf
víða um land, þar til hann réðst til
sérfræðináms i barnalækningum
í Svíþjóð.
Oddur var ekki einungis lærður
læknir. Hann var læknir í beztu
merkingu þess orðs, meðan heilsa
og auðna entist. Mér hafa sagt
samstarfsmenn hans og sjúkling-
ar, að hann hafi verið óvenju
næmur og naskur læknir. Einkum
var honum sýnt um sjúkdóms-
greiningu, fljótur er snöggt varð
að bregðast við, en jafnframt nat-
inn og laginn við ákvörðun með-
ferðar. Barnalækningar áttu vel
við Odd. Börn löðuðust að honum.
Eki verður þó sagt, að hann hafi
verið smáfriður, með kolsvart hár
og skegg. En það gerði engan
mun. Milli hans og barna varð
trúnaðarsamband frá fyrstu
stundu. Þennan eiginleika varð-
veitti hann til siðasta dags. Hann
var ekki einn þeirra lækna, sem
eru einfarar á sinni bylgjulengd.
Slikir menn eru iðulega ágætlega
menntaðir, en ná því aldrei alveg
að verða læknar, liknarar, af lífi
og sál.
Þrátt fyrir góða greind og
marga eiginleika, sem prýða mega
beztu menn, varð auðnan minni
en við virtist blasa. I Iifi hans var
skinið bjart og fagurt, meðan það
varði, en skúrarnir urðu einnig
miklir og stundum skjóllítið í
verstu hryðjunum. En Oddur
læknir var ljúfur í lund, þótt á-
móti blési. Kímnigáfa hans var
með afbrigðum skörp og kersknis-
laus. Honum voru ekki tamar til-
lærðar gamansögur, heldur bjó
hann yfir skopskyni hins daglega
lífs, þannig að honum yfirsást
sjaldnast hið spaugilega i tilver-
unni.
Oddur átti sex börn: Ólafur,
menntaskólakennari, Davíð, lög-
fræðingur, Haraldur (látinn),
Lillý Valgerður, húsmóðír,
Runólfur stúdent, og Vala Agnes,
11 ára gömul.
Eg bið góðum vini blessunar
þess guðs, sem nú geymir hann.
V.
Samkeppnisaðstaða inn-
lends fóðuriðnaðar óeðlileg
EINS og fram kom f blaðinu fyrir
helgi hefur verð á fóðurvörum
hér á landi lækkað nokkuð að
undanförnu og er þar einkum um
að ræða áhrif niðurgreiðslna
Efnahagsbandalagsins á efnum,
sem notuð eru I fóðurblöndur.
Auk innfluttra fóðurvara er
kjarnfóðurnotkun landsmanna
fullnægt með innlendunt gras-
kögglum og lætur nærri að hlutur
graskö^glanna sé um 10% af ár-
legri kjarnfóðurnotkun. Vegna
lækkunar innfluttra fóðurvara
hefur verð á íslenskum grasköggl-
um orðið óhagstæðara í saman-
burði við erlent kjarnfóður.
— Við sem framleiðum og
seljum grasköggla hér á landi
teljum þá samkeppnisaðstöðu,
sem við nú stöndum i mjög óeðli-
lega og ekki vænlega til að fram-
fylgja því stefnumiði að við
flytjum sem mest af okkar kjarn-
fóðurframleiðslu inn i landið,
sagði Árni Jónsson landnáms-
stjóri er blaðið ræddi við hann i
gær. íslensku graskögglafram-
leiðendurnir verða nú að keppa
við niðurgreitt fóður frá EBE á
sama tíma og öll nágrannalönd
okkar tryggja fóðurframleið-
endur sína gagnvart slíku. Verð á
graskögglum var ákveðið i haust
með tilliti til framleiðslukostn-
aðar og i samræmi við verð á
innfluttu fóðri. Sala kögglanna
hefur verið eðlileg og jöfn fram
aó þessu enda þótt verð þeirra
hafi eins og undanfarin ár verið
litið eitt hærra en innflutt kjarn-
fóður, sagði Árni. Fram kom hjá
Árna að um H af graskögglafram-
leiðslunni frá sl. sumari væri nú
seldur og farinn frá verk-
smiðjunum og væri það líkt hlut-
fall og undanfarin ár. Búið væri
að afgreiða 2500 tonn en eftir
væru um 5000 tonn en nokkuð
væri komið af pöntunum til verk-
smiðjanna sem ekki hefðu enn
verið afgreiddar.
Verð á hverri fóðureiningu af
graskögglum er nú milli 50 og 52
+
Bróðir minn
HELGI JULIN
Mellemsfortsalle 8,
Kaupmannahöfn
andaðist aðfaranótt 1 5 janúar
Edith Thorberg Jónsson.
krónur en eins og kom fram í
blaðinu i gær kostar hver fóður-
eining i A-kúníeati, sekkjuðu og
köggluðu. nú milli 46 og 49.50
krónttr Eg er bjartsýnn á aö
gra;,hogglaframleiðendur selji
sina köggla i vetur en þessi staða
hlýtur að leiða til þess að stjórn-
völd verða að gera það upp við sig
hvort hér eigi að koma upp inn-
lendum fóðuriðnaði. I dag
stendur þessi iðngrein berskjöld-
uð gagnvart viðskiptaheiminum
og til landsins má flytja allar
fóðurvörur, hvort sem það eru
graskögglar eða kornfóður Ef
TVÖ hagsmunamál blindra hafa ver-
i8 nokkuð til umræðu hjá Blindra-
félaginu að undanförnu og má nefna
að fram kom á slðasta aðalfundi
félagsins tillaga varðandi kostninga-
rétt blindra. í fréttabréfi frá blindra-
félaginu er skorað á Alþingi að
tryggja blindu fólki og sjónskertu að
það geti neytt kosningaréttar slns
hvort sem það kýs á kjörstað eða
utankjörstaðar. Er m.a. greint frá þvi
að þegar gengið var til bæja- og
sveitarstjórnakostninga vorið 1974
hafi þeim Arnþóri og Gísla Helgason-
um verið nær ókleift að njóta
kosningaréttar slns, þar sem þeir
voru staddir utan heimahéraðs sins.
Slðan segir:
,,Þess er krafizt, þegar atkvæði er
greitt utan kjörstaðar, að kjósandi
riti sjálfur bókstaf á flokki þeim er
hann kýs en hins vegar er leyfilegt
að handsala undirskrift embættis-
mönnum I votta viðurvist.
Magrt blint fólk og sjónskert hefur
aldrei fengist við að rita bókstafi
með rithönd og segir það sig sjálft að
þetta ákvæði gerir þvl afar erfitt
fyrir. Bæta mætti úr þessu með þvl
t.d. að taka nánar fram I reglum
þessum hversu blindir og sjónskertir
skuli fara að þegar um er að ræða
utankjórstaðarkosningu. Má t.d.
nefna notkun stimpla eða ritvéla.
Þess er vænst að alþingismenn
taki tillögur þessar til gaumgæfilegr-
ar athugunar Verði það ekki gert er
kosningaréttur blindra enn sem fyrr
takmarkaður."
j fréttabréfi Blindrafélagsins er
greint frá öðru hagsmunamáli
blindra en það er varðandi seðla. Er
bent á að seðlar þeir er nú eru I
fóðurbætisverð yrði líkt og það er
nú næsta sumar, og fóður-
innflytjendur hafa spáð, get ég
ekki séð að graskögglaframleiðsl-
an geti staðist þá samkeppni
miðað við fyrirsjáanlegar
hækkanir á rekstrarvörum við
framleiðslu þeirra frá sl. sumri
sagði Arni.
Fram kom hjá Árna, að danskir
bændur fá nú 0,9 kíló af fóðurvör-
um fyrir einn Htra af mjólk en
eins og fram hefur komið frá
íslenskir bændur nú 1,6 til 1,17
kílo af fóðurbæti fyrir hvern litra
af mjólk.
umferð séu svo llkir að stærð að ekki
sé unnt fyrir blint fólk að greina þá I
sundur eins og hægt var áður fyrr.
Segir að þessir upphleyptu stafir má-
ist út með tlmanum og er spurt hvort
ekki sé unnt að hafa stæærð seðl-
anna mismunandi.
Morgunblaðið leitaði til Seðla-
bankans og sagða Stefán Þórarins-
son, aðalféhirðir, að Seðlabankanum
hefði ekki borizt nein beiðni um
þetta frá Blindrafélaginu, en þetta
ætti að vera framkvæmanlegt, og
mætti hafa I huga við næstu útgáfu
seðla. Ekki væri t.d. enn búið að
ákveða stærð hins fyrirhugaða 10
þúsund króna seðils. Stefán sagði að
allir seðlarnir yrðu þó að hafa sömu
breidd til að þeir væru meðfærilegri
við vélatalningu og pökkun, en
lengdin gæti hins vegar verið breyti-
S. Helgason hf. SfE/NIOJA
flnhöltl 4 Slmat 14417 og 14254
Seðlar sömu stærð-
ar valda blind-
um erfiðleikum