Morgunblaðið - 02.03.1977, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977
13
Endurhæfmg mikil-1
vægasta verkefnið |
— segja forystumenn félagsins
í TILEFNI af 25 ára afmæli S.L.F.
hefur verið leitað til nokkurra for-
ystumanna félagsins og þeir
spurðir hvað þeim væri I huga við
þessi tlmamót. Svavar Pálsson,
sem var formaður félagsins I 20 ár
og jafnframt framkvæmdastjóri
langt af þann tfma, sagði að án
lifandi áhugamanna innan lækna-
stéttarinnar hefði félagið aldrei
orðið að þvf sem það væri og vildi
hann sérstaklega minnast þeirra
próf. Jóhanns heitins Sæmunds-
sonar og dr. Snorra Hallgrfms-
sonar. Þeir og fleiri læknar hefðu
ávallt verið til ráðgjafar þegar
teknar voru stefnumarkandi
ákvarðanir.
Haukur Kristjánsson, yfirlæknir,
taldi mjög brýnt að starfsemi
S.L. F. héldi áfram, enda væri
mikill fjöldi fólks sem þyrfti á
endurhæfingu að halda. Ef hægt
væri að koma á skipulögðum
flutningi sjúklinga að og frá
endurhæfingastöðvum væri hægt
að koma f veg fyrir að þeir lokuð-
ust inni á stofnunum, eins og
hann orðaði það.
Friðfinnur Ólafsson sagði þetta
um framtíðarverkefni félagsins:
Þó að Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra hafi látið ýmislegt gott af
sér leiða, sfðan það var stofnað
fyrir 25 árum, til þess að létta
undir með fötluðu og lömuðu
fólki, er langur vegur frá þv! að
nóg sé að gert. Framtfðarverkefni
félagsins eru vissulega mörg og
stór.
Ég nefni aðeins örfá. Það þarf
ennþá að gera mikið til þess f
okkar þjóðfélagi að gera fötluðu
fólki kleyft að komast leiðar
sinnar á sem eðlilegastan hátt.
Gildir þetta bæði utanhuss og
innan.
Það þarf að kenna þessu fólki
að vinna sem flest störf og skapa
þv! möguleika til þess.
Það þarf að gefa þessu fólki
kost á að skemmta sér, að ferðast
utanlands og innan og yfirleitt að
lifa eins eðlilegu Iffi og þeir lifa,
sem ekki þurfa að bera kross fötl-
unarinnar.
Og svo fyrst og sfðast verður að
leggja allt kapp á endurhæfingu.
bæði að hún geti byrjað nógu
fljótt og öllum tiltækum ráðum sé
beitt til þess að hún beri sem
mestan árangur. Þar má einskis
láta ófreistað, hvorki að því er
snertir húsakost. hjálpartæki eða
vel menntað starfsfólk.
Félagið vill vinna að öllum þess-
um efnum eftir fremstu getu f
framtfðinni og heitir á alla vini
sfna að duga þvf vel, um leið og
það þakkar þeim fjölmörgu, sem
hafa á liðnum árum lagt þvf lið.
Við eigum að gera Iff allra eins
eðlilegt og bærilegt og hægt er —
það er meginmarkmið þessa
félags.
Reykjadalur f Mosfellssveit.
Starfsemin
í æfingastöðinni að Háaleitis-
braut 13 starfa nú 10 sjúkraþjálf-
arar auk lækna og sérfræðinga,
en alls starfa þar 35 manns, þar af
20 f fullu starfi.
Á þeim tuttugu árum sem liðin
eru frá því að Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra hóf fyrst rekstur
æfingastöðvar, að Sjafnargötu 14,
hafa alls 7.555 sjúklingar fengið
222.452 æfingameðferðir á vegum
þess. Er þá ótalinn fjöldi æfinga-
meðferða sem fötluð börn hafa
fengið á sumardvalarheimilinu I
Reykjadal.
Til að gefa nokkra hugmynd
um, hvað þessi þáttur i starfi
félagsins hefur aukizt gífurlega
að umfangi þau tuttugu og fimm
ár, sem liðin eru frá stofnun þess,
má nefna að fyrsta árið sem
æfingastöðin að Sjafnargötu var
starfrækt, komu þangað 240 sjúkl-
ingar og fengu 4406 meðferðir. Á
síðasta ári komu 779 sjúklingar í
æfingastöðina að Háaleitisbraut
13 og fengu 22664 meðferðir.
Félagið hefur sem fyrr segir
staðið fyrir rekstri sumardvalar-
heimilis fyrir fötluð börn. Alls
munu á sjöunda hundrað börn
hafa notið slíkrar dvalar þau
átján sumur sem starfsemin
Framhald á bls. 18
Frá sundlauginni.
t biðstofunni að Háaleitisbraut 13 er oft þröngt og þó eru tugir fólks á
biðlista til að komast til nauðsynlegrar meðferðar.
JAN Dobrezelewski
Kammertónleikar
Austurbæjarbló 28. febr. 1977
Flytjendur: Jan Dobrzelewski,
fiðluleikari, Guðmundur Jóns-
son, pfanóleikari.
Efnisskrá:
J.S. Bach: Partita nr. 3 f E-dúr
M. Ravel: Sónata f G-dúr
A. Corelli: Sónata I d-moll op. 5
nr. 12.
R. Schumann: Sónata í a-moll
op. 105 nr. 1
Á tónleikum Tónlistarfélags-
ins i Austurbæjarbíói á mánu-
dagskvöldið komu fram franski
fiðluleikarinn Jan
Dobrezelewski og Guðmundur
Jónsson píanóleikari, en langt
er um liðið sfðan nafn hans
hefur sést á tónleikaskrám. Á
efnisskrá voru verk eftir J.S.
Bach, A. Corelli, M. Ravel og R.
Schumann. Jan Dobrzelewski
er ágætur fiðluleikari. Hann
hefur góða tækni og fallegan
tón. Hann lék af öryggi og festu
á hverju sem gekk og hikaði
hvergi. I einleikspartítu Bachs
komu kostir hans vel í Ijós, en
verkinu gerði hann prýðileg
Tónllst
eftir EGIL
FRIÐLEIFSSON
skil. G-dúr sónata Ravels er
aðlaðandi verk, en viðkvæm í
samspili og vandmeðfarin, eins
og raunar flest sem frönsku
impressionistarnir sömdu. Þeir
félagar gerðu margt laglegt í
þessari sónötu, þó ekki væri
flutningur gallalaus. í sónötu
Corellis fataðist píanistanum,
sem virtist koma honum úr
jafnvægi, og hann náði sér ekki
á strik eftir það. Og þó betur
gengi í sónötu Schumanns var
leikur hans litlaus.
Dobrezelewski hélt hins vegar
ótrauður áfram, en samleikur
þeirra var í molum, og er
ástæðulaust að fjalla frekar um
það. Það veitist áreiðanlega
engum auðvelt að stíga upp á
konsertapallinn eftir áralangt
hlé.
Kraftakarlar
og sagnalist
Fyrirlestur í Norræna húsinu
OLAV Bö, þjóðháttafræðingurinn
norski, vel þekktur hérlendis, er
nú í heimsókn á íslandi í boði
Norræna hússins.
Hann er fæddur 1918 I Bygland
í Setesdal, eiriu auðugasta héraði
Noregs hvað snertir ýmis konar
þjóðleg fræði, en þó einkum visur
og sagnir. Olav Bö varði árið 1955
doktorsritgerð um „Heilag Olav i
norsk folketradisjon". Hann hef-
ur ekki aðeins gefið út norskar
þjóðvisur (Stev 1957, Norske
ballader 1973) og þjóðsagnir
(Norsk natur i folketru og segn
1974), heldur einnig kannað ým-
islegt um alþýðumenningu, þjóð-
siði og venjur, og m.a. gefið út
bækurnar Norsk ski'tradisjon
(1966), Vár norske jul (1970) og
Folkemedisin og lærd medisin
(1972), og 1962 gaf hann út á
ensku bók um fálkaveiðar.
Olav Bö, sem varð prófessor i
þjóðháttafræði við Oslóarháskóla
Olav Bö
1974, heldur einn háskólafyrir-
lestur og talar auk þess i Norræna
húsinu, fimmtudag 3. mars kl.
20.30 um efnið „Kjempekarar og
forteljekunst i Setesdal".
Valdimar Björnsson
gestur Isl.-ameríska
VALDIMAR Björnsson, fyrrum
fjármálaráðherra Minnisota-
fvlkis f Bandarfkjunum, hefur
þegið boð Islenzk-amerfska
félagsins um að sit ja sem heiðurs-
gestur á árshátfð félagsins, sem
haldin verður f Vfkingasal Hótel
Loftleiða laugardaginn 5. marz
n.k.
Valdimar mun halda aðalræðu
árshátíðarinnar en Sigurður
Björnsson syngur einsöng með
undirleik Carl Billich.
Aðgöngumiðar verða afhentir á
miðvikudag og fimmtudag að Nes-
haga 16 og eru félagsmenn hvattir
til að tilkynna þátttöku sem allra
fyrst vegna mikillar aðsóknar.
Valdimar Björnsson
fyrrum ráðherra