Morgunblaðið - 08.03.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.03.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1977 skák I SPASSKY — HORT — SPASSKY — HORT — SPASSKY — HQRT — SPASSKY — HORT — SPASSk| Fánar tslands, Tékkóslóvaktu og Sovétrfkjanna blakta við hún við Loftleiðahótelið þessa dagana. ÞAÐ KOM áhorfendum á Loft- leiðahótelinu talsvert á óvart þegar stórmeistararnir Hort og Spassky sömdu jafntefli eftir 26 leiki I skák þeirra á sunnu- daginn. Fannst áhorfendum og skáksérfræðingum sem mikið væri eftir af skákinni og ýmsir möguleikar ókannaðir. Eftir þetta jafntefli er staðan nú sú að Spassky hefur 2‘A vinning, Hort l'/i og f dag klukkan 17 setjast þeir að fimmtu einvfgis- skákinni. Stýrir Spassky hvftu mönnunum. Þótti Spassky tefla skákina á sunnudaginn allglæfralega og gerði hann skákina mjög spenn- andi. Er samið var um jafntefli eftir að meistararnir höfðu end- urtekið leiki sína voru skoðanir mjög skiptar um það hvorum megin möguleikarnir lægju í skákinni. Sennilega hafa þeir verið fleiri, sem sögðu að Spassky væri kominn með betri stöðu og ógnaði hann hvítu mönnunum á ýmsa vegu. Eina sem allir gátu verið sammála um í skákinni á sunnudagin var að staðan hefði verið ákaflega flókin. Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari var greinilega undrandi þegar jafnteflið varð staðreynd. — Hvað eru menn- irnir að semja á þetta, sagði Guðmundur. í herbergi blaða- manna höfðu flestir eitthvað til málanna að leggja og einhver sagði að Fischer hefði aldrei samið í þessari stöðu, en hann hefði Iíka örugglega verið með betri tíma, bætti sá hinn sami við. Átti Hort eftir rúmlega 20 mínútur þegar skákinni lauk, en Spassky góðan hálftíma. Hafði Hort notað mjög mikinn tíma á leiki sfna áður en kapp- arnir byrjuðu að þráleika. Jafnvel fslenzkar konur vita hver Karpov er Hingað til lands kom á föstu- daginn Bandarfkjamaðurinn Vince Klemm, sem er sjálfur góður skákmaður og frétta- maður virts skáktfmarits í Bandarfkjunum. Mun hann dvelja hér þangað til á morgun, en halda þá til Italíu, Sviss og sennilega Hollands til að fylgj- ast með hinum áskorendamót- unum einnig. Mun hann sfðan skrifa um þessa hringferð sfna f tfmarit sitt. Spjallaði blaðamaur Mbl. við Klemm á sunnudaginn og var Bandaríkjamaðurinn greini- lega í sjöunda himni með að vera kominn til íslands. Til landsins þar sem Spassky og Fischer háðu sitt einvígi aldar- innar. — Hér vita allir allt um skák, það er alveg stórkostlegt. Meira að segja fslenzkar konur vita hver Karpov heimsmeistari er, sagði Klemm. — Ég fylgdist með einvígi aldarinnar eins náið og ég mögulega gat. Fischer var stór- kostlegur þá, en núna er hann alveg búinn, kolruglaður. Mér finnst það ótrúlegt hve Spassky er ennþá sterkur og ég held að hann sigri í einvfginu hér. Því átti ég alls ekki von á, hélt hann hefði sungið sitt sfðasta sem skákmaður þegar hann missti heimmeistaratitilinn, sagði Klemm. Fjórir góóir fylgjast með Aldrei fleiri áhorfendur Það var gott hljóðið í Skák- sambandsmönnum á sunnu- daginn og þá fyrst og fremst með hina miklu aðsókn, sem var að skákinni. Sennilega hafa vel á sjötta hundrað áhorfenda fylgzt með, en að vísu keyptu þeir sig ekki allir inn, því nokkrir veifa aðeins boðsmið- um sínum. Varð að hætta að selja inn um tíma þar sem öll eftir Ágúst I. Jónsson salarkynni voru yfirfull. Hafði verið bætt við stólum á gangin- um fyrir framan Krystalsalinn þar sem teflt er, en það dugði engan veginn til. Stóðu menn í öllum hornum, báru saman bækur sínar og spáðu píreygðir i stöðuna. Þykir mönnum sem bæði Spassky og Hort hafi teflt mjög vel það sem af er þessu einvígi. Báðir tekið áhættu og barizt vel, en ekki samið stórmeistara- jafntefli, eins og gjarnan gerist þegar slíkir eigast við. Voru áhorfendur á einu máli um það að einvígi þeirra Spasskys og Horts væri hið bezta af áskor- endaeinvígjunum fjórum. Beztu skákirnar væru tefldar hér og ekki minnstu leiðindi í kringum keppendur — þvert á móti, enda eru bæði Hort og Spassky ekkert nema ljúf- mennskan. Þakka menn sínum sæla fyrir að við skyldum ekki hafa fengið einvígi þeirra Sovétmannanna Kortsnojs og Petrosjans, sem einkennist af illvígu taugastríði og andúð keppenda hvors á öðr- um. Eða einvigi Meckings og Polugajevskys, þar sem Mecking hefur annað hvort ver- ið frá vegna magakrankleika eða taugaslappleika. Það er helzt að fólk hefði viljað fá hingað hinn baráttuglaða Dana, Bent Larsen, og andstæðing hans, Ungverjann Lajos Portisch. Fleiri áhorfendur en áður og spennan í algleymingi er samið var um jafnteflið Þung undiralda Hvítt: Vlastimil Ilort Svart: Boris Spassky Enski leikurinn 1. c4 — e5, 2. Rc3 — Rc6, 3. g3 — g6, 4. Bg2 — Bg7, 5. e4 (Þessi þunglamalegi leikur er runninn undan rifjum Mikhails Botvinniks fyrrverandi heims- meistara) — d6, 6. Rge2 — Rge7, 7. d3 — 0-0, 8. 0-0 — Be6, (Nú er komin upp með skiptum litum mjög aigeng staða f lok- aða afbrigðinu í Sikileyjarvörn. Þessi byrjun er það róleg að einn leikur til eða frá gerir ekki gæfumuninn) 9. h3 — Dd7, 10. Kh2 — f5, 11. Rd5 — Hf7! (Eins og í hlið- stæðum stöðum itteð skiptum litum liggja möguleikar svarts í að tvö- falda hrókana á f-línunni. I skák Horts við bandarfkjamanninn Browne á millisvæðamótinu f Manila f fyrra valdi Browne aðra og Iak- ari áætlun: 11. .. Hae8, 12. Be3 — Rd4, 13. Bxd4! — exd4, 14. Ref4 — Rxd5, 15. exd5 — Bf7, 16. Db3 og hvítur stendur bet- ur. Þessi skák er ástæðan fyrir þvf að Spassky þvingaði fram f2 — f4 áður en hann lék Rc6 — d4) 12. Be3 — Haf8, 13. f4 (Þessi leikur er bráðnauðsynlegur lið- ur f liðsskipun hvfts, því að svartur hótaði 13. .. f4. Ef t.d. 14. gxf4 — exf4, 15. Bxf4 þá Hxf4!, 16. Rexf4 — Be5, 17. Dd2 — g5 og vinnur) Rd4, 14. Rxd4 (Annars leikur svartur einfaldlega 14... Rc8 og 15... c6) exd4, 15. Bd2 — Rc8, (Undir- býr 16. . . c6. Ff strax 15... c6 þá 16. Rxe7 — Hxe7, 17. De2 og hvftur hefur greinilega þægi- legra tafl.) 16. Df3 — (Eftir 16. exf5 — Bxf5, 17. Df3 — c6, 18. Rb4 — h5, er staðan í jafnvægi) c6, 17. b3 — (Leikið til þess að geta svarað 18. .. Dd8, 19. Rb4 — fxe4 með 20. dxe4 ) b e d • f 9 h g5!? (Djarfur leikur, sem miðar að því að koma hrókunum á f-Ifnunni í gagnið. Spassky var greinilega ekki að skapi að biða rólegur með 17.. . Dd8, 18. Rb4 enda hefur hvítur þá óum- deilanlega frjálsari stöðu) 18. Dh5 ( Ekki gekk 18. fxg5 vegna 18... fxe4 19. Dxe4 — cxd5. Hins vegar kom sterklega til greina að leika 18. Rb4, sem svartur yrði væntanlega að svara með 18... fxe4, 19. dxe4 — g4, 20. hxg4 — Bxg4 og stað- an er vandtefld á báða bóga. Eftir 18. Rb4 — fxe4, 19. dxe4 — a5, 20. Rc2 — d3, 21. Dxd3 — Bxal, 22. Hxal hefði hvítur allt of góð færi fyrir skiptamun- inn. )fxe4, 19. dxe4 gxf4 (19... g4 er vafasamt vegna 20. f5! og svartur á i vök að verjast. T.d. 20... cxd5, 21. dxe6 — Dxeð, 22. cxd5! og hvft- ur vinnur peð. Slæm mistök væru hins vegar 22. exd5 — De2, 23. Bf4 — Hxf4! 24. Hxf4 — Hxf4, 25. gxf4 — g3+ og svartur vinnur) 20. gxf4 — cxd5, 21. cxd5 Stöðumynd II Db5! (Snjall leikur sem Hort hefur Ifklega yfirsést þegar hann lék 18. Dh5) 22. a4 — (eini leikurinn, þvf að 22. dxe6? yrði auðvitað svarað með Dxh5) Dxb3, 23. Hfbl — (Þvingað. Eftir 23. dxe6 —- Dxe6 hefur svartur peði meira) Dc4 (23. .. Dd3, 24. dxe6 — Hc7, er full áhættusamt vegna 25. Hb2 — Hc2, 26. Hxc2 — Dxc2, 27. Ddl og hvítur hefur biskupaparið og frjálsara tafl. Ef Spassky hefði þurft að tefla til vinnings í stöðunni hefði hann lfklega reynt drottningar- fórnina 23. .. Bxd5!?) 24. Hcl (Hvítur hefði gatað haldið áfram með 24. Hb4 en eftir hið slysalega tap sitt á fimmtudag- inn vill Hort enga áhættu taka) Db3 25. Hcbl — Dc4, 26. Hcl — Db3, og hér varð skákin sjálf- krafa jafntefli. eftir Margeir Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.