Morgunblaðið - 08.03.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.03.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1977 7 Jafnari atkvæðísréttur Ellert B. Schram flytur, ásamt 16 öðrum þing- mönnum Reykvíkinga og Reyknesinga. tillögu til þingsályktunar. þar sem stjómarskrárnefnd er faliS að leggja fram tillögur til breytinga á stjórnar- skránni. sem miði aðjöfn- un kosningaréttar. Að til- lögunni standa þingmenn úr öllum stjórnmála- flokkum utan SFV. Mannfjöldaþróun I land- inu hefur raskað mjög jafnvægi atkvæðisréttar eftir búsetu. þann veg, að nú eru tæplega tvö þús- und ibúar að baki hvers kjördæmakjörins þing manns. þar sem fæst er, en 8789 þar sem flest er, samanber meðfylgjandi töflu. sem er fylgiskjal með tillögunni. í Reykjavfk og Reykja- nesi voru á kjörskrá 1974 samtals rúmlega 77 þús- und kjósendur. en i öðrum kjördæmum samtals rúm- lega 50 þúsund kjós- endur. eða rúmlega 60% kjósenda á móti tæplega 40: Rúmlega 77 þús. kjósenda — eða 60% þeirra — kjósa 17 þing- menn en rúmlega 50 þús- und — eða 40% þeirra — 32 þingmenn. Enginn krefst þess að hér verði komið á fullum jöfnuði, enda er nálægð Reykjavikur og Reykja- ness við stjórnsýslumið- stöðvar landsins visst mótvægi gegn fyrrgreind- um ójöfnuði. Hér hafa mál hins vegar raskast svo gífurlega.að ekki verður lengur dregið. að koma á viðunandi leiðréttingu. Kjósendur i mesta þéttbýli landsins geta ekki til frambúðar unað því að hafa þrefalt og allt að fimmfalt minna vægi i at- kvæði sinu heldur en kjós- endur annars staðar á landinu Að nýta tak- markað svig- rúm rétt Aðilar vinnumarkaðar- ins. vinnuveitendur og verkalýðsfélög, hafa nú að að skipa hagsýslu- stofnunum — eða þjón- ustu —, sem ásamt Þjóð- hagsstofnun ættu að geta mælt nokkuð örugglega það svigrúm. sem til stað- ar er i þjóðfélaginu til al- mennra kjarabreytinga, án þess að raskist veru- lega það jafnvægi, sem við nálgumst á ný i efna- hagsmálum okkar. í orði kveðnu eru allir sammála um að þetta svigrúm eigi að nýta til þess að bæta kjör láglaunafólks og lif- eyrisþega, þ.e. þeirra, sem verst eru staddir. Spurningin er einfaldleg: sú: geta launþegafélögin eða heildarsamtök þeirra komið sér saman um inn byrðis skiptingu þessar: möguleika? Eða verðu raunin sú, sem oft hefu verið, að hinir betur settu sem einnig hafa sterk itöl i verkalýðshreyfingunni hrifsi til sin hlutfallslega hækkanir upp i efstu þre| launakerfisins. pann veg að hugsanlegar kjara- bætur láglaunahópa hverfi enn á ný i verð- bólguhitina? Á að skerða hlut samneyzlu í þjóðartekjum? Hverjir eru möguleikar ríkisvaldsins til að greiða ffyrir réttlátum kjarasamn- ingum? Getur ríkisvaldið létt á útgjaldaþunga at- vinnuveganna, svo þeir verði færari um að mæta auknum kauppjalds- þunga? Getur ríkisvaldið létt á skattabyrði hins al- menna borgara til aðauka kaupmátt rauntekna hans? — Þetta er því að- eins hægt, að ríkisum- sviffin verði enn dregin nokkuð saman, bæði rekstarþættir og opin- berar fframkvæmdir. Sam- neyzlan tekur þegar til sín það stóran hlut aff þjóðar- tekjunum, að hún þrengir verulega allt svigrúm á sviði kjaramála í landinu. Enginn staðhæfir lengur að umtalsverð auðsöfnun eigi sér stað í íslenzkum atvinnurekstri, þvert á móti á hann við ýmsa rekstrarörðugleika að stríða. Rlkisumsvifa- stefnan mætir þvl vaxandi andstöðu I röðum verka- lýðshreyfingarinnar. En menn verða jaffnframt að gera sér grein ffyrir þvi, að skerðingu rikistekna hlýt- ur óhjákvæmilega að fylgja einhver niður- skurður í þjónustu og framkvæmdum. Það er ekki hægt að eyða þeim fjármunum í ríkiskerffinu. sem þegnarnir semja um að ráðstafa á annan hátt. T Nemendur 4. bekkjar gagnfræðaskólans á Akureyri heimsóttu Reykjavfk fyrir skömmu i starfsfræðslu- ferð. Myndina tók Ijósmyndari Mbl. K.Ó. af hópnum fyrir utan Hótel Esju, en þar gistu norðanmenn. o EIGENDUR OLYMPIA SKRIFSTOFUVÉLA Frá 1.1. 1977 höfum við tekið að okkur einkaumboð fyrir Olympia International AG., hér á landi. Fullkomin viðgerðar- og varahlutaþjónusta er nú þegar fyrir hendi á verkstæði okkar. Allar gerðir OLYMPIA rit- og reiknivéla verða á næstunni til sýnis og sölu hjá okkur. o Olympia Internationat • Biiromaschinen • Biirosysteme Olympia Werke AG ■ Wilhelmshaven KJARAIM hf skrifstotuvélar & verkstæði - Tryggvagötu 8. sími 24140 Smíðið sjálf Eigum nú fyrirliggjandi 12 mm reyklitaðar glerplötur í eftirtöldum stærðum: 1 50 X 80 cm, 90 X 90 cm, 60 X 60 cm, 40 X 60 cm, 90 cm hringplötur Plöturnar eru slípaðar og henta vel sem borð- plötur eða í hillusamstæður Ótal möguleikar fyrir hugmyndaríkt fólk. Kristján Knútsson, umboðsverslun, Austurstræti 6 sími 2611 3. Hafnarfjarðar- prestakall Stuðningsmenn séra Gunnþórs Ingasonar hafa opnað skrifstofu að Lækjargötu 10. Sími — 52544. Opið kl. 5—10 e.h. Laugardaga kl. 2 — 6 og sunnu- daga kl. 3 — 7. Stuðningsmenn sér Gunnþórs eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við skrifstofuna. Studningsmenn. \ Tann ENSKIR PENINGASKÁPAR eldtraustir — þjófheldir heimsþekkt framleiðsla. E. TH. MATHIESEN H.F. DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIROI — SIMI 51888 Veislumatur við vægu ver< SÉRRÉTTIRNIR í. DAG ERU: í HÁDEGINU Hvítkálsbögglar með kartöflumauki Verð kr. 860/- í KVÖLD Þverskornar lambakótelettur með piparsósu, rjómasoðnum sveppum, hrásalati og parisarkartöflum. Verð kr. 1080/- Þaö er ódýrt aö boröa hja oKkur Verið velkomin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.