Morgunblaðið - 26.03.1977, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1977
(Ljósm. ÓI.K.M.)
J6n Sigurðsson hagrannsóknarstjðri flytur erindi sitt á ársfundi iðnrekenda f g«r.
/
Jón Sigurðsson á ársfundi F.I.I.:
Iðnaðurinn er vaxtar-
broddur þjóðarbúsins
ÁRSFUNDI Félags íslenzkra iðn-
rekeenda lauk f Reykjavík í gær.
Jón Sigurðsson hagrannsókna-
sljóri flutli erindi um skýrslu
þjóðhagsstofnunar, „Hagur
iðnaðar", og að því loknu urðu
umræður. Síðan var fundarstörf-
um haldið áfram og nefndir skil-
uðu álitum og samþykktar voru
ályktanir.
I erindi sínu rifjaði Jón Sig-
urðsson nokkuð upp aðdraganda
þess að ísland gerðist aðili að Efta
og hvaða aðgerða hefði verið grip-
ið til af hálfu stjórnvalda til að
auðvelda iðnaðinum aðlögun að
þessari fríverzlunar aðild. Nefndi
hann i því sambandi einkum þrjú
atriði sem stjórnvöld mörkuðu
stefnu sína með, að tollar
innfluttra iðnaðarvara lækkuðu
ekki fyrstu 4 ár aðildarinnar en
fóru siöan stiglækkandi, skatta-
kjör skyldu ekki vera lakari en
tíðkuðust í samkeppnislöndunum
og að efla skyldi lánastofnanir
þær sem veittu iðnaðinum fyrir-
greiðslu.
Síðan rakti Jón Sigurðsson
nokkur atriði skýrslu þjóðhags-
stofnunar og taldi ekki óeðlilegt
að staldrað værí við og staða
iönaöarins athuguð nú þegar rif-
lega helmingur aðlögunartimans
væri liöinn. Jón sagði að beinir og
óbeinir skattar árin 1969 og 1975,
ef bornir væru saman hérlendis
og erlendis, væru ekki lakari hér
en viða erlendis, en það væri e.t.v.
ekki vegna skattalækkunar hér,
heldur fremur vegna þess að
skattar víða erlendis hefðu
hækkað á þessu timabili. Jón
sagði það vera mjög greinilegt að
iðnaðurinn hefði borið nokkuð
skarðan hlut frá borði í lána-
málum, sérstaklega hvað varðaði
afuröalán og að þess væri ekki
gætt að veita fjármagni til nýrra
verkefna á sviði iðnaðar, fremur
væri þvi veitt til iðnaðar sem
verið hefði lengi við lýði, og að
lánakjör hinna mismunandi fjár-
festingalánasjóða atvinnuveg-
anna væru mjög misjöfn og þyrfti
að leiðrétta þennan mismun, og
að hinar ýmsu stofnanir hefðu
verið um of bundnar af því að
lána vissum atvinnugreinum.
Jón Sigurðsson sagði að
iðnaðurinn, sem væri vaxtar-
broddur þjóðfélagsins og þyrfti
að vera það, hefði að vissu marki
hlotið þann vöxt og viðgang s.l. 7
ár, sem vænst hefði verið og hann
hefði allvel staðist erlenda sam-
keppni. Þá lagði hann áberzlu á
míkilvægi þess að jafna þann
mun sem væri á lánum til iðnaðar
miðað við aðra atvinnuvegi og að
fríverzlunin ætti að gefa tilefni til
lifvænlegs iðnaðar i landinu.
Að loknu erindi Jóns urðu
nokkrar umræður og var m.a.
rætt um að tilkoma nýs skatta-
lagafrumvarps gæti haft vissar
neikvæðar afleiðingar fyrir
iðnaðinn. Þá var talað um að að-
lögunartimabilið hefði ekki
komið að eins góðu gagni og
ætlast hefði verið til og því varp-
að fram hvort ekki væri hugsan-
legt að framlengja hann. Jón
svaraði nokkrum fyrirspurnum
en síðan var haldið áfram störfum
ársfundarins, m.a. lagðar fram
niðurstöður vinnuhópa og álykt-
anir samþykktar. Fjalla þær um
fjármál og lánamál, um aðgerðir
stjórnvalda á sviði tækni- og
þjónuslumiðstöðva, um skattamál
og um áhrif tolla og óbeinna
skatta á reksturs- og samkeppnis-
aðstöðu iönfyrirtækja.
wm
, M M1 8%)
0 Á morgun, sunnudag,
sýnir Leiklistarsvið Mennta-
skólans við Tjörnina Sand-
kassann eftir Kent Anderson.
Um fimmtán manns fara
með hlutverk í leikritinu, en
alls munu um 30 manns hafa
tekið þátt I að gera uppfærsl-
una mögulega. Æfingar hafa
staðið yfir síðan I janúar og
leikstjóri er Glsli Rúnar Jóns-
son. Fyrri hluta vetrar naut
hópurinn leiðsagnar Gfsla f
framsögn og almennum
spuna.
Leikhópurinn hefur f sam-
einingu bætt stuttum þáttum
framan og aftan við leikritið.
Fyrst eru persónur kynntar
samkvæmt hugmyndum
hópsins um þær og sfðan
skyggnst 30 ár fram f tfmann
og athugað hvernig tfmans
tönn hefur orkað á þær.
Sögusviðið er sandkassi,
þar sem nokkur börn eru að
leik undir handleiðslu fullorð-
inna.
Sýningar verða f Breið-
holtsskóla við Arnarbakka,
27. 28. og 29. marz.
„Osköp er að vita
þetta” í Hlégarði
HIÐ nýstofnaða Leikfélag Mos-
fellssveitar frumsýnir á morgun
sitt fyrsta verkefni, ævintýraleik-
inn „Ósköp er að vita þetta" eftir
Hilmi Jóhannesson. Leikstjóri er
Bjarni Steingrímsson, en sviðs-
mynd og búninga gerði Guöbjörn
Gunnarsson. Sýningin á sunnu-
daginn er í Helgarði og hefst
klukkan 20.30, en ráðgert er að
efna til 8—10 sýninga ef aðsókn
veröur góð.
Elli-
heimilið
MENNTASKÓLINN I KÓPAVOGI:
ELLIHEIMILIÐ EFTIR KENT
ANDERSON OG BENGT BRATT.
LeikritiB þýddi: Steinunn
Jóhannesdóttir. Vlsunum sneri:
Þórarinn Eldjám. Leikstjóri: Ása
Ragnarsdóttir
Elliheimilið eftir Ken*
Anderson og Bengt Bratt er
eitt af þessum félagslegu
sænsku leikritum. í Ijós
kemur að velferðarþjóðfélag-
ið býður ekki upp á jafn
mikla velferð og af er látið.
Gamla fólkinu leiðist á elli-
heimilunum. Þótt það láti
sem ekkert sé býr beiskja
undir niðri Þjóðfélagið þykist
hafa leyst öll vandamál þess
með því að setja það á bása.
Börnin hafa snúið við því
baki, heimsóknir þeirra eru
aðeins til málamynda. Gamla
fólkið rifjar upp ævi sína og
sú hugsun er ágeng að allt
hafi verið unnið til einskis.
Einna best kynnumst við
Matthildi sem alið hefur upp
mörg börn í litilli íbúð i verka-
mannahverfi. Maður hennar
deyr af slysförum. Hún brýn-
ir fyrir börnum sinum að
standa saman og vinna að
umbótum. Þegar bömin vaxa
úr grasi hallast þau að fánýt-
um hlutum sem þjóðfélag
samkeppninnar heldur að
þeim. Þau skilja ekki móður
sína og hún áttar sig ekkert á
þeim. í leikritinu fáum við að
sjá mörg dæmi þess hvernig
gamla fólkið verður utan-
gátta í þjóðfélagi sem er í eðli
sínu ómennskt.
Elliheimilið hefur þá kosti
auk þess að vekja til um-
hugsunar það er leikrænt,
býður upp á ýmsar leiðir til
túlkunar. Mér virðist að Ása
Rangarsdóttir leikstjóri hafi
tekið rétta stefnu við upp-
setningu verksins. Hún hefur
í senn einfaldað það og stytt i
samræmi við getu leikend-
anna, en þetta er í fyrsta sinn
sem Menntaskólinn i Kópa-
vogi setur upp „stórt leikhús-
verk". Árangurinn er að minu
viti góður þegar þess er gætt
að um skólasýningu er að
ræða. Leikendur voru prýði-
lega samæfðir og léku af
áhuga og ánægju Þeir voru
Þórunn Guðmundsdóttir,
Kristin H. Siggeirsdóttir,
Sjöfn Heiða Steinsson, Anna
D. Tryggvadóttir, Þórður Ara-
son, Daði Harðarson, Þor-
steinn Hallgrfmsson, Ingólfur
Skúlason, Björn R. Björns-
son, Þórdís Kristleifsdóttir,
Ásthildur Bernharðsdóttir og
Rikharður H. Friðriksson
Sviðsmynd úr leiknum.
Lelklist
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Anna Dóra Tryggvadóttir
sem ísafold.
Leikmynd er verk margra
nemenda, um leikmuni sáu
Guðlaug Hreinsdóttir og
María Elíasdóttir, lýsing var i
höndum Sigurðar Elíasar
Hjaltasonar.
Það færist nú i vöxt að
skólanemendur setji á svið
kunn leikrit sem einkum eru
samin fyrir stór leikhús og
þjálfaða leikara. Þetta getur
blessast þótt ýmislegt hljóti
að skorta. Ég held að
Menntaskólinn i Kópavogi
hafi fundið heppilega leið
með þvi að flytja Elliheimilið i
breyttri mynd, þ.e.a.s stytt.
Þetta ættu fleiri skólaleik-
félög að athuga.