Morgunblaðið - 15.06.1977, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JUNl 1977
Helga Lfs Þórðardöttlr afhendir Hlédfsi Guðmundsdóttur
aðstoðarlækni visindastyrkinn. Milli þeirra er (Jlfar Þórðarson,
formaður spftaiastjórnar Borgarspftalans. Ljósm. Mbi. rax
Vísindasjóður Borgarspítalans:
NÍU LÆKNAR
HLUTU STYRKI
í GÆR fór fram I Borgar-
spftalanum úthlutun úr
Vfsindasjóði Borgarspítalans.
Er þetta I annað skipti sem
úthlutað er visindastyrkjum úr
sjóði þessum. Hlutu nfu læknar
styrki að upphæð alls tvær
milljónir 750 þús. kr.
Borgarspftalinn er eini spítal-
inn á landinu sem hefur innan
sinna vébanda slíkan sjóð.
Markmið hans er að efla og
styðja visindalegar rannsóknir
lækna við Borgarspítalann. Var
sjóðurinn stofnaður árið 1964.
Er heiti sjóðsins Vísindasjóður
Borgarspítalans og var hann
stofnaður til minningar um
Þórð Sveinsson yfirlækni og
Þórð Ulfarsson flugmann.
Við úthlutun vísindastyrkj-
anna í gær flutti Ulfar Þórðar-
son læknir, formaður spítala-
stjórnar Borgarspítalans,
ávarp. Rakti hann stuttlega
sögu Vísindasjóðsins og tilgang
hans. Voru þar viðstaddir vel-
flestir þeirra lækna, er sótt
höfðu um framlag til sjóðsins,
ásamt nokkrum gestum.
Gerði formaðurinn grein
fyrir vísindalegum verkefnum,
sem læknarnir ýmist vinna
einir að eða fleiri saman og nú
hlutu styrk úr sjóðnum.
Læknarnir eru: Ásgeir Ellerts-
son, yfirlæknir, Bjarni Hannes-
son, sérfræðingur í heilaskurð-
lækningum, Guðmundur Odds-
son, sérfræðingur í lyf-
lækningadeild, Hlédís
Guðmundsdóttir, aðstoðar-
læknir, Kristján Jónsson, sér-
fræðingur á röntgendeild,
Óskar Þórðarson, fyrrv. yfir-
læknir, Sigurður Guðmunds-
son, aðstoðarlæknir, Stefán
Jónsson, sérfræðingur á rönt-
gendeild og Örn Smári Arnalds-
son, yfirlæknir.
Helga Lís Þórðardóttir, flug-
freyja, afhenti læknunum
styrkina.
Að lokum flutti formaður
læknaráðs Borgarspítalan.s,
Kristinn Guðmundsson, heila-
skurðlæknir, stutt ávarp og
ræddi mikilvægi vísindastarfa
innan sjúkrahúsa almennt og
hve mikilvægu hlutverki
Vísindasjóður Borgarspítalans
hefði að gegna fyrir lækna
spítalans og sjúklinga og álit
spítalans útá við. Færði hann
þakkir fyrir hönd læknanna.
Isafoldarprentsmiðja:
100 ára á
ísafoldarprentsmiSja verSur 100 ára
á morgun, en 16. júnl 1877 var
fyrsta blaS ísafoldar prentaS I eigin
prentsmiðju, sem er talin stofnuð
þann dag. Stofnandi ísafoldarprent-
smiðju var Björn Jónsson, ritstjóri,
og I tilefni af aldarafmnlinu kemur
út bók um hann; Björn ritstjóri, sem
Lýður Bjömsson hefur samið.
Fljótlega hófst bókaútgáfa á vegum
Björn Jónsson, ritstjóri, þingmaður
og ráðherra, stofnandi isafoldar-
prentsmiðju. i tilefni aldarafmælis
fyrirtækisins kemur út bók um hann;
Björn ritstjóri eftir Lýð Björnsson.
morgun
isafoldarprentsmiðju og kom Dýra-
fræði Benedikts Gröndals út strax
fyrsta árið.
Björn Jónsson hafði yfirumsjón með
öllu sem að prentsmiðjunni laut þar til
hann varð ráðherra 1909, en vegna
umsvifa hans á stjórnmálasviðinu lenti
rekstur pentsmiðjunnar að verulegu
leyti á herðum Sigmundar Guðmunds-
sonar, yfirprentara. Þegar Björn varð
ráðherra, tók Ólafur sonur hans við
prentsmiðjunni og stjórnaði henni til
dauðadags 1919 Þá var prentsmiðjan
gerð að hlutafélagi og var Sveinn
Framhald á bls. 18
MAGNÚS Finnsson, Morgunblaðinu,
var var kjörinn formaður Blaða-
mannafálags islands á aðalfundi
félagsins á Hótel Sögu á manudags-
kvöld. Aðrir í aðalstjórn voru kjörnir
Frlða Björnsdóttir, TTmanum. Bragi
Magnús Finnsson
Guðmundsson, VIsi, Einar Karl
Haraldsson, Þjóðviljanum, og Helgi
H. Jónsson, útvarpinu, en I vara-
stjórn voru kjörnir Atli Steinarsson,
Dagblaðinu, Guðjón Einarsson, sjón-
Framhald á bls. 18
Blaðamannafélag Islands:
Magnús Finnsson
kjörinn formaður
Hvegi heyrt þennan góða og dýrð-
lega tón nema hjá Pólýfónkómum
Jón Þorsteinsson heitir ungur
tenórsöngvari, sem verður ein-
söngvari I Magnificat J.S. Bach á
tónleikum Pólýfónkórsins I Há-
skólabiói þjóðhátlðardaginn 17.
júnl en fer slðan með kórnum sem
venjulegur kórfálagi I ítalluferðina
þar sem kórinn syngur auk fram-
angreinds verks Gloriu Vivaldis og
Messlas Hándels, en brezkur
tenórsöngvari hefur þá tekið við
einsöngvarahlutverki Jóns.
„Jú. það má að mörgu leyti segja
að ég sé hálfgerður uppeldissonur
Pólýfónkórsins, en annars er það allt
miklum tilviljunum háð hvernig ég
leiddist út i það að fara að leggja
sönginn fyrir mig." sagði Jón í sam-
tali við Morgunblaðið. ,.Ég byrjaði
að syngja I Pólýfónkórnum I
Matteusarpasslunni 1971, sem flutt
var um páskana 1972. Þetta voru
að visu ekki alveg fyrstu kynni min
af kórsöng, því að ég hafði nokkru
áður farið sem skiptinemi til Banda-
ríkjanna og sungið þar með skólakór
í Messlasi. Þar söng ég að vlsu
bassa, enda var kórinn dálitið ein-
kennilega skipaður — enginn tenór,
þvi að við strákarnir vorum svo fáir
að það varð að nota okkur alla I
bassann. Svo að ég hafði ekki hug-
mynd um það hvar raddsvið mitt lá
fyrr en ég fór að syngja með Pólý-
fónkórnum.
Jón var á þessum tlma ekkert á
þeim buxunum að verða söngvari
Framhald á bls. 18
Rabbað við Jón Þorsteinsson tenórsöngvara
sem syngur einsöng með Pólýfónkórmmi 17. júní
Stærsti ullarvörasamningur
við Bandaríkin hingað til
„Fer frjálslega
með landslagið”
Sigurður Thoroddsen sýnir á Kjanxdsstöðum
Iónaðardeild Sambandsins boðaði
til blaðamannafundar I gær til að
tilkvnna stærsta sölusamning á
sviði útflutnings, sem Sambandið
hefur gert við Bandarfkin hingað
til. Er hér um að ræða samning á
sérhönnuðum flíkum unnum úr
Gefjunargarni og dúk, sem Sam-
bandið mun selja til Bandarfkj-
anna á þessu ári fyrir um það bil
200 milljónir íslenzkra króna. En
alls hljóðar ullarvörusamningur
þessi upp á 280 milljónir króna
eða 1 og 'A milljóna Bandarfkja-
dala og nær fram til ársins 1978.
Hér er um að ræða samning á
fullunnum tizkufatnaði úr prjón-
lesi, úr íslenzkri ull og ofnum
efnum frá Gefjun á Akureyri. Þó
mun Sambandið ekki geta sinnt
þeim skilyrðum að fullu og til að
byrja með, munu efnin verða full-
unnin úti, þar sem enn er ekki
aðstaða til að sauma allar flíkurn-
ar hér,
Brendan á
hægri ferð
MYNDATÖKUMENN frá tímarit-
inu National Geographic flugu í
fyrradag yfir skinnbátinn Brend-
an og virtist þá allt vera i lagi um
borð. Brendan var þá um 200 sjó-
mílur frá strönd Labrador og
hafði bátnum miðað lítið siðustu
sólarhringa.
Verða þetta alls um fimmtíú
þúsund flikur, tíu tegundir af
prjónafatnaði, svokallaðar peysu-
kápur, ýmist í sauðalitum eða öðr-
um litum.
Umboðsfyrirtæki Sambandsins
í Bandaríkjunum, Iceland
Fashions Corporation i New
York, hafði milligöngu um þessar
sölur til fyrirtækisins Kinetic,
sem hefur höfuðstöðvar i
Montreal í Kanada en rekur við-
tæk viðskipti í Bandaríkjunum og
fleiri löndum. Aðaláherzla mun
lögð á sölu í stórverzlunum af
dýrari gerðinni í Bandarikjunum,
svo sem Sata, sem hefur sérstaka
íslandsdeild í New York.
Á þessu ári verða seldar prjóna-
vörur fyrir um 140 milljónir Isl.
króna, svo og kápuefni ofin af
Gefjun fyrir sömu aðila að and-
virði 100 milljónir ísl. króna og
hefur þriðjungur þess magns þeg-
ar verið framleiddur.
Að sögn Hjartar Eiríkssonar,
framkvædastjóra Iðnaðardeildar
Sambandsins munu fjölmörg
einkafyrirtæki víðs vegar um
Framhald á bls. 18
SIGURÐUR Thoroddssen verk-
fræðingur heldur nú sýningu á
vatnslitamyndum I vestursal Kjar-
valsstaSa, en þessar myndir hefur
SigurSur unnið I tómstundum sin-
um á löngu árabili. Sýningin verð-
ur opin daglega út þessa viku frá
kl. 16—22 virka daga og 14—22
um helgina.
Vatnslitamyndir sinar hefur
Sigurður málað ýmist á venjulegan
vatnslitamyndapappir eða ýmsar
gerðir af japönskum pappir, og einn-
ig eru á sýningunni þrykkmyndir og
teikningar.
„Ég mála figúratift," sagði
Sigurður í samtali við Morgun
blaðið, " og mest eru þetta lands-
lagsmyndir en ekki þori ég að
ábyrgjast að menn þekki aftur lands-
lagið, þvi að ég fer nokkuð frjálslega
með það "
Elsta mynd Sigurðar á sýningunni
er frá 1912, máluð þegar hann var
tíu ára og er þarna aðallega sem
„kúriósum" eins og Sigurður segir
sjálfur Aðrar myndir eru málaðar á
tveimur timabilum — á árunum frá
1940—1953 og siðan aftur frá
1967 og fram til þessa árs, en á
árunum þarna á milli lá þessi tóm-
stundaiðja hans niðri —" þá sá
maður ekki framúr verkefnum út af
öllum þessum virkjunum."
Sigurður hætti hins vegar á verk-
fræðiskrifstofunni að miklu leyti fyrir
tveimur árum og hefur þá I auknum
mæli gefið sig að myndlistinni á
nýjan leik, en hann segir þó að eftir
sem áður sé myndlistin fyrst og
fremst tómstundastarf.
Ljósm : Friðþjófur.
Sýningarstúlkur fklæddar nokkrum yfirhafnanna sem fara á Banda-
rfkjamarkað nú f haust og eru hannaðar af Þórsteini Gunnarssyni f
samráði við fyrirtækið Kinetic, sem hefur höfuðstöðvar sfnar f
Montreal f Kanada.