Morgunblaðið - 15.06.1977, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JUNI 1977
22
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
UTBOÐ
Tilboð óskast i efni í stálþil fyrir lengingu Sundabakka i
Sundahöfn fyrir Reykjavíkurhöfn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3.
Reykjavik.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 26. júli
1977, kl. 1 I.OOf.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
húsnæöi i boöi
Hæð til leigu
5—6 herb. íbúð á góðum stað í Vestur-
bænum. Leigist frá 1. júlí n.k.
Upplýsingar í síma 22912.
Hópferðabíll
fyrir 20—30 manns til flutninga á fólki
innanbæjar að og frá vinnustað óskast til
kaups, fremur ódýr bifreið.
Upplýsingar í síma 24980 og 32948.
Nokkur veiðileyfi laus í
Grímsá 18—24. júní
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
Háaleitisbraut 68.
Sími: 86050.
húsnæöi óskast
Vil taka á leigu
iðnaðarhúsnæði 100—200 ferm. Þarf
að vera á jarðhæð og tilbúið til notkunar
strax. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Strax
— 2156".
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
JófríöurRós Jóns-
dóttir—Minning
F. 28. júll 1970.
D. 7. júnl 1977.
„Á bak við heilaga harma er
himininn alltaf blár.“
Maður finnur það bezt, ef
maður missir ástvini sina með
snöggum hætti, hve gott það er,
að eiga um þá minningar, sem
einungis vekja í huga manns kær-
leika og gleði. Söknuðurinn er að
vísu alltaf sár, en það mildar sorg-
ina að minnast þess fagra og
hreina.
Allar minningar um Friðu Rós
eru góðar og gleðiríkar. Aðdáan-
leg var umhyggja hennar fyrir
bróður sínum. Unaðslegt að heyra
hana syngja, svo margt sem hún
kunni, og sjá litlu fingurna henn-
ar leika um gítarstrengina hennar
ömmu, rétt eins og hún væri lærð-
ur gitarleikari. Hrífandi að fylgj-
ast með glöggskyggni hennar á
ýmsu í tilverunni. Já, margar eru
minningarnar um hana. Guði sé
lof fyrir þær allar.
Við afi og föðurbræóur hennar
þökkun henni fyrir allt. Við biðj-
um Guð að blessa hana og leiða á
leiðum síns nýja lífs, og styrkja og
varðveita foreldra hennar og
bróður.
Guð blessi yndislegu vinu mína.
Nú gengur þú á Guðs þfns fund
og gæfu nýtur hverja stund.
Og englar fagrir annast þig
hin ótalmörgu þroskastig.
(J.G.S.J.)
Þfn amma.
Stutt er leiðin milli lifs og
dauða. Það eru orð að sönnu. Sú
harmfrétt barst mér og fjölskyldu
minni, að hin lífsglaða og káta
Frfða Rós, hefði látizt af völdum
meiðsla i bílslysi 7. júní, aðeins 6
ára gömul, en hefði orðið 7 ára
þann 28. júlí nk. Við slíkar sorgar-
fréttir setur mann hljóðan, og sú
spurning kemur upp í hugann
hver tilgangur lífsins sé? Var
þetta vilji Guðs, eða var litlu
fallegu stúlkunni ætlað annað
hlutverk. Þessu verður ekki svar-
að, en eitt vitum við, að hún Fríða
Sigurður Sigur-
jónsson -Minning
Fæddur 23. febrúar 1922
Dáinn 3. júnf 1977
Kveðja frá Málfundafélag-
inu Óðni
Sigurður Sigurjónsson verk-
stjóri, Drápuhlíð 17, Reykjavik,
varð bráðkvaddur 3. júni sl. er
hann var i kynnisferð með starfs-
mönnum Vita- og hafnarmáia-
skrifstofunnar úti í Noregi, en
hann hafði hlakkað mjög til þeirr-
ar ferðar.
Það er þungbært ástvinum að fá
slíka harmafregn og það er vissu-
lega skarð fyrir skildi er svo ágæt-
ur og mætur maður fellur frá á
bezta aldri.
Sigurður var mikili félags-
hyggjumaður og tók þátt í marg-
háttuðum félagsstörfum. Hann
var um langt árabil bíistjóri á
Vörubílastöóinni Þrótti og í
stjórn þess félagsskapar og for-
maður í nokkur ár. Þá var hann í
forustusveit Sjálfstæðisfiokksins
og i ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Málfundafélagið Óðin.
Sigurðar er gott að minnast, þar
fór prúður og traustur maður,
sem alls staðar fékk gott orð og
ávann sér vinfengi.
Ég sem þessar línur rita kynnt-
ist Sigurði er við vorum báðir í
stjórn Vbsf. Þróttar og störfuðum
síðan saman að félagsmálum Mál-
rundafélagsins Óðins. Alltaf
reyndist Sigurður hinn trúi og
trausti félagi og vinur, sem hægt
var að byggja á.
Sigurði fórust félagsmál vel úr
hendi, enda vel gefinn og ágæt-
lega máli farinn.
Fyrir nokkrum árum hætti Sig-
urður vörubílaakstri og gerðist
verkstjóri hjá Vita- og hafnamála-
skrifstofunni, honum líkaði það
starf mjög vel og fórst það vel úr
hendi.
Ég þakka Sigurði samstarfið á
liðnum árum og margar góðar
stundir.
Eftirlifandi eiginkonu hans,
Unni Bjarnadóttur, börnum og
öórum vandamönnum flyt ég hug-
heilar samúðarkveðjur.
Pétur llannesson
Rós litla er í góðum höndum
handan móðunnar miklu. Þegar
ég sá hina litlu fallegu stúlku
fyrst nýfædda, bar hún það með
sér að vera ákveðin og einbeitt,
enda var hún fljót til að taka sín
fyrstu spor. Friða Rós var dóttir
Sigurlaugar Guðmundsdóttur og
Jóns Valgeirs Guðmundssonar
húsasmiðs. Bjuggu þau Fríðu Rós
litlu og Gumma bróður hennar
fallegt og hlýlegt heimili að Daia-
landi 1, sem aetíð er ánægjulegt að
heimsækja.
Ákveðin í fasi og stjórnsöm var
Fríða Rós, það sýndi hún í þvi
sem hún tók sér fyrir hendur í
leik og í þeim verkefnum sem
henni voru falin á heimilinu. Litli
bróðir hennar Gummi leitaði mik-
ið til systur sinnar, því þar fann
hann styrk og huggun. Hann hef-
ur því misst mikið, en skilur ekki
enn, sorgina miklu, því hann er
aðeins 5 ára gamall.
Frfða Rós litla sýndi I skóla að
hún var bráðefnilegur nemandi,
hún var orðin vel læs og mjög
minnug á tölur og kunni t.d. á
klukku. En eitt af hennar aðal-
áhugamálum í skólanum sem ut-
an var skólaumferðarkennsla,
sem hún lærði mjög vel. Oft og
einatt setti hún ofanf við mig að
ég hefði ekki gert rétt í umferð-
inni, og að þessi og þessi hefði
farið yfir á rauðu ljósi, eða ekki
notað gangbrautina. Og þvf vakn-
aði sú spurning: Hvers vegna hún
hefði ekki notað gangbrautina
þennan afdrifaríka vordag eins
og alitaf áður? En vegir drottins
eru órannsakanlegir. Fjölskyldu-
tengsl Fríðu Rósar lítlu og minn-
ar eru mikil og eiga þær margar
ógleymanlegar ánægjustundir
saman.
Fríða Rós og dóttir mín Hrafn-
hildur voru sem litlar systur jafn
gamlar og áttu þær margar ham-
ingjustundir saman í leik. Hrafn-
hildur hefur því misst hugljúfan
og góðan leikfélaga með Frfðu
Rós. Fríða Rós sýndi f hinum
mörgu skemmti- og skíðaferðum
sem við áttum saman, að hún
hafði mikið og vaxandi vald á
sínum litlu skíðum, enda hennar
helsta áhugamál. Aðeins 5 ára
gömul var hún komin á fleygiferð
niður allar helstu skíðabrekkur
Bláfjalla, sVo að margur eldri
maðurinn leit upp til hennar og
öfundaði þessa litlu síbrosandi og
kátu stelpu, sem þeyttist fram hjá
þeim niður brekkurnar.
Hún hafði áhrif á margt barnið
f Bláfjöllum, sem var að fara sína
fyrstu ferð niður brekkurnar.
Hún var mikið eftirlæti foreldra
sinna, sem hvöttu hana með því
að gefa henni nýjan og vandaðan
skíðaútbúnað, svo árangurinn
yrði sem bestur. Áhugi hennar
var mikill á skíðaferðum i Blá-
fjöll, og féll varla nokkur helgi
úr. í Bláfjöllum með mömmu
sinni og pabba og Gumma bróður
sem reyndi eftir fremsta megni að
fylgja stóru systur eftir. Uppi í
Bláfjöllum á ég og min fjölskylda
margar ógleymanlegar ánægju-
stundir með Frfðu Rós litlu og
fjölskyldu hennar, sem nú syrgja
kátu litlu stúlkuna sfna, sem ætíð
kom öllum í gott skap, sem voru f
návist hennar.
Fyrir tæpu ári fór Frfða Rós og
fjölskylda ásamt minni til Lign-
ano á Ítalíu og áttum saman þar
gott sumarfrí, fórum til Feneyja,
Júgóslavíu, Austurrfkis og fl. og i
þessu ferðalagi sýndi það sig hve
Fríða Rós var gætin og passasöm
stúlka og hafði mikil áhrif á bróð-
ur sinn og dóttur mína, og nutu
þau styrks hennar á mörgum svið-
um svo unun var að fylgjast með.
Konu minni og mér þótti mjög
vænt um Friðu Rós litlu, og á
meðal okkar var hún sem okkar
eigin dóttir, þvi er sorg okkar
einnig mikil. Megi Guð styrkja
ömmu hennar og afa á Snorra-
braut og Réttarholtsvegi í þeirra
miklu sorg, þvf á þeim stöðum
sem öðrum var hún mikið uppá-
hald, og kom með sól og hlýju inn
á heimilin.
Votta ég þeim mína samúð svo
og öðrum ættingjum.
Elsku Silla, Jón og Gummi litli.
Á morgum þegar sólargeislinn
ykkar verður til moldar borinn,
veit ég að sorg ykkar er þyngri en
tárum taki. En það er huggun
harmi gegn að eiga góðar og fal-
legar minningar um fallegu, litlu
stúlkuna ykkar, og vita að leiðinni
er ekki lokið, þvf handan móðunn-
ar miklu bíður hennar verðugra
verkefni en hér á jörðu, því að við
trúum að þeir sem Guð elskar
deyji ungir.
Að lokum þessarar stuttu og
fátæklegu kveðju vil ég fara með
bænina hennar Frfðu Rósar.
Nú legg ég augun aftur,
ó Guð, þinn náðar kraftur
mín veri vörn f nótt.
Æ virst mig að þér taka.
Mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.
Sv.Eg.
Blessuð sé minning hennar.
Alexander H. Bridde.
Rctgnci Sigurgísla-
dóttir—Kveðja
Fædd 3. júnf 1919.
Dáin 6. júní 1977.
Aðeins örfáar lfnur til þess að
þakka Rögnu Sigurgísladóttur
fyrir alla þá tryggð og vináttu,
sem hún ætíð sýndi mér og mfnu
heimili, í meir en tvo áratugi. Ég
flyt einnig þakkir dóttur minnar,
sem nú.er búsett í Lundi í Svf-
þjóð, fyrir mikla umhyggju sem
Ragna sýndi henni í svo mörg ár.
Ekki hvarflaði það að mér er
við gengum hlið við hlið að það
yrði okkar sfðasta samverustund.
Svo snögglega sem kallið kom, er
við vorum í innkaupum til heim-
ila okkar. En einmitt þetta lýsir
þó betur en mörg orð að skyldu-
störfin innti hún af hendi, allt til
hinztu stundar og umhyggjan
fyrir öðrum sat i fyrirrúmi. Bless-
Afmælis- og minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á þvl, að afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á I miðvikudagsblaði, að berast 1 sfðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera I sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og með góðu Knubili.