Morgunblaðið - 15.06.1977, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.06.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JUNl 1977 23 Minning: Katrín S. Valdemars dóttir Hansen F. 24. ágúst 1917. D. 6. júní 1977. t dag verður Katrín Sigríður jarðsungin frá Laugarneskirkju. Hún var fædd og uppalin hér í Reykjavík. Móðir hennar, Hlíf, var dóttir Þorvaldar Skúlasonar Sivertssen, bónda og bókbindara f Hrappsey og konu hans, Helenar Ebenesersdóttur frá Skarði á Skarðsströnd. Faðir Katrínar, Valdemar Han- sen var fæddur og uppalin i Kaupmannahöfn. Hann kom hingað ungur að árum, sem skrif- stofumaður — og varð siðar for- stjóri Hins íslenzka steinoliu- hlutafélags, allt til þess er Olíu- félagið h/f. tók við verkefnum hins félagsins. Hann var i miklum metum hjá starfsfólki sínu, enda stjórnsamur og staðfastur, en ljúfmenni hið mesta, sem fljótt aðlagaðist íslenzkum aðstæðum. Heimili Hlífar og Valdemars varð brátt vel þekt hér í bænum fyrir gestrisni og menningarbrag. Á þessu ágæta heimili ólst Katrín upp, ásamt bróður sínum Georg, sem var 5 árum eldri og sfðar varð bankaútibústjóri Landsbankans á ísafirði. Hann dó miðaldra og var öllum harmdauði. Árið 1939 giftist Kartín eftirlif- andi manni sinum, Leifi Guð- mundssyni, ættuðum frá ísafirði — og verið hefur forstjóri Mjólkurfélags Reykjavíkur um mörg undanfarin ár en einnig starfað mikið að æskulýðsmálum, einkum skáta. Árið 1946 byggðu þau hús sitt að Sörlaskjöli 28, en fluttust 10 árum sfðar i húsið við Laugarnesveg 50, þar sem Katrín starfrækti vefnaðarverzlun um árabil ásamt, húsmóðurstörfum og voru börn þeirra þá orðin þrjú, ein dóttir og tveir synir, eins og siðar getur. Mörg voru áhugamál hinna samrýmdu hjóna, m.a. ræktun blóma og trjágróðurs. Ekki eingöngu við hús þeirra hér i bænum, heldur og við þeirra annað heimili, sumarbústaðar og landspildu i Svínahlíð við Þing- vallavatn. Þar breyttu þau grýttu landi i gróðurreit. Þar iðkuðu þau einnig útivist og veiðar í vat'ninu. Þar nutum við, vinir þeirra, ógleymanlegrar gestrisni og glað- værðar samhuga hjóna og barna. En Katrin átti einnig félagsleg áhugamál, eins og maki hennar. Stuttu eftir að fjölskyldan fluttist í Laugarnessókn var hún kosin i stjórn kvenfélags kirkjusafn- aðarins þar — og átti trýnaðar- traust allra, sem með henrii störf- uðu. Börn þeirra hjóna eru: Hlíf, gift Theodór Þorvaldssyni vél- stjóra frá Keflavik. Þeirra börn eru: Katrín Sigriður, Björg og Karen; Guðmundur, vélvirkja- meistari, giftur Helgu Gunnþórs- dóttur frá Dæli i Víðidal, þeirra börn eru Inga Katrin og Leifur; Valdimar, giftur Bryndísi Kristjánsdóttur, sonur þeirra er Arnar Steinn. Valdimar er að ljúka námi í kvikmyndagerð i Hollywood og eru hjónin búsett þar. Katrínu var ljóst að hverju stefndi með líf og heilsu. Skömmu fyrir andlátið bað hún þess að sér yrði ekið austur að Þingvalla- vatni. Þá kvaddi hún landið sitt í sumarskrúða. Hún bað þess einn- ig að við útför sína yrði allt haft eins fábrotið og unnt væri. Ekki ræðuhöld — og engar raunir rakt- ar. Lífið héldi áfram, bæði hér á jörðu — og handan grafar. Við gætum mikið lært af skapfestu og skilningi þessarar konu. Hún var þakklát lífinu, iæknum sinum, eiginmanni og ættingjum. Ég helga henni þetta vísubrot: Sakna ég sumars, sólar og hlv ju, veit þó að vorið vaknar að nýju. Jón Oddgeir Jónsson. Trausti Ingvarsson Akranesi — Minning F. 15. júlí 1926. D. 9. júnl 1977. Skjótt hefur brugðið sól á sumri. Þessi orð komu upp í huga minn er ég heyrði lát mágs mins, þótt ég hefði inni í innstu vitund gert mér ljóst, að á þennan veg færi i þessum miklu veikindum sem hann hafði átt við að striða á siðastliðnum vetri. Trausti Ingvarsson var fæddur hinn 15. júlí 1926 að Stíflu í Vest- ur Landeyjum, sonur hjónanna Hólmfríðar Einarsdóttur frá Berjanesi í Vestur Landeyjum og Ingvars Sigurðssonar sem einnig er --ættaður úr Landeyjum. Þau búa nú háöldruð í Hafnarfirði. Trausti ólst upp i hópi níu al- systkina og tveggja hálfsystkina fyrst i Landeyjum þar sem hann gekk í barnaskóla og að Krossi í Austur Landeyjum og fluttist síð- ar ásamt foreldrum og systkinum að Selskarði á Álftanesi, þar sem hann lauk skólanámi sinu i Garða- skóla. Ungur að árum fór hann að vinna fyrir sér, enda var hann maður vel verki farinn, stór og stæðilegur og harðduglegur til vinnu, hann stundaði sjó frá Hafnarfirði og vann samhliða því ýmis störf i landi. Hann fluttist til Akraness árið 1947 og hóf þá störf við bifreiða- akstur hjá Hval h.f. í nokkur ár, unz hann varð sjálfstæður at- vinnurekandi og eignaðist sfna eigin vörubifreið um árið 1950 og gerðist þá félagi í Vörubílastöð Akraness, og vann við þau störf til ársins 1972 að hann hóf störf hjá Sementsverksmiðju rikisins, og starfaði þar fram á siðastliðið haust. í daglegu lífi sinu var Trausti hinn dagfarsprúði maður sem aldrei tranaði sér fram, hann mátti ekki vamm sitt vita i neinu, öllum vildi hann hjálpa og eink- um þó þeim sem minnimáttar voru og var hann þá stórtækur, enda sló viðkvæmt hjarta inni fyr- ir. Hann átti erfitt með að sætta sig við hrjúfán hugsanagang og óréttlæti, hann var maður greind- ur vel og traustur, en höfuðein- kenni hans var þó lipurð og hóg- værð, helst kom þetta fram hjá honum i góðum samskiptum hans við aldraða tengdamóður sína, sem nú verður að sjá á eftir enn einum syni sinum á besta aldri, en sú kona er Ólöf Guðmunds- dóttir, vestfirsk að ætt og upp- runa og ein af þessu vestfirska kjarnafólki sem engin áföll fá sjáanlega bitið á. Á þessum degi eru mér ofarlega i huga okkar samverustundir þeg- ar hann var vörubílstjóri, og ég lítill snáði i minni heimabyggð, er hann stöðvaði vörubíl sinn til að leyfa mér að sitja i, en það var sú sæla sem ungir menn gátu helst óskað sér í þá daga, en þetta var áður en hin mikla bílaöld gekk i garð. Hinn 5. júni 1953 gekk Trausti að eiga Agnesi Sigurðardóttur, dóttur hjónanna Ólafar Guð- mundsdóttur og Sigurðar Hall- bjarnarsonar útgerðamanns á Akranesi, sem er dáinn fyrir mörgum árum. Þau hófu búskap fyist á Vesturgötu 17, Akranesi, hjá Ólöfu móður Agnesar, en síð- ar reistu þau sér fallegt ibúðar- hús að Hjarðarholti 18, Akranesi, með sinum eindæma dugnaði og samhug. Þeim varð þriggja barna auðið, en einn son átti Trausti áður en hann giftist, Jakob Adolf, ser búsettur er í Keflavík. Bör: þeirra eru Ólöf Guðrún, sem bt sett er í Bandaríkjunum og gii bandarískum manni Ron Hester yngri börnin tvö, þau Ingva Hólm og Ástríður Hólm, eru heimahúsum. Við biðjum algóðan Guð ai styrkja aldraða foreldra hans oj tengdamóður, ekkju hans oj börn. Ég votta þeim innilega sam úð mína og fjölskyldu minnar, oj um leið þökkum við hinum látn: vini fyrir allt og allt. Blessuð si minning hans. Rafn Sigurðsson t Eiginkona mln GUÐRÍÐUR ERNA HARALDSDÓTTIR, Ljósheimum 14a, andaðist á Landspítalanum þann 1 3. júní s.l. Fyrir hönd allra aðstandenda. Reynir Kristinsson. t Útför eiginmanns mlns og föður okkar GUNNARS H. HERMANNSSONAR. Brúarflöt 2. Garðabœ. verður gerð frá Þjóðkirkjunni I Hafnarfirði fimmtudaginn 16. júnl kl 1 ^ Kristfn Önundardóttir Bjarni Gunnarsson Kristján Gunnarsson Salome Gunnarsdóttir Haraldur Gunnarsson Kristjana Una Gunnarsdóttir Hafsteinn Gunnarsson GerSur Gunnarsdóttir Hrafnhildur Hafnfjörð t Litla dóttir okkar JÓFRÍÐUR RÓSA Dalalandi 1 verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 1 6. júnf kl 1 5. Sigurlaug Guðmundsdóttir Jón Valgeir GuSmundsson t Móðir okkar JÓNEA SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR. andaðist að Hrafnistu 1 3 júnl. Úlfar Magnússon og Systkini. t VILBORG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Sandaseli, Meðallandi, andaðist 1 3. júnl Jóhann Þorsteinsson og böm t Útför föður mlns og bróður, VETURLIÐA GUÐMUNDSSONAR fer fram frá Frlkirkjunni I Reykjavlk fimmtudaginn 16 júntkl 10.30 Fyrir hönd vandamanna Guðrún Veturfiðadóttir, Jónas Guðmundsson t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar VALDIMARS SIGURÐSSONAR, Jóhann Valdimarsson, Esther Valdimarsdóttir, Erla Valdimarsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, eiginmanns mlns og föður GESTSREYNIS GUÐJÓNSSONAR BogahHð 7, Jóna M. Sigurðardóttir, Sólveig Reynisdóttir. t Alúðar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns mlns, föður, tengdaföður og afa SIGURÐAR Þ. GUÐMUNDSSONAR frá Háhóli Aðalbjörg Bjarnadóttir Völvufelli 48 börn tengdabörn og barnabörn. LOKAÐ Vegna jarðarfarar verður vöruafgreiðslum, mat- vöruverzlun og skrifstofu félagsins, lokað frá kl. 1. e.h. miðvikudaginn 1 5. júni. Mjólkurfélag Reykjavíkur. Lokað eftir hádegi á morgun, fimmtudag vegna jarðar- farar. GUNNARSHERMANNSSONAR skipstjóra P O Box 5030 Reykjavik

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.