Morgunblaðið - 16.07.1977, Síða 15

Morgunblaðið - 16.07.1977, Síða 15
Laugardagur jKgtntlrfofrUk 16. júlí 1977 íielmut Schmidt iarófylginn maður, sem talar tæpitungulaust Þegar Helmut Schmidt tók við kanslaraembætti í Vestur-Þýzkalandi fyrir rúmum tveimur árum, átti flokk- ur sósfal-demókrata mjög í vök að verj- ast. Innan flokksins rikti óeining og leiðtogi hans og þáverandi kanslari, Willy Brandt, var gagnrýndur bæði fyrir stefnu sína og stjórn flokksins. Þegar njósnarinn Giinther Guillaume, sem verið hafði náinn aðstoðarmaður kanslarans, var handtekinn, sá Brandt sér ekki fært að sitja áfram í embætti, þótt ekki gæti njósnahenykslið skrifazt á reikning hans nema sem vanrækslu- synd. Um það leyti, sem Brandt sagði af sér, sýndu skoðanakannanir, að fylgi flokksins var ekki nema um 27%. Það hafði aldrei verið minna, en aðeins tveimur árum áður þegar flokkurinn vann sinn mesta kosningasigur árið 1972, fylktu sér um hann tæp 45% þjóðarinnar. Hafði á þessum tíma stöð- ugt hallað undan fæti fyrir flokknum, og virtist allt leggjast á eitt. Stjórnin var sökuð um vanefndir kosningalof- orða, órólegt var á vinnumarkaði, ost- pólitík Brandts, sem hann taldi sjálfur eitt mesta afrek sitt í stjórnmálum, var á góðri leið með að renna út i sandinn, og kanslarinn var sakaður um undan- látssemi við kommúnista og rangt mat á utanríkismálum, enda þótt enginn bæri brigður á að tilgangurinn væri góðra gjalda verður. Þegar ofan á allt þetta bættist, að kanslarinn hafði alið austur-þýzkan njósnara eins og snák sér við brjóst, var mælirinn fullur. Hann átti ekki annars úrkosti en að segja af sér. Þannig var ástandið er Helmut Schmidt tók við, en I kosningunum í október 1976 hlaut Sósfal- demókrataflokkurinn 42.6% fylgi. Ekki mátti tæpara standa, flokkurinn tapaði að vísu verulegu fylgi milli kosninga, og enda þótt Kristilegir demókratar væru hinir raunverulegu sigurvegarar í þessum kosningum, gilti hér enn sem fyrr spurningin um að vera eða vera ekki. Frjálsir demókrat- ar höfnuðu bónorði Kristilegra demó- krata, en kusu í staðinn áframhaldandi stjórnarsamvinnu viðflokk Schmidts. Helmut Schmidt hefur allt frá því að hann hóf afskipti af stjórnmálum feng- ið orð fyrir að vera maður harðfylginn, sem ekki skortir sjálfstraust. Hann er vanur að tala tæpitungulaust, hvort sem í hlut eiga háir eða lágir innan flokksins. Mislfki honum á hann það til að móðga menn, en sú óvild, sem slíkt hefur á stundum bakað honum, hefur sjaldan háð honum til frambúðar. Hann er, eins og ófáir meiriháttar stjórnmálamenn, einfari, þótt hann eigi ekki bágt með a blanda geði við menn þegar á þarf að halda. Þegar Brandt sagði af sér þurfti flokkur sósíal-demókrata umfram allt á sterk- um leiðtoga að halda, sem treystandi var til að halda uppi aga í flokknum, og sá maður var óumdeilanlega Helmut Schmitd. Kanslarinn var að því spurður hvort úrslit kosninganna og fylgistap jafn- aðarmannaflokka annars staðar i Evrópu um sömu mundir, ásamt þeirri staðreynd, að stjórn hans hefði nú ekki nema 8 sæta meirihluta á þingi i stað 28 áður, hefðu þau áhrif að hann drægi saman seglin, gerði út á lygnari mið og sveigði stefnuna nær miðju, var svarið hreint og afdráttarlaust nei. Það skipti ekki máli, sagði kanslarinn, hvort stjórnin hefði mikinn meirihluta eða nauman, — meirihluti f sjálfum sér nægði til að framfylgja ákveðinni stefnu. Hann bætti því við, að naumur meirihluti gæti komið f góðar þarfir, því að hann gerði það að verkum, að hægara væri að halda uppi aga meðal þingmanna stjórnarinnar. Þessi um- mæli bera þess augljóst vitni, að hér er á ferðinni maður, sem ólíklegur er til að láta tímabundnar aðstæður og at- kvæðahagsmuni ráða gerðum sínum. Um þær mundir sem fylgi reittist af flokknum jafnt og þétt f byggðakosn- ingum árið 1974 og sósfal-demókratar urðu meðal annars að sjá af öruggu vfgi sínu í Hamborg, sem í þokkabót er heimakjördæmi Schmidts, kallaði Brandt fyrir sig helztu leiðtoga flokks- ins og spurði þá einn af öðrum um framlag þeirra til kosningabaráttunn- ar. Þegar röðin kom að Schmidt hreytti hann út úr sér: „Ekkert", og snéri sér að bragði að þvf að gagnrýna Brandt fyrir stjórn hans á flokknum. Helmut Heinrich Waldemar Schmidt fæddist í Hamborg 23. desember 1918. Faðir hans var kennari og fékk dreng- urinn dæmigert miðstéttaruppeldi. Bernskuslóðirnar voru í Barmbek — íbúðarhverfi, sem að mestu leyti er byggt verkamannafjölskyldum og þar sem kommúnistar höfðu mikil áhrif. Hið stjórnmálalega andrúmsloft hafði þó ekki áhrif á Schmidt í uppvextinum, því að hann hefur alla tíð verið ein- dreginn andstæðingur kommúnista. Þegar hann hafði aldur til gekk hann í lið með Hitlers-æskunni, eins og svo f jölmargir þýzkir drengir á þessum ár- um. Á unglingsárunum var hann um tfma í þegnskylduvinnu, en þegar hann var um það bil að hefja háskólanám til að verða húsameistari, var hann kallað- ur i herinn. I stríðinu barðist Schmidt fyrst á austurvígstöðvunum en sfðar f Vestur- Evrópu. I stríðslok tóku Bretar hann til fanga, og i fangabúðunum varð hann fyrir þeim stjórnmálaáhrifum af félög- um sfnum, sem sfðan leiddu til þess að hann gekk í flokk með sósfaldemókröt- um. Við heimkomuna hóf hann hag- fræðinám við Hamborgarháskóla, en að því loknu var hann við stjórn efnahags- og samgöngumála i Hamborg, sem var að rísa úr öskunni, jafnframt þvf sem hann var virkur þátttakandi i flokks- starfseminni. Helmut Schmidt var fyrst kjörinn á sambandsþingið er hann var 34 ára að aldri, og þar hefur hann átt sæti sfðan, að undanskildum fjórum árum, er hann var þingmaður á fylgisþinginu i Hamborg, þar sem hann var umsvifa- mikill og vakti meðal annars á sér óskipta athylgi fyrir forystu sfna i björgunarstarfi þegar mikil flóð urðu við norðurströnd Þýzkalands, og þótti ýmsum hann vera þar stjórnsamur um of og varpa skugga á borgarstjóra og Framhald á bls. 16. Helmut Schmidt Hannelore Schmidt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.