Morgunblaðið - 16.07.1977, Síða 20

Morgunblaðið - 16.07.1977, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLI 1977 r v Margir sagnfræðingar vilja haida þvf fram að undanfari þess að Evrópa lagði undir sig heiminn, hafi m.a. verið Hansa- sambandið þýzka, formlega stofnað 1 Kölr árið 1397 af 70 þýzkum borgum. Þótt þýzkir nútfmasagnfræðingar telji margir að hér hafi ekki verið um formlegt banda- lag að ræða, þar sem engin virkileg yfir- stjórn eða framkvæmdastjórn hafi verið að baki og þvf ekki bandalag f okkar skilningi. Þjóðverjar hófu siglingar hingað í kjöl- far Englendinga, sem sigldu til íslands snemma á 14. öld og voru þær siglingar bein afleiðing þeirrar miklu tæknibylting ar, sem átti sér stað um aldamótin 1400. En þá fóru menn að sigla tvísigldum skip- um í stað einsigldra áður og gerði sú uppfinning „skipið fært í flestan sjó“, þar eð menn réðu nú nokkurn veginn ferðinní sjálfir og gátu siglt bæði á sumrum sem vetrum. Á þessum tímum var Island ævintýra- eyjan á heimsenda, Ameríka var enn ófundin og fáir vissu um Grænland. Eyjan norður í úthafi varð margs vald- andi. Hér börðust þýzkir og enskir um yfirráðin yfir verzlun og veiðum og Danir réðu yfir mikilvægri siglingaleið hingað, sem var Eyrarsund, sem með tímanum styrkti stöðu Dana hér og ein afleiðing þess var einokunin árió 1602, en það er önnur saga. Þjóðverjar þá sem nú voru ein fjöl- mennasta þjóð í Vestur-Evrópu, þótt þeir kæmu seint inn í djöfladansinn eða út- þenslustefnu Evrópu á þessum tímum. Fyrsta úthafssigling þeirra var árið 1416 og fyrsta þýzka skipið, sem óyggjandi heimildir eru til um að hafi siglt til Is- lands frá Þýzkalandi, kom frá Danzig árið 1433 og hafði hér vetursetu. Hvort sem Danzigmenn hafi fengið spurnir af Islandi frá Englendingum eða öðrum þá kemur tsland fyrst inn á spjöld sögunnar í sögu Hamborgarbiskupa, rit- aðri af þýzkum sagnfræðingi á 8. áratug 11. aldar og er þar farið lofsamlegum orðum um eyjuna i Norður-Atlantshafi. ISLEIFUR I KVENNASKÓLA IÞVZKALANDI Upphaf menningarlegra samskipta Is- lands og Þýzkalands má segja að hafi verið för Isleifs síðar biskups í Skálholti, kannski fyrsta Islendingsins, sem lærði að lesa og skrifa, en hann sótti kvenna- skóla(!) í Rinarlöndum og eflaust hefur honum líkað vistin vel því síðar sendi hann Gissur son sinn til náms á sömu slóðir. Þá er einnig talið að Sæmundur fróði hafi öðlazt einhverja fræðslu hjá Þjóðverjum. Eftir að Isleifur biskup Giss- urarson kom heim frá kvennaskólanám- inu, hlaut hann biskupsvígslu árið 1096. Þaðan í frá leituðu Islendingar til erki- biskupsins i Brimum, þar til erkibiskups- stóll var settur í Lundi, 1104. En þrátt fyrir þessi fornu menningar- samskipti hélt Island áfram að vera ein- angrað bændaþjóðfélag norður i hafi og fáir þegnar þess áttu kost á að sækja menntun sína út fyrir landsteinana. Ein- angrunin rofnaði ekki að ráði fyrr en hart nær þremur öldum eftir að Isleifur kom heim frá námi, en þá átti sér stað úti i hinum stóra heimi gifurleg tæknibylting, sem varð til þess að færa þjóðirnar saman um leið og afleiðingar hennar urðu styrjaldir og sundrung. En á uppgangsár- um tæknibyltingar þessarar herjaði svarti dauði land okkarogþjóð (1402—1404) og fáir urðu til að sigla hingað. Islendingar voru þess utan ekki athafnasöm siglinga- þjóð, en samt þjóð, sem hafði fulla þörf fyrir boðorð miðalda, sem var: Soltin þjóð flytur ekki út matvæli frá sveltandi lýð nema hún fái matvæli í staðinn. En skreiðina okkar gátum við ekki flutt Samskipti íslendinga c út sjálf og því urðum við að bíða eftir því að þeir, sem meira máttu sin, kæmu til okkar i staðinn, eins og Björn Þorsteins- son prófessor komst að orði. Frá þvi á miðri 14. öld höfðu þýzkir Hansakaupmenn keypt sína skreið í Björgvin en þar var stabúla skreiðarmark- aðarins í norðri. Voru það aðallega kaup- menn frá Lýbiku, sem var voldugasta borgin innan þýzka Hansasambandsins. Lýbikumenn höfðu öll yfirráð yfir korni sem og borgir austan Jótlandsskaga. Vest- ur-þýzku Hansaborgirnar með Hamborg og Brimar í fararbroddi höfðu hins vegar áhuga á að sækja skreið sina til Islands, þar sem hún fengist ódýrari. Lýbikumenn vildu hins vegar byggja Björgvin upp og settu Hamborgurum og Brimurum stólinn fyrir dyrnar með því hreinlega að banna þeim að sækja skreið til norðlægari slóða, svo sem Orkneyja, Hjaltlands og Islands, snemma á 14. öld. Því voru Englendingar svo að segja einráðir á íslenzka skreiða- markaðinum framan af 14. öld. tSLAND OLLI KLOFNINGI ÞVZKALANDSIAUSTUR OG VESTUR? Þar eð Lýbika hafði töglin og hagldirnar sem kjarni norður-þýzka Hansasambands- ins má segja að hún hafi stuðlað að yfir- ráðum Englendinga hér við land. Hins vegar mætti einnig i því sambandi segja að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi, þ.e. að Island hafi orðið þess valdandi að Þýzka- land klofnaði í Austur- og Vestur- Þýzkaland, því Hamborgarar og Brimarar virtu boð og bönn Lýbikumanna að vett- ugi, þegar fór að liða á 15. öldina og með aðstoð Danakonungs, sem þeir höfðu lengi komið sér i mjúkinn hjá, t.d. með því að hylla hann opinberlega árið 1461 sem sinn ,,Schiltsherr“ eða verndarherra, hófu þeir siglingar hingað upp úr 1470. A tímabilinu 1460—70 voru Orkneyjar og Hjaltland innlimuð í Bretlandseyjar og þá hófst jafnframt samkvæmt kenningu dr. Björns Þorsteinssonar þriðja þorska- stríðið. Danakonungur réð yfir mikilvægri siglingaleið, Eyrarsundi, eins og fyrr seg- ir. Árið 1450 lýsti Krisján 1. Danakonung- ur yfir hörðum refsiaðgerðum, ef þeir sigldu hingað án leyfisbréfs, „Langa- réttarbót". Englendingar voru samt alls- ráðandi við tsland, höfðu umsvifamikinn atvinnurekstur í landi og konungur þeirra lét sjálfur gera út skip til Islands og selja þegnum sínum leyfisbréf til ferðarinnar norður. Um 1460 tók Englandskonungur jafnvel að eigna sér landið: „vort land Island“ (terra nostra Islandia.) Upphaf þriðja þorskastríðsins var morð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.